Tíminn - 01.06.1986, Qupperneq 18

Tíminn - 01.06.1986, Qupperneq 18
 Á s 0 S R i B fi P S T R 'fí K u R > þ fl \L L ■ 'r U O P R ú M ú r E y ri R fí v' L 0 ÍF s fl fí K u R T 1 lN « T L fl S Ý r U M A R M U i A L r fí r J fl L a K A T T fí M R M G u N 6 L r ° F U R T fl iL fl ft fí R H h K fí ? ft L L 11 N N T l V U K T1 fí s 'fí CÚ n fí 'fí Ð V ll fí L fí R ú r M 0 K S T U R 5 R fl Jí E 1 R P R I M (> S V 1 r 1 N 77 D K K 7 3 L P- r Ð m a‘ T 'fí R A D Ý l K fí N N fí s Ý 0 L fl S T fl U T M fí L V 1 N V fl G fí L E jsO fl K R A 'fí S r fí N Mi fk R Öl ‘ K. ~K] u R L r- Q) C W 3 Q)> cy c 0) CQ Q)> M ATKVÆÐASEÐHL í sönglagakeppni Reykjavíkurborgar Hafið atkvæðaseðilinn við hendina þegar lögin verða flutt í Sjónvarpinu í kvöld. Gefið aðeins einu lagi atkvæði með því að setja X í rammann fyrir framan nafn lagsins. □ BÆRINNMINN (Björgvin HaUdórsson syngur) □ BREYTIR BORG UM SVIP (Helga Möller syngur) □ HÚN REYKJAVÍK (Björgvin og Helga syngja) □ SAMVISKAN (Björgvin syngur) □ UNGA REYKJAVÍK (Helga syngur) Póstleggið atkvæðaseðilinn í allra síðasta lagi á hádegi miðvikudaginn 4. júní. Utanáskrift: Söngvakeppni Reykjavíkurborgar Austurstræti 16,101 Reykjavík Sængurmenn og óléttir karlmenn Sérfræðingar segja að mögu- legt sé að karlmenn gangi með barn og séu ófrískií. Mannsfóstri er komið fyrir við þarma fyrir neðan maga og slík aðgerð ætti að vera möguleg innan fimm ára, segir í breska tímaritinu Nýju samfélagi sem kom út í upphafi þessa mánaðar. „Tæknilegir örðugleikar eru miklir,“ hefur tímaritið eftir Alan Trounson, sem er sérfræðingur í frystingu fósturs og forstöðu- maður deildar innan Monash háskóla í Melbourne í Ástralíu sem rannsakar vöxt og þroska manna frá getnaði til grafar. „Og þar að auki verða sið- ferðileg vandamál í kjölfari þessara uppgötvana. En aðgerð- in er möguleg hafni fóstur ekki hinu nýja foreldri eða að maður- inn hafni aðskotahlutnum," sagði Trounson ennfremur. „Þetta er hægt og eflaust verð- ur einhver til þess að reyna það,“ segir í tímaritinu að John Parson, prófessor við spítala Kings háskóla hafi, sagt en har.n fæst við félagsleg málefni og slík vandræði. Nýtt samfélag segir að þungun karlmanna hafi verið raunhæfur möguleiki allt frá 1978, er fyrst fæddist utanlegsfóstur eftir gervifrjóvgun. Tímaritið bendir á, að sér- fræðingar telja að egg sem frjóvguð eru á þennan hátt ætti að vera hægt að færa yfir til karlmanns sem tekur hormónin östrógen og prógesteron til að örva breytingar sent eðlilega koma til í líkama konunnar í upphafi meðgöngutíma. Slíka meðferð má byggja á þeirri er beitt er við óbyrjur. Karlmannsþungun lýkur eðli- lega með keisaraskurði, þar sem barnið er í heiminn borið með því að sníða op á kviðinn, svo þýtt sé úr frétt Reuters um þessi efni. Sú aðgerð mun ekki vera hættulegri en keisaraskurður á konu sem þunguð hefur orðið með eðlilegum hætti. Samt sem áður telja margir sérfróðir menn að einmitt á þessu stigi sé fóstri og karlmóð- urinni mest hætta búin. „Ég held að áhættan sé of mikil til að réttlæta að karlmað- ur sé gerður vanfær," sagði Tro- unson, sem hefur, að sögn blaðsins, vísað hundruðum manna frá, sem hafa viljað slíka aðgerð. „En sé vandlega valið og hver umsókn metin sérstaklega út af fyrir sig ætti áhættan að minnka stórlega," bætti Trounson við. Pessi möguleiki, að karlmenn geti gengið með barn, gæti verið eftirsóttur þeim sem kvæntir eru konum sem ekki eiga kost á að eignast börn, sem kvæntir eru konum sem lífshætta er búin yrðu þær þungaðar eða konum sem ekki vilja fórna tíma sínum til barneigna. Einnig bendir tímaritið Nýtt samfélag kynvillingum á þennan mögu- leika, vilji þeir eignast barn. Þeir svissneski mótorhjóla- íþróttamaðurinn Fritz Egii og hönnuðurinn Luigi Colani, sem býr í Bern, tóku sig saman um að byggja nýstárlegt farartæki. Út úr þessu kom kynlegt skrímsli sem þó var einsdæmi að því er varðar litla loftmótstöðu. Þetta varð blanda af eggi og fiski. Ekki er trúlegt að skrímslið eigi eftir að sjást á keppnisbraut- inni. Það er 300 hö og kemst með 320 km hraða en getur ekki gengið í neinni flokkun. Þetta er öllu fremur sýningar- gripur og tilraunaverkfæri, sem ætlað er að sanna hvað hægt er að láta aka á tveimur hjólum. Þyngdin er 210 kíló og leitast hefur verið við að ná formi sem næst lagi dropans. Þegar öku- maðurinn stígur um borð og býst til að leggja upp verður hann í byrjun að fá aðstob við að koma yfir sig hlífinni. Hins vegar getur hann komist hjálpar- laust af baki. því þá fleygir hann hlífinni einfaldlega niður á jörð- ina. Vélin er 1.5 lítra túrbóvél.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.