Tíminn - 13.11.1986, Qupperneq 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 13. nóvember 1986
ÚTLÖND
FRÉTTAYFIRLIT
HAAG — Eiturefnin frá sviss-
neskri efnaverksmiöju munu
enn auka á þá miklu mengun
sem ! Noröursjónum er og við
strendur Hollands. i Bonn
sagöi vestur-þýskur sér-
fræðingur að eiturefnin sem
bárust út í Rín frá svissneskri
verksmiðju hefði fært milljóna.
dollara áætlun um hreinsun
Rínarfljóts mörg ár aftur í
tímann.
GENF — Samningaviðræð-
um stórveldanna um kjarn-
orkuvopnamál og geimvop-
namál var frestað fram á næsta
ár eftir fundi sem mörkuðust af
óvæntum leiðtogafundi og til-
lögum um verulega takmörkun
kjarnorkuvopna.
PARÍS — Francois Mitter-
rand Frakklandsforseti afneit-
aði öllum hugsanlegum frönsk-
um hernaðaraðgerðum til að
flæma lýbíska herinn á brott
frá norðurhéruðum Chad.
Hann neitaði hinsvegar ekki
að franska stjórnin myndi veita
Hissene Habre Chadforseta
einhvern stuðning í sambandi
við flutning á vopnum og
vistum.
JÓHANNESARBORG
— Svartur maður var brenndur
til bana og svört kona arýtt tll
bana I ofbeldisaðgerðum I
byggðum svartra I Suður-Afr-
íku. Þar með er tala látinna frá
því að neyðarástandslögin
voru sett á þann 12. júní síð-
astliðinn komin upp I 320.
KARIÓ — Hosni Mubarak
forseti Egyptalands sagði
nauðsynilegt að hrist yrði upp
I efnahagslífi landsinsog hvatti
alla landsbúa til að berjast fyrir
aukinni fjárhagslegri vel-
gengni.
LUNDÚNIR — Háttsettur
efnahagssérfræðingur innan
stjórnar Reagans Bandaríkja-
forseta sagðist búast við að
hinn gífurlegi viðskiptahalli
landsins myndi minnka veru-
lega á næsta ári og spáði
áframhaldandi efnahagsbata.
PARÍS — P. W. Botha forseti
Suður-Afríku, sem nú er I
heimsókn I Frakklandi, sagði
að land sitt væri efnahagsleaa
sterkt og alþjóðlegar refsiao-
gerðir gegn Suður-Afríku
myndu einungis koma sér illa
fyrir nágrannaríki þess.
Breska þingiö formlega sett í gær:
Fátt óvænt í stefnuskrá
íhaldsstjórnar Thatchers
Líkur á aö forsætisráðherrann boöi til kosninga strax á næsta ári
Lundúnir - Kcutcr
Breska ríkisstjórnin lofaði í gær
að halda áfram sölu á ríkisreknum
fyrirtækjum og minnka skattaálög-
ur. Auk þess staðfesti hún núverandi
utanríkisstefnu sína í áætlunum fyrir
næsta ár.
Það var Elísabet Bretadrottning
sem las upp helstu stefnumarkmið
ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár og
kom þar fátt á óvart. Drottningin
tilkynnti um stefnumiðin í opinberri
setningu breska þingsins, athöfn sem
á sér djúpar rætur í breskri sögu.
Stjórnmálaskýrendur sögðu
stefnuskrána ekki rista mjög djúpt
sem styrkir þá trú manna að Margrét
Thatcher forsætisráðherra og íhalds-
stjórn hennar muni efna til kosninga
á næsta ári eða fyrr en kjörtímabil
hennar rennur út.
Stjórnin lofaði í stefnuskrá sinni
að halda áfram baráttu gegn hryðj-
uverkamönnum og lýsti jafnframt
yfir stuðningi sínum við afvopnunar-
viðræður allskonar.
Breska þingið var formlega sett í gær með mikilli viðhöfn að hætti innfæddra
f innanlandsmálum var skatta-
lækkun og sala á ríkisreknum fyrir-
tækjum helstu málin.
Á næstu tólf mánuðum hyggst
stjórnin halda áfram að selja ríkis-
rekin fyrirtæki og falla Breska
flugfélagið (British Airways), fyrir-
tækið Breskt gas, Rolls-Royce fyrir-
tækið og breska flugmálastjórnin öll
undir þá áætlun.
Þá hyggst stjórnin halda fast við
áætlun sína að skera niður ríkisút-
gjöld. Þau eru nú 44% sem hlutfall
af þjóðartekjum en eiga að verða
41,5% á árinu 1989-90. Þannig er
gert ráð fyrir að skattar verði lækk-
aðir.
Drottningin notaði tækifærið í
ræðu sinni í gær til að skýra frá því
að hún myndi halda til Vestur-Ber-
línar á næsta ári og vera viðstödd
hátíðarhöld í tilefni af 750 ára afmæli
borgarinnar. Þá munu bæði Hassan
konungur Marrokó og Fahd konung-
ur Saudi-Arabíu heimsækja Bret-
land á næsta ári.
Svíþjóð:
Morðingi Palmes er
enn innan landsins
- er trú Hans Holmers lögregluforingja er stjórnar rannsókninni
Stokkhólmur - Reuter
Lögregluforinginn sem stjórnar
leitinni að morðingja Olofs Palme
fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar
sagði í viðtali sem birtist í dag að
hann tryði því að morðinginn væri
enn innan Svíþjóðar.
Hans Holmer yfirmaður lögregl-
unnar í Stokkhólmi sagði í viðtali
við bandaríska vikublaðið News-
week að hann og hans menn væru
ennþá bjartsýnir á að geta náð
morðingjanum, nú þegar rúmir átta
mánuðir eru liðnir frá því að byssu-
maður skaut Palme til bana á stræti
Stokkhólmsborgar er forsætisráð-
herrann gekk heim ásamt konu sinni.
Lisbet að aflokinni kvikmyndasýn-
ingu.
„Það er einfalt, við munum ná
honum. Ég er að leita eftir manni
um fertugt, 1,80 metrar á hæð,
kannski þreknunr. Ég held að hann
sé enn í Svíþjóð," sagði Holmer í
sínu fyrsta viðtali í nokkra mánuði
út af morðmálinu.
Að áliti Holmers munu minn-
ingarnar um morðið ekki þurrkast út
úr minni Svía þrátt fyrir að talsverð-
ur tími sé liðinn frá því.
„Alveg eins og allir Bandaríkja-
menn vissu hvað þeir voru að gera
er John Kennedy var skotinn man
hver Svíi hvað hann var að gera er
Palme var myrtur," var haft eftir
Holmer.
„Við vitum mun meira nú en við
vissum eftir fyrstu vikuna. Erfiðleik-
ar okkar aukast ekki þótt tíminn .
Iíði“.
UTLOBID
Olof Palme heitinn fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar. í baksýn má greina
Steingrím Hermannsson forsætisráðherra
Watson dýra-
verndari í viðtali
við norska fjölmiðla:
Næst kemur
roðin
að ykkur
Osló - Reuter
Umhverfisverndarsinnar til-
kynntu í gær að þeir hygðu á
aðgerðir gegn hvalveiðiiðnaði
Norðmanna nú í næstu framtíð.
Kanadamaðurinn Paul
Watson, leiðtogi samtakanna Sea
Shepherd sem sökktu íslensku
hvalveiðiskipunum í Reykjavík-
urhöfn um síðustu helgi, sagði í
viðtölum við dagblað í Osló og
norska útvarpið að áætlanir í
smáatriðum hefðu verið dregnar
upp um væntanleg skemmdar-
verk.
í viðtali við blaðið Verdens
Gang sagði Watson samtök sín
bera ábyrgð á aðgerðum þeim
sem hafðar voru frammi hér á
íslandi um síðustu helgi og bætti
síðan við: „Tilgangur okkar er að
stöðva allar hvalveiðar og ef
Norðmenn vilja ekki fara að
alþjóðalögum verðum við að
grípa til harðra aðgerða."
Norsk stjórnvöld tilkynntu fyrr
á þessu ári að þau hefðu lagt af
hvalveiðar í gróðaskyni en hygð-
ust halda áfram veiðum á hrefnu
í Norður- Atlantshafi í vísinda-
skynk
Hófí missir titilinn í kvöld:
DONSK STULKA TALIN
LÍKLEGUR ARFTAKI
UMSJÓN:
Heimir
Bergsson
BLAÐAMAÐURív
Lundúnir - Rcutcr
Keppnin Ungfrú heimur fer fram
í Albert Hall hljómleikahöllinni í
Lundúnum í kvöld og ef marka má
breska veðmangara mun keppnin
standa á milli dönsku stúlkunnar Piu
Larsen og Lyndu McManus frá Nýja
Sjálandi.
Alls munu sjötíu og sjö keppendur
berjast um krúnu þá er nú prýðir
höfðuð Hólmfríðar Karlsdóttur og
koma þeir alls staðar að úr heimin-
um, frá Póllandi til Paraguay.
Mikill fjöldi sjónvarpsáhorfenda,
um sjö hundruð milljónir manna,
mun fylgjast með keppni þessari
sem er jafn fræg og hún er umdeild.
Kvenréttindakonur munu vafalaust
hafa sig í frammi eins og undanfarin
ár og vekja athygli á þeirri skoðun
sinni að konur séu þarna misnotaðar
í gróðaskyni.
Að auki hafa breskir fjölmiðlar
verið duglegir við að leita uppi
hneyksli í sambandi við fyrirkomu-
lagið og stúlkurnar sem allt hjálpar
til við að auglýsa keppnina um
„fegurstu" stúlku heims.
Stúlkurnar munu koma fram í
þjóðbúningum og sundbolum og
ræða við Eric og Júlíu Morley, sem
skipuleggja allt umstangið, um vonir
sínar og þrár. Framadraumar þeirra
eru margvísilegir, sumar dreymir
um leikkonuframa, aðrar vilja reyna
sig á því sviði sem þær hafa lært eða
eru að læra. Líklega hefur þó ungfrú
Jómfrúreyjar nokkra sérstöðu í
þessu sambandi, hún ætlar sér nefni-
lega að verða stjórnandi jarðafara í
framtíðinni.