Tíminn - 17.10.1986, Side 7
Föstudagur 17. október 1986
'Tíminn 7
UTLÖND
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Nóbelsverðlaunin í hagfræði:
Góð ákvörðun gulli betri
Stokkhólmur-Reuter
írönsk stjórnvöld hafa komiö upp
flóttamannabúöum fyrir þær millj-
ónir Afgana scm þangaö hafa
komiö. Hér er verið að bólusetja í
einum búöanna.
íran:
Afganir
koma
Tehcran-Reuter
Einir sex þúsund afganskir flótta-
menn komu til íran í gær í fylgd
sjötíu skæruliða eftir tveggja mán-
aða ferðalag yfir erfiðar fjallaleiðir.
Það var íranska dagblaðið Abrar
sem skýrði frá þessu í frétt.
Blaðið sagði meirihluta flótta-
fólksins vera konur, börn og gamal-
menni sem neydd hefðu verið til að
flýja héruðin Faryat og Jozjan vegna
árása sovéskra hersveita og sveita
stjórnarhersins. Sprengjur höfðu
eyðilagt bæði hús og vatnsbirgðir
flóttafólksins.
Stjórnin í íran styður við bakið á
skæruliðunt múslima í baráttu sinni
gegn leppstjórn Sovétmanna í Af-
ganistan. Iranskir embættismenn
áætia að um 1,8 til 2 milljón afgansk-
ir flóttamenn hafist nú við í íran.
Ólympíuleikunum
1992 úthlutað í dag:
Hollenskir pönk-
arar á móti
Amsterdamborg
Lausanna-Reuter
Fimmtíu hollenskir mótmælendur
settu á svið háværar aðgerðir í gær
til að reyna að koma í veg fyrir að
Amsterdamborg fengi að halda
Ólympíuleikana árið 1992.
Mótmælin áttu sér stað á sama
tíma og forsvarsmenn Ólympíu-
nefndar Amsterdamborgar báru upp
mál sitt frammi fyrir meðlimum
Alþjóða ólympíunefndarinnar
(IOC) sem nú þingar í Lausanne í
Sviss. Margir mótmælendanna voru
pönkarar hinir mestu og kröfðust
þess að leikjunum yrði haldið frá
höfuðborg Hollands.
Mótmælendurnir börðu trommur
og blésu í trompeta og afhentu
meðlimum IOC bæklinga er þeir
komu til Palais De Beaulieu en þar
verður ákveðið í dag hvar halda
skuli Ólympíuleikana 1992.
I bæklingunum voru byggingar
þær sem reisa þarf vegna leikanna
sagðar verða of dýrar fyrir Amster-
damborg og óhjákvæmilega bitna á
íbúum hennar. Þá var einnig kvartað
yfir því að menn fengju ekki að fara
frjálsir ferða sinna vegna hinnar
ströngu öryggisgæslu sem verður á
meðan leikunum stcndur.
Pönkararnir báru mótmælaspjöld
sem ýmiskonar frekar óvinsamleg-
urn slagorðum s.s. „Við viljum engin
svín í Amsterdam" og hið einfalda
„Grrrr".
Margar borgir hafa sótt um að
halda sumarleikana 1992 og auk
Amsterdam má nefna Barcelónu,
París og Birmingham í Englandi.
Kosning um ólympíuleikahaldið fer
eins og áður sagði fram í dag.
Bandaríkjamaðurinn James Buc-
hanan er starfar við George Mason
háskólann í Virginíu var í gær út-
nefndur til nóbelsverðlaunanna í
hagfræði. Þetta kont fram í tilkynn-
ingu sænsku vísindaakademíunnar
þar sem sagöi að Buchanan hcfðu
verið veitt verðlaunin fyrir „samein-
ingu tilgátna í sambandi við pólitíska
og hagfræðilega ákvörðunartöku".
Buchanan hefur þróað aðferðir í
og er helsti fræðimaðurinn á þessu
sviði.
Verðlaunafé það sent Buchanan
hlýtur nemur sem samsvarar unt tólf
milljónum íslenskra króna.
Buchanan er 68 ára gamall og
stundaði nám við Tennessee háskól-
ann áður en hann lauk doktorsgráðu
við Chicago háskólann árið 1948.
Hann stjórnar nú stofnun við Ge-
orge Mason háskólann þarsem feng-
ist er við hans helsta áhugasvið.
ákvörðunartöku innan ríkisgeirans
NISSAIM SUNNY ’87
verður algjör sprenging á bílamarkaðnum. Þeir eru
loksins komnir og seljast eins og heitar lummur
3ja dyra, 5 dyra og 4ra dyra sedan.
Nissan Sunny Hatchback LX 1,0 5 dyra 4 gíra
Nissan Sunny Hatchback LX 1,3 5 dyra 5 gíra
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 3 dyra 5 gíra
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra 5 gira 399.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 3 dyra 5 gíra m.aflstýri 409.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra 5 gira m. aflstýri 414.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra sjálfsk. 428.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra sjálfsk. m.aflst 442.000,-
Nissan Sunny Sedan LX 1,3 4 dyra 5 gíra 364.000,-
Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra 5 gíra 395.000,-
Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra 5 gira m.aflstýri 410.000,-
Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra sjálfsk. 424.000,-
Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra sjálfsk. m.aflstýri 438.000,-
Nissan Sunny Wagon LX 1,5 5 gira 431.000,-
Nissan Sunny Coupe LX 1,5 5 gira 430.000,-
Nissan Sunny Coupe SLX 1,5 5 gíra
Komið og kynnist hinum frábæru NISSAN SUNNY
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.