Tíminn - 16.07.1986, Qupperneq 6

Tíminn - 16.07.1986, Qupperneq 6
6 Tíminn Tíminn MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjóri: Aðstoðarfréttastjóri: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason NíelsÁrniLund OddurÓlafsson Guðmundur Hermannsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- Á villigötum Að undanlörnu hafa fjölmiðlar mikið rætt mál- efni Guðmundar J. Guðmundssonar alþingismanns og Alberts Guðmundssonar, iðnaðarráðherra. Svo sem öllum er kunnugt um snýst það um réttmæti þess að Albert útvegaði Guðmundi fjár- muni, sem Guðmundur taldi að kæmu persónulega frá Albprt. Staöreyndin virðist hins vegar vera sú að þessir peningar komu að hluta til frá Hafskip sem nú er gjaldþrota. Hafskipsmálinu hefur þannig verið drepið á dreif en þess í stað hefur umræðan snúist um rúmar 100 þúsund krónur sem reyndar komu frá Hafskip að hluta til, en teljast ekki vera nema agnarsmátt brot af því stóra og margslungna máli. Þetta minnir óneitanlega á sögu H.C. Andersen um fjöðrina sem varð að mörgum hænum. Því hefur yerið haldið fram að gjaldþrot Hafskips sé það stærsta í sögu lýðveldisins. Hundruð manna misstu atvinnu sína og að öllum líkindum mun Útvegsbankinn, einn af ríkisbönkum landsins, aldrei bera sitt barr, vegna gífurlegra fjármuna sem hann tapar og miklar umræður eru nú í gangi um að leggja niður starfsemi hans í núverandi mynd. Ásakanir eru uppi um stórfelld fjársvik, falsað bókhald og rangar upplýsingar til viðskiptabanka. Þau mál eru enn í rannsókn og skal ekki fullyrt hér hver niðurstaðan verður. Hafskip naut mikilla fyrirgreiðslna og á það var litið sem tákn fyrir mátt einkaframtaksins í landinu. Gjaldþrot fyrirtækisins er því að hluta til dómur yfir hinu frjálsa einkaframtaki, eða a.m.k. dæjrni um hvernig farið getur sé ekki gætt varúðar. Almenningur í landinu hlýtur að spyrja hverjir beri ábyrgðina á því hvernig fór. Alþingi kýs bankaráð Útvegsbankans sem á að fylgjast með að allt sé með felldu í viðskiptum hans. Einhverra. hluta vegna áttuðu þeir sig ekki á því hvert stefndi fyrr en of seint, og það sama má segja um starfsmenn bankans. Afleiðingin er sú að bankinn tapar stórfelldum fjármunum. Rannsóknþessa máls er í fullum gangi m.a. á þætti stjórnarmanna Hafskips. Þaðhlýturað vera eðlileg krafa landsmanna að rannsóknin taki sem stystan tíma og að gerð verði nákvæm grein fyrir því sem hún leiðir í ljós. Það er nefnilega almenningur í landinu sem borgar brúsann. Alla vega er Hafskipsmálið svo stórt og umfangs- mikið að með öllu er ófært að það falli í skuggann af litlu atriði sem engu máli skiptir. Miðvikudagur 16. júlí 1986 GARRI Hljóðir og hógværir menn Tíu klukkustunda fundi mið- stjóruar Alþýðubandalagsins, |>ar sem haldnar v«ru ekki færri en fjörutíu ræður. virðist hafa lokið með sigri Cuðmundar J. Guð- mundssonar, sem tilkynnti fyrir fundinn, að hann niyndi iialda áfram setu sinni á Alþingi, hvað, sem saniþykkt yrði á niiðstjórnar- fundinuni. Andstæðingar Guðmundar J. höl'ðu birt stóryrtar yfirlýsingar fyrir fundinn og mátti hclst á þeim skilja, að þess yrði kralist af niiktum meirihluta fundarnianna, að Guömundur lcti af þing- meniisku. Engin ályktun var þó gerð um þetta og ekki einu sinni borin fram tillaga, sem gekk í þessa átt. í þess staö var lýst vanþóknun á Hafskipsniálinii, sein Guðmund- ur J. tengist ekkert frekar, sam- kvænit lögreglurannsókn, en t.d. Ólafur Kagnar Grínisson og Krist- ín Ólafsdóttir. Til viðbótar var svo samþykkt, að fimm valdir mcnn, þar sem in.a. væri að finna Svavar Gestsson, Kagnar Arnalds og Ólaf Kagnar Grímsson. skyldu ganga á fund Guömundar J. og skýra hon- um frá umræðum á lundinum. Nokkuð óliætt er aö fullyröa, að eftir allan gauraganginn verði það hljóðir og hógværir nienn, sem ganga á l'und Guðmundar J., ef hunn þá telur það ómaksins vert að vcita þeim nióttökii. Þögn um hermálið og lof um markaðshyggju í síðasta siinnudagshlaði I»jóö- viljans hirtust nokkrar greiuar um lierstöðvamálin eftirað l'jóðviljinn liaföi látið sig þau nær engu skipta um langt skeið. Viðtalið viö for- mann herslöðvaandstæðinga, Ingi- hjörgu liaraldsdóttur, har líka fyrirsögnina: Hermálið þagað í hel. Hér niun ekki síst átt við það, að á sjöuiida landsfundi Alþýöu- handalagsins, sem haldinn var í Sammála um ágseti markaðshyggjunnar og þögn i hermálinu. nóvcmhcrmántiöi síðastliðnum, var í fyrsta sinn á landsfundi Al- þýðubandalagsins látið hjá líöa að minnast nokkuð á öryggismálin eða herstöðvaniáliö í ályktun fund- arins. Um þetta náðist algert sam- koinulag milli svokallaðs fiokkseig- endufélags og svokallaðrar lýöræð- ishreyfingar. Um þetta tókust í licndur Ólafur Ragnar Grímsson og Þröstur Ólafsson, Kristín Ólafs- dóttir og Svavar Gestsson. I»aö náðist samkomulag uiii fieira milli þcssura aðila. í stjórn- málaályktun þingsins var stefnan í iiinanlandsmáliiin færð stórlega i liægri átt. I>etta var orðað á þennan liátt: „Tengja þarf saman heildar áætlanir í efnaliagsmálum og at- vinnuuiáluni og starfsemi markað- arins þannig aö hvorti tveggja skili viðuiiaiuli árangri." i’annig iná scgja, aö sjöundi landsfundur Alþýðubandalagsins liali einkenust af þögn uin her- stöövamálin og eins konar lofi um markaðshyggju. Skýringin var sú, að þaö vakti jafnt fyrir flokkscigendafélaginu og lýðræðishreyfingunni aö nálgast Sjálfstæöisflokkinn. Mið-Ameríka Ekki voru allir fulltrúar á lands- fundi Alþýðuhandalagsins ánægðir yfir því, að ekkert skyldi minnst á hermálin og íslensk utanríkismál í ályktun fundarins. Því varö sam- komulag inilli llokkseigcnda og lýðræðissinna aö veita þeiin nokkra úrlausn. Borin var Irain og samþykkt ályktun um Mið-Ainer- íku. Hún var birt á hálfgerðum felustað á hlaðinu 13. nóvember. Efni þessarar ályktunar var að lýsa andúö á stuöningi Bandaríkj- anna við spilltar valdastéttir í El Salvador, Guatemala og Nicarag- ua. Um öiinur utanríkismál var ekki ályktað á sjöunda landsfundi Al- þýðubandalagsins og var það liarla ólíkt því, sem áður var. Garri VÍTTOG BREITT Áríðandi f undur um ekki neitt Miðstjórn Alþýðubandalagsins var kölluð saman af skyndingu til að kljást við og marka stefnu varðandi „stjórnmálaviðhorfið og atburði síðustu vikna". Nær hundr- að rnanna- og kvennalið mætti á fundinn og sat næturlangt við að flytja og hlusta á 40 ræður. Síðan var samþykkt tillaga þess efnis að sósíalístar eigi ekki að tengjast hagsmunaböndum við auðvaldið, og kemur fáum á óvart. Alþýðubandalagið hefur logað í illdeilum endanna á milli um all- langt skeið og takast þar á hópar með hin ólíklegustu viðhorf og alls kyns túlkanir á hugmyndafræðinni. Ágreiningur verkalýðsarmsins og hámenntaðrar lýðræðiskynslóðar, sem veit miklu betur en verkalýð- urinn sjálfur hvað er honum fyrir bestu, koni hvað berlegast í Ijós við sfðustu kjarasamninga. Lýðræðiskynslóðin hefur komið sér vel fyrir í skotgröfum Þjóðvilj- ans og þaðan gengur orrahríðin yfir alla þá sem ekki eru liðinu þóknanlegir. Eftir kjarasantning- ana var veist harðlega að forseta ASÍ og öðrum verklýðsforkólfum innan flokksins, og þeir taldir hafa svikið heilagan málstað verkalýðs- ins og hefur hvergi nærri gróið um hcilt. Fyrir borgarstjórnarkosningarn- ar höfðu nýsósíalistar sig mjög í frammi og vildu ýta öllum fúnum fauskum á brott. Varð þeim nokk- uð ágengt en sigrar unnust engir hvorki inn eða út á við. Formanni hafnað Næsta senna varð er koma átti skikk á stefnu og skrif málgagns verkalýðshreyfingar, og setja flokksformanninn í ritstjórastól. Æðri stofnanir flokksins lögðu blessun sína yfir þá ráðagerð. En uppreisnarliðið harðneitaði að Mikið talað en engin má! leyst. vinna undir stjórn slíks manns og urðu margar skondnar orðahnipp- ingar í gegnum blöð og fréttastof- ur í því tilstandi öllu, og mikið rætt um kommisar og ritskoðun og fleira í þeim dúr. Engum þótti taka að minnast á að Svavar Gestsson starfaði um árabil sem blaðamaður og ritstjóri á málgagninu og gat sér gott orð á þeim vettvangi. Og enn síður að fengur gæti orðið að færni hans og reynslu við að koma saman blaði. Formaðurinn varð að láta sér lynda að vera talinn óbrúklegur sem starfsmaður Þjóðviljans. Misklíðin setthjá Stjórnmálaviðhorfið og atburðir síðustu vikna var fundarefni nætur- fundar miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins, og fjallaði í rauninni ekki um annað en stjórnmálavið- horfið innan flokksins og allt krist- allaðist það í meintum misgjörðum formanns Dagsbrúnar og Verka- mannasambands, sem atað hefur auri hinn hrcina skjöld Alþýðu- bandalagsins. Svo virðist sem hinum aðkall- andi miðstjórnarfundi hafi tekist að leiða hjá sér öll misklíðarefni sem teygja og toga félagana í allar áttir. en einbeitt sér að málefni Guðmundar J. Guðmundssonar. Allir sýnast sammála um að hann sé óalandi og óferjandi og ekki í flokki hafandi en samt var komið í veg fyrir að neinar ályktanir væru samþykktar um að víkja honum út í kuldann. Félagarnir voru aðeins mismunandi mikið á móti honum. 40 ræðna þula Tillagan sem samþykkt var undir morgun eftir japl og jaml og fuður er sem svosem ekkert annað en sósíalískir orðaleppar sem hver og einn félagi getur skilið sínum eigin skilningi, eða ekki neitt neitt. Nefnd skipuð fjórum flokks- broddum og einni konu var falið að ganga á fund blóraböggulsins og skýra honum frá innihaldi 40 ræðna og þeim ályktunum sem fram komu og voru ýmist ekki látnar ganga undir atkvæði eða felldar. Þegar Dagsbrúnarformaður veitir nefndinni áheyrn býður hann í nefið. Öll ágreiningsefnin eru enn á sínum stað í flokknum og eitt komið til viðbótar. Hvað er ákveð- ið að gera í málefnum Guðmundar J.? Það verður líklega stutt í næsta næturfund miðstjórnarinnar þar sem umræðuefnið verður. Hvað skeði á fundinum í fyrrinótt og til hvers var hann haldinn? OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.