Tíminn - 16.07.1986, Side 11

Tíminn - 16.07.1986, Side 11
Tíminn 11 Miðvikudagur 16. júlí 1986 lllllllllllllllllHllllll MINNING Sigurlaug Guðnadóttir Fædd 31. okt. 1901 Dáin 8. júlí 1986 „Tilverá okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar erjörðin. T.G. Einn gestanna, Sigurlaug Guðna- dóttir föðursystir mín, lagði upp í sína hinstu för þriðjudaginn 8. þ.m. áttatíu og fjögurra ára að aldri. Ekki mun fráfall hennar hafa komið þeim á óvart sem vissu hvernig heilsu hennar var háttað, en samt var haldið í vonina um að við mættum njóta samfunda við hana enn um sinn. Og þótt okkur sé ljóst að „eitt sinn skal hverr deyja" er sérhver frestur hins óumflýjanlega okkur kærkominn. Ekki man ég fyrir víst hvenær ég sá Sigurlaugu í fyrsta sinn, hygg þó að það hafi verið sumarið 1930 að hún og maður hennar, Edvard Bjarnason bakarameistari, hafi komið í heimsókn að Prestsbakka í Hrútafirði, sem var á þeim tíma heimili mitt. En ég man glögglega ilminn sem með þeim barst, ilm llBillllllll UMSAGNIR nýbakaðra vínarbrauða sem þau höfðu í farteski sínu. Slíkt „bakk- elsi“ var okkur, mér og systkinum mínum, þá með öllu óþekkt. Og hvílíkt hnossgæti það var. Jafnve! löngu seinna kom vatn upp í munn- inn á mér við tilhugsunina eina. Ég fékk þá strax einskonar matarást á þeim hjónum og heimsóknir þeirra voru mér æ síðan mikið tilhlökk- unarefni. Og ekki spillti það, þegar Ragnar sonur þeirra varð „sumar- strákur" á næsta bæ, Hrafnadal, og tók þátt í leikjum okkar, uppátækj- um og „veiðiferðum", þegar aðstæð- ur leyfðu. En þessi veruleiki lifir nú aðeins í minningum um löngu liðinn tíma. Ég kann lítt að rekja æviatriði Sigurlaugar frænku minnar. Hún var tvíburi og var á fyrsta árinu er móðursystir hennar og nafna, Sigur- laug Jónsdóttir húsfreyja í Glerár- skógum í Hvammssveit í Dölum og maður hennar, Magnús Jónsson bóndi þar, tóku hana til sín og ólu hana sfðan upp sem sína eigin dóttur. Eftir að foreldrar mt'nir iluttust til Reykjavíkur vorið 1948 bar fundum okkar Sigurlaugar oftar saman en áður. Pað sem ég man best úr fari hennar voru kvikar hreyfingar, til- svör hennar og athugasemdir, fynd- ist henni eitthvað athugavert við það sem sagt var og nær ótrúlegt minni um liðna atburði. Pað hlýtur að hafa fengið mikið á hana er hún missti mann sinn í júní 1969, svo samrýmd sem þau hjón voru. En ég hygg að hún hafi sótt sér styrk í að raða saman brotasilfri minninganna um þær hamingju- stundir sem hún hafði með honum átt. Sigurlaug hafði mikið yndi af ljóð- um og kunni heilu Ijóðabálkana utanað. Á síðustu stundum lífsins hafði hún yfir ljóð eftir Guðmund Böðvarsson skáld á Kirkjubóli, sem hún hélt mjög uppá, m.a. Völuvfsu, lokaljóðið í Landsvísum Guðmund- ar: „ Eitt verð égað segja þér ádurenég dey. enda skalt þú börnum þínum kenna Tilraunir til súrrealisma Sjón: Leikfangakastalar sagði hún það er ekkert til sem heitir leikfangakastalar, Einhver djöfull- inn, Reykjavik 1986, Medúsa. Pessi litla Ijóðabók hefur legið á boröi mínu nú um riokkrar vikur, en sannast sagna er að ég er enn litlu nær en í byrjun um skáldskaparlegt gildi hennar. í henni cru ein ellefu Ijóð. bókin er í nokkuð stóru broti, og á hverri opnu eru tvær gagnhverf- ar myndir af ungum manni (höf- undi?) með skanimbyssu í hendi og rniðar hann á andstæðing sinn á hinni síðunni. Einna helst er líklega að segja um bókina að hún flytji tilraunir til súrrealískrar ljóðagerðar. Það felur í sér að ljóðin túlki hughrif skáldsins í draumi eða draumkenndu ástandi, eða með öðriim orðum að hún lýsi sýnum af aðskiljanlegum toga sem fyrir hann ber á meðan svefnórar hafa yfirhöndina yfir heilbrigðri og kaldri skynsemi. Petta verður eigin- lega að skýra með því að taka dæmi, og má grípa upp eitt Ijóðið sem heitir Herbergi Z: Svo mörg kyrr eins og múmíur meðan nýtálguð andlitin skipta litum undir sárabindunum metrum neðar: A Ibínóanegrinn leitar að systur sinni dreifir huganum með blóðmettuðu loftinu safnar leir á stígvélin í grafh velfingunni metrum neðar: Herbergi Z. En þetta er þó ekki algilt því að þarna eru líka ljóð sem eru miklu nær vökunni og raunveruleikanum. Til dæmis er þarna lítið Ijóð sem heitir Varalitur og er hreint ekki langt frá því að geta kallast ástaljóð af gamla skólanum: Þetta cr í raunjnni alls ekki illa kveðið, en þó cr cngu líkara en í það vanti snerpuna og heiídarstefnuna. Þcgar menn yrkja súrrealískt þá verða þeir að gæta þess að hafa reglu á óreglunni, setja sér ákveðin mark- mið og stcfna beint að þeim. Líka geta rím og stuölasetning farið vel í slíkum kveðskap, og mega skáld alls ekki kasta slíku fyrir róða þó að þeir kjósi að yrkja nútímalega og byltingarkennt. Dálítið af slíku hefði snerpt á hlutunum hér, enda getur rím farið mjög vel viö hinn draugalega hugtnyndahcim súrrcal- ismans. Ég held þess vegna að Sjón cigi að reyna betur á þessu sviði, og aö hann geti enda gert töluvcrt hetur. Það eru ýmsir skcmmtilegir hlutir þarna inni á milli, þó að heildarfágunina vanti. -esig Ljósrauðir munnar opnast - Bláar varir birtast Til hliðar við blint landsvæðið - Varir þínar Þú blístrar í Ijósaskiptunum - Sniglana dreymir Þar sem sólir fara út af veginum eru varir þínar Varir þínar skilja dag frá nóttu Kvölds og morgna á ég stefnumót við varir þínar Fangar júlímánaðar Mannréttindasamtökin Amnesty International vilja vekja athygli al- mennings á máli eftirfarandi sam- viskufanga í júní. Jafnframt vonast samtökin til að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þessum föngum og sýna þannig í verki andstöðu sína við að slík mannréttindabrot eru framin. íslandsdeild Amnesty hefur nú einnig hafið útgáfu póstkorta til stuðnings föngum mánaðarins, og fást áskriftir á skrifstofu samtak- anna. Tékkóslóvakía: Pavel Krivka og Pave! Skoda eru menntamenn á þrítugsaldri, sem eru í fangelsi vegna friðsamlegrar gagnrýni á stjórnvöld. Pavel Krivka er náttúrufræðingur, og var dæmdur í 3ja ára fangelsi 21.11. 1985 vegna bréfs sem hann skrifaði vini sínum sem var á leið til Júgóslavíu, en öryggislögreglan fann það. Hann var einnig ákærður fyrir að festa upp landakort þar sem bent var á vanrækslu umhverfisverndar- mála, og fyrir að búa til krossgátur. sem „rægðu" stjórnvöld og fulltrúa þeirra; ennfremur fyrir að skrifa grínstælingu á tékkneskri jólamessu þar sem hann ku hafa nítt niður forsetann og sett fram óvæga gagn- rýni á stjórnarstefnuna. Vinur hans, Pavel Skoda, aðstoðarmaður við vísindarannsóknir, var dæmdur í 20 mánaða fangelsi fyrir að vera með- höfundur að hinu síðastnefnda. Taiwan: Yang Chin-hai er 54 ára gamall fyrrum forseti Verslunarráðs Kaohsiung héraðs, sem hlaut lífstíð- ardóm í júlí 1976 vegna friðsamlegra aðgerða í stjórnmálum. Hann var ákærður þann 31.5. 1976 ásamt 6 öðrum fyrir ráðagerð til að koll- varpa ríkisstjórninni, ógna öryggi almennings með ofbeldi, og valda glundroða með því að skemma orku- veitur. Rétta ástæðan fyrir handtöku hans er talin vera beiðni sem hann og aðrir stjórnmálamenn í stjórnar- andstöðu sett fram í maí 1976, um að fá að stofna stjórnar- andstöðuflokk, en samkvæmt her- lögum eru slíkir flokkar bannaðir. Allt frá 1972 hefur Yang Chin-hai stutt marga frambjóðendur í stjórn- arandstöðu, og tekið þátt í gagnrýni á meint kosningasvindl. Hann var í einangrun í 2 mánuði eftir handtök- una, og bar við réttarhöldin að hann hefði verið pyntaður á 19 vegu til að neyða fram játningu um skipulagn- ingu hryðjuverka. Hann þjáist af blæðandi magasári og lungnasýk- ingu, og er talin hætta á að hann fái ekki nægilega aðhlynningu. hnignað varð það ekki greint af fasi hennar eða tali, hún var svo „lifandi" í allri framgöngu. Þegar hún svo fylgdi mér til dyra, kvaddi mig og þakkaði mér komuna, taldi ég víst að ég ætti eftir að heimsækja hana á 85 ára afmæli hennar að ári liðnu. En svo fór að þetta varð hinsta kveðjustundin. Ég vil svo Ijúka þessum hug- leiðingum með tveim erindum úr Ijóðinu Þakkarorð eftir Guðmund Böðvarsson, en það er einnig að finna í Ijóðabók hans Landvísum: Einn er hver ó vegi þó með öðrwn fari, einn í áfanga þó með öðrum sé, 'einn um lífsreynslu, einn um minningar, enginn veit annars Itug. fræði mín, sögðu mér það álfarnir í Suðurey, sögðu mér það dvergarnir i Norðurey, sögdu mérþaðgullinmura og gleymmérey og gleymdu þvi ei: að hefnistþeim ersvíkursína huldumey, honum verður erfiður dauðinn." Ég sá Sigurlaugu síðast á afmælisdegi hennar þann 31. októ- ber síðast liðinn. Þótt mér væri kunnugt um að heilsu hennar hefði Samt er í samfylgd sumra manna andblœr friðar ún yfirlœtis, úlirif góðvildar, inntuk hamingju þeim er njóta nœr. Með þökk fyrir samverustundirn- ar. Torfi Jónsson Útboð Byggingarnefnd Flugstöövar á Keflavíkurflugvelli óskar eftir tilboðum í flugupplýsingakerfi fyrir nýju flugstöðina í Keflavík og nefnist verkið Flugstöð á Keflavíkurflugvelli Flugupplýsingakerfi FK-14 Verkið nær til: a) Flugupplýsingakerfis b) Hönnun og smíði, uppsetningar, prófunar og viðhalds í flugstöðvarbyggingunni í samræmi við útboðsgögn. Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. mars 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Rafhönnun hf., Ármúla 42, Reykjavík, gegn 10.000,- kr. skilatrygg- ingu frá og með 15. júlí 1986. Tilboðum skal skila til: Varnarmálaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík eigi síðar en 2. september 1986 kl. 14.00. Reykjavík 9. júlí 1986 Byggingarnefnd Flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. X Grunnskóli w Ólafsvíkur Kennara vantar í eftirtaldar stöður: Almenna kennslu, sérkennslu, tónmennt og íþróttir. Nánari upplýsingar veita skólastjóri í síma 93-6293 og yfirkennari í síma 93-6251. Leikskóli Ólafsvíkur Forstöðumann vantar við Leikskóla Ólafsvíkur, fóstrumenntun æskileg. Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofu í síma 93-6153. Bæjarstjóri Fjósamaður Að tilraunastöðinni að Möðruvöllum í Hörgárdal vantar fjósamann frá 1. sept. n.k. Auk venjulegra fjósverka felst í starfinu fram- kvæmd tilrauna sem í gangi eru og stjórnun á aðstoðarmanni við fjósverk. Umsókn með uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist til Jóhannesar Sigvaldasonar, Óseyri 2, 600 Akureyri fyrir 31. júlí nk.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.