Tíminn - 14.08.1986, Blaðsíða 1
KÍNVERSK stjórnvöld hafa tekiö
vel í boö Sovétstjórnarinnar um aö leita
leiöa til aö bæta samskipti þessara
tveggja stórvelda. Wu Xueqian utanríkis-
ráöherra Kína sagöi í samtali viö sovéska
ráöamenn aö Kínverjar vildu koma á
eölilegum samskiptum sem allra fyrst.
Hann bætti því þó viö aö enn væri langt í
land aö öll deilumál ríkjanna væru komin
á hreint og tiltók sérstaklega veru víet-
namskra herja í Kambódíu en Víetnam-
stjórn nýtur stuðnings Sovétstjórnarinnar.
SVISSNESKUR lögreglumaður
drukknaði í fyrrinótt er hann reyndi aö
bjarga önd frá því að lenda í hringiðu í á
skammt utan viö borgina Basel. Maöurinn
var góöur sundmaður en straumurinn
náöi samt tökum á honum rétt áöur en
hann gat teygt sig í andarskömmina.
LEYFISBRÉF til verðbréfamiðl-
unar hafa veriö gefin út til 9 aðila, en nú
eru komin til framkvæmda lög um verö-
bréfamiðlun. Samkvæmt þeim eróheimilt
að starfrækja veröbréfamiölun nema for-
stöðumaður hennar hafi fengið leyfi viö-
skiptaráöherra. Til þess þurfa þeir aö
uppfylla skilyrði um menntun, og leggja
fram 2ja milljóna bankatryggingu. Þeir níu
aðilar sem fengið hafa leyfisbréf eru:
Davíð Björnsson, Kaupþing hf; Guö-
mundur Hauksson, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar; Gunnar Helgi Hálfdánarson, Fjár-
festingarfélag íslands hf; Jóhann Sigur-
jónsson, Glitnir hf; Ólafur S. Sigurðsson,
Sparisjóður Kópavogs; Siguröur Geirs-
son, Útvegsbanki Islands; Sveinn Hann-
esson, lönaöarbanki íslands; Tryggvi
Pálsson, Landsbanki Islands; Vilborg
Lofts, lönaðarbanki íslands.
RÆÐISMENN íslands munu
funda í Reykjavík 31. ágúst til 4. septem-
ber. Slíkir fundir hafa verið haldnir tvisvar
áður og er gert ráö fyrir aö til landsins
komi á þriðja hundraö manns vegna
fundarins. Island er meö ræöismenn í
162 borgum í rúmlega 50 löndum. Þeir
eru nær undantekningarlaust ólaunaðir
kjörræöismenn.
KENNSLUHÆFNI veröur hér
eftir metin meira en áöur viö mat á
umsóknum um kennarastöður viö land-
búnaðarháskóla á Norðurlöndum. Að
þessari niöurstööu komust rektorar land-
búnaöarháskólanna á fundi á Hvanneyri
um síöustu helgi. Fram aö þessu hefur
aöaláhersla verið lögö á rannsókna- og
vísindastörf umsækjenda en nefndarálit
lá fyrir sem mælti meö meira tilliti til
kennsluhæfni.
HASSSMYGLARI var handtek-
inn á Keflavíkurflugvelli á mánudag en á
honum fundust 2 kíló af hassi viö tollskoð-
un. Maöurinn, sem er tæplega tvítugur,
var aö koma frá Luxemborg. Stúlka um
tvítugt var handtekin í framhaldi af þessu
og krafðist fíkniefnalögreglan gæsluvarö-
halds yfir þeim tveim. Söluverömæti hass-
ins mun vera um 1,5 milljónir króna á
markaði hérlendis.
ÞINGVALLAFERÐIN fræga,
sem SUJ og ÆFAB ætluöu aö fara í um
næstu helgi, virðist vera úr sögunni eftir
aö Jón Baldvin Hannibalsson ákvaö aö
taka ekki áskorun um aö kappræöa viö
Svavar Gestsson í Valhöll á laugardag.
Þar meö eru sumarferðin og kappræöurn-
ar úr sögunni aö því er Davíð Björnsson
formaður SUJ segir í DV í gær.
KRUMMI
...hefði þótt gaman
að sjá Jón Baldvin
og Svavar skegg-
ræða í Valhöll...
Mætir áætlanaflug British Midland andstööu á íslandi?
Midland ætlar að fljúga
daglega og lækka gjöld
Frá fréttaritara Tímans í London, David Keys
Breska flugfélagið British Mid-
land gæti mætt andmælum þcgar
umsókn þess um áætlunarflug til
íslands verður lögð fyrir íslensk
flugmálayfirvöld á næstunni. en
menn sem vel eru inni í flugmálum
telja að íslenskir ráðamenn muni
hreyfa mótbárum við áætlanir fé-
lagsins. Ráðamenn Midland neita
að tjá sig um málið.
Tíminn hefur upplýsingar um að
British Midland, annað stærsta
flugfélag í Englandi, áætli að fljúga
daglega á milli Heathrow, Glasgow
og Keflavíkur og ætli að bjóða
lægri flugfargjöld en Flugleiðir.
Hvorttveggja mun koma upp á
fundi sem fyrirhugaður er fljótlega
milli fulltrúa Midland og íslenskra
stjórnvalda. Sérfræðingar um
flugmál telja líklegt að íslensk
flugmálayfirvöld telji daglegar
áætlunarferðir, til bæði Heathrow
og Glasgow. á niðursettu verði,
vera ógnun við hagsmuni Flug-
leiða, sem nú fljúga daglega til
Heathrow (fjórum sinnum á viku
yfir vetrarmánuðina), og þrisvar í
viku til Glasgow.
Islensk yfirvöld skilgreina ferðir
til Glasgow og Heathrow sem tvær
aðskildar flugleiðir, og líklegt er
að bresk og íslcnsk stjórnvöld
verði að komast að samkomulagi
um túlkun á núgildandi flugþjón-
ustusamningi milli landanna
tveggja, áður en British Midland
getur hafið sínar áætlunarferðir.
Ef þessi hugsanlegu vandamál leys-
ast er líklegt að Midland reyni að
hefja áætlunarflug snemma í apríl
á næsta ári. Til flugsins yrðu notað-
ar DC-9 vélar, sem taka allt að 85
farþega.
British Midland er stærsta
flugtelugið í einkaeign í Bretlandi.
Það er með yfir 100 áætlunarferðir
á dag og flytur 1,7 milljónir farþega
á ári. Félagið á 17 flugvélar, þar af
8 DC-9 vélar og flýgur til 11
flugvalla utan Bretlands, þar á
meðan Amsterdani, París og
Brussel. Á flugleiðinni London-
Amsterdam eru fargjöld félagsins
25% ódýrari en keppinauta þess,
og félagið er þekkt fyrir lág fargjöld
í innanlandsflugi.
Veðurbliðan í gærmorgun lokkaði umsjónarmenn morgunþáttar útvarpsins út fyrir dyr og settust þau að niður á Austurvclli ásamt
gcstaplötusnúð þáttarins Ragnhildi Gísladóttur Stuðmanni, sem sést hér lengst til vinstri. Við hlið hennar eru Kolbrún Halldórsdóttir og
Gunnlaugur Helgason. * (Timamynd-Gísli F.gilii
Okurmáliö:
Fyrsti dómurinn
kveðinn upp í gær
Fyrsti dómurinn í okurmálinu
var kveðinn upp í Sakadómi
Reykjavíkur í gær. Björn Pálsson,
ungur Reykvíkingur, var dæmdur
í 1.400 þúsund króna sekt fyrir að
taka okurvexti af Hermanni Björg-
vinssyni að upphæð 350 þúsund
krónur. Pétur Guðgeirsson saka-
dómari kvað upp dóminn.
Björn er dæmdur til að greiða
fjögur hundruð þúsund krónur í
ríkissjóð en hinn hluti upphæðar-
innarerskilorðsbundinn til þriggja
ára, sem þýðir að geri hinn dæmdi
ekkert saknæmt af sér næstu þrjú
ár fellur sektin niður. Um er að
ræða eina milljón sem er skilorðs-
bundin og er forsenda skilorðsins
sú að talið er vonlaust að hann fái
greidda ávísun þá sem hann fékk
frá Hermanni en ekki hefur fengist
innleyst. í dómsorði segir ennfrem-
ur að hinn dæmdi hafi ekki notfært
sér neyð annarra og þvingað til
greiðslu okurvaxta, heldur hafi
hann látið Hermann hafa pening-
ana sem hann síðan notaði í út-
lánastarfsemi og tekið þar vexti
sem voru umfram hæstu lögleyfðu
vexti Seðlabankans. Þarsegireinn-
ig að Seðlabankinn hafi brugðist
þeirri lagaskyldu sinni að auglýsa
hámarksvexti á árinu 1984 þegar
lánastarfsemi Hermanns fór fram
og á þeirri forsendu er hinn dæmdi
einnig sýknaður að hluta.
Eftir er að kveða upp alla hina
dómana í okurmálinu, en nú bíða
mál 70 aðila eftir úrskurði Saka-
dóms Reykjavíkur í okurmálinu.
ABS
Þyrla Landhelgis-
gæslunnar:
Náðií
slasaðan
mann
- til Akraness
Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti mikið slasaðan mann til
Akraness seinnipartinn í gær
og var hann lagður inn á Borg-
arspítalann í Reykjavík. Mað-
urinn hafði verið fluttur frá
Borgarfirði með sjúkrabíl til
Akraness þar sem þyrlan tók
við honum.
Lögreglan í Borgarnesi neit-
aði að gefa upplýsingar um
hvernig maðurinn slasaðist eða
tildrög slyssins. ABS