Tíminn - 09.09.1986, Qupperneq 3
Þriðjudagur 9. september 1986
Tíminn 3
MIKLA ATHYGLI
Tímamynd: Pétnr
Þetta er langbesta pizza sem að ég hef bragðað.
Dýrt heimsmet hjá Marska á Skagaströnd:
Kostaði það sama og
3100 bökur út úr búð
Albert telur þetta bestu pizzu sem hann hefur smakkað
Eitt dýrasta heimsmet sem sett
hefur verið, var sett í Laugardalshöll
um helgina. Stærsta sjávarréttabaka
sem bökuð hefur verið varð til á
þremur tímum. Bakan var um tíu
fermetrar að flatarmáli og nákvæm-
lega eins og þær bökur sem Marska
á Skagaströnd framleiðir reglulega.
Heimsmetið er talið kosta um 650
þúsund krónur, en það er andvirði
um 3100 baka út úr búð. Hinsvegar
voru notaðir botnar úr 343 bökum
við gerð hennar.
Raflia sá um hitaelementin í botni
pönnunnar og var ekki annað að sjá
en að Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra kynni vel að meta afrakst-
urinn þegar upp var staðið, en hann
sagði að þetta væri besta pizza sem
hann hefði smakkað. Reiknað var
með að milli fimm og sex þúsund
manns gætu gætt sér á bökunni.
Utanríkisþjónust
an í Asíu til
endurskoðunar
Utanríkisráðherra hefur látið
skipa sérstaka nefnd sem ætlað er að
gera sérstaka athugun á fyrirkomu-
lagi utanríkisþjónustu Islendinga í
Asíu.
Er þetta gert öðru fremur, til að
greiða fyrir viðskiptum Islendinga í
þessum heimshluta, en talið er að
markaðir í Japan og öðrum Asíu-
Iöndum, eigi eftir að reynast mjög
mikilvægir í framtíðinni. Reyndar er
Japansmarkaðurinn okkur þegar
mikilvægur, en horft er til frekari
viðskipta og samstarfs við Japani,
einkum á sviði orkuvinnslu og há-
tækni.
Formaður nefndarinnar er Davíð
Ólafsson, fyrrv. Seðlabankastjóri,
en aðrir nefndarmenn eru Pétur J.
Thorsteinsson, sendiherra, Guð-
mundur Bjarnason alþingismaður,
Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður
utanríkisráðherra og Þórhallur Ás-
geirsson, ráðuneytisstjóri.
Nefndinni, sem tekur til starfa 1.
október, er sérstaklega ætlað að
hafa samráð við samtök útflytjenda
og Útflutningsráð íslands, og er
henni ætlað að skila niðurstöðum
sínunt innan sex mánaða.
-phh
Sauðárkrókur:
KENNSLA HAFIN
í FJÖLBRAUT
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki
var settur 1. sept. sl. Nemendur á
haustönn verða 280 og er það svipað-
ur fjöldi og undanfarin ár. Kennsla
hófst strax 2. sept. Að sögn Jóns
Hjartarsonar, skólameistara hefur
tekist að fá kennara í flestar stöður
við skólann. Þó verða tvær kennara-
stöður lcystar með stundakennslu.
Skólinn býr sem fyrr við þröngan
húsakost, en kennsla fer m.a. fram í
gagnfræðaskólanum og verslunar-
og skrifstofuhúsnæði Kaupfélags
Skagfirðinga, en þar hefur skólinn
haft nokkrar kennslustofur undan-
farin ár.
Nú verður í fyrsta sinn tekin upp
kennsla vélavarða og skipstjórnar-
manna, og mun það veita réttindi til
að stjórna skipum upp að 80 rúm-
lesta stærð. Þá er stefnt á að hefja
kennslu á sjúkraliðabraut eftir ára-
mót, og er það ný kennslugrein við
Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki.
Kennsla í öldungadeild mun hefjast
fljótlega. _phh
Örnólfur Thorlacíus tók út verkið,
og verður niðurstaðan skráð á spjöld
Guinnes-bókarinnar, en að því var
stefnt frá upphafi. íslendingar eiga
þar með orðið heimsmetið í böku-
bakstri.
En spurningin sem eftir stendur
er: Hvað verður gert við pönnuna,
að afloknu heimsmetinu? Steindór
Haraldsson framleiðslustjóri
Marska sagði í samtali við Tímann
að þegar væri farið að huga að gerð
pönnukakna, en eftir væri að ákveða
um stærðina sem þær yrðu bakaðar
í. Hann sagði að fólk yrði síðan að
geta í eyðurnar.
-ES
Kalamazoo er falleg og friðsæl
borg í suðvesturhluta Michiganfylkis
í Bandaríkjunum. Borgin státar af
fimm háskólum, tveimur stórum og
þekktum sjúkrahúsum, tugum
kirkna og einu stærsta lyfjafram-
leiðslufyrirtæki í heiminum, The
Upjohn Company.
í Kalamazoo og nágrenni búa sex
íslenskar og hálfíslenskar fjölskyld-
ur, og er ntikill samgangur og vin-
skapur á milli þeirra. Að vanda
hefur verið viðburðaríkt sumar hér í
Kalamazoo og tilefni til mannfunda
mörg. Á ntinningardaginn, sem
haldinn er síðasta mánudag í maí,
en þa minnast Bandaríkjamenn fall-
inna hermanna, var kontið saman í
grillveislu hjá Ingu (Ólafsson) og
Perry Wilson, og 17. júní var garð-
veisla hjá undirrituðum og konu
hans, Margréti Ágústsdóttur. Ávallt
þegar fslendingarnir hittast er glatt
á hjalla og íslensk lög kyrjuð við
raust.
Margir góðir gestir lögðu leið sína
til Kalamazoo í suntar, ættingjar og
vinir. Þá dvaldi Björgvin Jóhanns-
sön, forstöðumaður Skálatúnsheim-
ilisins í Mosfellssveit, hér í fjóra
mánuði við nám og þekkingaröflun
vegna starfs síns:
Einsöngur við
frábærar undirtektir
Hæst ber þó heimsókn Sigrúnar
V. Gestsdóttur söngkonu frá'
Reykjavík, sem kom hingað í boði
Fontana félagsskaparins og söng ein-
söng 17. ágúst við frábærar undir-
tektir. í blaðadómi var henni m.a.
líkt við Elizabeth Schwarzkopf og
Rita Streich, og sagt að hún hafi
undurfagra rödd, fullkontinn tón og
djúpa leikræna tjáningu, og að rödd
hennar hafi sama skírleika og hita og
rödd Elizabeth Schwarzkopf hatði.
Á meðan Sigrún dvaldi hér bjó
hún á heimili Önnu Ágústsdóttúr og
rnanns hennar, Robert Severson. Ég
Sigrún V. Gestsdóttir söngkona.
átti þess kost að kynnast Sigrúnu og
lieyra hana syngja, og er ekki nokkur
vafi á að hér er á ferðinni sópran-
söngkona á heimsmælikvarða. Ljúf-
ur og sterkur persónuleikinn kemur
einmitt svo vel fram í fáguðum söng
hennar og elskulegri sviðsfram-
komu. Það þarf að stuðla að því að
hæfileikafólk eins og Sigrún V.
Gestsdóttir fái tækifæri til að rækta
sönglist sína svo að sent flestir fái að
njóta hennar og sem oftast.
Sigrún og eiginmaður hennar, Sig-
ursveinn Magnússon, stjórna og
kenna við Tónskóla Sigursveins. Þau
dvelja nú í ársfríi í Vínarborg til að
afla sér nteiri tónmenntunar, ásamt
dætrum sínum tveim.
Aðalsteinn Ólafsson
í Kalaniazoo.
NYR LIFSSTILL
BETRA ÞJÓÐFÉLAG
Um næstu helgi mun Landssam-
band framsóknarkvenna halda ráð-
stefnu á Glóðinni í Keflavík, sem
þær nefna Nýr lífsstíll - betra
þjóðfélag.
Af því tilefni snéri Tíminn sér til
Unnar Stefánsdóttur, formanns
LFK, og fékk að vita nánar hvað
um væri að vera:
Á þessari ráðstefnu verður fjall-
að um það hvað hægt er að gera til
þess að bæta andlega og líkamlega
velferð fólks í nútíma þjóðfélagi.
Það er ljóst að þjóðfélagsgerðin
hefur breyst mjög á síðustu áratug-
um. Vinnutími hefur styst, vel-
megun aukist, fjölskyldan minnk-
að og frítími aukist. ísland er
komið í þjóðbraut menningar og
viðskipta og tækni og hraði setja
svip sinn á nútímann.
Telur þú að ekki hafí tekist að
hlúa að hinu mannlega í tækniþjóð-
félagi nútímans?
Það hefur ekki verið gert nægj-
anlega að mínu mati. Fjölskyldan
hefur minnkað og fjölskylduformið
breyst vegna vinnu beggja foreldra
utan heimilis. Þjóðfélagið ætlast til
að báðir foreldrar vinni utan
heimilis, en býður ekki þá mikil-
vægu þjónustu á móti fyrir alla,
sem eru dagvistarheimili fyrir börn á
forskólaaldri og samfelldur skóla-
dagur fyrir börn á grunnskólaaldri.
Engu að síður teljum við heimilið
og fjölskylduna áfram hornstein
þjóðfélagsins.
Verða þessar þjóðfélagsbreyt-
ingar ræddar á ráðstelhunni?
Margt bendir til þess að fram-
undan séu breytingar sem eru meiri
en við höfum áður þekkt.
Tilgangurinn með ráðstefnunni
er að átta sig á þessu og finna nýjar
leiðir, sem geta auka velferð ein-
staklingsins í þessu breytta samfé-
lagi.
Verða margir fyrirlestrar fluttir
á ráðstcfnunni?
Þeir verða alls níu og verða
fluttir af sérfróðu fólki á hverju
sviði. Þeir eru eftirfarandi:
„Næring og heilsa" Laufey Stein-
grímsdóttir, næringarfræðingur.
„I formi æfilangt" Anna Lea
Björnsdóttir, íþróttafræðingur.
„íþróttaþjálfun“ Þráinn Haf-
steinsson, íþróttafræðingur.
„Áhrif nútíma lifnaðarhátta á
unglinga" Sigtryggur Jónsson, sál-
fræðingur.
„Konan og reykingarnar" Sveinn
Magnússon. heilsugæslulæknir.
„Fjölskyldan, áhætta og mögu-
leikar" Þorvaldur Karl Helgason,
prestur.
„Veljum íslenskt" fulltrúi frá Fél.
ísl. iðnrekenda.
„Framtíðarþróun í ísl. þjóðfélagi"
Magnús Ólafsson, þjóðhag-
ræðingur.
Verða hópumræður að loknum
fyrirlestrum?
Það verður unnið í fjórum
hópum, sem kynna sín sjónarmið í
lok ráðstefnunnar. Yfirskrift hóp-
anna verður: „Breytt fjölskyldu-
form". „Neyslustefna". „íþróttir
fyrir alla“. „Breytt heilbrigðis-
stefna.“
Neyslustefna, hvað eigið þið við
með því?
Það hlýtur að vera grundvallar-
atriði fyrir öryggi þjóðarinnar og
heilbrigði að matvælaneysla bygg-
ist eins og mögulegt er á innlendri
framleiðslu. Við teljum það tíma-
bært að úttekt fari fram á því að
hve miklu leyti það er mögulegt.
Er ráðstefnan öllum opin?
Já, við hvetjum alla sem áhuga
hafa á „Nýjum lífsstíl - betra
þjóðfélagi," til að koma á Glóðina
í Keflavík næsta laugardag og taka
þátt í þessari ráðstefnu. Hún hefst
kl. 10:00 og henni lýkur kl. 18:00.
Á það skal bent að tilkynna þarf
þátttöku sem fyrst til Þórunnar s.
91-24480, sem veitir allar nánari
upplýsingar.
Kalamazoo í Bandaríkjunum:
ÍSLENSK SÖNG
KONA VEKUR