Tíminn - 17.10.1986, Side 8
Tíminn
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog
Framsóknarfélögin í Fteykjavík
Framkvæmdastjóri
Ritstjóri:
Aöstoöarritstjóri:
Fréttastjóri:
Aðstoðarfréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
NíelsÁrni Lund
OddurÓlafsson
Guömundur Hermannsson
Eggert Skúlason
Steingrímur Gíslason
Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans.
Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.-.
Framtíðin lofar góðu
Forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína á Alþingi í
gærkvöldi.
í ræðu sinni kom hann inn á hinar hörðu
lögbundnu aðgerðir sem ríkisstjórnin beitti sér fyrir
á árinu 1983 og minnti á að þrátt fyrir allar hrakspár
stjórnarandstöðunnar hefðu þær skilað þeim árangri
í viðureigninni við verðbólguna að hún lækkaði strax
á því ári úr 130 niður í 20 af hundraði.
Atvinnu og kjörum fólks var með þessu móti
bjargað frá hruni og þetta tókst vegna skilnings og
vilja almennings á nauðsyn þess að koma stjórnun á
efnahagsmál þjóðarinnar.
Forsætisráðherra minnti einnig á það víðtæka
samkomulag sem náðist um kaup og kjör á þessu ári
milli aðila vinnumarkaðarins.
Það samkomulag náðist ekki síst fyrir forystu
forsætisráðherra. Hann vissi að svo víðtækir samn-
ingar næðust ekki nema með aðild ríkissjóðs. Þrátt
fyrir þá stefnu Sjálfstæðisflokksins að ríkið eigi ekki
að koma nálægt samningamálum viðurkenndi fjár-
málaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Þor-
steinn Pálsson að þetta væri nauðsynlegt, og féllst á
þessa leið.
í samtali við útvarpið fyrir nokkru ítrekaði
fjármálaráðherra réttmæti þess að ríkið hefði gripið
inn í samningaviðræðurnar og staðfesti þar með um
leið að frjálshyggjustefna íhaldsins sem hefur til
þessa fortekið afskipti ríkissjóðs af kjarasamningum
aðila vinnumarkaðarins á ekki við rök að styðjast.
í ræðu sinni nefndi forsætisráðherra þau markmið
sem ríkisstjórnin stefnir að á næsta ári en þau eru:
1. Verðhækkanir frá upphafi til loka árs 1987 verði
ekki meiri en 4-5 af hundraði.
2. Atvinna verði næg, en betra jafnvægi og minni
spenna verði á vinnumarkaðnum.
3. Vöxtur þjóðarframleiðslu og þjóðarútgjalda
haldist í hendur og verði nálægt 2 af hundraði á árinu
1987.
4. Viðskipti við útlönd verði sem næst hallalaus og
hlutfall erlendra skulda af landsframleiðslu og gjald-
eyristekjum lækki.
Síðan sagði forsætisráðherra:
„Takist að ná þessum markmiðum má verja þann
kaupmátt ráðstöfunartekna og þau góðu lífskjör sem
náðst hafa á árinu 1986. Ríkisstjórnin telur jafnframt
að innan þessa ramma rúmist lagfæring á kjörum
þeirra sem búa við lakari kaupmátt kauptaxta og
lökust kjör og á það beri að leggja áherslu.“
Þá ræddi forsætisráðherra þau umfangsmiklu
skattsvik sem hér eru stunduð og boðaði að frumvörp
um það efni yrðu lögð fram á Alþingi í vetur.
Forsætisráðherra lauk stefnuræðu sinni með þess-
um orðum:
„Ég er sannfærðari nú en nokkru sinni fyrr að
framtíð lands og þjóðar getur orðið góð og björt ef
við föllum ekki í þá gryfju að fórna langtíma farsæld
fyrir skammtíma ágóða.“
8 Tíminn
Föstudagur 17. október 1986
S3§
■t%ga
^^Sk*** £—■—
«■ <
VGzsr-
Illllllll GARRI llllllllllilllllllllllllilÍilillllllll llllilllllll llllllllill llliillll llilllllllllUllllillll Illlllllllllllllllllllllllillllllllll lliillllilll
„The big four“,
- Hinir fjóru stóru
I Morgunblaöiö birlir í gær mynd-
j ir af fjórum leiðtogum Sjálfstæöis-
flokksins eins og sjá má á myndinni
hér að ofan.
Þeir eru: Dagskrárstjóri hans í
Sjónvarpinu, forinaöurhans, borg-
arstjóri hans í Kcykjavík og vika-
piltur hans í ríkisfjármálum.
Ósagt skul lálið hvort Morgun-
blaöið er undir svo sterkum áhrif-
um af frammistöðu Gorbatsjovs í
fjölmiðlum að myndunum sé raðað
upp að sovéskri fyrirmynd en at-
hygli vekur að dagskrárstjóri
Flokksins cr fremstur í upptalning-
unni og í austantjaldslöndum gefur
slíkt glögga mynd af raunveruleg-
um áhrifuin innan Flokksins.
Ljóst er af þessari grein sem er
skrifuð til stuðnings vikapiltinum í
ríkisfjármálum í prófkjöri því sem
fyrir dyrum stendur og eru formað-
ur Flokksins og borgarstjóri hans
að koma þeim boðuni til FJokks-
manna að þeir eigi að styðja hann.
Þeir eiga hins vegar óhægt um
vik að ganga fram fyrir skjöldu þar
sem flciri sækjast eftir hnossinu og.
sumir þeirra eru þýðingarmiklir
í valdataflinu innan Flokksins.
(Sumir þeirra urðu ekki hrifnir í
gær, urðu ciginlega alveg
stjöraubrj...)
Hinir fjóru stóru hafa sýnilega
gert um það samkomulag við dag-
skrárstjóra Flokksins til að ríða á
foraðið og með myndbirtingunni
er skilaboöunum komið áleiðis
jafnvel þótt fólk nenni ekki að lesa
greinina.
Öðruvísi verður myndaserían
ekki skýrð þarscm einungis tíðkast
hjá dagblöðum að birta mynd af
greinarhöfundi einum með smá
Kjöllurum.
Augljúst er því að mikið tiggur
við að boðskapurinn komist til
skila og að almenningur fari ekki í
grafgötur með hver vilji Flokksins
er.
Vafalítið hefur dagskrárstjórinn
talið þetta Ijúfa skyldu sína enda
spillir tæplcga fyrir að gott sain-
band ku vera milli vikapilts ríkis-
fjármálanna og formanns útvarps-
ráðs sem dagskrárstjórinn þarf
endilega að hafa góð samskipti við.
Hvort sem öðrum frambjóðend-
um Flokksins líkar það betur eða
ver hafa þeir nú fengið sinn dóm
hjá forystunni og verða að sjálf-
sögðu að hlíta honum.
Nú geta þeir pakkað santan aug-
lýsingum og hætt að skrifa - línan
hefur verið gefin.
Garri
IIHIIIIIIIIIIIIII VITTOGBREITT !!«gl....................................................................................................................................................... ......................................... - :.::iilllllllllllllllli:ii;;:: .......................... -.......................................Illll
Sálarheill að veði
Uppdráttarsýkin í Alþýðu-
bandalaginu er komin á það stig að
flokksmenn vita ekki í hvers konar
flokki þeir eru, forystan er einangr-
uð og ráðvillt og verkalýðssinnar
skima um eftir hvar vænlegast er
að ná stjórnmálalegum áhrifum,,
en þeir eru tortryggnir af flokksfor-
ystunni og þeir tortryggja hana, og
áhrifamenn innan flokksins eru
orðnir „vandamál".
í Helgarpósti er viðtal við Einar
Karl Haraldsson, fyrrum ritstjóra
Þjóðviljans og framkvæmdastjóra
Alþýðubandalagsins. Þar kemur
fram hörð gagnrýni á flokkinn,
störf hans og einræðistilhneigingar
þeirra sem með flokksvöldin fara.
Það eru þeir Svavar og Hjörleifur
sem eiga við „vandamálin" að
stríða, þ.e. allra þeirra sem líka
vilja hafa einhver áhrif innan
flokksins.
Um vandamálin segir Einar Karl
m.a. „... það er mjög óklókt að
flokkurinn nýti sér ekki sitt besta
fólk. Hvað sem segja má um
Ásmund þá er hann í æðstu stöðu
ASÍ og ákveðið afl í þjóðfélaginu
og það væri óðs manns æði ef
Alþýðubandalagið nýtti sér hann
ekki. Það er tilhneiging í Alþýðu-
bandalaginu að líta á Ásmund sem
eitthvað vandamál. Sömu sögu er
að segja af viðhorfum margra al-
þýðubandalagsmanna til Ólafs
Ragnars Grímssonar, hann er tal-
inn vandamál."
Pólitískir
langhlauparar
Einar Karl er spurður hvcrs
vegna fólkið flýji Alþýðubandalag-
ið. „Ég held að fólk finni að því sé
ekki treyst. Fólk er orðið þreytt á
því að berjast við pólitíska lang-
hlaupara. í flokksátökum gilda
ákveðnar, óskráðar reglur. Það
eru ákveðin mörk sem ckki má
stíga yfir, því þá er flokkurinh í
leifur. Trúnaðurmilli mannaeyðist
í deilum og að lokum er öll umræða
drepin í flokknum. Þá er ljóst af
orðum Einars Karls að rógurinn
getur orðið upplýsingatæki.
Það sem hér má lesa á milli
línanna, er að eitt helsta vopn
kommanna fyrr og síðar, rógurinn,
er farinn að hitta þá sjálfa fyrir.
Róginum hafa þeir beitt ótæpt
gegnum tfðina, en gegn pólitískum
andstæðingum. Nú er sú breyting á
að farið er að beita þessu gamal-
kunna vopni gegn raunverulegum
og ímynduðum andstæðingum inn-
an flokksins. Gamli andstyggilegi
kommúnistaáróðurinn er orðinn
að sjálfsmorðsvopni.
Pólitískar
skoðanir glataðar
Um ritstjóraferil sinn segirEinar
Karl að hann hafi ekki verið rit-
stjóri Þjóðviljans, heldur blaðafull-
trúi hreyfingarinnar.
Þá er lýsing á því hvernig var að
vera framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins. „Ég var búinn að
'vera miðjumaður í Alþýðubanda-
laginu, milligöngumaður og sálar-
gæslumaður og þar af leiðandi
hafði ég glatað öllum pólitískum
skoðunum. Ég var hættur að gera
greinarmun á skoðunum annarra
og minna eigin. Það var orðin
spurning um eigin sálarheill að
komast í burtu.“
„Kalinn á hjarta þaðan slapp
ég“, orti Grímur Thomsen um
vistina við hirð Goðmundar á
Glæsivöllum. Ritstjóranum og
.framkvæmdastjóranum fyrrver-
andi virðist vera svipað innan-
brjósts þegar hann minnist þess
tíma er hann gegndi ábyrgðarstöð-
um fyrir Alþýðubandalagið.
Ög pólitísku langhlaupararnir
halda áfram að streða_við sín
„vandamál.“ OÓ
Pólitísku langhlaupararair með öll
sín vandamál.
Einar Kari Haraldsson.
hættu. Deilurnar í Alþýðubanda-
laginu eru komnar langt yfir þessi
hættumörk. Samt tel ég að ekki sé
klofningshætta í Alþýðubandalag-
inu. Það er miklu heldur hætta á að
það fjari undan flokknum.“
í Ijós kemur að pólitísku lang-
hlaupararnir eru Svavar og Hjör-
eftirH rafti
. rtiíSSi*
fW'"'
tostsw'
'íSsrrtífi
\