Tíminn - 16.07.1986, Page 2

Tíminn - 16.07.1986, Page 2
2 Tíminn Miðvikudagur 16. júlí 1986 Mývatnssveit: FERÐAMAÐUR í HRAKNINGUM - björgunarsveit og flugvél leituðu Auglýsingarherferð Mjólkurdagsnefndar MYSUKYNNING HJÁ MJÓLKURDAGSNEFND Þessa dagana er Mjólkurdags- nefnd að hefja auglýsingarherferð fyrir mjög svo íslenskum drykk, mysunni. Aðaláherslan er lögð á möguleika mysunnar í matargerð og svo að hún þykir fyrirtaks svaladrykkur. Vitað er að súr í fisksoði flýtir fyrir því að eggjahvítuefni fisksins hleypur og lokast því sárið fyrr. Því varðveitast næringarefnin bet- ur í fiskinunt, en ef soðið er í vatni eingöngu. Það þykir herramanns- matur að sjóða fisk í hvítvíni, en færri vita að suða í mysu gefur nánast sömu raun. Við suðu rýkur áfengið úr hvítvíninu svo að því leytinu má eins notast við mysu. Munurinn er hins vegar sá að einn lítri af mysu kostar tæpar 20 kr. en hvítvínsflaskan hinsvegar rúmar 300 kr. Er stefnt að því í haust að gefa út uppskriftarbækling þar sem mysa er notuð í matarrétti og svaladrykki. Seinna á svoað gefa út bækling með leiðbeiningum um notkun mysu í sláturgcrð og súrsun. Það er skyrmysan sem neytt er, en ostamysan er ekki nýtt. Hins vegar falla til við mjólkurgerð í landinu milli 4,5 og5 milljónir lítra af skyrmysu og af því eru aðeins 456 þús. lítrar seldir til neytenda. Af því, er megninu hent þar sem ckki þykir borga sig að vinna t.d. mjólkursykur úr mysunni. Til þess eru framleiðslustaðir of margir og Landmælingar íslands: Ný útgáfa ferðakorts - meö mælikvarða 1:500.000 Landmælingar íslands hafa nú gef- ið út nýtt ferðakort í mælikvarða 1:500.000. Þetta er þriðja útgáfa ferðakortsins og er hún aukin og endurbætt. Kortið er ætlað sem yfirlitskort fyrir ferðamenn og er aðaláhersla lögð á þjónustustaði og vegakerti landsins ásamt vegalengda- tölum. Bætt hefur verið inn á kortið örnefnum frá fyrri útgáfu. Kortið fæst bæði flatt og brotið og einnig sem kortabók og er fáanlegt um allt land. smáir og mysan ekki nægilega verðmæt. Þó vinnur Mjólkurbú Flóamanna öll þurrefni úr mysunni og bætirþeim út í skyrið. Þarerþví engu hent nema vatni. Öll sú mysa sem seld er á Reykjavíkursvæðinu, um 230.000 lítrar á 'síðasta ári, kemur frá Mjólkursamlagi Borgfirðinga, Borgarnesi. phh Franskur ferðamaður. sem var í hópferð við Öskju villtist frá hópn- um aö kvöldi mánudags. Hópurinn var á leiö frá Öskjugígum til Vítis á Öskjuvatni. Björgunarsveitin Stefán í Mývatnssvcit og flugvcl frá Mýtlugi hófu leit um kl. 21. Komu flugmenn vélarinnar síðan auga á slóð sem björgunarsveitarmcnn fylgdu um nóttina. Er birti í gærmorgun var flugvélin fengin aftur til leitar og Stjórn Byggðastofnunar sam- þykkli á fundi sínum að „bcina því til ríkisstjórnarinnar að finna þurfi hagkvæmar leiðir til að cfla og bæta þjónustu ríkisins á hmdsbyggöinni. . Leggur stjórnin til að komið verði á samstarfi opinberra stofnana um starfsaðstöðu á ákveðnum stöðum. Byggðastofnun lýsir sig reiðubúna til að hafa forystu um undirbúning slíks samstarfs." I greinargerð með tillögunni segir að Byggðastofnun starfi sem mál- svari landsbyggðarinnar innan stjórnkerfis ríkisins og hlutvcrk stofnunarinnar á landsbyggðinni sé að aðstoöa heimaaðila við þróunar- störf og áætlanagerð. í slíkri starf- semi sé nálægð sú sem felst í því að hafa mann á staðnum mjög æskilcg. Það sé hcldur ckki vafi á því að með því móti myndi þjónusta i íkisins við landsbyggðina batna. Einnig segir í greinargerðinni að ráðgjöf í landbúnaði og iðnaði sem ríkiö kosti. sé á engan liátt samræmd og draga mætti úr kostnaði á hverju svæði fyrir sig ef samræming og samstarf kæmist á. Stjórn Byggða- stofnunar telur því skynsanilegt að gera tilrnun með þetta samstarf, því takist það vel, geti það síðan náð víðar. Landsbyggðinni geti orðið styrkur að slíkri samvinnu og einnig geti hún orðið fjárvcitingavaldinu og öðrum ríkisstofnunum svo og Byggðastofnun til hagræðis, vegna þcss að mál landshluta, svcitarfélaga og fyrirtækja yrðu mun betur undir- búin mcð þessu fyrirkomulagi en nú er. komu þá flugmenn auga á mann sem var staddur við tjald vcstanmegin í Herðubreið og svaraði liann til lýs- ingar á Frakkanum týnda. Þá var gcfin út tilkynning um að maðurinn væri fundinn. En er leitarmenn koma að tjaldinu hefur Frakkinn yfirgefið það. Þá er leit hafin að nýju og fannst maðurinn svo kl. 10 í gærmorgun og hafði þá laat að baki 60 km lcið í villn sinni. geh Tíminn innti Stefán Guðmunds- son formann stjórnar Byggðastofn- unar að því hvaða stofnanir hann sæi hugsanlegar á landsbyggðinni með slíka starfsaðstöðu. „Ég tcl að í stjórnsýslumiðstöðvunum eins og ég tel ekki fráleitt að kalla þær, ættu að vera t.d. ráðgjafaþjónusta í hús- næöismálum, Skipulag ríkisins, full- trúar menntamála og st'ðan einhver þjónusta frá ráðuneytunum. Einnig iðnráðgjafar, Þróunarfélagið. full- trúar fcrðamála og svona má lengi telja þær stofnanir og aðila scm við höfum verið að velta vöngum yfir. Þcss vegna tel ég þessa leiö vera miklu merkilcgri ef litið er á lands- byggðina alla, heldur en að flytja Byggðastofnun til Akureyrar." Stef- án sagði cnnfremur að talað hefði verið um að hafa stjórnsýslumið- stöðvarnar í landsfjórðungnum eða jafnvel frekar í hvcrju kjórdæmi landsins. ABS Banaslys Guðmundur Óskar Guð- mundsson, ísfiröingur ááttugasta aldursárinu lést, þegar hann varð undir dráttarvél á sunnudag. Guðntundur var til heimilis að Seljalandi í ísafjarðarkaupstað. Hann var að gera við vélina þegar slysið varð. Öryggisgrind var ekki á dráttarvélinni. Mysan getur hentað jafnvel til niatargerðar og hvítvín, og er miklum mun ódýrari. t ímaniynd Pélur Byggðastofnun ályktar: Samstarf opin- berra stofnana -starfsaðstaöa í hverju kjördæmi í framtíðinni? Neytendamáladeild Verðlagsstofnunar: 72 mál um viðskiptahætti og neytendavernd 72 mál komu til kasta neytenda- máladeildar Verðlagsstofnunar á árinu 1985. Fjölluðu þau um órétt- mæta viðskiptahætti. í flestum til- fellum voru það neytendur sem báru upp mál, en einnig komu þau frá atvinnurekendum.dagblöðum, félagasamtökum, opinberum aðil- um og auk þess tók neytendadeild- in sjálf upp 12 mál. Þessi mál komu m.a. til af því að ekki er greint rétt frá verði í auglýsingum, neytendur eru á skrumkenndan hátt hvattir til að kaupa áður en þeir missa af góðu tilboðunum og ýmsu því sem fá má „frítt" og „ókeypis" ef keypt er hjá viðkomandi. Þá auglýsasumirvöru sína eða þjónustu sem happdrættis- vinning eða getraunavinning ef neytandinn verður heppinn. Eftirfarandi dæmi um slík tilfelli má lesa í nýútkomnu blaði Verð- lagsstofnunar: (dæmi eru mjög stytt). Sparið 25% stóð á grænum lím- miðum utan um umbúðir beikons. í ljós kom að önnur tegund af beikoni hafði lægra kílóverð en sú með 25% afsláttinn. Framleiðanda var skrifað bréf og honum tilkynnt að verðsamkeppni fyrirtækja eigi að heyja á réttum forsendum. Það væri kílóverð sem skipti neytend- ann mestu máli, ekki afslátturinn og því væri ekki rétt að veita upplýsingar sem valdið geta mis- skilningi. Samkvæmt skriflegu tilboði vcrsl- unar átti bensíntankur að kosta 12.800 kr. þegar hann kæmi til landsins. Þegar hann kom var neyt- andanum hins vegar sagt að bens- íntankurinn væri kominn upp í 19.000 kr. en hægt væri að semja um eitthvað lægra verð. Neytenda- deild sagði að tilboð yrðu að standa og neytandinn tók ákvörðun um að kaupa tankinn aðeins á umsömdu verði. Staðgreiðsluverð í skóbúð einni var lækkað gegn því að ekki yrði greitt með kreditkorti. Neytandi spurði hvort þetta væru eðlilegir viðskiptahættir og því var svarað játandi, þarsem kreditkortaþjón- usta hefur kostnað og fyrirhöfn í för með sér fyrir seljanda vörunnar og því eðlilegt að hann bjóði lægra verð ef ekki er greitt með kredit- korti. Verðupplýsingar í bókabúð voru taldar ófullnægjandi þar sem aug- lýst var orðabók þar sem einungis var tilgreint hvað skyldi borga við undirskrift samnings og hversu háar eftirstöðvar væru á tíu mánuð- um að viðbættum kostnaði. Raun- verulegt kaupverð bókarinnar kom hvergi fram í auglýsingunni. Hljómtækjaverslun auglýsti hljómtækjasamstæðu á ákveðnu verði. Neytandi komst að raun um að mynd í auglýsingu var ekki í samræmi við það sem til sölu var á viðkomandi verði. Auglýsing þessi var ekki birt aftur eftir ábendingar Verðlagsstofnunar um að samræmi verði að vera milli auglýsinga og þeirrar vöru sem á boðstólum er. Fasteignasala auglýsti „Ungt fólk athugið", og á eftir komu upplýsingar um að svo og svo mikil lán væri hægt að taka til þess að eignast íbúð á þægilegan hátt. í ljós kom hins vegar að upplýsingar um lánin voru rangar og fasteigna- sölunni var bent á að svo væri. Auglýsingin var því ekki birt aftur. Ferðaskrifstofa auglýsti með stórum stöfum „Viltu ókeypis golf- ferð til Hollands 30. ágúst" . í texta auglýsingar kom síðan fram að ferðaskrifstofan myndi efna til golfkeppni í Hollandi og sá sem ynni hana fengi flugið og gistinguna endurgreidda við heimkomuna. Þar sem enginn veit fyrirfram hvort hann vinnur eða ekki í slíkum ferðum var ferðaskrifstofunni bent á að ekki væri um ókeypis ferð að ræða, heldur væri verið að efna til golfkeppni og verðlauna besta keppandann, Matvöruverslun hengdi upp skilti sem á stóð að þar fengist ódýrasti sykurinn í bænum. f ljós kom að í annarri verslun var sykur- i nn aðeins ódýrari og var verslunar- stjóranum bent á að taka niður auglýsinguna. -ABS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.