Tíminn - 27.06.1986, Blaðsíða 7
Hérna sérðu 8 myndir. Þær eru allar mjög líkar, en aðeins tvær
þeirra eru alveg nákvæmlega eins. Hvaða myndir eru það?
(Svar aftast)
Nokkrir bókstafir hafa
dottið af vegvísinum.
Geturðu hjálpað
Eskimóanum að kom-
ast á leiðarenda? Hvert
er hann að fara? Það er
reyndar nyrsta borg í
heimi. Hún er í Noregi!
(Svar aftast).
V
BRANDARAR
Læknirinn opnar dyrnar út í bið-
stofuna og sér ungt par sitja þar.
Konan stendur upp og læknirinn
segir við manninn: „Þú mátt gjarnan
kom með.“
Læknirinn biður stúlkuna að af-
klæða sig, rannsakar hana og snýr
sér að manninum og segir:
„Er hún oft svona taugaóstyrk?"
„Hef ekki hugmynd um það,“
svarar maðurinn. „Ég hef aldrei séð
hana áður!“
Hafnfirðingurinn og konan hans
gengu fram hjá veitingahúsi í Hafn-
arfirði. Frá eldhúsinu lagði sterkan
og freistandi matarilm.
„AMM, amm, en sú indælis
matarlykt!“ sagði konan með eftir-
væntingarhreim í röddinni.
„Jú, kannski er það,“ svaraði
Hafnfirðingurinn. „Við skulum þá
ganga hérna fram hjá einu sinni
enn!“
í skólanum:
„Bjössi minn, geturðu sagt mér
hvað er átt við með orðinu hræsni?“
spurði kennarinn.
„Já, til dæmis það að koma í
skólann brosandi..."
Og þennan mátti heyra þegar
þrumuveður gekk yfir Hafnarfjörð.
„Komdu og sjáðu mamma, Guð
er að taka myndir!“
Sigríður Sigfúsdóttir,
Söluholti, Hraungerðishreppi,
801 Selfoss.
7