Tíminn - 16.07.1986, Síða 15
Miðvikudagur 16. júlí 1986
Tíminn 15
llllliillllllllllllilillii ÚTVARP/SJÓNVARP ílilllllllillll
Manngerðir hellar á íslandi
í kvöld kl. 20.35 sýnir Sjónvarpið nýja heimildamynd um manngerða
hella á Suðurlandi, sögu þeirra og nytjar að fornu og nýju. Leiðsögumaður
er Ámi Hjartarson og umsjónannenn auk hims Hallgerður Gísladóttir og
Guðmundur J. Guöntundsson. Upptöku stjórnaði Karl Sigtryggsson.
Þessi mvnd er austan úr Mýrdal.
Ýmsar hliöar:
Vandamál flóttamanna
og fjölskyldufedra
Á miðvikudagskvöldum kl.
20.30 hefur Bernharður Guð-
mundsson umsjón með þætti í út-
varpi sem nefnist Ýmsar hliðar.
EHJJEE31
Hljóð-varp
- nú fyrir noröan -
næst fyrir austan
í kvöld fjallar Bernharður um
vandamál flóttamanna, hvað valdi
því að fólk verður að flýja heim-
kynni sín. Síðan ræðir hann við
Guðna Kolbeinsson um vandamál
fjölskyldufeðra á íslandi, cn margir
þeirra verða að yfirgefa það scm
þeim er kærast, vegna brauðstrits.
Að lokum verður rætt um við-
brögð hlustenda við þessum þætti.
Kl. 22.20 í kvöld er í útvarpi
þátturinn Hljóð-varp sem Ævar
Kjartansson sér um í samvinnu við
hlustendur. Pátturinn er í þetta
sinn sendur út frá Akureyri.
Á miðvikudaginn eftir viku, 23.
júlí, verður þátturinn sendur út frá
Egilsstöðum og eru Austfirðingar,
sem hafa efni á boðstólum, beðnir
að hafa samband við Ævar Kjart-
ansson í síma 96 44294.
Bemharður Guðmundsson
Sjónvarp kl. 20.35:
Útvarp kl. 20.30:
Kristján frá Djúpalæk er sjötugur
í dag. í tilefni þess er útvarpsdag-
skrá um hann í kvöld kl. 21.30 í
samantekt Bolla Gústavssonar.
ISIUH
„Dreifar af
dagsláttu“
í dag. 16. júlí. er Kristján skáld
frá Djúpalæk sjötugur. í tilefni al
því verður dagskrá helguð honum
í útvarpinu kl. 21.30 í kvöld.
Dagskráin nefnist Drcifar af dag-
sláttu og Bolli Gústavsson í Laufási
tók hana saman. Hún kemur frá
Akurcyri.
Kristján Einarsson frá Djúpalæk
læddist á Djúpalæk í Skcggjastaða-
hreppi, N.-Múlasýslu. Hann stund-
aði nám við Alþýðuskólann að
Eiðum og Menntaskólann á Akur-
eyri. Hann var bóndi að Staðar-
tungu í Hörgárdal en gcrðist síðan
verkamaður á Akureyri. Um tíma
var hann búsettur í Hvera-
gerði og bamakcnnari þar og í
Þorlákshöfn, en fluttist aftur til
Akureyrar. Hann cr þekktur af
fjöldanum öllum af Ijóðum bæði
frumsömdum og þýddunt, m.a.
þýddi hann Ijóðin í hinum sívinsælu
bamaleikritum Kardimommu-
bænum og Dýrunum í Hálsaskógi,
auk annarra ritverka, en þar ntá
m.a. telja fjölda grcina og viðtala
í blöðum og tímaritum.
Miðvikudagur
16. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Pétur
Pan og Vanda“ eftir J. M. Barrie
Heiðdís Norðfjörö les (16).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleik-
ar, þulur velur og kynnir.
9.45 Lesið úrforustugreinum dagblaðanna.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Guðmundur Sæm-
undsson flytur.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Áðurfyrr áárunum. Umsjón:Ágústa
Björnsdóttir.
11.00 Fréttir
11.03 Samhljómur Umsjón: Ýrr Bertels-
dóttir og Guðmundur Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir.Tilkynningar.Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Börn og umhverfi
þeirra Umsjón: Anna G. Magnúsdóttir og
Lilja Guðmundsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Katrin", saga frá
Álandseyjum eftir Sally Salminen Jón
Helgason þýddi. Steinunn S. Siguröar-
dóttir les (12).
14.30 Segðu mér að sunnan Ellý Vilhjálms
velur og kynnir lög af suðrænum slóðum.
15,00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Á hringveginum - Austurland
Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir, ðrn
Ragnarsson og Ásta R. Jóhannesdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. a. Sellókons-
ert í D-dúr op. 7 efír Johan Svendsen.
Helge Waldeland leikur með Sinfóniu-
hljomsveitinni í Björgvin; Karsten Ander-
sen stjórnar. b. „Don Juan", sinfónískt
Ijóðop. 20 eftir Richard Strauss. Fílharm-
oniusveit Berlínar leikur; Karl Böhm
stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Bamaútvarpið. Stjómandi Vemharður
Unnet. Aðstoðamnaöur: Sigurtaug M. Jónas-
dóttir.
17.45 f loftinu Umsjón: Hallgrímur Thor-
steinsson og Guðlaug María Bjarnadóttir.
- Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Að utan Fréttaþáttur um erlend mál
efni.
20.00 Sagan „Sundrung á Flambards-
setrinu“ eftir K.M. Peyton Silja Aðal-
steinsdóttir les þýðingu sina (13).
20.30 Ýmsar hliðar Þáttur i umsjá Bern-
harðs Guöinundssonar.
21.00 Horfins tima hljómur. Annar þáttur
Guðmundar Gunnarsonar af fjórum.
(Frá Akureyri).
21.30„Dreifar af dagsláttu" Á sjötugsafmæli
Krisíáns skálds frá Djúpalæk. Bofli Gústavs-
son í Laufási tók saman þáttinn. (Frá Akur-
eyri).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hljóð-varp Ævar Kjartansson sér um
þátt í samvinnu við hlustendur.
23,10 Djassþáttur-Tómas R. Einarsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
BMT
Miðvikudagur
16. júií
9.00 Morgunþáttur. Sljómendur: Kristján
Sigurjónsson, Páll Þorsteinsson og
Kolbrún Halldórsdóttir. Inn i þáttinn flétt-
ast u.þ.b. fimmtán mínútna barnaefni
kl.10.05 sem Guðríður Haraldsdóttir
annast.
12.00 Hlé.
14.00 Kliður. Þáttur i umsjá Gunnars Svan-
bergssonar og Sigurðar Kristinssonar.
(frá Akureyri)
15.00 Nú er lag. Gunnar Salvarsson kynnir
gömul og ný úrvalslög að hætti hússins.
16.00 Taktar. Stjórnandi: Heiðbjört Jó-
hannsdóttir.
17.00 Erill og ferill. Erna Arnardóttir sér um
tónlistarþátt blandaðan spjalli við gesti
og hlustendur.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,10.00 11.00,
15.00, 16.00 og 17.00
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags.
17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavik
og nágrenni - FM 90,1 MHz.
17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrennni - FM 96,5 MHz
Miðvikudagur
16. júií
19.00 Úr myndabókinni 11. þáttur Barna-
þáttur með innlendu og erlendu efni.
Kuggur, myndasaga eftir Sigrúnu
Eldjárn, Fálynd prinsessa, Bleiki pardus-
inn, Snúlli snigill og Alli álfur. Ugluspegill,
Ali Bongó og Hænan Pippa. Umsjón:
Agnes Johansen.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Manngerðir hellar á íslandi Ný
heimildamynd sem sjónvarpið hefur látið
gera um manngerða hella á Suðurlandi,
sögu þeirra og nytjar að fornu og nýju.
LeiðsögumaðurÁrni Hjartarson. Umsjón-
armenn auk hans Hallgerður Gisladóttir
og Guðmundur J. Guðmundsson. Upp-
töku stjórnaði Karl Sigtryggsson.
21.25 Hótel Lokaþáttur: Líflínur. Banda-
riskur myndaflokkur í 22 þáttum. Aðal-
hlutverk: James Brolin, Connie Sellecca
og Anne Baxter. Þýðandi Jóhanna Þrá-
insdóttir.
22.10 Járnöldin (Járnálderen) Sænsk hei-
mildamynd um járnöld i Skandinavíu og
fornminjar frá þeim tímum. Myndin er
framhald myndarinnar um bronsöld sem
sýnd var i sjónvarpinu 2. þ.m. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision -
Sænska sjónvarpið).
23.10 Fréttir í dagskrárlok.
^NEW HOLLAIND
Rúllubindivélar
Staðgreiðsluverð kr. 360.000,-
Afborgunarverð kr. 378.000,-
Allt að tveggja ára lánstími
Til afgreiðslu strax
Globusa
LÁGMÚLA 5 - PÓSTHÓLF 8160 128 REYKJAVÍK - S 91 -68 15 55
G/obusf
LÁGMÚLA 5 - PÓSTHÓLF 8160 128 REYKJAVÍK - S 91 -6815 55
sa
Múgsaxarar
Til afgreiðslu strax. Verð
aðeins kr. 244.600,-
______Góð greiðslukjör
Skuttogarinn
Merkúr RE 800
(áöur Bjarni Benediktsson) er til sölu. Skipið liggur
í Brattvaag í Noregi en unnið er að breytingum
þess í frystitogara hjá skipasmíðastöðinni Bratt-
vaag Skipsinnredning.
Skipið selst í því ástandi sem það er ásamt
verksamningi um breytingu. Tilboðsgögn verða
afhent á skrifstofu Ríkisábyrgðasjóðs, Austur-
stræti 14, 3.hæð,
Tilboð, er greini verð og greiðsluskilmála skulu
berast Ríkisábyrgðasjóði eigi síðar en kl. 16
miðvikudaginn 30. júlí nk.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Seðlabanki íslands
Ríkisábyrgðasjóður