Tíminn - 17.10.1986, Síða 16

Tíminn - 17.10.1986, Síða 16
16 Tíminn Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla vegna skoöanakönnunar framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi fer fram dagana 11. til 24. október hjá eftirtöldum: Guðgeir Sumarliðason AusturHlíð, V-Skaft. ÓlafurHelgason Hraunkoti, V-Skaft. ReynirRagnarsson Vík í Mýrdal Ragnhildur Sveinbjörnsd., Lambey, Rang. ÁgústlngiÓlafsson Hvolsvelli Páll Lýðsson Litlu Sandvík, Árn. Karl Gunnlaugsson Varmalæk, Árn Kristján Einarsson Selfossi HjördísLeósdóttir Selfossi ÞórðurÓlafsson Þorlákshöfn Andrés Sigmundsson Vestmannaeyjum Oddný Garðarsdóttir Vestmannaeyjum Skrifstofa Framsóknarflokksins í Reykjavík Yfirkjörstjórn Rangæingar Aöalfundur Framsóknarfélags Ftangæinga verður haldinn i Hvoli Flvolsvelli föstudaginn 17. október n.k. kl. 21.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin Borgnesingar - Nærsveitir Spilum félagsvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi, föstudaginn 17. október kl. 20.30. Allt spilaáhugafólk hjartanlega velkomiö. Framsóknarfélag Borgarness. Norðurland vestra skoðanakönnun Dagana 18. til 19. október nk. ferfram skoöanakönnun í Noröurlandi vestra um val frambjóðenda til þátttöku I prófkjöri framsóknarmanna sem ákveðiö hefur veriö í nóvember nk. Stjórn kjördæmissambands Norðurlands vestra Arnesingar spilafólk Hin árlega 3ja kvölda spilakeppni Framsóknarfélags Árnessýslu hefst föstudaginn 24. október kl. 21.00 aö Aratungu, föstudaginn 31. október aö Þjórsárveri og lýkur 14. nóvember að Flúðum. Heildarverðmæti vinninga er 70.000 kfónur. Allir velkomnir. Stjórnin Fundur hjá Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík veröur 20. október 1986 kl. 20.30 aö Rauöarárstíg 18. Dagskrá. Félagsstörfin. Meöan þiö fáiö kaffisopa gefst tækifæri aö sjá Gala-greiðslu hjá Sesselju Guðmundsdóttur. Félagskonur munið aö mæta á mánudaginn. Suðurlandskjördæmi Kynningarfundir frambjóöenda I skoöanakönnun Framsóknarflokks- ins í Suöurlandskjördæmi 25. október n.k. verða sem hér segir. 10. október Flúðum, Árn. kl. 21.00. 12. október Leirskálum, Vik kl. 21.00. 14. október Kirkjubæjarklaustri kl. 21.00. 15. október Hvoli, Hvolsvelli kl. 21.00. 19. október Félagsheimili Þorlákshafnar kl. 13.00. 21. október Skansinum, Vestmannaeyjum kl. 21.00. 23. október Inghól, Selfossi kl. 21.00. Framboðsnefndin. Prófkjör Framsóknarflokksins á Vesturlandi Prófkjör vegna framboös Framsóknarflokksins í Vesturlandskjör- dæmi í næstu alþingiskosningum, fer fram dagana 29. til 30. nóv. 1986. Heimilt er félagsstjórn eða aö minnsta kosti 30 félagsmönnum að tilnefna menn til þátttöku í prófkjörinu, enda samþykki þeir hana skriflega.' Frestur til að skila inn framboðum er til og með 24. okt. n.k. og skal framboðum skilað til formanns yfirkjörstjórnar - Daníels Ágústínus- sonar, Háholti 7, Akranesí. Yfirkjörstjórn K.S.F.V. Trrrr Föstudagur 17. október 1986 DAGBÓK llllllllllllllllillllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka í Reykjavík vikuna 17. til 23. októberer í Reykjavíkurapóteki. Einn- ig er Ðorgar apótek opið til kl. 22 öll kvöld vikunnar nema sunnudags- kvöld. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi til kl. 9.00 að morgni virka daga en til kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru gefnar í síma 18888. Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og Norður- bæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00 Upplýsingar í símsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru öpin virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sína vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið í því apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00, og 20.00-21.00. Á öörum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í síma 22445. Apótek Keflavíkur: Opið virka daga kl. 9.00; 19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frí- daga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað í hádeginu milli kl. 12.30 og 14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugarda§a kl. 11.00-14.00. Grafík eftir Ónnu-Evu Bergman í anddyri Norræna hússins Sunnud. 5. okt. var opnuö sýning á grafíkmyndum eftir norsku listakonuna Önnu-Evu Bergman í anddyri Norræna hússins. Hér er um að ræða sýningu á tréristumunnumáárunum 1957 til 1976. Anna-Eva Bergman er fædd í Stokk- hólmi 1909. Hún hefurstundað myndlist- arnám í Osló og París, og hefur búið í Frakklandi síðan 1952. Hún hefur haldið sýningar á myndvefnaði, og sýndi m.a. myndvefnað ásamt manni sínum, þýska listamanninum Hans Hartug í Picasso- safninu í Antibes 1985. Verk hennar eru í eigu fjölda safna víða um heim. m.a. á Listasafn fslands verk cftir hana. Sýningin í Norræna húsinu verður opin dagl. kl. 09.00-19.00 og stendur til 28. október. Aðgangur er ókeypis. Sýning í Slunkaríki á ísafirði Laugardaginn 18. oktbóer opnar Pétur Guðmundsson sýningu á málverkum í Slunkaríki á ísafirði. Pétur lauk námi á kennaradeild Mynd- lista- og handíðaskóla íslands og hefur síðan um árabil kennt teikningu við grunnskólann á ísafirði. Sýningin stendur til 30. október. Listasafn íslands: Vaitýr Pétursson - yfirlitssýning 18. október -16. nóvember 1986 Á laugardag verður opnuð í Listasafni fslands yfirlitssýning á verkum Valtýs Péturssonar listmálara. Sýningin spannar allan listferil hans allt frá því að hann var við nám í Bandaríkj- unum 1944-46 til verka frá þessu ári. Eru þar alls 127 verk, olíumyndir, mósaík og gvassmyndir. Valtýr fæddist árið 1919. Fimmtán ára gamall hóf hann listnám hjá Birni Björns- syni i Reykjavík og var hjá honum í tvö ár. Eftir seinni heimsstyrjöld hélt hann utan til frekara listnáms í Bandaríkjunum þar sem hann stundaði nám hjá Hyman Bloom í Boston í tvö ár. Hann var einn af frumkvöðlum hinnar frægu Septemb- ersýningar 1947 sem átti eftir að valda þáttaskilum í íslenskri listasögu. Eftir ársdvöl í Flórens, 1949-50, hélt Valtýr til Parísar og dvaldist þar í tvö ár. Parísar- dvölin hafði afgerandi áhrif á hann enda varð hann er heim kom einn af skelegg- ustu málsvörum geómetríska skólans sem þá var í hávegum í París. Árið 1956 var Valtýr við nám í mósaik í París hjá hinum fræga fútúrista Gino Severini og vann hann eftir það um skeið mósaíkmyndir úr íslenskum steinum. í tilcfni sýningarinnar hefur verið gefin út vönduð sýningarskrá og litprentað plakat. Sýningin er opin virka daga frá kl. 13.30 til 18.00 en kl. 13.30 til 22.00 um hclgar. Norræna húsið: Edvard Munch-sýning f sýningarsölum Norræna hússins stendur yfir sýning á 40 olíumálverkum eftir hinn heimsfræga norska listamann Edvard Munch. Sýningin er opin daglega kl. 14.00- 19.00 og stendur til sunnudagsins 2. nóv. Aðsókn að sýningunni hefur verið afar góð. Á milli 4 og 5 þúsud manns hafa skoðað sýninguna. Frumsýning hjá Litla leikklúbbnum á ísafirði Laugard. 18. okt kl. 16.00 frumsýnir Litli leikklúbburinn á ísafirði leikritið „Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir" eftir Ólaf Hauk Símonarson. sem hann gerði eftir sögu Rudyards Kipling. Þetta er fjölskylduleikrit með 8 söngvum. Leikstjóri er Guðni Ásmunds- son, sem starfað hefur með Litla leik- klúbbnum í 20 ár. 7 persónur eru í verkinu og þær leika: Marta Eiríksdóttir, Bjarni Guðmarsson. Gerður Eðvarðs- dóttir, Gísli B. Gunnarsson, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Sunneva Gissurardóttir og Dagmar Gunnarsdóttir. Leikrit þetta var frumflutt hjá Leikfé- lagi Akureyrar á s.l. ári og er í því hin margfræga Vögguvísa. Sýningar Litla leikklúbbsins eru í Fél- agsheimilinu Hnífsdal og næstu sýningar eru sunnud. 19. október kl. 16.00 og 21.00. Basar og kaffisala Félag austfirskra kvenna hefur basar og kaffisölu að Hallveigarstöðum á morgun, laugardaginn 18. október kl. 14.00. Hana nú í Kópavogi Vikuleg laugardagsganga frístunda- hópsins Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugardaginn 18. okt. Lagtverð- ur af stað kl. 10.00 frá Digranesvegi 12. Þegar veturinn nálgast og veður versna göngum við skemur og tökum tíma í molakaffið. Verið hlýlega búin. Markmið göngunnar: Samvera, súrefni og hreyfing. Nýtt blað: Nýr lífstíll - betra þjóðfélag Nýtt blað hefur hafið göngu sína og ber heitið Nýr lífsstíll betra þjóðfélag. Blaðið kemur út í 40 þúsund cintökum og er útgefandi blaðsins Landssamband fram- sóknarkvenna. Umsjón með blaðinu hef- ur Eggert Skúlason. Efni blaðsins fjallar að þcssu sinni um ráðstefnu Landssambands framsóknar- kvenna, sem bar heitið Nýr lífsstíll betra þjóðfélag. I blaðinu er m.a. fjallað um neyslu- stefnu á íslandi, um mikilvægi fjöskyldu- tengsla, áhersla lögð á markvissa stefnu í íþróttamálum og einnig um betri heil- brigðisstefnu. Upplýsingar um þetta blað er hægt að fá hjá Unni Stefánsdóttur, formanni Landssambands framsóknarkvenna í síma 42146 eða 24480. Happdrætti DAS flytur í Tjarnargötu 10 Fyrir nokkru keypti Sjómannadagurinn t Reykjavík og Hafnarfirði hluta fasteign- innar Tjarnargötu 10 af ríkissjóði fyrir starfsemi Happdrættis DAS. Hér er um að ræða 1. og 2. hæð húseignarinnar og hálfan kjallarann, samtals um 400 fer- metrar. Undanfarið hafa farið fram lagfæringar og breytingar á húsnæðinu, cndurnýjaðir gluggar og útihurðir og lögð í gangstétt og tröppur og komið fyrir nýjum innrétting- um. Hönnuður að verkinu var Halldór Guðmundsson arkitekt á Teiknistofunni Ármúla 6. Yfirsmiðurvar Þorlákur Þórar- insson, starfsmaður hjá Hrafnistu í Hafn- arfirði. Bæði aðalumboð og skrifstofa Happ- drættis DAS eru því nú til húsa að Tjarnargötu 10. Óútdregnir eru 4 vinningar til íbúða- kaupa - fyrir samtals 5,3 millj. kr., 24 vinningar til íbúðakaupa fyrir 4.8 milljón- ir, auk Toyota Landcruiser í desemberog Saab 9001 í febrúar 1987. Auk þess 720 utanlandsferðir á 40 þús. kr., hver, auk fjölda húsbúnaðarvinninga á 10 þús. og 5 þús. krónur. Símum happdrættisins hefur verið fjölgað og cru nú: 27208 - 27291 - 24530 - 17757- 17117-29858. Næsti útdráttur í Happdrætti DAS verður í 7. flokki 4. nóvember n.k. Rafmagn,vatn, hrtaveita Ef bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita má hringja í þeþsi símanúmer: Rafmagn: \ Reykjavík, Kópavogi og Seltjarn- amesi er sími 686230. Akureyri 24414, Keflavík 2039, Hafnarfjörður 51336, Vestmannaeyjar 1321. Hitaveita: Reykjavík sími 82400, Seltjarnarnes sími 621180, Kópavogur 41580, en eftir kl. 18.00 og um helgar í síma 41575, Akureyri 23206, Keflavik 1515, en eftir .lokun 1552. Vestmann- aeyjar símM088 og 1533, Hafnarfjörður 53445. Sími: Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Ak- ureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í síma 05 Bilanavakt hjá borgarstofnunum (vatn, hita- veita o.fl.) er í síma 27311 alla virka daga frá kl. .17.00 til kl. 08.00 og á helgum dögum er svaraðj allan sólarhringinn. Tekið er þar við tilkynningum. á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum,' þar sem borgarþýar. tplja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Félag áhugamanna um bókmenntir: Reyfarahöfundurinn Dostojevskij Næstkomandi laugardag flytur Árni Bergmann fyrirlestur á vegum Félags áhugamanna um bókmenntir. Nefnir hann fyrirlesturinn: Reyfarahöfundurinn Dostojevskij. Fyrirlesturinn fer fram í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Háskóla íslands og hefst hann klukkan 14.00. Aðgangur er ókeypis og öllum velkom- inn. Martin Berkofsky á tónleikum í Boston til styrktar byggingu tónlistarhúss Næstkomandi sunnudag, 19. október. mun Martin Berkofsky, píanóleikari, halda tónleika í Boston og mun ágóði þeirra renna til styrktar byggingu tónleikahúss á íslandi. Á efnisskránniereingöngutónlist eftir Franz Liszt. Þrír aðilar standa að þessum tónleikum Hungarian Society í Massachusetts, Aus- trian-American Ássociation og Harvard Department of Germanic and Scandin- avian Language and Literature. Heiðurgestir á tónleikunum verða Marshall og Pamela Brement, fyrrverandi sendiherrahjón Bandaríkjanna á íslandi. auk fulltrúa scndiráða Norðurlandanna. Martin Berkofsky hefur sýnt þessu málefni mikinn áhuga og haldið styrktar- tónleika hér heima, og ennfremur rennur ágóði af sölu hljómplötu hans til bygging- arinnar. Kvöldferð á föstudagskvöld kl. 20.00 Tunglskinsganga í Valaból. Útivist fer í kvöldferð föstud. 17. okt. kl. 20.00 er það létt ganga um Valahnúka og Hclgadal hjá Kaldárseli. Áð við kertaljós í Músarhelli. Mætið vel í fyrstu tungl- skinsgöngu vetrarins. Brottför frá BSI. bensínsölu. Frítt er fyrir börn með full- orðnum. Óbyggðaferð um vetumætur: Helgar- ferð 17.-19. október. Brottför á föstu- dagskvöld kl. 20.00. Spennandi óvissu- ferð. Gist í húsi. Pantið tímanlega. Upp- lýsingar ogfarmiðará skrifstofunni, Gróf- inni 1, símar 14606 og 23732. Sunnudagsferð 19. október kl. 13.00: Kl. 13.00 Slunkaríki-Lónakot. Sköðað verður hið sérstæða hús Slunkaríki og gengið um ströndina hjá Lónakoti og Óttarstöðum. Brottför frá BSÍ, bensín- sölu. Sjáumst. Útivist. Reykjavík: Lögreglan sími 11166. slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Seltjarnarnes: Lögreglan sími 18455, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Köpavogur: Lögreglan sími 41200, slökkviiið og sjukrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 51100. Keflavík: Lögreglan sími 3333, slökkvilið simi 2222 og sjúkrabifreið sími 3333 og í símum sjúkrahússins 1400, 1401 og 1138. Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 1666, slök- kvilið sími 2222 og sjúkrahúsið sími 1955. Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222. ísafjörður: Lögreglan sími 4222, slökkvilið simi , 3300, brunasími og sjúkrabifreið sími 3333. 16. október 1986 kl. 09.15 Kaup Sala Bandaríkjadollar ..40,090 40,210 Sterlingspund ..57,7500 57,9230 Kanadadollar ..28,849 29,935 Dönsk króna .. 5,3921 5,4082 Norsk króna .. 5,5194 5,5359 Sænsk króna .. 5,8930 5^9106 Finnskt mark .. 8,3054 8,3302 Franskur franki .. 6,2016 6,2201 Belgískur franki BEC .. 0,9771 0,9800 Svissneskur franki .... ..24,8112 24,8855 Hollensk gyllini ..17,9727 18,0265 Vestur-þýs'kt mark ..20,3162 20,3770 ítölsk líra .. 0,02935 0,02943 Austurrískur sch .. 2,8873 2,8959 Portúg. escudo .. 0,2755 0,2764 Spánskur peseti .. 0,3059 0,3068 Japanskt yen .. 0,26016 0,26094 irskt pund’ ..55,240 55,405 SDR (Sérstök dráttarr. „49,0187 49,1651 - Evrópumynt „42,2849 42,4115 Belgískurfr. FIN BEL ..0,9692 0,9721 Freyjukonur Kópavogi Aðalfundur Freyju félags framsóknarkvenna í Kópavogi verður haldinn að Hamraborg 5 þriðjudaginn 21. október nk. kl. 20.30. Stjórnin

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.