Tíminn - 16.07.1986, Side 10
10 Tíminn
lllilllllllllllllll BÆKUR
Miövikudagur 16. júlí 1986
Smásagnasafn Listahátíðar
Smásögur Listahátíðar 1986,
Almenna bókafélagið,
Reykjavík, 1986.
Væntanlega höfum við leyfi til að
líta svo á að hin mikla og almenna
þátttaka í smásagnasamkeppni l.ista-
hátíðar nú í vor beri þess vitni aö
smásagan sem listform eigi sér enn
góðan grundvöll með þjóðinni. Það
var talað mikið um það hér fyrir ekki
ýkja mörgum áruni að smásögur
væru ekki lengur lesnar og að ekki
þýddi að gefa þær út. Þetta hcfur
verið að breytast á síðustu árum,
með útkomu margra góðra smá-
sagnasafna, og ekki hefur farið sög-
um af öðru en að lesendur hafi tekið
þeim vel. Og 370 sögur, sem sendar
eru inn í samkeppni af þessu tagi,
bera þess vissulega vitni að margir
hafi hér áhuga.
Þessi fjöldi sagna hlýtur hins vegar
að hafa sett þá sem um áttu að dæma
í allmikinn vanda. Skipan dóm-
nefndarinnar hefur áðurverið gagn-
rýnd á opinberum vettvangi, og
undir það skal tekið hér. í nefndinni
sátu þrcmenningar, allt valinkunnir
sómamenn, en þó cnginn af reynd-
ustu bókmenntafræðingum okkar,
til dæmis enginn frá Háskólanum og
enginn af þeim sem hafa það að
atvinnu að fjalla um bókmenntir hér
í dagblöðunum.
Sagnafjöldinn, ásamt lítt reyndum
dómnefndarmönnum. hlýtur því að
vekja spurningar um það hvort raun-
verulega hafi tekist hér að velja það
nýstárlegasta úr innsendum sögum
og það sem raunvcrulega cndur-
speglar hinn ciginlega vaxtarbrodd
sem þarna var að finna. Skáldverk
túlka alltaf, cða nær alltaf, það
þjóðfélag sem þau eru sprottin upp
úr. Eins og drepið er á í formála
dómnefndarmanna er það áberandi
í verðlaunasögunum þreniur að þar
er fjallað um sársauka og erfiðleika
í lífsbaráttu. Einnig er mikið um það
í allri bókinni að tekist sé á við þann
vanda sem nútímamaður á í við að
finna sér stað í lífsbaráttunni og
koma sér í sátt við veruleikann
umhvcrfis sig. En því cr ekki svarað
hvort þetta var einkenni á öllum
sögunum 370, hluta þcirra cða ein-
ungis þeim sem nefndin valdi til
birtingar. Slíkt væri raunar forvitni-
legt að fá að vita, og enda fróðlegt
rannsóknarefni, bæði að því er varð-
ar þróun nútímabókmennta og nú-
tímaþjóðfélags hér hjá okkur.
Fjórtán úrvalssögur
í bókinni eru fjórtán sögur sem
nefndin hefur valið til birtingar og
viðurkenningar. Svo er skemmst frá
að segja að allar eru þessar sögur
góðar og engin léleg. Þær eru allar
skrifaðar á vönduðu máli, og í þeim
öllum er tekist á við afmörkuð
viðfangsefni eða vandamál, sem
reynt er að varpa á nýju Ijósi.
Um verðlaunasögurnar þrjár, Ice-
niaster eftir Sveinbjörn I. Baldvins-
son, Afmæli eftir Guðmund Andra
Thorsson og Sunnudag eftir Úlf
Hjörvar, er það í einu orði að segja
að þær eru allar bráðgóðar og vel að
verðlaunum koninar.
Sagan Iceniaster er þó tvímæla-
laust best gerð þcirra þriggja og
verðlaunasaga með réttu. Þar er
beitt ríku hugmyndaflugi til að
tengja saman fortíð og nútíð, jafnvel
notaðir yfirnáttúrlegir atburðir, og;
lesanda smáskotið inn í frásögnina
með spotta hér og spotta þar þangað
til hann stendur uppi mcð allt í
fanginu í sögulok. ísskápurinn, sem
orðið hefur föður sögumannsins að
bana, er þarna miðlægt tákn fyrir
þær refsingar sem menn kalla yfir sig
með því að gera hluti sem ekki má
gcra. Og vel að merkja þá er það
frost og kuldi sem verður til þess að
framkvæma rcfsinguna, í góðum
takt við þær hugmyndir um kvalir og
syndagjöld sem lifað hafa með
norðurhvelsþjóðum á öllum tímum.
Aftur er það galli á sögunni að ekki
er nægilega vel undirbyggt eða skýrt
hvers vegna sögumaður leiðir hug-
ann að því að farga sjálfum sér í
sögulok. Bætirhann fyrirhugsanlega
sök á dauða föður síns með því að
sálga sér með sama hætti? Því svarar
sagan ekki.
Afmæli er ákaflega vandlcga skrif-
uð og hnitmiðuð. Efnið í henni er
raunar verulega þröngt, þetta er
mynd af einangrun hálffertugs
manns í Reykjavík sem býr einn og
á við að stríða þá erfiðleika sem
leiða af sambandsleysi við annað
fólk. Þcssi saga bregður upp sterkri
og áhrifaríkri mynd, en sögulausn er
engin, vandamálinu aðeins lýst.
Sunnudagur er sömuleiðis skrifuð
af mikilli alúð og hnitmiðuð og
viðfangsefnið þar er aftur undirmáls-
maður í þjóðfélaginu, að þessu sinni
þroskaheftur. Þetta er sextán ára
piltur sem finnur sér andlega full-
nægju í því að fá að þvo áætlunarbíl,
cn þegar erlendur ferðamaður kem-
ur inn í myndina, finnst honum
yfirráðasvæði sínu ógnað og bregst
til varnar með aðferðum sem fólkið
í kring skilur vitaskuld ekki. Listræn
vinnubrögð hér einkennast af natni
og samúð með smælingja, og árang-
urinn getur naumast látið nokkurn
ósnortinn.
Aftur til fortíðar
Þetta voru verðlaunasögurnar, og
síst skal úr því dregið að allar eru
þær vel að viðurkenningum sínum
komnar. En þarna eru fleiri sögur,
og máski er hið endanlega val verð-
launasagnanna þriggja ekki hafið
yfir alla gagnrýni. Þarna er m.a. saga
sem nefnist Endurkoma og er eftir
Svövu Jakobsdóttur. Sú saga leynir
á sér og á raunar ýmislegt sameigin-
legt með verðlaunasögunni Icemast-
er. Báðar fjalla um afturhvarf úr
samtímanum til gamalla endurminn-
inga úr fortíðinni sem vekja sársauka
hjá þeim sem í hlut á. í báðum er
beitt eins konar yfirnáttúrlegum
fyrirbærum til að skýra samtímann
og tengja hann við fortíðina. Báðar
segja frá löngu liðnum atburðum
sem enn valda þjáningum hjá fólkinu
sem fjallað er um í þessum sögum.
Það er máski matsatriði, en þó
hygg ég að þar fari ekki á niilli mála
að það hljóti að hafa átt að vefjast
töluvert fyrir dómnefndinni að velja
á milli þessarar sögu og hinnar
endanlegu verðlaunasögu. Munur-
inn felst kannski einna helst í því að
Endurkoma tengist nokkuð ákveðið
tímabili sem má vera orðið nokkuð
fjarlægt í tíma, það er að segja
stríðsárunum. Icemaster er hins veg-
ar nútímalegri og ferskari. En það
dylst engum, sem vandlega les, að í
Endurkomu er beitt mun agaðri
fagmannlegum vinnubrögðum og
margfalt meiri rithöfundarþjálfun en
í Icemaster. Spurningin hér er því sú
hvort eigi að meta meira ferskleika
eða kunnáttu. Af vali verðlauna-
sagnanna er ekki að sjá að dóm-
nefndinni hafi flogið þetta í hug, og
verður þar að kenna um reynsluleysi
jieirra sem um fjölluðu. Þar hefur
vcrið farið meir eftir einni saman
tilfinningu heldur en ströngu og
faglegu mati.
Húsbyggingar
Og fleira er gott þarna, og er þar
einkum að nefna söguna Fagrafold
eftir Steinunni Jóhannesdóttur. Sú
saga er grimmdargóð og miskunnar-
laus lýsing á því erfiða stríði sem
fylgir húsbyggingum nútímans. Sem
slík er hún gripin beint út úr samtím-
anum og fjallar um málefni sem
þorri þjóðarinnar þekkir máski allt
of vel af eigin raun. f lokin er svo
beitt efnisatriði sem sótt er í kross-
festingarfrásögn Biblíunnar, og í
einu orði sagt fer höfundur þar á
kostum.
Ég held sömuleiðis að þessi saga
hefði vafalaust sómað sér vel sem
ein af þeim þrem efstu. Hún er
tæknilega mjög vel samin og fæst við
efni sem sótt er beint í samtímann.
Sem slík hefur hún mikla og vafa-
lausa skírskotun tii samfélagsveru-
leika þjóðarinnar í dag, og spurning
er hvort reynslumeiri dómnefndar-
menn hefðu ekki tekið hana fram
yfir einhverja af hinum þremur.
Hér er raunar um það að ræða
hvort menn hafi nægilega glöggt
auga fyrir þeirri nauðsyn sem bók-
menntum og raunar öllum listum er
á því að endurnýjast stöðugt og
leitast í sífellu við að sækja sér ný
viðfangsefni í þær nýjungar og þau
breyttu viðhorf sem hverju sinni eru
að koma fram í þjóðfélaginu. Samúð
með smælingjum er vissulega klass-
ískt efni. og sé vel á því haldið geta
úr slíku orðið listrænar perlur. En
þegar verið er að dæma verk til
verðlauna í keppni sem þessari er
samt rétt að horfa ekki síður eftir því
hvað þar er nýstárlegast að koma
fram.
Hinar níu
Hinar sögurnar níu, sem ógetið er
úr bókinni. eru af ýmsu sauðarhúsi.
Aðalbjörg Ólafs Hauks Símonar-
sonar er kyndug saga af fráskildum
bankaútibússtjóra og kynnum hans
af engli. Hugmyndin er frumleg. en
úrvinnslan einum of langsótt til að
verulega áhrifamikið listaverk verði
úr. Næsta saga heitir Anna og er
eftir Gunnar Þorstein Halldórsson.
Hún fjallar um tónlistarmann og
samband hans við konu sína og
dóttur. Hér er aftur frumleg hug-
mynd á ferðinni, sem að mörgu leyti
cr vel á haldið, en framsetningin er
þó full syndandi og draumkennd til
að vcrulegt bragð verði að.
Sagan Aspadista og erföagóss eftir
Iðunni Steinsdóttur er lýsing á því er
þrjú systkini skipta arfi eftir móður
sína, og inn í það er fléttað boðskap
um gildi fórnfýsi og hjálpsemi. Efnið
er að sumu leyti ekki nýstárlegt, en
snyrtilega á því haldið. Sagan David
Bowie heimsækir Elliheimilið
Grund eftir Hclga Má Barðason er
hrein ganiansaga um mismun kyn-
slóðanna og einangrun gamal-
menna. Og sér á parti er einnig
sagan Elskendurnir i sveitinni eftir
Svein Einarsson. Þetta er löng saga,
nokkuð forneskjuleg, og sannlcikur-
inn er sá að hún minnir að ýmsu
leyti. að því er tækni snertir, á
skáldsögur Jóns Thoroddsens, Pilt
og stúlku og Mann og konu, og
önnur verk þeim skyld. Sem slík er
hún raunar töluvert mikið út úr takt
við samtímakröfur til smásagna og
raunar álitamál hvort hún á heima í
þessari bók. En hún er þó lipurlega
skrifuð og af töluverðri kímni, seni
væntanlega er það sem höfðað hefur
til þeirra sem völdu.
Næst er svo að nefna söguna
Himnabrúöur eftir Hrafnhildi Val-
garðsdóttur. Það er stutt eintalssaga
ungrar stúlku við gamla konu, og
heldur hlýlega skrifuð. Sagan ísis
eftir Vilhelm Emilsson er hins vegar
samin af mun meiri kunnáttu og
tæknilegu valdi. Hún fjallar í raun-
inni uni þá gjá sem er á milli
fátæklinga - andlegra ef ekki efna-
legra - og hinna sem meiri auði stýra.
Þctta er vel gerð saga og framkallar
töluverða íhugun og heilabrot hjá
lesanda, en á hinn bóginn er hún
dálítið fjarlæg raunveruleikanum
allt í kringum okkur og nálgast það
kannski þess vegna að mega heita
dæmisaga en ekki eiginleg smásaga.
Sagan Slossmæjer eftir Viktor Arnar
Ingólfsson cr örstutt en vel samin.
Hún er framan af friðsæl smámynd
af kyrrlátri stund hér í Vesturbænuni,
en umhverfist í andstæðu sína í lokin
sem vel er á haldið.
Síðasta saga bókarinnar er svo
Örugglega langur tími eftir Ómar Þ.
Halldórsson. Það er löng og nokkuð
metnaðarfull saga um læknisfrú í
afskekktu þorpi úti á landi og skip-
brot hennar. Nánar til tekið er því
lýst þar hvernig hún brotnar niður
og bilast á sönsum við það að komast
að raun um drykkjuskap eiginmanns
síns og sjúkleika fólksins í kringum
hana. En þó sagan sé að mörgu leyti
vel samin þá er engu líkara en að í
hana vanti skýringar á því að svo illa
fer í lokin og að frá því sé greint nógu
rækilega hvað veldur þessu hruni
konunnar.
Út á frágang bókarinnar kann ég
ekki að setja, uppsetning hennar er
snyrtileg og prentvillur fáar. Þó
hefði kápan mátt vera veglegri,
myndin á henni af briminu höfðar
ekki til innihaldsins svo aðséð verði.
Og í heild verður ekki annað sagt
en að fengur hafi verið að útkomu
þessarar bókar og smásagnasam-
keppninni í heild. Þessi samkeppni
hefur leitt það í Ijós að enn er hér á
landi mikill áhugi á smásagnagerð
og ótrúlegur fjöldi fólks sem er
tiíbúið að spreyta sig þar þegar eftir
er kallað. Sögurnar í bókinni eru
hver annarri ólíkar, og einmitt fyrir
þá sök gefst fólki þar kostur á að
bera saman hluti sitt úr hverri áttinni
og græða á þeim samanburði.
I stuttu máli sagt hefur þarna
orðið til bók sem hægt er að mæla
með til lestrar.
Verðbréfa-
miðlun
M ..
Með ákvæðum laga nr. 27/1986 um verðbréfamiðl-
un er öllum er hafa með höndum rekstur verðbréfa-
miðlunar gert skylt að afla sér leyfis viðskiptaráð-
herra til að stunda viðskipti með verðbréf fyrir 1.
ágúst næstkomandi.
Af því tilefni vill viðskiptaráðuneytið beina því til
fyrrgreindra aðila að afla sér tilskilins leyfis við-
skiptaráðherra lögum samkvæmt.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu við-
skiptaráðuneytisins.
Viðskiptaráðuneytið
Reykjavík 11. júlí 1986
STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.
IUMFERÐAR
>RÁÐ
-esig