Tíminn - 17.10.1986, Page 15

Tíminn - 17.10.1986, Page 15
Tíminn 15 Föstudagur 17. október 1986 lilliilllllllllllllllll MINNING lÍÍlllHli Laufey Guðjónsdóttir Fædd 18. júní 1919 Dáin 9. október 1986 Á haustdögum fyrir fjörutíu og fimni árum réðist ung og myndarleg stúlka vestan af landi í mötuneyti, sem Kaupfélagið á Hvolsvelli rak í þáverandi kaupfélagsbústað, sem nefndur er Arnarhvoll. Hún hafði þá um sumarið verið kaupakona að Stóru-Sandvík í Sand- víkurhreppi og líkað vistin vel á Suðurlandi. Austur í Hvolsvellí átti hún þá góðar frændkonur, sem réðu hana sem ráðskonu á stærsta og umsvifamesta heimilið sem þá var í kauptúninu. Parna var í fæði flest starfsfólk Kaupfélagsins og lang- ferðabílstjórar settust að matborð- um daglega. Gestir komu og fóru, næturgestir voru tíðir. Borðstofan varð að svefnskála á síðkvöldum. Það voru komnir miklir vaxtar- verkir í Kaupfélagið, en í fá hús að venda með beina. Glaðlynda og þekkilega stúlkan vestan úr Dýrafirði skapaði góðan anda á erilsömu heimili. Þannig að fólki þótti gantan að koma í Arnar- hvol, þar sem ráðskonan hafði eink- ar næmt auga fyrir hinurn björtu hliðum tilverunnar. Þar var ekkert verið að fárast fyrir þrengslum og þægindaleysi. Þarna var samankomið ungt og glaðsinna fólk og eins og skáldið frá Hlíðarendakoti orðaði það: Þá var ntorgunn um himin og lönd. Laufey Guðjónsdóttir var fædd að Fremstuhúsum í Mýrarhreppi í Vestur-lsafjarðarsýslu 19. júní 1919. Foreldrar hennar voru þau heiðurs- hjón Borgný Hermannsdóttir og Guðjón Davíðsson, lengi organisti í Mýrarkirkju. Eftir almennt barnaskólanám nam Laufey í tvo vetur við Héraðsskól- ann að Núpi í Dýrafirði og lauk þaðan prófi. Henni varð námið að Núpi notadrjúgt, eins og svo mörg- um og menningaráhrif frá hinum snjöllu skólamönnum að Núpi voru mótandi og traust. Einn af hinum ungu mönnum, sem komnir voru til starfa í Hvolsvelli 1941 var Magnús Kristjánsson frá Seljalandi í Vestur- Eyjafjallahreppi, sem lokið hafði verslúnarprófi frá Samvinnuskólan- um þá um vorið. Laufey og Magnús felldu hugi saman og gengu í hjónaband 26. desember 1942. Magnús var þá full- trúi í Kaupfélaginu í Hvolsvelli, en varð árið 1946 kaupfélagsstjóri og gegndi því ábyrgðarmikla starfi með giftu til hausts 1965 að hann varð að hætta vegna heilsubrests. Magnús gegndi og mörgum trún- aðarstörfum öðrum á þessum árum, sat meðal annars í sveitarstjórn. I kaupfélagsstjóratíð Magnúsar var byggt m.a. stórmyndarlegt versl- unarhús, sem hýsti kjörbúð, eina meðal hinna fyrstu á landinu og myndarlegt bílaverkstæði og vél- smiðja var og reist á þessum árum. Ungu hjónin hófu búskap í svo- nefndu „Erlingshúsi" og fluttu eftir fá ár í áðurnefndan Arnarhvol, sent varð heimili þeirra í meira en áratug. Þá byggðu þau myndarlegt íbúðar- hús þar sem áfram var gott að koma í kokkhús og stórar stofur. Laufey Guðjónsdóttir var félags- lynd kona. Hún var velvirkur félagi í Kvenfélaginu „Einingu" og formað- ur um skeið. Lengi í sóknarnefnd Stórólfshvolskirkju og í stjórn kirkjukórsins. Hún söng í kirkjunni sinni í næstum aldarfjórðung. Hún hafði blæfagra millirödd, sent hún beitti af músikalskri smekkvísi. Fólki þótti notaleg návist hennar. Hún hugsaði fallega og lagði gott til mála, velviljuð og jafnán full af fjöri og yl. Laufey var Ijóðelsk og gerði sjálf vísur á góðum stundum. Magnúsi og Laufeyju varð fjög- urra barna auðið. þrjú eru á lífi cn þau eru: Kristján Örn bifreiðastjóri hjá Kaupfélagi Rangæinga f. 30. september 1942. Hann er kvæntur Erlu Jónsdóttur, verslunarstjóra frá Nesjavöllum. Svanfríður hjúkrun- arfræðingur f. 18. febrúar 1946. Hún er gift Njáli Sigurðssyni tónlistar- manni og námsstjóra frá Krossi og Guðjón Borgþór doktor í líffræði f. 21. febrúar 1952. Hann átti Sigur- laugu Höskuldsdóttur, en þau hafa slitið samvistir. Laufey og Magnús lluttu til Reykjavíkur fyrir um tveimur ára- tugum þar sem Magnús gerðist fljót- lega aðalbókari hjá Dráttarvélum h/f. Fyrir átján árum dró dökka bliku yfir heimili þeirra að Safantýri 34. Laufey veiktist hættulega og var frá þeim tíma rúmföst lengst af á Landa- kotsspítala. Vonirnar um bata rættust ekki. Lífsglaða konan úr Dýrafirðinum gekk ckki framar út í sólskinið. Hún komst ekki austur þar scm börnin hennar áttu sín bernskuspor. Hún sá ekki eftir það fjöllin háu og svip- miklu við fjörðinn sinn fyrir vestan. þar sem dalir eru grónir. Hún var fjötruð við rúmið, þar sem hún bcið lausnarstundarinnar svo lengi. Eig- inmaðurinn létti hcnni lífið með þeirri umhyggju og þeirri alúð, sent mest og best hann gat. Hann las fyrir hana og flutti henni tíðindi af því sem gerðist utan hinna þykku veggja sjúkrahússins, þar sem lífið heldur áfram. Við Margrét og börnin okkar sendum ástvinum öllum samúðar- kveðjur. Það er þakkarvert að hafa átt samleið með Laufeyju Guðjónsdótt- ur meðan lífssól skein í heiði og að eiga um hana minningar, sem allar eru góðar. Pálmi Eyjólfsson Friðrik Kristjánsson rafveitustjóri, Höfn, Hornafiröi Fæddur 6. maí 1943. Dáinn 6. októbcr 1986. Það varð brátt um hann Friðrik. Hress að vanda lagðist hann til hvílu, gestkomandi í föðurhúsum, aðfaranótt 6. þ. mánaðar, en látinn að morgni í rúmi sínu aðeins 43 ára að aldri. Ég ætla ekki að rekja hér æfi- né starfsferil Friðriks Kristjánssonar, það munu aðrir gera. Ég hefi haft nokkur kynni af Friðrik allt frá því að hann var unglingur og um nokk- urt árabil all náin kynni eða frá þeim tíma er hann réðist sem rafveitu- stjóri að Höfn í Hornafirði í október 1970 á vegum Rafmagnsveitna rfkis- ins. Fyrstu árin var hann undir beinni stjórn Rekstrardeildar Rafmagnsveitnanna í Reykjavík en með breyttu skipulagi var Horna- fjarðarsvæðið sameinað Austfjarð- arsvæðinu. Austur-Skaftafellssýsla er tiltölulega einangruð sem raf- veiturekstrarsvæði. Umfang svæðis- ins nær frá Lóni, eystra til Öræfa- sveitar, syðra. Það hefur því reynt æði mikið á þá hæfileika rafveitu- stjóranna að standa meira og minna á eigin fótum til úrlausnar þeim margvíslegu verkefnum sem fylgja þessu starfi. Þarna var Friðrik réttur maður á réttum stað. Hann reyndist mjög fær stjórnandi. Hann kunni að velja sér samstarfsmenn til hinna ýmsu verkþátta. Hann var úrræða- góður þegar vanda bar að höndum, sem æði oft skeður í rafveiturekstri. Hann reyndist mjög framsýnn um þörfina fyrir eðlilega endurnýjun og uppbyggingu kerfis og orkuöflunar- þátta svæðisins. Auk góðra meðfæddra hæfileika naut Friðrik þess að kynnast raf- veitumálum allt frá barnæsku. Faðir hans Kristján Kristjánsson hefur ver- ið rafveitustjóri við rafveituna á Eskifirði allt frá því að Rafmagns- veitur ríkisins tóku við rekstri henn- ar 1957 og öðlaðist Friðrik þar góðan skóla í rafveiturekstri hjá föður sínum. Friðrik var mjög vel látinn af starfsmönnum og viðskiptavinum Rafmagnsveitnanna. Hann varákaf- lega félagslyndur og tók m.a. mikinn þátt í félagsstarfi starfsmanna fyrir- tækisins, heima og heiman. Hann starfaði einnig mikið að almennum félagsmálum í byggðalag- inu. Þá tók hann og mikinn þátt í starfi framsóknarmanna á Austur- landi. Friðrik var einn af þessum traustu hornsteinum Rafmagnsveitna ríkis- ins úti á landsbyggðinni og hvar væru Rafmagnsveitur ríkisins stadd- ar án þeirra? Hornfirðingar hafa átt því láni að fagna í gegnum árin að störf rafveitu- stjóra hafa frá upphafi verið í hönd- um úrvalsmanna bæði áður en Raf- magnsveitur ríkisins yfirtóku rekst- urinn, árið 1959 og eftir þann tíma. Fram til ársins 1969 gegndi Gísli Björnsson, sá aldni heiðursmaður, þessu starfi. Þá gegndi Sigurður Eymundsson starfinu í eitt ár, þar til Friðrik tók við því og gegndi því til dauðadags, með miklum ágætum. Eiginkonu, börnum og öldruðum foreldrum sendi ég mínar samúðar- kveðjur. Guðjón Guðmundsson. Þeim, sem óska birtitigar á afmælis- og eða minningargreinum í blaðinu, er benl á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að Véra vélritaðar. Umboðsmenn Tímans: Nafn umboðsmanns Heimili Sími Hafnarfjörður Anna Jóna Ármannsdóttir Suöurbrautá 651141 Garðabær Anna Jóna Ármannsdóttir Suöurbrautá 651141 Keflavík Hjalti Guöjónsson Hlíðargötu 22 92-7782 Keflavík GuöríöurWaage Austurbraut 1 92-2883 Sandgerði Guöbjörg Haraldsdóttir Holtsgötu 35 92-7795 Garður Benedikt Viggósson Eyjaholti 16 92-7217 Njarðvik Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-3826 Akranes Aöalheiöur Malmqvist Dalbraut55 93-1261 Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Sæunnargötu4 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 24 93-8410 Grundarfjörður Þórunn Kristinsdóttir Grundargötu43 Ólafsvík GuönýH.Árnadóttir Gunnarsbraut 93-6131 Rif Ester Friöþjófsdóttir Háarifi 49 93-6629 Búðardalur Sólveig Ingvadóttir Gunnarsbraut7 93-4142 ísafjörður Jens Markússon Hnifsdalsvegi 10 94-3541 Bolungarvík Kristrún Benediktstdóttir Hafnargötu115 94-7366 Súðavík Heiöar Guöbrandsson Neöri-Grund 94-4954 Flateyri Guörún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673 Patreksfjörður NannaSörladóttir Aðalstræti 37 94-1234 Bíldudalur Tone Solbakk Tjarnarbraut 1 94-2268 Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131 Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut5 95-3132 Hvammstangi Baldur Jessen Kirkjuvegi 95-1368 Blönduós Snorri Bjarnason Uröarbraut20 95-4581 Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772 Sauðárkrókur Guörún Kristófersdóttir Barmahlíö 13 95-5311 Siglufjörður Friöfinna Símonardóttir Aðalgötu21 96-71208 Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambageröi 4 96-22940 Svalbarðseyri ÞrösturKolbeinsson 96-25016 Dalvik BrynjarFriðleifsson Ásvegi 9 96-61214 Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308 Húsavík ÆvarÁkason Garöarsbraut45 96-41853 Kópasker Þóra Hjördis Pétursdóttir Duggugerði 9 96-52156 Raufarhöfn Ófeigurl.Gylfason Sólvöllum 96-51258 Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157 Vopnafjörður VeigurSveinsson Lónabraut 21 97-3122 Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-1350 Seyðisfjörður Sigriöur K. Júlíusdóttir Botnahlíö28 97-2365 Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson Heiöarvegi 12 97-4119 Eskifjörður Harpa Rún Gunnarsdóttir Steinholtsveg 1 97-6316 Fáskrúðsfjörður JóhannaEiriksdóttir Hlíöargötu8 '97-5239 Stöðvarfjörður Stefán Magnússon Undralandi 97-5839 Djúpivogur RúnarSigurösson Garöi 97-8820 Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut13 97-8255 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317 Hveragerði ErnaValdimarsdóttir Heiöarbrún 32 99-4194 Þorlákshöfn Guörún Eggertsdóttir Básahrauni7 99-3961 Eyrarbakkí Ragnheiður Marteinsdóttir Hvammi 99-3402 Stokkseyri SteinarHjaltason Heiöarbrun22 99-3483 Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimum 99-8172 Vík PéturHalldórsson Sunnubraut5 99-7124 Vestmannaeyjar ÁsdisGísladóttir Bústaðabraut 7 98-2419 tV.V 7 7 w '6 ISU Gólfefni á íþróttahús Tilboð óskast í lagningu íþróttagólfaí íþróttahús íþróttakennaraskóla íslands, Laugarvatni og íþróttamiðstöð á Húsavík. Gólf á Laugarvatni eru um 1700m2 og um 1520 m2 á Húsavík. Verkunum skal að fullu lokið 15. febrúar 1987. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 14. nóvember 1986, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 2- 5Í5 7- w Útboð Öskað er tilboða vegna kaupa á eftirtöldum vöruflokkum árið 1987 vegna Innkaupanefnd- ar sjúkrahúsa: Bleiur (dag-nætur-barna) WC-pappír Eldhúsrúllur Miðaþurrkur Papph- (rúllur) á skoðunarbekki Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, á kr. 300.- hver flokkur INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 '*/■?* CONTINENTAL s e z; Ss Betri barðar undir bílinn allt árið hjá Hjólbarðaverslun Vesturbæjar, Ægissíðu 104. Sími 23470

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.