Tíminn - 11.06.1986, Page 9
Miövikudagu'r 11. júní 1986
Tíminn 9
Ríki í sparifötin
Húsnæðið allt endurbætt og stækkað
ÁTVR á Akureyri var formlega
opnað í nýrri og endurbættri mynd
sl. laugardag. Byggt hefur verið við
verslunina, lagnir endurnýjaðar,
gólf brotin upp og lagfærð, og síðast
en ekki síst hefur öllum innrétting-
um verið gjörbreytt.
I ræðu sem Höskuldur Jónsson
forstjóri ÁTVR hélt við þetta tæki-
færi kom m.a. fram að endurbæturn-
ar eru nánast stökkbreyting frá því
sem áður var. Starfsmönnum hefur
verið fjölgað og rými verslunarinnar
stóraukið til hagræðingar bæði fyrir
viðskiptavini og starfsmenn. Öll að-
staða starfsmanna hefur batnað til
muna. Þeir fá nú rúmgóða kaffistofu
í stað smá skonsu sem afmarkaðist
af uppstöfluðum kössum áður.
Vörulyfta og vagnar eru nú komin í
húsið, og starfsmenn þurfa ekki
lengur að vera við vinnu sfna í
gúmmístígvélum eins og tíðkaðist í
gömlu versluninni ef bleyta og krap
var á götum úti.
Fjölmargar myndir prýða nú veggi
verslunarinnar, m.a. stórt málverk
eftir Óla G. Jóhannsson, sem sýnir
hestamenn á góðum degi með gör-
óttan Bakkusarmjöð í farteskinu.
Verslunarstjóri ÁTVR á Akureyri
er Ólafur Benediktsson, en auk hans
eru 5 starfsmenn við verslunina.
Höskuldur Jónsson t.v. forstjóri ÁTVR og Ólafur Benediktsson verslunar-
stjóri úti fyrir hinni nýju verslun.
SAMBANDIÐ AUGLÝSIR
Festingar og saum
fyrir burðarvirki
Akureyri:
M-hátíð á Akureyri
Dagana 12.-15. júní n.k. verður
svonefnd M-hátíð (menningarhátíð)
haldin á Akureyri. Það er mennta-
málaráðuneytið sem stendur fyrir
þessum mcnningardögum í sam-
vinnu við Akureyrarbæ. Indriði G.
Þorsteinsson rithöfundur sá um
skipulag menningardaganna fyrir
hönd menntamálaráðuneytisins, en
Akureyrarbær skipaði fjögurra
manna nefnd til að annast undirbún-
ing og framkvæmd.
Að sögn Rósu Júlíusdóttur sem
sæti á í undirbúningsnefndinni snýst
M-hátíðin annars vegar um menn-
ingararfleifð Akureyringa, þ.e. lista-
menn sem störfuðu á fyrri hluta
aldarinnar, og tengdust Akureyri og
Norðurlandi á einhvern hátt, og hins
vegar kynning á verkum listamanna
sem nú eru að störfum.
Hátíðin hefst fimmtudaginn 12.
júní með myndlistarsýningu frá
Listasafni íslands. og verður hún í
Möðruvallakjallara. Á föstudegin-
unt verður síðan önnur myndlistar-
sýning opnuð í íþróttahöllinni, og er
þar um að ræða cins konar aldar-
spegil í norðlenskri myndlist.
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra setur hátíðina form-
lega laugardaginn 14. júníkl. lOf.h.
Helgardagskráin einkennist síðan af
tónlist, söng og upplestri úr verkum
norðlénskra listamanna. Sverrir
Pálsson skólastjóri flytur erindi-um
íslenska tungu, og flutt verða erindi
um nokkra þekkta listamenn, svo
sem Davíð Stefánsson, Jónas Hall-
grímsson, Björgvin Guðmundsson
tónskáld o.fl.
Síðdegis á sunnudag lýkur svo
M-hátíðinni með fjöldasöng stúd-
entsefna sem útskrifast frá Mennta-
skólanum á Akureyri 17. júní n.k.
HIA-Akureyri
Framkvæmdir að Hótel Búðum. Fremst á myndinni sést steyptur
grunnur þar sem nú er að rísa nýr matsalur og ný berbergi. Dökka húsið til
hægri á myndinni er gainli lagerinn, sem nú er verið að breyta í krambúð.
(Tímamynd Ari Lieberman)
Aukin þjónusta
að Hótel Búðum
Þeir sem lagt hafa leið sína um
Snæfellsnes hafa margir notið þess
að borða og/eða gista að Hótel
Búðum. Þar ræður ríkjum í eldhús-
inu hinn landsfrægi kokkur Rúnar
Marvinsson, sem af mörgum er tal-
inn manna slyngastur í að matreiða
sjávarrétti alls konar. Hótelstjóri er
Sigríður Auðunsdóttir, og þar sem
blaðamanni hafði borist til eyrna að
hafnar væru ýmsar byggingafram-
kvæmdir að Búðum, var slegið á
þráðinn og Sigríður spurð frétta.
Sagði Sigríður að hótelið á Búðum
væri orðið nokkuð gamalt og þarfn-
aðist endurbóta við. En til þess að
truflun yrði ekki á rekstrinum, sem
og að stækkunar væri þörf, hefði
verið ákveðið að reisa nýjan matsal
og fjölga herbergjum, sem væru
bæði rýmri og byðu upp á meiri
þægindi en þau eldri. Nýja húsið er
timburhús og reiknaði Sigríður með
að það yrði fokhelt eftir 2 vikur.
Þá er unnið að því að breyta
gamla lagernum í krambúð upp á
gamla móðinn þar sem seldar verða
blúndur og neftóbak, kandís og
harðfiskur, koppar og kirnur,
sekkjavara og fleira það sem prýða
má ekta krambúð. Stefnt væri að því
að opna krambúðina um miðjan júlí
ef allt gengur skv. áætlun. og vonað-
ist Sigríður að fólkið í svcitinni
kynni vel að meta þetta framtak.
Aðspurð um hvernig reksturinn
gengi, kvað hún hann ganga vel, það
væri alltaf fullt hús um helgar en
rólegra í miðri viku. Sagði hún að
reksturinn byggðist að mestu á ís-
lendingum og vildi hún benda lands-
mönnum á að vildu þeir njóta góðrar
þjónustu og frábærs matar í rólegu
umhverfi, þá þyrfti ekki annað en að
mæta að Hótel Búðum í miðri viku.
Að Búðum væri rómað landslag og
góðar gönguleiðir og nú byði hótelið
upp á skipulagðar gönguferðir á
Snæfellsjökull í fylgd leiðsögumanns
úr sveitinni. phh
Við byggjum á
reynslunni
SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 32 SIMI 82033