Tíminn - 13.11.1986, Qupperneq 7
Tíminn 7
Fimmtudagur 13. nóvember 1986
Ráöherra Breta yfir málefnum Norður-lrlands:
Júgóslavía:
BESTA TRIMMIÐ
Sérfræðingur um útflutning Ástralíumanna:
Beinið augum að
Evrópu í stað
óstöðugrar Asíu
Syndey - Reuter
Markaðssérfræöingur á vegum
áströlsku ríkisstjórnarinnar sagði í
gær að Ástralir ættu að reyna að
auka markaðsáhrif sín í Evrópu cn
ekki í Asíu.
Peter Frankel, sem lekk það
hlutverk að útbúa skýrslu fyrir
stjórnvöld um markaðshorfur í
vestri, sagði Evrópumarkaði vera
stöðugari en þá í Suö-austur Asíu
og á Kyrrahafssvæðinu.
Frankel sagði á fundi með við-
skiptafrömuðum að þróunarríki á
þessu svæði hefðu aðeins takmark-
aða getu til innflutnings í saman-
burði við þjóðir á borð við Breta,
ítali, Frakkaog Vestur-Þjóðverja.
Hann bætti við að ástralskir
viðskiptafrömuðir hefðu ekki beitt
sér í nógum mæli að Evrópu-
mörkuðum vegna þess að fram að
þessu hefðu þeir verð alltof upp-
teknir við áætlanir um aukin umsvif
í Asíu þar sem markaðir breyttust
eftir cfnahagsástandi hverju sinni.
Frankel hvatti ástralska við-
skiptaaðila til að notfæra sér þá
möguleika á útflutningi til Evrópu
sem opnast hafa vegna viðskipta-
bannsins gegn Suður-Afríku.
Sérfræðingurinn benti einnig á
að flutningskostnaður á vörum til
Evrópu væri langt í frá að vera
mikið dýrari en til landa í Asíu.
Tbtniim
DJÚÐVIUINN
■s. 686300
S.681866
S.681333
Blaðburður er
Skorar á prestinn
Paisley að leggja
niður borgaraherinn
Sovéski skóiðnaðurinn
stígur skref fram á við
Moskva - Reulcr
Sovéski skóiðnaðurinn, sem
margir óánægðir viðskiptavinir segja
hafa 'allt á hælunum, er kominn með
fótinn inn fyrir þröskuld helstu
skóframlciðanda hcims. Þctta kom
fram í frétt Prövdu í gær.
Blað kommúnistaflokksins sagöi
ítalska verslunarmenn nýlega hafa
komið til Moskvu og kcypt þar
gönguskó og íþróttaskó ætlaða
konum. Ekki gaf blaðið nánari upp-
lýsingar um þessi kaup.
í opinberum fjölmiðlum í Sovét-
ríkjunum má reglulega finna gagn-
rýni á gæði innlcndra vara sem
ætlaðar eru sovéskum neytcndum
og liafa skóframlciðendur mátt þola
mikið í þessu sambandi. Viðskipta-
vinir hafa kvartað yfir að skó sé erfitt
að fá og séu auk þess rándýrir.
ogborgar sig!
Belfast-Reuter
Tom King, ráðherra Bretlands-
stjórnar yfir málefnum Norður-
írlands, hvatti í gær harðlínumann-
inn og prestinn Ian Paisley til þess
að leggja niður hinn nýstofnaða
„borgaraher" sem hann sagði enn
auka á hatrið í landinu.
Borgaraherinn (Ulster and-
spyrnuhreyfingin svokallaða), sam-
tök með hernaðarlegu sniði, voru
sett á stofn síðastliðinn mánudag til
að mótmæla samkomulagi Bret-
landsstjórnar og írlandsstjórnar sem
gert var fyrir ári síðan. Það sam-
komulag gefur stjórn kaþólikka í
Dyflinni takmörkuð völd í stjórnun
Norður-írlands, sem að meirihluta
er byggt mótmælendum.
Um það bil þúsund harðlínumenn
í hópi mótmælenda, er vilja að
N-írland verði áfram hluti Stóra-
Bretlands, gengu um götur fiskibæj-
arins Kilkeel í fyrrinótt í fyrstu
aðgerðum hins nýja borgarahers.
Aðrar mótmælaaðgerðir eru ráð-
gerðar nú í þessari viku en á laugar-
daginn er nákvæmlega eitt ár liðið
síðan skrifað var undir áðurnefnt
samkomulag, hinn svokallaða ensk-
írska sáttmála.
King sagði í samtali við breska
útvarpið BBC: „Slík samtök geta
haft truflandi áhrif. Það er mjög
auðvelt að auka á trúarbragðahatrið.
Það eru mörg illmennin sem eru svo
óumburðarlynd að þau nota hvert
tækifærið sem býðst til að ráðast á
fólk með aðrar trúarskoðanir".
Trúarbragðaofbeldi á Norður-írl-
andi hefur nú staðið í sautján ár og
er tala fórnarlamba komin yfir 2500.
Nýjasta fórnarlambið var lögreglu-
maður sem var skotinn til bana fyrir
utan hús kunningja síns í Belfast í
þessari viku.
Mótmælendapresturinn Paisley er
leiðtogi Lýðræðislega sameiningar-
flokksins og mikill andstæðingur
ensk-írska sáttmálans sem hann lítur
á sem sölu bresku stjórnarinnar á
Norður-írlandi. Presturinn sagði í
Yfirvöld hyggja á
aðgerðir gegn áfengi
Mótmælendur á Norður-írlandi eru
reiðir Thatcher og stjórn hennar
vegna ensk-írska sáttmálans sem
skrifað var undir fyrir ári síðan,
enginn þó sem presturinn Paisley.
gær að venjulegir kaþólikkar þyrftu
ekkert að óttast hinn nýja borgara-
her sinn.
„Það eru þeir sem taka þátt í
morðum á mótmælendum, stjórn-
leysingjar og ráðherrar sem skipul-
eggja eyðileggingu Ulsters sem hafa
eitthvað að óttast", bætti Paisley við.
Mikil spenna ríkir nú á Norður-'
frlandi og er óttast að mótmælaað-
gerðir á laugardaginn, sem skipu-
lagðar eru vegna ársafmælis ensk-
írska sáttmálans, geti orðið verulega
ofbeldisríkar.
Belgrad • Reuter
Heilbrigðisyfirvöld í Júgóslavíu
huga nú að aðgerðum sem ætlað er
að draga úr áfengisneyslu. Þetta
kom fram í dagblaði í Belgrad í
gær.
Blaðið Politika Ekspres sagði að
yfirvöld ætluðu sér að stytta opnun-
artíma áfengisbúða og banna
áfengisdrykkju á skrifstofum og í
verksmiðjum.
Drykkja við vinnu er algeng í
Júgóslavíu ogertalinn einn þáttur-
inn í aukinni fjarvcru frá vinnu.
Um 35 þúsund manneskjur eru
meðhöndlaðar vegna áfengis-
neyslu í landinu á ári hverju en
óopinber tala áfengissjúklinga er
talin nema hundruðum þúsunda.
Vinsælustu drykkirnir í Júgó-
slavíu eru Slivowitz og Rakiya.
Þessir drykkir er gerðir úr plómum
og ntikið bruggaðir í heimahúsum
þannig að styttri opnunartími
Síðumúla 15
S 68 63 00
Nú verða júgóslavneskir
áfengissjúklingar að fara að hugsa
ráð sil(
áíengisbúða mun að líkindum að-
eins hafa takmörkuð áhrif á áfeng-
isneyslu Júgóslava.
Hlíðarvegur 31-62
Hrauntunga 31 og út
Vogatunga
Laufbrekka
Hjallabrekka
Lyngbrekka
Nýbýlavegur 38-78
Hamraborg
Álfhólsvegur 1-1
Kleifarás
Lækjarás
Malarás
Mýrarás
Þverás
Hafðu samband
við okkur