Tíminn - 31.05.1986, Side 14

Tíminn - 31.05.1986, Side 14
14 Tíminn Scantool Bandslípivélar SCANTOOL 75x2250 mm Kr. 55.040 m.sölusk. SCANTOOLI 100x1500 mm Kr. 26.719 m.sölusk. Dönsk gæðavara ■ \0 J jj^_ ^ 71 - VÉLAVERSLUN Bíldshöföi 18 • 112 Reykjavík • Sími 685840 Til sölu notaðar vélar Traktorar Belarus 820x4 árg. ’83 Zetor 6945x4 árg. 79 Ursus C-360 árg ’80 Ursus C-335 árg. 77 MF 240 árg. ’83 MF 130 árg. ’83 Heyhleðsluvagnar Class 26m3 árg. 78 Eli 24m3 árg. ’81 Kemper 24m3 árg. 71 Yfirfarnar heyvinnuvélar Spragelse sláttutætari árg ’82 Farenslöse sláttyþyrla árg. ’84 Ath. Vantar vélar og tæki á skrá. BOÐI HF KAPLAHRAUNI 18 220 HAFNARFIRÐI: S-91.651800 Bændakonur ath. 10 ára prúð og barngóð stúlka óskar eftir að gæta barna og vinna létt störf upp í greiðslu. Uppl. i síma 39713 - 671873 - 83703. Laugardagur 31. máí 1986 Trúbadorinn Bubbi Morthens. LOKSINS Sönn trúbadorplata með Bubba Morthens „Það er fyrst núna að Bubbi sendir frá sér plötuna sem hann hefur lengi ætlað að gera, sanna trúbadorplötu,“ sagði Ási í Gramm- inu, þegar Tíminn leitaði frétta af Bubba Morthens, en Grammið mun gefa út þessa nýju plötu hans. Eins og margir vita hefur Bubbi gert samning við sænskt hljómplötu- fyrirtæki og hefur hann unnið að upptökum þár í landi. Nú hefur verið ákveðið að sú plata komi út síðari hluta ársins og þótti þá við hæfi að gefa áðurnefnda plötu út núna. Plata Bubba verður tvöföld og öll órafmögnuð. Helmingur laganna er tekinn upp á tónleikum, annað í hljóðveri. Rætur tónlistarmannsins Bubba Morthens liggja í trúbador- mennskunni, hann byrjaði í þeirri tegund tónlistar og var búinn að spila lengi þegar hann sneri sér að rokkinu og stofnaði Utangarðs- menn. En þó Bubbi hafi verið okkar sterkasti rokkari unt margra ára skeið sagði hann aldrei skilið við trúbadorinn eins og þeir vita sem sótt hafa tónleika hans. Ásmundur Jónsson, eins og Grammarinn heitir fullu nafni, sagði liðið ár afkastamikið í trúbadors- mennsku Bubba og sagði hann útgáf- una virkilega þarfa, þar sem Bubbi hafi alltaf verið vaxandi söngvari og lagasmiður. Á plötunni er að finna lög sem Bubbi hefur aldrei gefið út áður, auk eldri laga í nýjum útsetningum. Nokkur lög á plötunni hafa komið út með rokkaranum Bubba Morthens, þar má nefna lögin Blindsker og Giftu þig 19, sem voru á plötu Das Kapital og í spegli Helgu, sem var á Egó plötunni I mynd. En þessi lög fá allt aðra meðhöndlun hjá trúba- dornum Bubba og varla mun vera hægt að segja þetta sömu lögin. Nokkrir blúsar verða á plötunni, örfáir gamlir í nýjum útsetningum, þar á meðal Segulstöðvarblúsinn og Skeggrótarblúsinn og ísbjarnarblús- inn sem er dúett með Megasi. Þeir félagarnir eiga annan dúett á plöt- unni, en það er bragurinn um Jónas Hallgrímsson, sem finna má á fyrstu plötu Megasar. Bandaríski blúsarinn Leadbelly er hefur haft mikil áhrif á Bubba, en Bubbi tekur einmitt tvo blúsa eftir hann á nýju plötunni. Nýja platan kemur væntanlega út um miðjan næsta mánuð og ætti að verða kjörgripur í plötusafn þeirra sem dálæti hafa á trúbadornum Bubba Morthens. ÞGG Simply Red á Listahátíð Þetta eru ljótu karlarnir í Stranglers, þeir hættu bara við Listahátíðina okkar, eins og allir hlökkuðu til. En við höfum röska menn sem bjarga þessum málum og núna hefur það verið afráðið að nýstyrnin í Simply Red sæki okkur heim. Steinar Bcrg sagði í samtali við blaðið að sú hljómsveit hafi reyndar verið á lista hjá sér þegar hann leitaði eftir hljómsveitum á hátíðina í upphafi þessa árs. Pá var hljóm- sveitin ekki eins þekkt og hún er í dag og hann sagðist ekki hafa viljað taka óþarfa áhættu með þá hljóm- sveit. Núna er hinsvegar annað upp á teningnum. Lagið Holding Back the Years er komið hátt á vinsælda- lista um alla Evrópu, er þessa vikuna í 6. sæti breska listans og stefnir upp á við. Plata sveitarinnar Picture Book stefnir sömuleiðis hátt og má geta þess að nefnd plata situr nú í 6. sæti DV listans, en sá listi er miðaður við plötusölu. Nýjustu fréttir herma að sveitin sé að hasla sér völl í Banda- ríkjunum. Hver veit nema Simply Red verði komin á toppinn í Bret- landi um þær mundir sem hún sækir PLÖTUR IIIIIIIIIIIIIIIIJIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIB Rolling Stones - Dirty Work Lítið nýtt Mér finnst það alltaf jafn skondið þegar ég man eftir því að „strákarn- ir“ í Stones eru á aldur við pabba, - og þvílík orka og þvílík ending. Peir virðast ekki geta hætt og það er af hinu góða, því þeim fe'r vel að vera strákarnir í Stones. Nokkur ár eru nú liðin frá síðustu plötu hljómsveitarinnar þannig að hin nýja, Dirty Work. var sannkall- aður hvalreki á fjörur fjölmargra aðdáenda hljómsveitarinnar og þeir svíkja ekki unnendur rokksins, það eitt er víst. í raun og veru er það furðulegt hvernig Rolling Stones hefur getað haldið ferskleikanum og um leið varnað því að verða of fágaðir. Það er einmitt þess vegna sem hljóm- sveitinni hefur auðnast þessi langi aldur. Nýja plata Rolling Stones. Dirty Work inniheldur 10 lög, þar af átta frumsamin. Þar er að venju hlutur þeirra Jaggers og Richards metur. cn þáttur Ron Woods verður sífellt meiri og er hann skrifaður meðhöf undur þeirra Jaggers og Richards í fjórum lögum plötunnar. Rolling Stones er rokkhljómsveit og sem slík bregst hún ekki vonum manna með DirtyWork og ég er ekki frá því að platan sé rökkaðri en síðustu plötur hljómsveitarinnar. En okkur heim, það væri skemmtileg tilviljun. Steinar Berg sagði að Simply Red ætti miklar þakkir skildar fyrir fljót viðbrögð. Þeir verða að spila á miklu festivali í Múnchen 15. júní, koma hingað með flugi árla þann 16., spila í Höllinni þá um kvöldið og kveðja landið strax næsta dag. Það er mikið að gera hjá þessum mönnum og vonandi gleðjast sent flestir yfir gerðum samningum við hljómsveit- ina. ÞGG einn galli finnst mér þó vera á plötunni og hann er sá að á köflum minnir Dirty Work á sólóplötuMick Jaggers Shc’s the Boss, stm út kom á síðasta ári, sérstaklega lögin One Hit (To the Body) og gantli smellur- inn Harlem Shuffel. Ekki svo að segja að sú plata hafi verið vond heldur kom Jagger þar fram sem sólóisti og ætti ekki að leika sama leikinn með hljómsveitinni Rolling Stones. Platan Dirty Work er vel gerð plata enda ættu liðsmenn hljómsveit- arinnar að vera farnir að þekkja hver annan eftir áratuga samstarf. Saman hafa þeir skapað ódauðlegar rokkperlur þó ég eigi tæpast von á því að slík gullkorn megi finna á Dirty Work. Platan er engu að síður hin áheyrilegasta og Stones aðdáendur ættu að gleðjast, en ekki á ég von á því að þeir félagarnir stækki aðdáendahópinn með plöt- unni Dirty Work. ÞGG

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.