Tíminn - 14.08.1986, Blaðsíða 12
12 Tíminn
S.U.F.- þing Sambandsþing SUF hiö 21. verður haldið í Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði 29.-30. ágúst 1986.
Dagskrá:
Föstudagur 29. ágúst.
1. kl. 16:00 Mæting
2. kl. 17:00 Þingsetning, Finnur Ingólfsson formaður SUF.
3. kl. 17:15 Kosning starfsmanna þingsins: a. Þingforsetar (2) b. Þingritarar(2) c. Kjörnefnd(8)
4. kl. 17:20 Skýrslastjórnar a. Formanns b. Gjaldkera
5. kl.17:45 Ávörp gesta
6. kl. 18:00 Framsóknarflokkurinn. Afl nýrratíma. a. Staða Framsóknarflokksins í íslenskum stjórnmálum. b. Niðurstöður þjóðmálakönnunar SUF c. Megináherslur Framsóknarflokksins
í stjórnmálum næstu árin.
7. kl. 19:00 Kvöldverður
8. kl. 20:00 Kynning á drögum að ályktunum. a. Stjórnmálaályktun b. Megináherslur Framsóknarflokksins
í íslenskum stjórnmálum næstu árin.
9. kl. 20.30 Almennarumræður
10. kl. 22:30 Kvöldvaka
Laugardagur 30. ágúst.
1. kl. 8:00 Morgunverður
2. kl. 8.30 Nefndarstörf a. Stjórnmálanefnd b. Flokksmálanefnd
3. kl. 12:00 Hádegisverður
4. kl. 13:00 Knattspyrna, sund
5. kl. 14:00 Kynning á álitum nefnda, umræður og afgreiðslamála.
6. kl. 17:30 Kosningar
7. kl. 18:00 Önnurmál
8. kl. 19:30 Þingslit
9. kl. 20:00 Kvöldskemmtun.
Sunnudagur 31. ágúst
1. kl. 10:00 Morgunverður
2. kl. 12:00 Lagt af stað frá Hrafnagilsskóla.
Stjórnin
Blaðberar
óskast STRAX
/ eftirtalin hverfi.
H
Skerjafjörð
Hafnarfjörð
Garðabæ
Tirninn
SIÐUMULA 15
©
686300
Fimmtudagur 14. ágúst 1986
Óskar Bjartmarz.
95 ára afmæli
Óskar Bjartmarz, fyrrv. forstööumaö-
ur Löggildingarstofunnar, verður 95 ára á
morgun, þ. 15. ágúst.
Hann tckur á móti gcstum kl. 16.00-
18.00 (4-6) á afmælisdaginn í Seljahlíð,
heimili aldraðra í Breiðholtshverfi, þar
sem hann er búsettur nú.
80 ára afmæli
Benjamín Markússon, fyrrv. bóndi,
Ystu-Gördum í Kolbeinsstaðahreppi
veröur áttræöur þann 18. ágúst næstkom-
andi. Hann tekur á móti gestum laugar-
daginn 16. ágúst kl. 16.00 (4 síöd.) í
félagsheimilinu Lindartungu í Kolbeins-
staöahreppi.
Bæjarleiðir og Safnaðarfélög
Langholtskirkju
bjóða öldruðum í Langholts-
sókn í ferð
Bifreiðastjórar Bæjarleiða og fjölskyld-
ur þeirra bjóða öldruðum velunnurum
Langholtskirkju i ferð miðvikudaginn 20.
ágúst n.k.
Haldið er kl. 13.00 austur yfir fjall að
skólasetrinu Skógum undir Eyjafjöllum.
Leiðsögumaður í ferðinni er Jón Árnason
skólastjóri. Byggðasafnið verður skoðað
undir leiðsögn l'órðar fræðaþular Tómas-
sonar.
Félagar úr Kven- og bræðrafélögum
safnaðarins aðstoða eftir föngum og
bjóða til kaffidrykkju í Skógum.
Munið, að það er lagt af stað frá
Safnaðarheimilinu stundvíslega kl. 13.00.
Áratuga reynsla sannar að þessir ferða-
dagar hafa alltaf verið sólskinsdagar -
hvernig sem viðrar.
Bæjarleiðir og safnaðarfélög Lang-
holtskirkju.
Grímnir
Grímuvinnustofa
Leikhús og sállækningar
5 kvölda námskciö byggt á grímugerö,
Itinuni forna seið, leikrænni tjáningu og
nútíma sállækningum.
Undirskrift grímuvinnustofunnar ntá
vera þessi gamla setning, maður þekktu
sjáifan þig, (já og listin er leikur).
Kynningarkvöld að þrídrangi
Tryggvagötu 18. þann 15. ágúst '86 kl.
20.00.
Leiðbeincndur: Tryggvi Hansen og Sig-
ríður Eyþórsdóttir.
Tími: Fimm næstu miðvikudagskvöld
kl. 19.23 20. ág. - 27. ág. - 3. sept. - 10.
sept. - 17. sept.
Verð: 3000 kr.
Staður: Þrídrangur Tryggvagötu 18 og
(sjá nánar tilkynnt um síma þ.e. stundum
á verkstæði og undir berunt himni).
Skráning: Þrídrangur stma 622305 dag
hvern milli kl. 14 og 81.
Opið hús i Norræna Ihúsinu -
Fyrirlestur umkirkjusögu
íslands
Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskupverð-
ur næsti fyrirlesari í Opnu húsi, dagskrá
fyrir norræna ferðamenn, fimmtudaginn
14. ágúst kl. 20.30.
Fyrirlesturinn nefnist „Úr kirkjusögu
íslands" og verður fluttur á sænsku.
Eftir kaffihlé veröur sýnd kvikntynd
Ósvalds Knudsens „Sveitin milli sanda"
með norsku tali.
Nú fer senn að líða að lokum þessarar
sumardagskrár Norræna hússins, en að-
sókn hefur verið mjög góð að Opnu húsi í
sumar, og góður rómur gerður að fyrir-
lestrunum.
Síðasti fyrirlesarinn í Opnu húsi,
fimmtudag 21. ágúst verður sr. Heimir
Steinsson, þjóðgarðsvörður og talar hann
um Þingvelli.
Bókasafn og kaffistofa Norræna húss-
ins verða opin til kl 22, eins og venja er á
fimmtudögum, þegar Opið hús er á
dagskrá.
Sumarsýning Norræna hússins er opin
daglega kl. 14-19 og lýkur sunnudaginn
24. ágúst.
Ættarmót í Njálsbúð
Afkomendur Sigríðar Oddsdóttur og
Þorsteins Ólafssonar frá Álfhólahjáleigu
í Vestur-Landeyjum, föstudaginn 15.
ágúst. Það hefst kl. 20.00 og stendur til
laugardagskvölds 16. ágúst.
Sumarferð Átthagasamtaka
Héraðsmanna
Átthagasamtök Héraðsmanna efna til
hópferðar að Veiðivötnum laugardaginn
30. ágúst n.k. Væntanlegir þátttakendur
eru beðnir að hafa samband við Hrein
Kristinsson í síma 84134 sem fyrst.
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins
1) 14.-19. ágúst (6 dagar): Fjörður -
Hvalvatnsfjörður - Þorgeirsfjörður.
Flugleiðis til og frá Akureyri. Gist í
svefnpokaplássi á Grenivík, dagsferðir
þaðan í Fjörðu.
2) 15.-19. ágúst (5 dagar): Fjallabaksleiðir
og Lakagígar. Ekið um Fjallabaksleið
nyrðri, gist í Landmannalaugum, næst er
gist á Kirkjubæjarklaustri og farin dags-
ferð um Lakagígasvæðið. Frá Kirkju-
bæjarklaustri er ekið um Fjallabaksleið
syðri til Reykjavíkur.
3) 15.-20 ágúst (6 dagar): Landmanna-
laugar - Þórsmörk. Gengið milli göngu-
húsa F.í. Fararstjóri: Dagbjört Öskars-
dóttir.
4) 21.-24. ágúst (4 dagar): Núpsstaða-
skógur. Ekið austur fyrir Lómagnúp í
tjaldstað við fossinn Þorleif míganda.
Gönguferðir um nágrennið, Núpsstaða-
skóg og víðar.
5) 22.-27. ágúst (6 dagar): Landmanna-
laugar - Þórsmörk. Gengið milli göngu-
húsa F.l. Fararstjóri: Jóhannes I.
Jónsson.
Ferðafélagið býður upp á ódýrar og
öruggar sumarleyfisferðir. Skoðið ísland
og ferðist með Ferðafélagi íslands.
Ferðafélag íslands.
Helgarferðir F.í. 15.-17. ágúst
1) Álftavatn - Laufafell - Skaftártungur.
Gist í sæluhúsi F.í. við Álftavatn. öengið
á Laufafell. Ekin er Fjallabaksleið syðri
að Álftavatni og síðan til baka um
Skaftártungur.
2) Landmannalaugar - Eidgjá. Ekið um
Jökuldali í Eldgjá og gengið að Ófæru-
fossi. Gist í sæluhúsi F.l. í Laugum.
3) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála.
Fólk sem á eftir sumarleyfi ætti að athuga
dvöl í Þórsmörk.
4) Hveravellir - Þjófadalir - Hvítárnes.
Gist í sæluhúsi F.í á Hveravöllum.Heitur
pottur til baða og afar góö aðstaða.
Farmiðasala og upplýsingar á skrifstof-
unni, Öldugötu 3.
Ferðafélag Islands.
Útivistarferðir
Helgarferðir 15.-17. ágúst
1. Núpsstaðarskógar - Brottför föstudag
kl. 18.00. Gönguferðir m.a. að Tvílitahyl
og Súlutindum. Berjaland og veiði.
Kynnist þessu tilkomumikla svæði vestan
Skeiðarárjökuls. Tjöld.
2. Þórsmörk Gist í skálum Útivistar í
Básunt á Goðalandi. Gönguferðir við
allra hæfi. Munið sumardvöl í heila eða
hálfa viku. Kynningarverð í ágúst.
3. Skógar - Fimntvörðuháls - Básar 8-9
klst. ganga yfir hálsinn. Brottför laugar-
dag kl. 08.00. Gist í Útivistarskálanum
Básum.
Sumarleyf isferðir 21 .-24. ágúst
Lakagígar - Holtsdalur - Leiðólfsfell (4
dagar). Óvenju fjölbreytt ferð með góð-
um gönguleiðum. Ekki of langur akstur.
Gist við Blágil og Eldgjá. Heim um
Eldgjá og Laugar. Upplýsingar og farm.
á skrifstofunni Grófinni 1. Símar 14606
og 23732.
S.H. Draumur: Guðjón S. Birgisson gítar (t.v.) þá Gunnar Hjálmarsson, söngur,
bassi og Birgir Baldursson, trommur.
Ameríski draumurinn í Roxzý í kvöld
Hér á landi cru nú stödd þau Paul
Lydon og Laura Valentino, sem saman
mynda hljómsveitina GOLDBOX. Þau
eru frá San Fransisco þar sem þau hafa að
undanförnu getið sér góðan orðstír í
„undirheimatónlistarlífi" borgarinnar.
í kvöld leika þau í veitingahúsinu
Roxzý ásamt íslensku svcitunum S.H.
Draum og Prófessor X. Tónleikarnir
hefjast kl. 10 (22.00).
ÓKUÞÓR - málgagn FÍB
Nýtt hefti Ökuþórs, málgagns FIB,
2.-3. tbl. kom út s.l. mánud. Meðal efnis
má geta greina um bifreiðaferðalög er-
lendis. Annars vegar nteð bílafcrjunni
„Norröna" eftir Sigurjón Valdimarsson
og hins vegar þar sem vinsæll ferðamáti
„flug og bíll" er valinn. Greinarhöfundur
er Hilntar Viktorsson.
Auk félagslegs efnis má sérstaklega
bcnda á athyglisverða grein um aurhlífar
eftir Svein Torfa Sveinsson verkfræðing,
sem hann kallar „Aurhlífar - in mcmor-
iam".
Kafli úr greinarflokki Andra Árnason-
ar hrl., lögfræðilegs ráðgjafa FÍB um
réttarstöðu bifreiðacigenda birtist cnn-
fremur í þessu hefti. Fyrirhuguð er sér-
prcntun þcssa greinarflokks í heild.
Ökuþór cr stærsta bílablað landsins.
Blaðið er scnt frítt til allra félagsmanna
FÍN og er ekki selt í lausasölu. Ritstjóri
og ábyrgðarmaður er Jónas Bjarnason.
Vikan
Fremst í þessu tölublaði Vikunnar er 2.
grein um hótel á íslandi, Það er Hótel
Stykkishólmur sem þarna cr kynnt í máli
og myndum. Þá er sagt frá ýmsum
uppákomum í borginni: Borgin að lifna.
Viðtal er við Kolbrúnu Halldórsdóttur
leikkonu, sem margir þekkja af rás2. Sagt
er frá N'ART og grein er unt Maureen
Reagan, dóttur Bandaríkjaforseta, sem
nýlega var á ferð á íslandi. Píanóleikarinn
og grínistinn Angus Rollo segir frá hvern-
ig það sé að vera „íslandsfrelsaður".
Islenska útvarpsfélagið tekur til starfa
bráðlega. Einar Sigurðsson útvarpsstjóri
segir frá í Vikuviðtali. Margt fleira er í
blaðinu, svo sem mataruppskriftir, um
Ijósmyndasamkeppni um bestu Rcykja-
víkurmyndina og smásaga o.ll. Útgefandi
er Frjáls fjölmiðlun hf., en ritstjóri Þór-
unn Gestsdóttir.