Tíminn - 16.07.1986, Side 3
Miðvikudagur 16. júlí 1986
Tíminn 3
Hjónagarðar:
Framkvæmdir hefjast
væntanlega í haust
- segir Tryggvi Agnarsson fulltrúi menntamálaráðuneytisins
„Framkvæmdir ættu að geta hafist
í haust við byggingu Fljónagarða,"
sagði Tryggvi Agnarsson fulltrúi
menntamálaráðuneytisins hjá Fél-
agsstofnun stúdenta.
Tryggvi sagði að teikningar að
Hjónagörðunum væru á lokastigi í
vinnslu og væru til umfjöllunar hjá
Borgarskipulagi.
Það eru alls 150 íbúðir sem áætlað
er að byggja í tveimur áföngum en í
fyrri áfanga sem á að verða lokið
síðla árs 1988 eru um 100 íbúðir, 59
tveggja herbergja og 29 þriggja her-
bergja. íbúðirnar eru á bilinu 50-60
fermetrar, en alls er fyrri áfangi um
7.500 fermetrar. Áætlaður heildar-
kostnaður áfangans í desember ’85
var um 225 milljónir.
Félagsstofnun stúdenta á sam-
kvæmt lögum að byggja íbúðir fyrir
námsmenn og er nú byggingasjóður
Félagsstofnunar að leita leiða til að
fjármagna sinn hluta byggingarinn-
ar, sem er 20% en Byggingasjóður
ríkisins á að fjármagna 80% bygg-
ingarinnar.
Margir námsmenn bíða þess með
óþreyju að þessar byggingar rísi,
enda var það skoðun úthlutunar-
nefndar að þeir sem sóttu um hús-
næði á Hjónagörðum hefðu haft
fyllstu ástæðu til að fá þar húsnæði.
Eins og kom fram í Tímanum í gær
er nú mikill skortur á íbúðum á
Hjónagörðum og hvergi nærri lagi
að þeir fái húsnæði sem rétt eiga á
því samkvæmt ströngustu úthlutun-
arreglum sem í gildi hafa verið
hingað til.
Sömu sögu er reyndar að segja um
einstaklingsherbergin á Gamía og
Nýja Garði. Mikil eftirspurn var þar
eftir herbergjum en lítið framboð
herbergja. ABS
Tivolibatar a Leirutjorn
Tvíburarnir
á Leirutjörn.
Akureyri:
sér í tívolífarkostunum
Tímamyndir HÍÁ
Á svonefndri Leirutjörn á Akur-
eyri hefur í suntar verið starfrækt
bátaleiga. Það er Magnús Ólafsson
og Ijölskylda sem ciga og reka
bátaleiguna. Unt er að ræða litla
Tívolíbáta með utanborðsmótor.
sem börn á aldrinum 10 ára - tíræðs
geta leigt sér og siglt unt á afmörk-
uðu svæði á Leirutjörn. Byggð
hcfur verið lítil trébryggja, og að
sögn Láru Magnúsdóttur cru fyrir-
hugaðar frekari framkvæmdir.
„Við fórum útí þctta bæði vegna
þcss að okkur fannst vanta svo
margt í bæinn scm fólk gæti stytt
sér stundir við, og einnig til að
skapa atvinnu fyrir fjölskylduna.
Þetta hefur Itins vegar gengið svo
vel að það verður byggð upp ein-
Itver aðstaða hérna, og siglinga-
svæðið stækkað. En það cr þó
ckkert fastákvcðið cnnþá."
Bátalcigan cr opin frá 14-22
daglcga, og verður svo fram eftir
hausti cftir því scm veður leyl'ir.
Veitingahús:
Breytingar á Klúbbnum
— nýir eigendur taka við
Veitingasögu Klúbbsins cr lokið.
Eftir 27 ára langa sögu hefur verið
ákveðið að lcggja Klúbbinn niðurog
taka upp nýtt nafn á nýjum skemmti-
stað. Nýir cigendur liafa kcypt húsiö
af Sigurbirni Eiríkssyni. Þcir cru
Vilhjálmur Ástráðsson, Gunnar H.
Árnason og Arnc Vcst Andcrscn.
Frá því í apríl hafa brcytingar á
húsnæðinu staðið yfir og hafa l'imm
tugir manna unnið við þær. Búist cr
við að staðurinn vcrði tilbúinn föstu-
daginn 25. júlí.
í fréttatilkynningu frá nýju cig-
endum staðarins segir að eingöngu
verði notast við vinsælustu skcmmti-
krafta landsins hvcrju sinni, og ciga
eigcndurnir von á því að staðurinn
muni hleypu nýjungum og fersk-
leika í íslenskt skemmtanalff þegar
hann kcmst í gagnið.
Framkvæmdir við breytingar á hús-
næðinu hafa staðiö yflr frá því í april.
Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar (l.t.v.) ásamt öðrum forráða-
mönnum fyrirtækisins, við opnun tilboða í gær. (Tímamynd Svcrrir)
Sex stórfyrirtæki gera tilboö:
Nýr kerf isráður
Landsvirkjunar
Sér um fjarstýringu og fjargæslu raforkukerfisins
Tilboð í nýjan kerfisráð Lands-
virkjunar voru opnuð í gær. Kcrfis-
ráður er tækjabúnaður til að stjórna
raforkukerfi landsins og aflstöðvum,
og mun hann einniggefa upplýsingar
um ástand kerfisins og bilanir. Álls
gerðu sex aðilar tilboð í tækjabúnað
og uppsetningu hans, en í útboðs-
gögnum var reiknað nteð þrcntur
valkostum.
Valkostur A, gerir ráð fyrir stjórn-
kcrti með 2 stjórnstöðvum staðsett-
um í Reykjavík og á Akureyri.
Valkostur B ráðgerir cina stjórnstöð
staðsetta í Reykjavík en valkostur
C, miðast við eina stjórnstöð í
Reykjavík og fjarvinnsluborði stað-
scttu á Akureyri.
Fyrirtækið Landis & Gyr AG. frá
Sviss var með lægstu tilboðin í alla
þessa þrjá þætti. Tilboð þeirra í
valkost A, hljóðaði upp á
158.640.603 kr. sem er 40,7% af því
verði sem ráðgjafafyrirtæki Lands-
virkjunar hafði áætlað kostnað. Til-
boð þeirra í valkost B, hljóðaði upp
á 134.510.347 kr., en 152.778.053
kr. í valkost C.
Önnur fyrirtæki sem gerðu tilboð
voru Westinghouse Systems, Eng-
landi, CAE Electronics, Kanada,
Harris Corp., Bandarfkjunum,
ASEA, Svíþjóð og Brown Boveri &
Cie frá Sviss.
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar sagði að þeir væru
ánægðir með þessi tilboð. Hins vegar
á cftir að meta þau og hefur Lands-
virkjun til þess sex mánaða umhugs-
unartíma. Mun nýja stjórnkerfið
taka viö af gamalli stöð á Geithálsi,
en hún hefur yfirlit yfir SV-land, og
stöð á Akureyri sem sér unt NA-
land. Phh
Esjuberg:
Glanni
tekur við
rekstri
Nýir aðilar hafa tekið við
rekstri veitingarstaðarins Esju-
bergs, að Hótel Esju í Reykjavík.
Það er hlutafélagið Glanni sem
nú annast reksturinn, en að því
standa þeir Kristinn Daníelsson
og Völundur Þorgilsson. Veit-
ingastaðurinn verður opinn frá
klukkan átta á morgnana og fram
til klukkan 22 að kvöldi.
Fyrirhugaðar eru ýmsar breyt-
ingar á Esjubergi og koma þær til
framkvæmda í haust. Salurinn
tekur 180 manns í sæti.
MENGELE fjölhnífavagnar
Einn háþróaðasti fjölhnífavagn sem framleiddur er í dag
Til afgreiðslu strax
Sem dæmi um búnað: Sérstakt vökvakerfi í vagni (óháð traktor).
Sjálfvirk hleðsla = hámarks afköst
Rafstýrð mötun í blásara úr traktor
Öll færibönd ganga í báðar áttir
Hálfsjálfvirkar bremsur á öllum hjólum og margt margt fleira
Mjög góð greiðslukjör
Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum okkar í síma 91-651800.
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800