Tíminn - 09.09.1986, Side 1
SKAFTÁRHLAUPIÐ er nú
komið í hámark að því er talið er og mun
þetta hlaup vera það stærsta frá 1972.
Lítið jakahlaup fylgir og því hafa vegir á
Skeiðarársandi ekki skemmst og brýrnar
eru ekki í neinni hættu.
VIÐSKIPTAVIÐRÆÐUR
Rússa og íslendinga hófust í daa í
Reykjavík og standa út vikuna. Aoal-
áherslan er lögð á það af hálfu íslendinga
að gengið verði frá síldarsölusamningi,
en einnig verður rætt um olíuviðskipti og
kaup Rússa á ullarvörum. Mjög mikið
hefur dregið úr þessum viðskiptum
undanfarin ár.
LOÐNUVERÐ er nú umræðuefni
kaupenda og seljenda en verksmiðjueig-
endur sögðu loðnuverðinu upp í síðasta
mánuði. Fyrsti samningafundurinn var
haldinn í gær og varð enginn árangur af
honum og verður næsti fundur haldinn á
miðvikudag.
BYLGJAN var vinsælasta útvarps-
rásin í síðustu viku samkvæmt könnun
sem Hagvangur gerði að beiðni Sam-
bands íslenskra auglýsingastofa. Hringt
var í 250 manns á fimm mismunandi
tímum og spurt hvort verið væri að hlusta
á útvarp og ef svo var hvaða útvarpsstöð.
56,7% höfðu ekki opið fyrir útvarp en
57% hinna hlustuðu á Bylgjuna. SÍA
viðurkennir að þessi könnun sé varla
marktæk þar sem Bylgjan var nýhafin
útsendingum þegar könnunin var gerð og
auk þess voru ekki teknir með þeir tímar
dagsins þegar mest er hlustað á Rás 2,
þ.e. frá 9-12 oa ekki kvöldfréttatími rásar
1. SÍA ætlar að gera hlustendakannanir
reglulega í framtíðinm.
PÁLL MAGNÚSSON hefur
verið ráðinn fréttastjóri
nýju sjónvarpsstöðvar-
innar, Stöðvar 2, sem
ætlar að hefja útsend-
inaar um næstu mán-
aoamót. Páll hefur
undanfarið verið vara-
fréttastjóri sjónvarps-
ins.
LÆKNAR eru allt of margir til í
heiminum er skoðun margra þátttakenda
í alþjóðlegri ráðstefnu sem nú stendur
yfir í Acapulco í Mexíco á vegum WHO.
Af 16 þjóðum sem taka þátt í ráðstefnunni
telur aoeins ein, Sri Lanka, að læknar þar
í landi séu ekki nógu margir, þrjár þjóðir
telja að læknar þeirra séu nógu margir og
12 þjóðir telja að þar sé of mikið af því
góða. Þar á meðal eru Bandaríkjamenn
en þar í landi eru 197,3 læknar á hverja
100 þúsund íbúa.
SPRENGJA sprakk í miðborg
Stokkhólms í qær þar sem hið útlæga
suður-afriska þjóðkirkjuráð er til húsa og
miklar skemmdir urðu á byggingunni en
engin slys á mönnum. Sænski kommún-
istaflokkurinn er i sama nusi og atrisKa
þjóðarráðið. Ekki er vitað hver var ábyrgur
fyrir þessari sprengingu.
KVENNALISTINN stóð fyrir
ráðstefnu um atvinnumál á Suðurnesjum
um helgina og var þar samþykkt ályktun
þar sem bent er á að mikilvægt sé að
konur taki þátt í mótun stefnunnar í
atvinnumálum. Konur á Suðurnesjum eru
þar hvattar til að eiga frumkvæði og
standa vörð um kjör sín þannig að þær
verði í raun fullgildir þátttakendur með
mannsæmandi laun.
KRUMMI
...og svo voru menn
að tala um að nýju
húsnæðislánin væru
hagstæð. Það þarf
þó að borga af
þeim...
Mikill efnahagsbati samkvæmt nýrri þjóðhagsspá
Svigrúm til að verja
kaupmátt og jafna kjör
segir Steingrímur Hermannsson
Hagvöxtur í ár verður meiri en vinnutekna verður meiri en nokkru
gert hafði verið ráð fyrir, aukning sinni fyrr, atvinnuástand í landinu
þjóðartekna er með því mesta sem er gott, verðbólga verður innan við
þekkist í Evrópu, kaupmáttur at- 10% frá upphafi árs til loka þess.
Steingrímur Hermannsson á blaðamannafundi þar sem hann gerði
grein fyrir efnahagsástandinu. ('límamynd-Gísii Kríii)
Ársverk að troða flóknum lögum inn í tölvukerfi:
VEÐDEILDIN
AFÞAKKADI
AFBORGANIR
„Við höfum orðið fyrir þcirri
furðulegu reynslu í hátt í ár að hafa
ekki fengið rukkanir vegna hús-
næðislánanna -og að Veðdeild
Landsbankans hefur ekki viljað
taka við afborgunum frá okkur.
Skýringarnar sem við fáum eru
þær, að tölvurnar hafi ekki getað
reiknað út hvað við eigum að
borga,“ sögðu ung hjón sem frétta-
maður Tímans hitti að máli um
helgina.
Þau eru í hópi þeirra 500-600
skuldara samtals um 1500 húsnæð-
islána sem í fyrrahaust sóttu um
greiðslujöfnun samkvæmt lögum
sem þá voru sett til að leiðrétta hið
iilræmda misgengi launa og»láns-
kjaravísitölu frá 1983 og koma í
veg fyrir að slíkt endurtæki sig í
framtíðinni. Það fólk hefur ekki
fengið innheimtuseðla vegnagjald-
daga, sem áttu að vera þrír í ár og
horfir nú með vaxandi kvíða til
þess að fá einhverntíma'- rukkun
um stóra fjárfúlgu, sem þá geti
reynst erfitt að borga á einu bretti.
Það staðfestist raunar í samtali
við Þórð B. Sigurðsson, forstöðu-
mann Reiknistofu bankanna að
þetta fólk á þá hremmingu í vænd-
um nú að verða rukkað um alla
summuna í þessum mánuði. En
Reiknistofan sér m.a. um tölvuút-
reikninga fyrir Veðdeildina og á
hana skellir „kerfið“ skuldinni af
þessum langa drætti. sem er til
kominn vegna þess að afar flókið
reyndist að forrita tölvurnar sam-
kvæmt laganna hljóðan.
„Þetta er mjög flókið helv... -
flóknir útreikningar og við auk
þess liðfáir að taka þetta að okkur.
Þess vegna hefur þetta tekið mun
lengri tíma en til stóð“, sagði
Þórður.
Spurður hvort „greiðslujöfnun-
arlögin" séu kannski dæmigerð um
lagasetningu sem ekki væri aðgætt
fyrirfram hvort með góðu móti
væri hægt að framkvæma, svaraði
Þórður: „Þeir mættu gjarnan at-
huga það, sem eru að setja hin og
þessi Iög, að það er ekki nóg að
segja að allt sé hægt bara af því að
það eru til tölvur.
Sigurður E. Guðmundssson,
framkvæmdastjóri Húsnæðisstofn-
unar var spurður hvernig viðkom-
andi greiðslur verði vaxtareiknaðar
allt frá því í febrúars.l. -hvort fólk
mætti kannski búast við dráttar-
vöxtum á alla súpuna? Hvernig
með það dæmi og ýmiss önnur
framkvæmdaatriði í sambandi við
þetta verði farið sagði Sigurður að
til stæði að ræða á stjórnarfundi
Húsnæðisstofnunar nú í dag.
-HEI
en það er minnsta ársverðbólga í 15
ár, viðskiptahallinn verður minni
en reiknað var með og erlendar
skuldir sem hlutfall af landsfram-
leiðslu fara minnkandi. Þessar upp-
lýsingar er að finna í endurskoð-
aðri þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnun-
ar, sem Stcingrímur Hermannsson
forsætisráðherra ásamt fulltrúum
Þjóðhagsstofnunar og efnahags-
ráðgjafa ríkisstjórnarinnar kynntu
í gær.
Að sögn Steingríms Hermanns-
sonar ber einkum að þakka þennan
efnahagsbata hagstæðum ytri
skilyrðum þjóðarbúsins, bættum
viðskiptakjörum og auknum afla,
ásamt því að atvinnuveitendur,
launþegar og stjórnvöld höfðu vit
á því að færa sér í nyt bættar ytri
aðstæður við gerð almcnnra kjara-
samninga í febrúar sl.
Forsætisráðherra sagði í gær að
skynsamlegast væri að nota það
svigrúm sem efnahagsbatinn gæfi
til þess að ná fjórum megin rnark-
miðum: Að jafna kjörin, sérstak-
lega að bæta kjör hinna lægst
launuðu, þar sem Ijóst væri að
aukinn kaupmáttur atvinnutekna
skilaði scr misjafnlcga til hinna
ýmsu hópa í landinu, að verja þann
kaupmátt sem þegar hefur náðst,
að grynnka á erlendum skuldum
og loks að stefna að sama verð-
bólgustigi og í nágrannalöndum
okkar.
Á baksíðu eru birtar hclstu
niðurstöður þessarar nýju þjóð-
hagsspár. -BG
Frúin í óvenjulegri flugferð í gær, hangandi neðan úr þyrlu
LandhelgÍSgæslunnar Tímamynd: Pétur.
Ómar Ragnarsson nauölenti Frúnni uppi á Esju:
„SNILLDARVERK"
- sagöi Ómar þegar Gæsluþyrlan bjargaöi vélinni
„Þetta var alveg frábærlega
unnið starf hjá strákunum hjá
Gæslunni og ég vil nota tækifærið
og láta í ljósi þakklæti til allra
sem stóðu í þessu,“ sagði Ómar
Ragnarsson fréttamaður eftir að
tekist hafði að ná flugvél Ómars,
TF-FRÚ, niður af Esjunni, en
þar varð Ómar að nauðlenda
vélinni á sunnudaginn.
Landhelgisgæslan var fengin til
að bjarga vélinni ofan af Esju og
var notuð þyrlan TF-SIF. Flug-
stjóri var Benóný Ásgrímsson og
„hann var með þetta upp á senti-
metra þegar hann tók hana,“
sagði Ómar.
„Svona flugvél er ekkert nema
pjátur og viðkvæmir stjórnfletir
og hún vill feykjast til í straumn-
um frá þyrlunni, en það var
snilldarverk hvemig var staðið að
flutningunum og það kom ekki
skráma á vélina,“ sagði Ómar.
Ómar sagði að við nauðlend-
inguna hefði nefhjól vélarinnar
skemmst, annað skrúfublaðið og
hlífar á nefi Frúarinnar. -phh