Tíminn - 11.06.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.06.1986, Blaðsíða 1
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson hefur veriö ráöinn bæjarstjóri í Hafnar- firöi. Guömundur skipaði efsta sætiö á lista Alþýöuflokksins fyrir kosningarnar í vor en flokkurinn vann mikinn sigur í þeim. Fram til þessa hafa Hafn- firöingar ráöiö til sín embættismann til að gegna starfi bæjarstjóra og er því Guðmundur fyrsti pólitíski bæjarstjórinn í Hafnarfirði. MEIRIHLUTI vinstri flokkanna í Vestmannaeyjum náöi samkomulagi um samstarf í bæjarstjórninni á mánudag og mun Páll Zophaníasson gegna starfi bæjarstjóra til bráðabirgða. Forseti bæjar- stjórnar verður frá Alþýöubandalagi, varaforseti frá Framsóknarflokki og tor- maður bæjarráðs frá Alþýðuflokki. ÍSLENSK LIST verður í sviösljós- inu á Listahátíð í dag þegar Guðni Franzson og Ulrika Davidson flytja ís- lenska nútímatónlist eftir sjö íslensk tónskáld. Verkin eru eftir Hákon Leifsson, Kjartan Ólafsson, Guðna Franzson, Hróðmar Sigurbjörnsson, Hauk Tómas- son, Lárus Grímsson og Hilmar Þórðar- son. Guðni og Ulrika leika á klarinett og píanó og tónleikarnir verða í Norræna húsinu. BÍLALEIGA Flugleiða hefur gert samkomulag við bílaleigur um allt land um samvinnu um útleigu á bílum þannig að þeir sem taka bíl á leigu hjá bílaleigu Flugleiða geta skilað þeim til hvaða bílaleigu sem er aðili að samkomulaginu. PATRICK MAGEE sem fæddur er í Belfast var í gær fundinn sekur af breskum dómstól um að hafa komið fyrir sprengjunni á hótelinu í Brighton áriö 1984 en þarvar í gangi ráðstefna íhalds- flokksins breska. Alls létust fimm manns í sprengingunni og Margrét Thatcher forsætisráðherra var ein þeirra sem í lífshættu komst. AKÆRUR í okurmálinu halda áfram að streyma frá Sakadómi Reykjavíkur. Sex ákærur voru birtar í gær og fyrradag. Þeir sem ákærðir voru eru: Magnús Jónsson, Guðmundur Birgir Georgsson, Birna Róbertsdóttir, Hrannar Garðar Har- aldsson, Pétur Jónas Jónsson og Sigurð- ur Sverrir Guðmundsson. PRESTSKOSNINGAR verða í tveimur prestaköllum á laugardag. í Staðarnesprestakalli í Þingeyjarprófast- dæmi er einn prestur í kjöri, sr. Ingimar Ingimarsson. I Laugarlandsprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi er einnig einn prestur í kjöri, sr. Hannes Örn Blandon. NAUST H.F .hefur fengið tveggja mánaða greiðslustöðvun til að freista þess að finna grundvöll undir áframhald- andi rekstur fyrirtækisins. í þann tíma er fyrirtækinu óheimilt að stofna til skulda umfram það sem nauðsynlegt er til að halda fyrirtækinu gangandi. Ef ekki tekst að finna nýjar leiðir i rekstri fyrirtækisins verður það lýst gjaldþrota að tveimur mánuðum liðnum. KRUMMI Stórhertoginn virðist stórhrifinn af stórkost- legu útsýninu í stóra sjónaukanum. Arnarflug: Hlutafjáraukning ennþá í óvissu raunveruleg hætta á gjaldþroti Framtíð Arnarflugs er nú í mik- illi óvissu, þar sem alls óvíst er hvort sá hópur sem hugðist leggja fé í fyrirtækið láti verða af þeim áformum sínum. Tvö af þeim skilyrðum sem hóp- urinn setti fyrir hlutafjáraukning- unni voru að ríkisábyrgð fengist fyrir láni að upphæð allt að 2,5 milljónum bandaríkjadala og að samningar tækjust við lánadrottna um skuldbreytingar og niðurfell- ingu krafna. Fyrra skilyrðið var uppfyllt með lögum frá Alþingi á sínum tíma, en enn hefur ekki verið gengið frá seinna skilyrðinu á viðunandi hátt. Tveir eða þrír aðilar munu vera ófúsir til að koma nægjanlega mikið til móts við kröf- ur „hlutafjáraukningarhópsins," en það eru m.a. írska flugfélagið Air Lingus og áhafnaleigufyrirtæk- ið Park Aviation. Nú er svo kontið að einhverjir úr hópi þeirra sem hugðust taka þátt í hlutafjáraukn- ingunni telja að málið hafi dregist svo á langinn að forsendur séu nú orðnar breyttar og að jafnvel sé ástæða til að endurskoða fyrri af- stöðu. Þá hefur ríkisstjórnin sett þrýsting á þá aðila sem standa í viðræðum við lánadrottna Arnar- flugs um að ganga frá þessunt málum og kveða á um hvort þeir hyggist taka þátt í hlutafjáraukn- ingunni. Af þcssum ástæðum m.a. var boðað til fundar í „hlutafjár- aukningarhópnum“ í gærkvöld þar sem skoða átti dæmið út frá stöð- unni eins og hún er í dag og m.a. kanna hvort grundvöllur væri fyrir endurskipulagningu, án þess að samningar tækjust við alla lána- drottna. Samkvæmt heimildum Tímans var búist við að til tíðinda drægi á þcssum fundi, þó óvíst væri hvaða stcfna yrði tekin. Ljóst er. að ef ekki verður af fjárhagslegri cndurskipulagningu félagsins nú, blasir gjaldrot við fclaginu. - BG Stórhertogahjónin af Luxemborg fóru í gær í ferð til Mývatns ásamt föruneyti sínu. Þau skoðuðu Dimmuborgir, Námaskarð, Laxárvirkjun og lituðust um við Mývatn. Snæddur var hádegisverður í Hótel Reynihlíð. Á myndinni má sjá stórhertogann skoða fuglalífið í fuglafriðunarlandi VÍð Mývatn. l'ímamynd-Pctur Aflatölur Fiskifélagsins: Melaskóli: Heildaraf linn í maí minni en í fyrra Heildarafli landsmanna frá ára- mótum og fram til maíloka var 673.832 þúsund tonn. en það er rúrnu 41 þúsund tonni meira en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Fiskifélagið hefur sent frá sér. Hlutur loðnu í heild- araflanum var 345.222 tonn og er það svipað og í fyrra. Af þorski hafaveiðst 182.256 tonn en 130.086 tonn af öðrunt bolfiski. Hcr er um rúmlega 29 þúsund tonna aukn- ingu í öðrum botnfiski rniðað við sama tíma í fyrra. Heildaraflinn skiptist þannig á flotann að bátar hafa veitt 527.626 tonn en togarar 146.206 tonn. í maí var aflinn samtals 56.789 tonn, sem er um 3.500 tonnum minna en í fyrra. Mestur varð samdrátturinn í veiðunt á bolfiski öðrum en þorski, en þar varð minnkun um rétt rúm 5000 tonn. Það sem vekur athygli í tölunum fyrir maí er að rækjuaflinn, sent er fyrir utan kvóta. hefur tvöfaldast miðað við maí í fyrra. Aflinn í maí sl. var 2.380 tonn, en var í maí í fyrra 1.180 tonn. Heildaraflinn í maí skiptist þannig á flotann að togarar fengu 32.024 tonn en bátar fengu 24.765 tonn. Aflahæsta verstöðin á vertíðinni í vetur var Vestmannaeyjar en þar barst samtals á land 102.543 tonn af liski. þar af voru 77.577 tonn loðna. Ef einungis er litið á bol- fisklandanir eru Vestmannaeyjar enn í efsta sæti með 24.847 tonn. Séu tölurnar fyrir maí sl. skoðaðar sérstaklega verður Reykjavík aflahæsta verstöðin með 4.962 tonn, þá Vestmannaeyj- ar með 4.301 tonn og Keflavík (3.479 tonn) og Akureyri (3.139 tonn) skipa þriðja og fjórða sætið. - BG Ragna ráðin yfirkennari „Já, ég setti nýjan yfir- kennara við Mclaskóla í morgun, og hann heitir Ragna Ólafsdóttir. Það vareinfalt mál því í gærkvöldi barst mérskeyti frá hinum umsækjandanum þar sem hann dró til baka umsókn sína,“ sagði Sverrir Hermanns- son menntamálaráðherra við Tímann í gær þegar hann var spurður hvort hann hefði geng- ið frá ráðningu í yfirkennara- stöðuna í Mclaskóla í Reykja- vík. Tvær umsóknir bárust um þessa yfirkennarastöðu, önnur frá Rögnu Ólafsdóttur og hin frá Jóni Sigurðssyni. Skóla- stjóri og kennararáð Melaskóla höfðu mælt með Rögnu til starfans, en meirihluti fræðslu- ráðs mælti hins vegar með Jóni. - BG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.