Tíminn - 22.07.1986, Síða 10
10 Tíminn:
Þriöjudagur 22. júlí 1986
Leiðin úr Húsadul yfir í
Langadal er ekki löng en
skemmtilega fjölbreytt.
Flestir kusu að ganga, og
allir skoðuðu Snorrahelli í
leiðinni. í baksýn sér í
lYfarkarfljót.
Jón R. Hjálmarsson
var skörulegur
aðall'ararstjóri. Hér er
hann að tala til fólksins
við lónið við Gígjökul.
Skem
Þórsme
Hin árlega sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykja-
vík var farin í Þórsmörk sl. laugardag. Um fimm hundruð
manns voru í ferðinni. Aðalfararstjóri var Jón R.
Hjálmarsson fræðslustjóri en aðrir í fararstjórn voru Jón
Helgason landbúnaðarráðherra, Þórarinn Sigurjónsson
alþingismaður, Hermann Guðjónsson, Hjalti Gestsson,
Skúli Þorleifsson, Snorri Þorvaldsson, Akurey, Jón
Kristinsson og Ragnhildur Sveinbjarnardóttir í Lambey,
Sigurður Jónsson á Kastalabrekku, Þráinn Valdimars-
son, Auðunn Bragi Sveinsson og Ingólfur Jónsson.
í austurleiðinni var farið inn Fljótshlíð og stansað við
Gluggafoss skammt frá Múlakoti. Síðan var haldið niður
með Markarfljóti og inn í Þórsmörk og sest að snæðingi
í Húsadal. Þar flutti Haraldur Ólafsson alþingismaður
ávarp. Flestir þátttakenda gengu svo í mildu veðri yfir í
Langadal en þeir, sem vildu eða treystu sér ekki til að
Myndavélar voru óspart á lofti í ferðinni.
Þórarinn Sigurjónsson er hér eitthvað að
glettast við Snorra Þorvaldsson.