Tíminn - 14.08.1986, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 14. ágúst 1986
Tíminn 3
Umferðarteppa í Borgartúni dagleqa:
STÍFLA VEGNA
HOLRÆSAGERDAR
- losnar tímabundið 18. ágúst
Vegna holræsagerðar er Sætún nú
lokað frá Klöpp og inn að
Kringlumýrarbraut og hefur verið í
allt sumar. Umferð út úr hringtorgi
við Skúlatorg, sem áður fór um
Sætún, fer því nú um Borgartún. At
þessu leiðir hin mesta umferðar-
teppa í Borgartúninu á álagstimum
dags og dæmi eru um að menn scu
hálftíma að komast frá Skúlatorgi og
inn á Kringlumýrarbraut, þegar mest
umferðin er.
Að sögn gatnamálastjóra mun
holræsagerðinni ekki Ijúka fyrr en í
október og verður fólk því að taka á
þolinmæðinni þangað til. Hinsvegar
verður opnað tímabundið í aðra
áttina fyrir afmælisdag Reykjavíkur
og verður þá hægt að aka í vestur frá
Kringlumýrarbraut og að Skúla-
torgi, en síðan verður Sætúnið ekki
opnað fyrir umferð fyrr en í október.
Holræsagerð gengur samkvæmt
áætlun að sögn gatnamálastjóra.
ABS
Þolinmæðisvegur: - Svona var umferðin í Borgartúninu milli kl. 16.00 og
17.00 í gær. Samfelld bflaröð var frá Skúlatorgi og inn að Kringlumýrarbraut.
(Tímamynd: Gísli Egill)
Stuðmenn skemmta á krá
Veitingahúsinu Duus við Fisc-
hersund virðist vera að vaxa fiskur
um hrygg. í fyrrakvöld héldu þar
Stuðmenn tónleika í nýjum sal
veitingahússins, en þeim var mynd-
varpað af þremur skjám víða um
húsið, því að færri komust að í
tónleika- og danssalnum, en vildu.
Eftir stækkun rúmast um 300
manns í Duus-húsi. Þar eru vín-
veitingar og á matseðlinum má
finna ýmsa nýstárlega rétti á ís-
landi, svo sem svínarif, að amerísk-
um hætti, sagði Már Guðlaugsson,
framkvæmdastjóri staðarins. Hann
sagði ennfremur að í bfgerð væru
fleiri tónleikar, en lét ekki uppi
eftir hvaða hljómsveitum hefði vcr-
ið leitað í það.
Stuðmenn riðu því á vaðið við
að skapa hefð, að því er forráða-
menn Duus-húss vona.
Aðgangseyrir var 500 krónur, en
varla dugir það til að greiða stór-
hljómsveit sem Stuðmönnum?
Þeir taka að sjálfsögðu ekki 2,5
milljónir hér,“ svaraði Már.
Þj
Umferðar-
átakið
dregur
úr slysum
Verulega dró úr slysum í um-
ferðinni í júlí síðastliðnum miðafi
við júlí í fyrra, samkvæmt bráða-
birgðaskráningu lögreglu um um-
ferðarslys. Þannig fækkaði slysum
úr 76 í 51 og slösuðum úr 121 í 76.
Sérstaklega fækkaði slysum i
Reykjavík mikið, úr 19 í 8.
Umferðarátak lögreglu og Um-
ferðarráðs gegn of hröðum akstri
og ölvunarakstri hófst í júlí og
stendur enn, og má reikna með að
þessi fækkun slysa standi í sam-
bandi við það átak.
Mun færri slys með meiöslum
hafa orðið í umferðinni það sem af
er ársins en í fyrra. Þannig telur
lögreglan 258 slys með meiðslum
það sem af er ársins, og 389
slasaða, en í fyrra slösuðust 549 í
357 slysum. Dauðaslys eru þó ívið
fleiri í ár en í fyrra eða 15, þar sem
17 hafa látist, en í fyrra höfðu 13
látist í 13 slysum.
Egill Ólafsson og Ragnhildur Gísladóttir fóru á kostum, þrátt fyrir að þau eigi að venjast stærra sviði.
(Tímamynd: Pclur)
Duus hús:
Magnús Finnsson, framkvæmdastj. Kaupmannasamtakanna:
Sama smásöluálagning nú
og sex-mannanefnd ákvað
- en bændafyrirtækin hækkuðu heildsöluálagninguna
„Ég vil leiðrétta þá rangfærslu
Gunnars Guðbjartssonar, þar sent
hann segir í Tímanum í dag að hátt
kartöfluvcrð sé kaupmönnunum að
kenna. Ég vil benda honum og
öðrum á að smásöluverslunin sem
slík hefur núna hlutfallslega sömu
álagningu og á meðan sex-manna-
nefndin skammtaði álagninguna -
eða frá 15-20%, samkvæmt könnun
sem verðlagsstofnun gerði nýlega og
annarri sent við gerðum í gær hjá
okkar félagsmönnum," sagði Magn-
ús Finnsson, framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtakanna í samtali
við Tímann í gær.
„Það kemur hins vegar í ljós við
fyrstu verðlagningu á nýjum kartöfl-
um í haust, að heildsöluálagningin
sem áður fyrr var 20% fór nú í 25%
og er 34% nú í dag, eða miklu hærri
en smásöluálagningin. Þessi álagn-
ing hjá dreifingaraðilunum er allt of
há, eðlileg heildsöluálagning væri í
kring um 10%. En þarna er um að
ræða fyrirtæki bændanna sjálfra sem
slíkra, t.d. Ágæti og Þykkvabæjar-
kartöflur.
Þar við bætist að við fyrstu verð-
lagningu núna var verðhækkunin
10-20% framyfir almennar verðlags-
hækkanir í landinu. Þetta þýðir það.
að bændur sem komu til ráðherra á
dögunum og báðu um verndartolla á
inntluttar kartöflur, þeir hafa nú
ntiðað verðlagningu sína á kartöflum
upp úr garðinum við kartöflur með
50% verndartolli og hækkað verðið
sem því nemur.
Samkvæmt þessu vísa ég algerlega
á bug þeim ásökunum að hækkun á
kartöfluverði núna sé vegna smá-
söluálagningar eða kaupmanna - hún
er öll vegna bændanna sjálfra og
dreifingaraðila þeirra sjálfra.
Bóndinn, sem í blaðinu var að tala
um örlagadóm fólksins í landinu,
verður síðan að gera sér grein fyrir
að hann þarf að borga 5% af heild-
söluverðinu á kartöflunum sínum til
Framleiðsluráðs, fyrir Gunnar Guð-
bjartsson".
Magnús Finnsson taldi einnig rétt
að benda bændum á það að þau
lögmál að þeint væri öllum frjálst að
framleiða eins mikið og þeir gætu án
tillits til sölu gildi ekki lengur. Þeir
væru rétt að átta sig á því varðandi
kindakjötið núna, en hljóti einnig að
þurfa að átta sig á því með garð-
ávextina.
Jafnframt vildi hann benda á, að
hann hcfði eftir traustum heimildum
að innfluttar nýjar kartöflur - með
verndartollum og öllu - væri nú hægt
að selja fyrir 44-57 kr. kílóið, út úr
búð.
Hveragerðishreppur 40 ára:
Menningardagskrá stendur út vikuna
Hvergerðingar halda upp á það í
þessari viku að 40 ár eru liðin síðan
Hveragerðishreppur var stofnaður,
og af því tilefni mun sérstök hátíða-
dagskrá standa út þessa viku.
Upphafið að stofnun hreppsins
má rekja til ársins 1945 þegar íbúar
í byggðakjarnanum sem myndast
hafði í Hveragerði, stofnuðu félag
sem kallað var Hreyfingin, og var
fyrsti formaður þess Kristmann
Guðmundsson rithöfundur. Hreyf-
ingin var vísir að sveitarstjórn og
fíngin var vísir að sveitarstjórn og
innheimti m.a. 100 króna gjald af
íbúum til að kosta sameiginlegt við-
hald á hitaveitu, götum og fleiru.
Hreyfingin fór síðan fram á það við
Ölfushrepp að hann kannaði hvort
íbúar Hveragerðis vildu stofna sér-
stakan hrepp. Sú skoðanakönnun
fór fram þá unt haustið og var
stofnun Hveragerðishrepps sam-
þykkt með 95 atkvæðum gegn 85.
Dagskrá afmælishátíðarinnar, eða
menningarvikunnar, hófst s.l. laug-
ardag með opnunarhátíð þar sem
Vigdís Finnbogadóttir forseti var
sérstakur heiðursgestur.
Þá voru opnaðar þrjár sýningar í
Iþróttahúsinu: blómasýning, mál-
verkasýning og handiðnaðarsýning.
Þessar sýningar verða opnar kl.
14-21 út vikuna, en á þeim eru
eingöngu verk eftir Hvergerðinga.
Jafnframt verður Garðyrkjuskólinn
á Reykjum opinn almenningi á sama
tíma og sýningarnar eru opnar.
Á sunnudaginn var hátíðamessa í
Hveragerðiskirkju og seinna um
daginn var söngskemmtun þar sem
karlakórinn Fóstbræður söng. Á
miðvikudagskvöldið var skálda-
kvöld í Hótel Örk, þar sem lesin
voru verk eftir skáld sem sett hafa
svip á Hveragerði.
I kvöld, fimmtudag, verður tón-
listarkvöld í Hveragerðiskirkju, en
annað kvöld verða popphljómleikar
í Hótel Ljósbrá, (Hótel Hveragerði)
þar sem Greifarnir koma fram. Á
laugardagskvöldið verður síðan hinn
margfrægi Blómadansleikur, þar
sem Blómadrottning verður krýnd,
°g hátíðinni lýkur síðan á sunnudag-
inn 17. ágúst með skemmtidagskrá í
íþróttahúsinu, sem hefst kl. 17.00og
flugeldasýning í Edengarði slær
botninn í vikuna.
Hveragerðiskirkja setur sérstakan
svip á Hveragerði og þar fara fram
nokkrir liðir á hátíðardagskránni.