Tíminn - 16.07.1986, Qupperneq 16
ÍSLENSKA karlalandsliöiö I
handknattleik vann sinn fyrsta leik á
Friöarleikunum í gær eftir tvö töp. Það
voru Pólverjar sem uröu fórnarlömb
okkar manna og varö sigurinn eins
naumur og hægt var aö hafa hann eöa
22-21. Sigurður Sveinsson var at-
kvæðamestur íslensku leikmannanna
og geröi 8 mörk en Guðmundur Hrafn-
kelsson markvöröur varöi sem óöur
væri í markinu og hjálpaöi verulega til.
|
Miðstjómarfundur Alþýðubandalagsins:
Afsögn Guð-
mundar felld
- með 44 atkvæðum gegn 20 og þar með telur
Alþýðubandalagið að máli Guðmundar sé lokið
Miðstjórnarfundi Alþýðubanda-
lagsins lauk um kl. 6 í gærmorgun,
eftir 10 tíma umræður. Fundurinn
sendi frá sér ályktun eftir fundinn
þar sem segir að höfuðhlutverk
flokksins sé að beita sér gegn auð-
hyggjunni og afleiðingum hennar.
Hafskipsmálið hafi varpað skýru
ljósi á eðli auðvaldsþjóðfélagsins og
„leitt í ljós þær hættur sem. geta fylgt
því að trúnaðarmenn launafólks og
sósíalískrar hreyfi:.gar tengist hags-
munaböndum við forráðamcnn auð-
fyrirtækja og áhrifamikla einstakl-
Ínga í forystusveit íhaldsaflanna".
Fundurinn tilnefndi síðan 5 menn til
þess að fara á fund Guðmundar J.
Guðmundssonar og skýra honum
frá niðurstöðum fundarins og að-
draganda þeirra.
„Af hálfu Alþýðubandalagsins er
máli Guðmundar J. Guðmundsson-
ar lokið,“ sagði Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins.
Svavar sagði ennfremur að tillögu
Kjartans Guðmundssonar hefði ver-
ið vísað frá með 44 atkvæðum gegn
20, en í henni hefði falist krafa um
afsögn Guðmundar. Þarsem afdrátt-
arlaus meirihluti fundarmanna hefði
vísað þeirri tillögu frá, þá þyrfti ekki
frekari vitna við í því máli. Aðspurð-
ur um framtíð Alþýðubandalagsins
sagði Svavar að hann teldi enga
ástæðu til að óttast um framtíð þess,
það hefði áður gustað í kringum
Alþýðubandalagið en það hefði
hingað til staðið slíkt af sér og myndi
halda því áfram. Miðstjórnarfundur-
inn hefði staðfest þá skoðun sína.
f sama streng tók Ólafur Ragnar
Grímsson og sagði hann að fundur-
inn hefði sýnt innri styrk Alþýðu-
bandalagsins, þar sem æðsta stofnun
þess hefði getað komist að afdráttar-
lausri niðurstöðu. Hvorki Svavari né
Ólafi fannst trúlegt að um nokkurn
klofning yrði að ræða í flokknum,
heldur þvert á móti.
Guðmundur J. Guðmundsson
sagði í samtali við Tímann að hann
hefði ákveðið að gefa kost á sér
áfram sem þingmaður Alþýðu-
bandalagsins og taka við trúnaðar-
störfum að nýju hjá Dagsbrún. Þessi
ákvörðun kæmi í kjölfar niðurstöðu
saksóknara sem er á þann veg að
Guðmundur tengist ekki Hafskips:
málinu með neinum hætti. „Vilji
Alþýðubandalagsins er einnig skýr í
þessum efnum þar sem tillagan um
að ég ætti að segja af mér var felld
með 44 atkvæðum gegn 20." Þá
setningu í tillögunni sem samþykkt
var á miðstjórnarfundinum um hætt-
ur þess að trúnaðarmenn launafólks
tengist hagsmunasamböndum við
forráðamenn auðfyrirtækja sagðist
Guðmundur ekki geta tekið til sín,
eftir að 5 sendimenn af fundinum
hefðu komið til sín og ekki getað
gefið honum neinar skýringar á þess-
ari setningu aðrar en þær, að þær
væru almennskoðunflokksins. „Þeir
gátu ekki nefnt mér eitt dæmi þess
að ég hefði tengst slíkum böndum,“
sagði Guðmundur.
-ABS
Fimm leituðu læknishjálpar
Stangaveiðimenn í Borgarfirði:
- flugan í andliti eða afturenda
Fimni stangaveiðimenn urðu að
leita á náðir læknis í heilsugæslustöð-
inni í Borgarnesi um helgina. Allir
áttu þeir það sameiginlegt, að hafa
fest fluguna, annaðhvort í andliti
eða jafnvel í afturendanum.
Pétur Hannesson læknir á heilsu-
gæslustöðinni í Borgarnesi sagði í
samtali við Tímann í gær að þetta
væri ekkert óvanalcgt, þar sem mikil
veiðisvæði væru í Borgarfirðinum,
og því væri ekki mikið þó að nokkur
meiðsl hlytust af. „Flestir taka þetta
úr sér sjálfir en einn og einn kemur
hingað til okkar," sagði Pétur.
Nokkurt hvassviðri hefursett strik
í reikninginn hjá fluguveiðimönnum
og hafa nokkrir misst vald á flugunni
og hún lent á óæskilegum stöðum.
Þeir fimm veiðimenn sem þurftu að
leita ásjár í Borgarnesi. héldu allir
aftur til veiöa að lokinni aðgerð.
Pétur læknir mundi að ein flugan
sem fjarlægð var úr kinn cins veiði-
manns, var af gerðinni Hairy Mary,
en hinar festi hann sér ekki í minni.
Pétur vildi benda mönnum á að vera
með húfu við fluguveiði, væru þeir
ekki vanir.
-ES
Brunavarnaátaki '86, sem Brunabótafélag íslands hefur staðið fyrir að undanförnu, lauk í gær með æfíngu í
Reykjavík. Heimsóttir hafa verið með 60 staðir á landinu þar sem haldnar hafa verið brunaæfíngar á um 80
Stödum. (Tímamynd Sverrir)
Þrjú flugfélög
í viðbragðsstöðu
hætti Arnarflug innanlandsflugi
Verði af því að Arnarflug hætti
viö áætlunarflug sitt innanlands,
liggur Ijóst lyrir aö a.m.k. þrjú
fluglélög hafa áhuga á að taka þaö
að sér. Þau eru Flugfélag Norður-
lands, Flugfélagið Ernir og Lcigu-
llug Sverris Þóroddssonar.
Sigurður Aðalstcinsson, frkvstj.
Flugfélags Noröurlands, sagði í sam-
tali við Tímann í gær, að þeir gætu
hafið áætlunarflug til staða á Norður-
landi og Snæfellsnesi mcö stuttum
fyrirvara. Flugflotinn væri nægur en
þcir þyrltu að bæta viö sig llugmönn-
um. „Ef af þessu veröur munum við
sctja upp útibú í Reykjavík og hafa
eitthvað af flugvélum þar. Þaö mun
auðvclda okkur að lljúga til Snæfclls-
ncss, því við teljum að þaö sé ekki
nægilcgt að fljúga bara til Blönduóss
og Siglufjarðar," sagði Sigurður.
„Þetta nægði okkur, en við höfum
cngan áhuga á Vcstfjarðaflugi. Við
ræddurn viö samgönguráðuncytið í
gær og lctum þá vita að viö höfum
áhuga á þessu."
Hörður Guðmundsson, hjá Örn-
um á ísafiröi, sagði að þeir hefðu
hug á þcssu flugi og gætu þeir byrjað
strax. Þcir hefðu fyrst og frcmst
áhuga á flugi til Vcstfjarða cn cinnig
gæti flug til Snæfcllsness hentað
þeim vel. Aðalstöðvar flugsins yrðu
áfram á ísafirði, en einnig kæmi til
grcina að hafa flugvélar staösettar
annars staðar. „Viö erum í samstarfi
viö Flugfélag Norðurlands og Flug-
lciðir um miðasölu og annað, og
reikna ég mcð að viö gætum jafnvel
boðiö upp á betri þjónustu."
Sverrir Þóroddsson sagði að
fluglclag Itans hefði fullan hug á að
taka að sér áætlunarflug til Snæfclls-
ness, gæfi Arnarflug þctta liá sér.
Til þcss hefði hann bæði vélar og
mannafla.
Það er því Ijóst að áhuginn er fyrir
hendi og að til samkeppni gæti
komið um flugleiðirnar á Snæfells-
nesi. Og þá má ckki glcyma fjórða
aðilanum, scm er hugsanlega nýtt
flugfélag mcð þátttöku Arnarflugs.
En forsenda alls þessa er auðvitað
hvort Arnarflug hættir innanlands-
fluginu. Ákvörðun um það verður
væntanlcga tckin á stjórnarfundi fé-
lagsins scm haldinn verður á
morgun.
phh
Lending DC-8 þotu meö 190 farþega:
Björgunarlið
með viðbúnað
Flugstjóri hélt að sprungið hefði hjólbarði,
en svo reyndist ekki vera
Mikill viðbúnaður var á Kefla-
víkurflugvelli rétt fyrir kl. 8.00 í
gærmorgun þegar flugstjóri DC-8
þotu Flugleiða sem var að koma
frá Chicago tilkynnti um hugsan-
lega sprunginn eða sprungna hjól-
barða vélarinnar. Þotan var með
190 farþega innanborðs. Flugstjór-
inn taldi að sprungið hefði á vélinni
við flugtak í Chicaco vegna þess að
hann taldi sig heyra óveniu mikla
skruðninga í flugtaki. Aður en
þotan lenti á Keflavíkurflugvelli
var send flugvél á loft á móti
þotunni til að athuga hvort áverkar
sæjust á hjólbörðum þotunnar en
ekkert slíkt var sjáanlegt. Þotan
var þá látin lenda á eðlilegum tíma
og við lendingu reyndist hjólabún-
aðurinn í lagi og þotan lenti heilu
og höldnu.
Slökkvilið og lögregla á Kefla-
víkurflugvelli, sjúkrabflar og
hjálparsveitir á Suðurnesjum voru
komin á flugvöllinn, en undirbún-
ingur var í fullum gangi í Reykja-
vík á sjúkrahúsum og sjúkrabílum,
þegar í ljós var komið að allt var f
lagi.
-ABS