Tíminn - 17.10.1986, Page 6

Tíminn - 17.10.1986, Page 6
6 Tíminn Föstudagur 17. október 1986 FRÉTTAYFIRLIT MOSKVA — Talsmaöur so- véska utanríkisráðuneytisins Gennady Gerasimov sagði Moskvustjórn ekki skrifa undir samninga um meðaldrægar kjarnorkuflaugar við Banda- ríkjastjórn nema sem hluta af heildartillögum. Orð hans gerðu afstöðu sovésku stjórn- arinnar skýrari eftir mismun- andi yfirlýsingar um þetta efni frá Mikhail Gorbatsjov Sovét- leiðtoga og helsta samninga- manni hans. MOSKVA — Dagblaðið Pravda sagði það nu vera komið undir Bandaríkjastjórn að stíga næsta skrefið í af- vopnunarviðræðum stórveld- anna í kjölfar Reykjavíkurfund- arins. BONN — Max Kampelman helsti samningamaður Banda- ríkjanna í afvopnunarviðræð- um stórveldanna sakaði Moskvustjórn um að gefa út tviræðar yfirlýsingar í afvopn- unarmálum og sagðist vonast til að hún myndi ekki falla frá því að ræða tillögur þær sem ígrundaðar voru í Reykjavík um síðustu helgi. DAMASCUS - Skæruliða- hópur sem hefur höfuðstöðvar sínar í Damascus (Marxíska lýðræðishreyfingin fyrir frelsun Palestínu) sagði eina deild hóps síns hafa staðið fyrir árásinni á ísraelska hermenn og fjölskyldur þeirra í Jerúsal- em þar sem einn maður lét lífið og 65 særðust. Talsmaður Frelsishreyfingar Palestínuar- aba (PLO) sagði hana hins- vegar bera ábyrgð á verknað- inum. SAN SEBASTIAN - Skæruliðar úr Aðskilnaðar- hreyfingu Baska (ETA) sögð- ust hafa komið fyrirbílsprengj- unni í Barcelóna sem drap einn lögreglumann og særði átján manns. WASHINGTON — Búist var við að bandaríska öldunga- deildin myndi fjalla um fjárlögin fyrir 1987 þar sem gert er ráð fyrir ríkisútgjöldum er hljóða upp á 576 milljarða dollara, hæstu útgjöld í bandarískri sögu. AÞENA - Helsti kommún- istaflokkur Grikklands dró til baka stuðning sinn við Pasok- flokk Andreasar Papandreou forsætisráðherra í Aþenu sem gerir vonir flokksins um að vinna forkosningar næsta sunnudag fyrir borgarstjórnar- kosningar síðar meir nánast engar. BALLYNAHINCH, Norður-írland - 78 ára gömul kona og sonur hennar voru skotin til bana yfir morg- unverði og lýsti mótmælenda- hópur yfir ábyrgð á verknaðin- um. Dauður hamstur sigraði Dawlish, England-Keuter Dauður og uppstoppaður hamstur, nefndur Gumble, var út- nefndur sigurvegari í gæludýra- keppni sem fram fór í Dawlish, litlum baðstrandarbæ á suðurströnd Englands, í vikunni. Gumble sigraði þrátt fyrir að dóntarinn í keppninni vissi að eitthvað meira en lítið væri að hegðan hamstursins. Skólastúlkan Jeanette Birch sem er sautján ára gömul tók við verð- laununum fyrir hönd Gumble og sagði eftir á: „Það stóð ekkert um það í reglunum að gæludýrin þyrftu að vera lifandi". Jeanetta lét stoppa upp hamstur- jnn eftir að hann hafði dáið fyrr á þessu ári: „Ég gat ekki hugsað mér að skilja við hann," sagði hún. Dómarinn í keppninni; Kristófer Henwood sagði: „Ég vissi að eitt- hvað var að þegar ég sá Gumble sitja rólegan eins og mús.“ Enrile varnarmálaráðherra Filippseyja hefur gagnrýnt Corazon Aquino linnuiaust upp á síðkastið og kynnt þannig undir sögum um byltingartal og óeiningu. Filippseyjar: Enrile deiliráAquino Er forsetinn í ókristilegu bandalagi viö varnarmálaráðherrann? Bacolod, Filippscyjar-Reutcr Haft var cftir Corazon Aquino forseta Filippscyja í gær að hún væri fórnarlamb ókristilegs bandalags við Juan Ponce Enrile varnarmálaráð- herra sem hjálpaði henni að komast til valda í febrúarmánuði síðastliðn- um. Rómversk-kaþólski biskupinn Antonio Fortich hafði orðrétt eftir Aquino að „hún væri orðin fórnar- lamb ókristilegs bandalags við Enr- ile“. Biskupinn neitaði að gefa nán- ari útskýringar á þessum ummælum forsetans sem fylgja í kjölfar frétta um mikið samkontulagsleysi milli hennar og varnarmálaráðherrans. Fortich tók þó fram að Fidel Ramos yfirhershöfðingi landsins reyndi að miðla málum og styddi Aquino. Biskupinn fylgdi Aquino í ferð hennar til héraðs þar sem áður var blómleg sykurrækt og þar sem Aq- uino tilkynnti um nýja landskiptingu til handa bændum og vinnumönnum á sykurökrununt. Enrile og Ramos leiddu bylting- una gegn Ferdinand Marcos fyrrum forseta í byrjun þessa árs, byltingu sem bæði herinn og fólkið í landinu stóð að og kom Corazon Aquino í forsetastólinn. Enrile var einnig varnarmálaráöherra í valdatíð Mar- cosar. „Við eruin þakklát fyrir framlag Enrile og Ramosar í byltingunni,“ sagði Aquino við blaðamenn þegar hún var spurð um gagnrýni Enriles sent mikið hefur borið á upp á síðkastið. Enrile er harður andstæðingur skæruliða landsins þar sem kontm- únistar eru allsráðandi og hefur nær daglega gagnrýnt Aquino fyrir lin- kind og að leita samninga við skæru- liðana. Þessar gagnrýnisraddir hafa ýtt undir fréttir um að ekki sé allt' með felldu innan ríkisstjórnarinnar og Enrile hefur hvað eftir annað verið tengdur við hugsanlegar bylt- ingatilraunir gegn Aquino. Gonzalez forsætisráðhcrra Spánar og leiðtogi þarlendra sósíalista vill meiri áhrif Evrópulanda í samskiptum austurs og vesturs. — Gonzalez og Rau: Afvopnunartillögum má ekki stinga undir stól Bonn-Rcutcr Leiðtogar sósíalistaflokka Spánar og Vestur-Þýskalands fóru fram á það í gær að Evrópulöndin hefðu meira að segja í samskiptum austurs og vesturs og hvöttu stórveldin til að halda áfram viðræðum um tillögurn- ar sem þeir Reagan Bandaríkja- forseti og Gorbatsjov Sovétleiðtogi ígrunduðu á fundum sínum í Höfða um síðustu helgi. Felipe Gonzalez forsætisráðherra Spánar sagði á þingi alþjóðasamtaka sósíalista: „Við Evrópubúar verðum að berjast fyrir meiri áhrifum í samskiptum austurs og vesturs.“ Gonzalez sagði að svartsýni sú sem ríkt hefði strax að afloknum Reykja- víkurfundinum hefði líklega verið of mikil því fundurinn hcfði jú markað ákveðnar framfarir í afvopnunar- málum. Jóhannes Rau leiðtogi vestur- þýska Sósíaldemókrataflokksins tók undir með Gonzalez og sagði að auki að ekki mætti stinga tillögunum sem ræddar voru í Reykjavík undir stól. „Það er kominn tími fyrir samein- aða Evrópu að taka afstöðu ... möguleikarnir á vopnatakmörkun sem ræddir voru í Reykjavík mega ekki gleymast. Þetta er stund Evrópu," sagði Rau. Rau og flokkur hans hafa sagst ætla að vinna að því að koma meðaldrægum kjarnorkuflaugum í burt af vesturþýskri jörðu komist flokkurinn til valda eftir kosningarn- ar í janúar á næsta ári. Hinsvegar endurtók Rau fyrri yfirlýsingar um stuðning við NATO á þingi þessu. Varnarmálaráðherrann mætti ekki til ríkisstjórnarfundar síðastlið- inn þriðjudag og eru sumir á því að Aquino muni vísa honum úrembætti í janúar næstkomandi. Þá ntun ný stjórnarskrá að líkindum taka gildi og gerir hún ráð fyrir að Aquino sitji í embætti sínu næstu sex kjörtíma- bilin. Ekki er talið líklegt að Enrile njóti slíks stuðnings að hann geti kollvarpað ríkisstjórninni, stuðning- ur hersins jrykir til þess allt of dreifður á milli Enriles, Aquino og Ramosar. Bókmenntaverölaun Nóbels: Lokskomað Afríkubúa Lagos, Stokkhólmur-Reuler Leikritaskáldið og rithöfundurinn Wole Soyinka frá Nígeríu fékk í gær bókmenntaverðlaun Nóbels og er hann fyrsti Afríkubúinn sem þann heiður hlýtur. Soyinka er einn fræg- asti rithöfundur Nígeríu þótt stíll hans þyki afar mikill og flókinn. Sænska nóbelsverðlaunanefndin var undir nokkrum þrýstingi að velja rithöfund, frá þriðja heiminum og val Soyinka, fyrsta Afríkubúans til að hljóta þessi verðlaun í 85 ára sögu þeirra, kom því ekki mjög á óvart. Soyinka er 52 ára gamall og kemur frá norðurhéruðum Nígeríu eins og verk hans bera raunar vitni. Verk sín skrifar hann á ensku en þykir mjög bundinn ntenningu Yorubaætt- bálksins þaðan sem hann kemur. Skáldið sat í fangelsi í tvö ár á tímum borgarastyrjaldarinnar í Ní- geríu 1967-'70 og er mikill andstæð- ingur allskyns herstjórna. Hann þyk- ir vinstrisinnaður en hefur ætíð verið frábitinn því að festast í einhverjum flokk eða ákveðnum farveg í þeim efnunt.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.