Tíminn - 17.10.1986, Page 3
Föstudagur 17. október 1986
Tíminn 3
Alþjóðlegur matvæladagur FAO:
Föðurland vort
hálft er hafið
- sagði forseti Islands m.a. í aðalræðu dagsins
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti það sitt um ntikilvægi sjávarins fyrir
íslands hélt í gær aðalræðuna á þjóðina.
sjötta alþjóða matvæladegi Mat- Vigdís vék einnig að íslendinga-
væla- og landbúnaðarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm.
Yfirskrift dagsins að þessu sinni er
„Fiskimenn og fiskveiðasamfélög".
í ræðu sinni fjallaði Vigdís um
mikilvægi sjávarins fyrir land og
þjóð á íslandi. Flún sagði frá því að
sjórinn hefði mótað landið sem hefði
risið úr sjó og einnig fólkið sem
byggði landið. Sem dæmi um það
nefndi hún að íslendingar ættu sér
lofsöng er héti „Föðurland vort hálft
er hafið“. í raun mætti segja að á
Islandi geti fiskurinn sungið, rétt
eins og fuglinn og hljóðið sem hann
gæfi frá sér væri tónlist fyrir
mannkynið alls staðar. íslensk tunga
ætti sennilega fleiri orð yfir sjóinn en
nokkur önnur þjóðtunga, og segði
sögunum og sagði m.a. frá Hrafna-
Flóka, þegar hann kom til landsins
og varð svo hrifinn af fiskigengd
við landið að hann og menn hans
gleymdu sér við fiskveiðar allt
sumarið en áttuðu sig ekki á því að
safna þurfti öðrum forða fyrir vetur-
inn. Síðan kom harður vetur og ekki
hægt að sækja sjó, sem kom sér mjög
illa. Þá hafi Hrafna-Flóki gefið land-
inu nafnið ísland. En Vigdís talaði
ekki eingöngu um fiskveiðar á fs-
landi til forna, heldur ræddi hún um
fiskveiðar íslendinga nú til dags og
þá stefnu að vernda fiskistofnana
gegn ofveiðum. f því efni hafi 200
mílna landhelgin verið sett og ís-
lendingar hafi lent í þorskastríði við
Breta. Nú séu 10 ár liðin frá lokum
þeirrar deilu. Bæði fslendingar og
aðrar þjóðir séu nú búnar að læra að
sjórinn er ekki botnlaus hráefnalind
og menn hugsi nú sífellt meira um
hvernig nýta má haftð á sem hag-
kvæmastan hátt án þess að ganga of
nærri fiskistofnunum.
Meðan forsetinn dvelst á Ítalíu
hittir hún að máli ýmsa forvígis-
menn. Á miðvikudag hitti hún for-
sætisráðherra Ítalíu, Craxi, að máli
og að lokinni hátíðaathöfn í höfuð-
stöðvum Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunarinnar, bauð framkvæmda-
stjóri stofnunarinnar Dr. Edouard
Saouma forsetum íslands og ftalíu
til hádegisverðar. í gær gekk hún á
fund Jóhannesar Páls páfa II, og
síðdegis í gær átti hún fund með
Cossiga, forseta Ítalíu.
Forseti íslands heldur frá Róm
laugardaginn 18. október og kemur
hcirn til íslands föstudaginn 24.
október. ABS
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands.
Á að selja
Rás 2?
Kemur
ekki til
greina
-segir Páll Péturssorr
„Þessi hugmynd fjármálaráð-
herra er fráleit að mínu rnati,"
sagði Páll Pétursson formaður
þingflokks framsóknarmanna
þegar Tíminn bar undir hann
hvort framsóknarmenn væru
sammála þeirri hugmynd Por-
steins Pálssonar að selja Rás 2.
„Það kemur ekki til greina að
selja Rás 2 eða að banna auglýs-
ingarí ríkisútvarpinu, Rás2 heyr-
ist nú um allt land og þjónar
öllum landsmönnum ekki síður
en rás I ogslíku hefði einkafram-
takið aldrei komið á laggirnar.
Við komum til mcð að standa
vörð um ríkisútvarpið og koma í
veg fyrir að gróðaöflin eyðileggi
það,“ sagði Páll Pétursson.
Drög aö lögum um námslán:
Námsmenn undirbúa
viðræður við Sverri
„Þak á námslán leysir ekki vandann" segir
Eyjólfur Sveinsson formaöur Stúdentaráös
Hér má sjá nokkra þá sem unnið hafa að málefninu um stofnun unglingageðdeildar. F.v. Oddur Bjarnason geðlæknir,
Páll Ásgeirsson geðlæknir, Anton J. Kaiser kjörforseti hinnar alþjóðlegu Kiwanislireyfíngar, Arnór Pálsson
umdæmisstjóri Kiwanishreyfíngarinnar á íslandi, Þorsteinn Sigurðsson formaður K-lykils nefndar, og Tómas
Helgason prófessor. (Timamynd: Pjetur)
Samstarfsnefnd námsmanna-
hreyfinganna hel'ur undanfarna daga
fundað um drögin að lögum um
námslán og munu fundahöld halda
áfram þar til viðræður hefjast við
menntamálaráðherra um drögin.
Að sögn Eyjólfs Svcinssonar for-
manns Stúdentaráðs H.í. hefursam-
starfsnefndin veriö að fara lið fyrir
lið í gegnum drögin og taka saman
þá punkta sem þykja jákvæðir og þá
sem neikvæðir eru og í framhaldi af
því að vinna skýrslu um það sem
hægt er að gera til þess að breyta því
til betri vegar scm neikvætt er i
drögunum.
„Þak á námslán le.kur ekki á þcim
vandamálum sent eru fyrir hendi
varðandi námslán en skapar mörg
ný vandamál. Menntamálaráðherra
hefur talað um að lánvcitingar fari
úr böndunum, en þessi þakshug-
K-lykillinn seldur í dag:
Unglingageðdeild getur bjargað mannslífum
Kiwanis vill loka gati í heilbrigðiskerfinu
„Á unglingageðdeild er fyrirhug-
uð sú sérhæfða þjónusta, ergeðsjúk-
ir unglingar þurfa á að halda. Þennan
hlekk hefur til þessa vantað í geð-
heilbrigðisþjónustu landsins. Um
síðustu áramót var notuð heimild í
fjárlögum til kaupa á húsnæði fyrir
slíka deild og makaskipti á eignum í
því sambandi. Reykjavíkurborg
mun rýma húsnæðið á næstunni og
gert er ráð fyrir að starfsemin hefjist
á þessu ári, a.m.k. verði göngudeild
opnuð, en legudcild á árinu 1987.“
Þessi orð er m.a. að finna í ávarpi
Ragnhildar Helgadóttur heilbrigðis-
ráðherra til íslensku þjóðarinnar í
tilefni þess að Kiwanishreyfingin á
Islandi efnir til sérstakrar fjár-
öflunarherferðar með sölu K-lykils-
ins. Söfnunarféð mun renna til stofn-
unar unglingageðdeildar við Land-
spítalann. Húsnæði það sem ríkið
hefur keypt af Reykjavíkurborg í
þessu skyni er að Dalbraut þar sem
borgin rak áður vistheimili fyrir
börn. og er í sama húsi og barnageð-
deild Landspítalans starfar nú.
Á fundi sem Kiwanismenn boð-
uðu til í gær með geðlæknum, skipu-
leggjendum söfnunarinnar og blaða-
mönnum, kom fram að um 5,5
milljónir þarf til þess að koma því
húsnæði sem fyrir hendi er í það horf
að unnt sé að opna þar legudeild
fyrir 6-8 sjúklinga. Að sögn Þor-
steins Sigurðssonar formanns söfn-
unarnefndar K-lykilsins er stefnt að
því að safna að minnsta kosti fyrir
þessari upphæð ineð sölu lyklanna í
dag, föstudag og á morgun, laugar-
dag. Þorsteinn sagði að það yrðu
fyrst og fremst félagsmenn í Kiwan-
isfélögunum og fjölskyldur þeirra
um allt land sem myndu ganga í hús
og vinnustaði og bjóða lyklana til
sölu, þó að á einstaka stöðum úti á
landi hafi nemendur 9 bekkjar
grunnskóla verið fengnir til liðs við
hreyfinguna. Hver lykill kostar ein-
ungis 100 kr. og því þurfa að seljast
55.000 lyklar til að koma unglinga-
geðdeildinni á laggirnar, en vonir
standa þó til að enn fleiri lyklar
seljist og þannig megi tryggja að
bæði legudeild og dagdeild unglinga-
geðdeildar komist upp sem fyrst.
Eins og áður segir er þetta í
fimmta sinn sent Kiwanishreyfingin
gengst fyrir sölu á K-lykli og nú eins
og í öll fyrri skiptin er kjörorð
söfnunarinnar: „glcymum ekki geð-
sjúkum". Kjörforseti alþjóðlegu
Kiwanishreyfingarinnar, Anton J.
Kaiser, er staddur hér á landi og
ávarpaði hann fundinn sem haldinn
var í gær og kvaðst stoltur af íslands-
deild hreyfingarinnar, sem hefði sýnt
nú og áður á eftirminnilegan hátt
hvers hún væri megnug. Sagði hann
það einsdæmi með þjónustufélög
eins og Kiwanis að hinar einstöku
deildir í einu landi stæðu allar sem
ein saman að stöfnun sem þessari.
Á fundinum voru einnig geðlækn-
arnir Páll Ásgeirsson, Oddur
Bjarnason og Tómas Helgason. í
máli þeirra kom fram að þörfin á
unglingageðdeild væri brýn, ekki hvað
sýst í Ijósi aukinnar fíkniefnaneyslu.
í því vandamáli tengdust oftast sam-
an geðtruflanir og líkamlcg veikindi.
Því væri nauðsynlegt að þessir ung-
lingar gætu fengið þjónustu sem
greindi alhliða ástand sjúklingsins.
líkamlegt og andlcgt og að útbúin
yrði fyrir þá meðferðardagskrá senr
tæki miö af einstaklingsþörfum
þeirra. Þá töldu þeir að staðsetning
unglingageðdeildar á Dalbraut, í
sama húsnæði og barnageðdeild,
væri af hinu góða þar sem báðar
deildir lúta sömu yfirstjórn og unnt
væri að sameina starfskrafta að ein-
hverju leyti. Þó var það undirstrikað
að sérstaða unglinganna væri mikil,
bæði vegna líkamsstyrks þeirra sent
gerði aðrar kröfur til nteðferðar en
t.d. á barnageðdeild, og þá ekki
sfður að með kynþroska stór aukast
sjálfsvígstilhneigingar þeirra. Var
bent á að ef unglingageðdeild hefði
verið starfandi á liönum árum hefði
tvímælalaust verið unnt að bjarga
lífum einhverra unglinga sem ekki
áttu aðgang að stofnun við hæfi.
Scm fyrrsegirmunu Kiwanismcnn
hefja sölu K-lykla í dagog mun salan
halda áfram á morgun. Tíminn skor-
ar á lesendur sína að taka málaleitan
þeirra vel og veita lið þessu áríðandi
málefni.
- BG
mynd kemur ekki til með að spani
mikla peninga, nema að því leyti að
hún tælir lólk frá námi. Sú hugmynd
þykir mér vcra varasöm," sagði
Eyjólfur.
Samstarfsnefndin samanstendur
af fulltrúum stúdenta í H.Í.,Sam-
bandi íslenskra námsmanna erlend-
is, Bandalagi íslenskra sérskóla-
nema og Iðnnemasambandi íslands.
-ABS
Tíu ára
afmælisþing
Þroskahjálpar
I dag og á morgun verður
haldið að Hótel Loftleiðum af-
mælisþing Landssamtakanna
Þroskahjálpar, en fimmtud.
16.10. voru liðin tíu ár frá stofnun
samtakanna.
Féiögin scm stóðu að stofnun
Þroskahjálpar á sínum tíma voru
13 talsins og markmiðið var að
sameina í eina hcild þau félög
sem unnu að málefnum fatlaðra,
ekki síst barna og ungmenna, í
því skyni að tryggja þeini fullt
jafnrétti og sambærileg lífskjör á
við aðra þjóðfélagsþegna.
Nú eru aðildarfélög Þrosk-
ahjálpar hclmingi fleiri en í upp-
hafi eöa 26 talsins, og eru þau
fy rst og fremst foreldra- og styrkt-
arfélög þeirra sem ekki geta bar-
ist fyrir hagsmunum sínum sjálfir,
sem og fagfélög fólks sent hefur
sérhæft sig í þjálfun og kennslu
fatlaðra. Félagar eru um 6500 um
land allt.
Afmælisþingið verður sett í
Kristalsal Hótels Loftleiða í
dag, 17. október kl. 13.30.
Þema þess er: Hvað hcfur áunn-
ist? Hvað er framundan? Fram-
sögumenn munu fjalla um efnið,
auk þes sem kynntar verða niður-
stöður könnunar sem unnin hefur
verið á vegum Þroskahjálpar og
fjallar um þróun vistunar- og
húsnæðismála þroskaheftra und-
angenginn áratug, fjárframlög hins
opinbera og mat á framtíðarþörf
í þessum efnum.