Tíminn - 16.07.1986, Side 1

Tíminn - 16.07.1986, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986- 158. TBL. 70. ÁRG. ÖKUMENN í ísafjaröarsýslu ættu aö hafa heldur hægt um sig á næstu dogum. Aö sögn logreglunnar verður hert eftirlit í sýslunni á næstu dögum. Sérstak- lega veröur fylgst meö því að ökuhraði sé ekki hærri en leyfilegt er. Vegalöareglan hefur fengið nýjan radar sem verður víst óspart notaður. FRÍTEKJUMARK ein og ör orkulífeyrisþega hefur verið hækkao um fjörutíu prósent. Þanniggetaeinstaklingar nú haft 6.320 krónur á mánuði, eða 74.840 á ári, á meðan hjón geta haft 8.847 krónur á mánuði eða 106.160 krónur á ári án þess að bætur þeirra skerðist. 47 SKÁTAR frá Bretlandi og írlandi, á aldrinum 16-20 ára, dveljast á íslandi dagana 22. júlí til 7. ágúst. Til- aangur ferðarinnar er að fræoast um Tsland og Islendinga og lifnaðarhætti landsmanna. Skátunum er ætlað að ferð- ast fótganqandi um suð-austurland og eiga ao Ijuka tólf verkefnum í ferðinm. Leiðangurinn er skipulágður áf skáta- hreyfingum (rlands og Bretlands í sam- vinnu við Bandalag íslenskra skáta. MINNINGARSJÓÐUR Haii dórs Jónssonar o.fl. til byggingar elliheim- ilis í Vík hefur tekið við tveimur stórum gjöfum. Annarsvegar gáfu ábyrgðarmenn Sparisjóðs V-Skaftafellssýslu minningar- sjóðnumafganginn af eignum sjóðsins, en þær munu vera um 820 þúsund krónur. Hinsvegar færðu þau feðgin Ólafur Jónsson og Sigríður Ölafsdóttir sjóðnum að gjöf húseignina að Bakkabraut 3, Vík í Mýrdal, til minningar um eiginkonu Ólafs, Ingibjörgu Elísabetu Ásbjörnsdótt- ur. VINSTRISÓSÍALISTAR hafa sent frá sér ályktun um Hafskipsmálið og pólitíska spillingu. Þar segir: „Aðferðir þeirra Hafskipsmanna eru engin undan- tekning, heldur fremur regla í fjármálalíf- 'inu.“ FYRIRTÆKIÐ ÍFM hefur verið stofnað. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sem ber nafnið íslenskar filmur og myndbönd, er Hólmgeir Baldursson. ÍFM mun framleiða myndbönd og dreifa nýjum kvikmyndum meo íslenskum texta. KARTÖFLUR voru teknar upp í Öxarfirði um helgina. Þetta eru fyrstu kartöflurnar sem Tíminn fréttir af, að hafi verið teknar upp í sumar. Náttúrulegar aðstæður munu hafa hjálpað til við hina öru sprettu, þar sem kartöflugarðurinn er staðsettur á jarðhitasvæði. Bóndinn mun hyggja að sölu kartaflna á almennum markaði í fyrsta skipti í sumar. HEIMIR PÁLSSON menntaskóla- kennari ræðir um íslenskar bókmenntir í opnu húsi í Norræna húsinu á morgun klukkan 20.30. Fyrirlesturinn verðurfluttur á sænsku. Einnig verður sýnd kvikmynd Ósvalds Knudsens, „Sveitin milli sanda" með norsku tali. Dagskrá þessi er einkum ætluð norrænum ferðamönnum og öðrum sem hafa áhuga. KRUMMI „Það verður erfitt að útvega þeim vini“ Hafskipsmálið: II / Orlög Utvegsbankans verða ráðin í haust - þrjár leiðir færar segir forsætisráðherra Framtíð Útvegsbankans er enn óráðin. Ekki er fyrirliggjandi hversu miklum upphæðum bank- inn tapaði á Hafskipsmálinu, þó er ljóst sé að tapið skiptir hundruðum milljóna króna. Bankinn er rekinn á ábyrgð Seðlabankans, sem knýr nú mjög á um afgreiðslu málsins. Ríkisstjórnin stendur frammi fyrir því að annaðhvort verður að leggja fram nokkur hundruð millj- ónir króna, til þess að styrkja stöðu Útvegsbankans, eða sameina hann öðrum ríkisbanka eða einkabönk- um. „Það er þrjár leiðir sem talað er um. Ein er sameining Búnaðar- og Útvegsbankans, kannski með til- færslum á einhverjum verkefnum yfir til Landsbankans. Önnur er sameining Iðnaðarbankans, Versl- unarbankans og Útvegsbankans, ef til vill með sölu á einhverjum útibúum til annarra banka. Þriðja hugmyndin sem hefur komið upp er að stofna hlutafélagsbanka úr Búnaðarbanka og Útvegsbanka, sem síðan einkabankarnir kæmu inn í. Þessar þrjár hugmyndir eru nú til umfjöllunar og hefur Seðla- bankinn þrýst á að afstaða verði tekin til málsins hið fyrsta," sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra í samtali við Tímann í gær, þegar hann var spurður um þær hugmyndir sem uppi eru um framtíð Útvegsbankans. Stein- grímur sagði að fjórða hugmyndin hefði skotið upp kollinum og væri sú, að verkefni Útvegsbankans dreifðust á þá banka sem fyrir eru í landinu. Þá yfirtækju aðrir bankar útibúin og verkefni aðalbankans dreifðust víðsvegar. Hvað endanlega verður ofan á ræðst ekki fyrr en þing kemur saman í haust, en að sögn forsætis- ráðherra er gert ráð fyrir því að fyrir þann tíma verði fyrirliggjandi hvaða leið er æskileg af þeim sem nefndar eru hér að ofan. „Þetta hefur dregist lengi. Það er sem kunnugt er stefna stjórnar- flokkanna að fækka ríkisbönkum. Staða Útvegsbankans eftir Haf- skipsmálið er þannig að ekki verð- ur við það búið,“ sagði Steingrím- ur. Nefnd sem fjallaði um afdrif Útvegsbankans hefur skilað áliti og benti hún á tvo möguleika, sem eru annars vegar samcining við Búnaðarbanka eða hins vegar við einkabanka. Forráðamenn Útvegsbankans hafa staðið í viðræðum við banka- málaráðherra um framtíð bankans. -ES Heyskapur / algleymingi Bændur eru nú farnir að huga að hcyskap víðast hvar á landinu. Sláttur er hafinn á allflestum stöðum og eru bændur bjartsýnir á gott heyskaparár. Tún hafa komið vel undan vetri og lítið ber á kali. Bændum ber saman um að spretta sé góð þrátt fyrir kalsasama tíð frameftir vori. Tímamynd: Gísli Egill. Alþýöusamband Suöurlands: Verkfall boðað næsta mánudag - ef ekki semst við starfsfólk viö ræstingar á sjúkrahúsum og dvalarheimilum Alþýðusamband Suðurlands hefur boðað verkfall starfsfólks við ræstingar á sjúkrahúsum og dvalar- stofnunum á Suðurlandi frá og með 21. júlí nk. hafi ekki sarnist um laun áður. Vcrkfallið mun taka til á þriðja hundrað starfsfólks á þeim stofnunum scm um ræðir. cn það cr dvalarheimilið Ás og heilsu- hælið í Hvcragerði, sjúkrahús Suðurlands á Selfossi, dvalarheim- ilið Lundur á Hcllu og dvalarheim- ilið Kirkjuhvoll á Hvolsvelli. „Viðsemjendur okkar hafa vcrið fremur slakir að mæta á fundi til að semja við okkur en það kannski lagast núna þegar við höfum boðað verkfall," sagði Sigurður Óskars- son framkvæmdastjóri Alþýðu- sambands Suðurlands. Sigurður sagði að íarið væri fram á mjög sanngjarnar kröfur, eða 6% hækk- un launa. „Þetta eru sambærileg kjör sem við förum fram á cins og um hefur samist í Borgarnesi," sagði Sigurður. Ef til verkfalls kemur leggst ræsting niður á fyrrnefndum stofn- unum þegar þeir scm hafa eftirlit með hreinlæti á viðkomandi stöð- um meta ástand svo að til lokunar þeirra þurfi að koma. „Við stöðvum ekki umsýslu með öldruðum né sjúklingum en okkur er full alvara í því að fá kjör okkar bætt og þessar kröfur okkar eru ekki eins miklar og verið er að semja um í sveitarfélögunum hér í kring,“ sagði Sigurður. Boðað hefur verið til fundar hjá sáttasemjara ríkisins nk. fimmtu- dag kl. 13.00 -ABS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.