Tíminn - 16.07.1986, Page 9
Miðvikudagur 16. júlí 1986
Tíminn 9
ÍÞRÓTTIR
íslandsmótið í knattspyrnu 1 . deild:
Naumt á Skaganum
- ÍA vann Eyjamenn með marki rétt fyrir leikslok
Hann gal varla vcrið naumari
sigur Skagamanna á Eyjamönnum í
1. deild á Skaganum í gærkvöldi.
Eina mark leiksins skoruðu Skaga-
menn þegar aðeins um tvær mínútur
voru til leiksloka. Þá höfðu þeir sótt
stíft að marki Eyjamanna en ekkert
hafði gengið við að skora.
Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri
hálfleik og fór að mestu fram á
miðjunni. Eyjamenn vörðust þó
heldur og er síðari hálfleikur fór af
stað þá þyngdist sókn Skagans veru-
lega. Það var síðan Valgeir Barða-
son sem bjargaði deginum fyrir
Skagantenn með marki rétt fyrir
leikslok eftir sendingu Hafliða Guð-
jónssonar. Áður hafði Þorsteinn
Gunnarsson markvörður Eyja-
manna verið helsti þröskuldur í vegi
Skagamanna en hann varði hvað
eftir annað mjög vel. ÍA er því enn-
í fjóröa sæti en Eyjamenn neðstir í
deildinni.
Islandsmótið í knattspyrnu - 2. deild:
KA vann Einherja
Friðarleikarnir
Pólverjar lagðir
íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik sigraði loks á Friðar-
leikunum í Moskvu. Pólverjar
voru fórnarlöinbin eftir tvo tap-
leiki Islands. Sigurinn varð þó
eins nauinur og hægt var að hafa
hann eða 22-21. Það var Sigurður
Sveinsson sem var atkvæðamest-
ur íslensku leikmannanna en
liann gerði 8 niörk. Þá varði
Guðniundur Hrafnkelsson eins
og berserkur í niarkinu.
KA tryggði sér cfsta sætið í 2.
deild á ný með sigri á Einherja í
hörkuleik á Vopnafirði.
Körfu hvað!
Frestur til að tilkynna þátttöku í
íslandsmót Körfuknattleikssam-
bands íslands rann út 4. júlí s.l.
Einungis þrjú lið hafa tilkynnt
þátttöku í Úrvalsdeild og enn færri í
aðrar deildir.
Þar sem gert er ráð fyrir því að
niðurröðun Islandsmóts hefjist strax
upp úr 15. júlí þá bendir allt til þess
að fjöldinn allur af liðum sem þátt
tóku í Islandsmótinu sl. ár verði ekki
með þetta árið.
Ef fram fer sem horfir þá verður
íslandsmótið fremur fámennt.
Það var jafnræði með liöunum til
að byrja með en KA virtist þó vera
heldur sterkara er á leikinn leið.
Sóknirnar urðu þyngri og Tryggvi
Gunnarsson og Hinrik Þórhallsson
skoruðu sitt markið hvor í síöari
hálfleik til að tryggja KA sigurinn og
efsta sætið í deildinni. KA hefur nú
22 stig eftir 10 umfcrðir en Sclfoss er
í öðru sæti með 21 stig.
Til tennisáhugafólks
Tennisáhugafólki gefst fljótlega
kostur á aukinni iðkun þessarar
skemmtilegu íþróttar. I byggingu
eru 4 tennisvellir á skjólsælum stað
innst í Fossvogi á íþróttasvæði
Víkings. Samkomulag hefur verið
gert við stjórn Víkings um að selja
áskriftarkort til 5 ára, einstaklingum
á 10 þúsund krónur en fjölskyldum
á 12 þúsund krónur. Gjöld þessi
fjármagna vallargerðina. Vellirnir
verða malbikaðir og afgirtir. Hér er
kjörið tækifæri til hollrar hreyfingar
og útivistar, en tennis má leika á
öllum aldri og aldrei of seint að
byrja. Söfnun er í gangi og öllum
opin og þeir sem hafa áhuga geta
hringt í síma 11879 (Einar Thor-
oddsen), 38525 (Börkur Aðalsteins-
son), 33137 (Margrét Svavarsdóttir),
31497 (Steingerður Einarsdóttir)
eða 17292 (Árni Tómas Ragnars-
son).
Björn sigraði
Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri:
Akureyrarmót í golfi fór fram
um helgina og er það skemmtileg-
asta við það að einum keppenda
tókst að fara holu í höggi. Þetta
er önnur helgin í röð sem slíkt
gerist. Það var Gunnar Jakobs-
son kcppandi í 4. flokki og var að
spila á sínu öðru golfmóti sem fór
18. holu á einu höggi. Hann
notaði 5 járn og kúlan lenti rétt
við holuna og rúllaði ofaní.
Sigurvegarar í flokkunum urðu
annars eftirtaldir:
Mfl. karla: Björn Axelsson, 307
Mfl. kvenna: Inga Magnúsdóttir , 341
1. flokkur: Þorsteinn Halldórsson, 343
2. fiokkur: Birgir Marinósson, 344
3. flokkur: Audunn Þorsteinsson, 346
4. flokkur: Oddur Jónsson, 377
Öldungar: Hörður Steinbergsson, 174
1. fl. kvenna: Sunna Borg, 232
Stúlkur: Andrea Ásgrímsdóttir, 420
Unglingar: Magnús Karlsson, 317
Drengir: Þorleifur Karlsson, 387.
Hera Ármannsdóttir og stöllur hjá Val komust áfram en Skaginn er úr leik.
Timamynd Pélur
Blikar lögðu ÍA
1 fyrrakvöld voru leikirnir í 8-liða
úrslitum bikarkeppni kvenna og var
mikið skorað þar enda töluverður
munur áliðunum. Blikarnir unnu
Islandsmeistara Skagans 5-1 í
Kópavogi. Ásta B. og Erla Rafns-
dóttir gerðu tvö mörk livor fyrir
Blikana en Ásta M. gerði citt. Fyrir
Skagann skoraði ein Blikastelpan
sjálfsmark eftir horn.
Valsstúlkurnar eru sterkar um
þcsar mundir og Afturelding varð
ckki hindrun fyrir þær. Lokatölur
7-0. Brvndís Valsdóttir (komin frá
Ítalíu) skoraði tvívcgis og það gcrði
Ingibjörg Jónsdóttir einnig. Þá skor-
uðu Kristín Arnþórsdóttir, Hera
Ármannsdóttir og Arney Magnús-
dóttir cinnig.
KA vann Fram 6-0 mcð mörkum
Hjördísar Úlfarsdóttur sem gerði 4
og Erlu Sigurgeirsdóttur sem skoraði
2.
Loks vann ÍBK sigur á KR 4-2 í
Kcflavík. Inga Birna Hákonardóttir,
Katrín Eiríksdóttir, Svandís Gylfa-
dóttirog Anna M. Svcinsdóttir skor-
uðu mörk ÍBK en Arna Steinsen
gerði bæði mörk KR annað úr víti.
Það eru því Blikar, Valur, KA og
IBK scm spila í undanúrslitum bik-
arkeppni kvcnna. Valsstúlkurnar
eru núverandi bikarmeistarar
íslandsmótið í knattspyrnu - 4. deild:
Afturelding í úrslitakeppnina
- hefur unnið alla sína leiki - Bolvíkingar á barmi úrslitakeppninnar- Sverrir varði víti og skoraði
E-riðilI
Leikmenn í 4. deild sátu ekki
auðum höndum um helgina hvað
þá að fæturnir væru hvíldir. Hell-
ingur af leikjum fór fram og nú
þegar hefur eitt lið tryggt sér sæti í
úrslitum deildarinnar. Það er
Afturelding úr Mosfellssveit. Lít-
um á riðlana:
A-riðiIl
Haukar-Þór Þ 3-2: Haukar komust í
3-0 í þessum leik en gáfu eftir undir
lokin og Þórsarar skoruðu tvívegis.
Lýður Skarphéðinsson, Jón Örn
Stefánsson og Guðjón Sveinsson
skoruðu mörk Haukanna en Hall-
freð Sveinsson og Jón Hreiðarsson
skoruðu fyrir Þorlákshafnarbúa.
Augnabl.-Grundarfj. 5-1: Leikur-
inn var tiltölulega jafn í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari áttu „Blikarn-
ir“ leikinn. Birgir Teitsson og Jón
Einarsson skoruðu tvívegis fyrir
Kópavogsbúa en Kormákur Braga-
son gerði eitt. Fyrir Grundfirðinga
skoraði Gunnar Þór Haraldsson.
Skotfélagið-Snæfell 1-2: Góður
sigur Hólmara á gervigrasinu og
liðið er nú í öðru sæti riðilsins.
Snorri Már Skúlason skoraði fyrir
„Skytturnar“ en Rafn Rafnsson og
Lárus Jónsson náðu sigri fyrir
Snæfell.
Staðan í A-riðli er sú að Haukar
eru efstir með 15 stig eftir 6 leiki
en Snæfell er með 14 stig eftir 8
leiki. Augnablik er með 11 eftir 7
leiki og Þór hefur 10 eftir 8 leiki.
B-riöill
Stokkseyri-Víkverji 0-3: Níels
Guðmundsson skoraði tvívegis fyr-
ir Víkverja og Tómas Sölvason
einu sinni í miklum rokleik niður
við sjóinn. Sanngjarn sigur.
Víkingur ÓGAftureldnig 04: Þar með
er Afturelding búin að tryggja sér
sæti i úrslitunum. Gísli Bjarnason
skoraði tvívegis og Lárus Jónsson
og Óskar Óskarsson bættu við.
Fullt hús stiga hjá Mosfellssveit-
ungum og markatalan 39-5.
Léttir-Hveragerði 1-1: Ólafur
Jósepsson náði forystu fyrir Hver-
gerðinga en Halldór Jakobsson
jafnaði.
Staðan í riðlinum er sú að Aftur-
elding er með 24 stig eftir 8 leiki en
Hveragerði er næst með 14 og
Víkverji og Léttir hafa 13 hvort lið.
C-riðill
Grótta-Eyfellingur 3-0: Með
Sverri Herbertsson í markinu
þar sem hann varði m.a. vítaspyrnu
þá unnu Gróttubúar létt. Bernhard
Petersen gerði 2 mörk en Valur
Sveinbjörnsson eitt.
Hafnir-Grótta 2-3: Aftur sigur hjá
Gróttunni í skemmtilegum leik.
Hafnir skoruðu fyrst er Guðmund-
ur Jónsson kom boltanum í netið
en mörk frá Magnúsi Ólafssyni og
Val Sveinbjörnssyni komu Gróttu
yfir fyrir hlé. Sverrir Herbertsson
(kominn úr markinu) skoraði síðan
þriðja mark Gróttu áður en Ólafur
Sólmundsson minnkáði muninn
fyrir Hafnir.
Leiknir-Eyfellingur 6-0: Létt hjá
Leikni. Konráð Árnason gerði
þrennu, Jóhann Viðarsson skoraði
tvö og Ragnar Baldursson bætti
við marki.
Leiknir og Árvakur hafa 13 stig
í riðlinum eftir 6 leiki en Grótta er
með 12 eftir 6 leiki einnig.
D-riðill
Stefnir-Bolungarvík 1-4: Bolvík-
ingar eru á barmi þess að falla í
úrslitakeppni deildarinnar og þurfa
reyndar aðeins eitt stig til að
tryggja það. Stefnir var engin
hindrun. Jóhann Ævarsson skoraði
tvö mörk en þeir Jóhann Kristjáns-
son og Friðgeir Halldórsson bættu
við. Örn Hólm gerði mark heima-
manna.
Reynir Hn-Höfrungur 2-1: Guðjón
Sturluson skoraði stórkostlegt
mark í samskeytin af 30 metrum
fyrir Reyni en varð síðan fyrir
hnjaski og varð að fara af velli.
Hjálmar Jóhannsson skoraði líka
fyrir Reyni en Karl Karlsson fyrir
Höfrung.
Geislinn-Badmintonfélagið 5-1:
Tvívegis settu þeir Badminton-
menn boltann í eigið mark en Flosi
Helgason með tvö og Ingvar Pét-
ursson sáu um hin mörk Geislans á
meðan Pétur Guðmundsson mark-
vörður skoraði úr víti fyrir
Badmintonarana sitt þriðja mark á
tímabilinu.
Bolungarvík er efst með fullt
hús 24 stig eftir 8 leiki en Geislinn
er næstur með 18 stig eftir 8 leiki
önnur lið eru langt á eftir.
Hvöt-Höfðstrendingur 2-0: Enn
hafa Hvatarmenn ekki fengið á sig
mark í riðlinum og hafa þó spilað
6 leiki. Garðar Jónsson og Hrafn
Valgarðsson skoruðu mörk þeirra.
Svarfdælir-Kormákur 4-0: Björn
Friðþjófsson skoraði tvívegis fyrir
Svarfdæli en Guðmundur Jónsson
og Tómas Viðarsson bættu við.
Guðmundurskoraði úr víti. Staðan
í leikhléi var 2-0.
Hvöt er efst í riðlinum með 16
stig en Vaskur er með 13 og
Svarfdælir hafa 10.
F-riðill
Æskan-Núpar 1-1: Ólafur Ólafsson
náði að skora fyrir Æskuna en
Ingimar Ingimarsson jafnaði fyrir
Núpa og þar við sat.
Austri R-HSÞb 1-3: Fyrsta mark
Austra á tímabilinu skoraði Svein-
björn Logason en það dugði ekki
til sigurs gegn HSÞb sem svaraði
með mörkum frá Herði Benónýs-
syni sem gerði tvö og Ólafi Sverris-
syni.
HSÞb er efst í riðlinum með 18
stig eftir 6 leiki en Tjörnes hefur 15
stig eftir 6 leiki. Ónnur lið mun
minna.
G-riðill
Ekkert var keppt í G-riðli vegna
sumarhátíðar ÚIA en þar er Hött-
ur f efsta sæti með 15 stig og Sindri
hefur einnig 15 stig. Bæði liðin
hafa leikið 7 leiki.