Tíminn - 13.11.1986, Síða 16
Húsnæðisstofnun ríkisins
Auglýsing
um dráttarvexti
Af lánum, sem verðtiyggð eru
með lánskjaravísitölu, eru
reiknaðir dráttarvextir á 15. degi
frá gjalddaga.
Af lánum, sem verðtiyggð eru
með byggingarvísitölu, verða
reiknaðir dráttarvextir einum
mánuði eftir g'alddaga.
Reykjavík, 7. nóvember 1986.
c§p liúsnæ(Msstofnun ríkisins
Auglýsing
um nýjan frest til að skila kröfu um endurgreiðslu
á gjaldi af kjarnfóðri sem keypt var á tímabilinu 23.
júní 1980 til 2. október 1981.
í framhaldi af dómi hæstaréttar 23. desember
1985 verður gjald af kjarnfóðri sem keypt var á
tímabilinu 23. júní 1980 til 2. október 1981
endurgreitt. Þeir aðilar sem telja sig eiga endur-
greiðslurétt skulu framvísa kröfum sínum til fjár-
málaráðuneytis eða landbúnaðarráðuneytis í síð-
asta lagi 15. desember 1986. Með kröfunum
skulu fylgja gögn sem sýna það kjarnfóðurgjald
sem kröfuhafi telur sig hafa greitt á umræddu
tímabili. Fullnægjandi gögn teljast; frumrit af
sölunótum eða afrit af sölunótum sem löggiltur
endurskoðandi fóðursala hefur staðfest. Þar sem
kjarnfóðurgjald er ekki sérgreint í verði fóðurs á
sölunótu verður kröfuhafi að afla staðfestingar
fóðursala um þátt kjarnfóðurgjalds í verði einstakra
fóðurtegunda og fóðurblandna sem krafist er
endurgreiðslu á.
Reykjavík, 10. nóvember 1986.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir októbermánuð er 15.
nóvember. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið 10. nóvember 1986
t
Þökkum innilega auösýnda samúö við andlát og jarðarför
Jóns Eiríkssonar
frá Skeiðháholti
Jóhanna Ólafsdóttir
Ólafur Jónsson
Bjarni Jónsson
Gunnlaugur Jónsson
Vilmundur Jónsson
Sigríður Jónsdóttir
og barnabörn.
Jóhanna Jónsdóttir
Kristín Skaftadóttir
Bergþóra Jensen
Kristín Hermannsdóttir
16 Tíminn c
lllllllllll OAGBÓK
Fimmtudagur 13. nóvember 1986
Hallgrímskirkja
- starf aldraðra
Starf aldraðra í Hallgrímssókn heldur
opið hús í dag, fimmtudag, í safnaðarsal
kirkjunnar og hefst kl. 14.30. Ungt tón-
listarfólk: Friðrik Stefánsson, Inga Rut
Karlsdóttir og Rósa Jóhannsdóttir leika á
fiðlu, flautu og píanó létt lög. Bjarni
Tómasson flytur erindi. Kaffiveitingar.
Fundur Kvenfélags Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs heldur fund í
kvöld, fimmtudagskvöldið 13. nóv. í
félagsheimilinu kl. 20.30. Ostakynning.
Bubbi, Haukur og Megas
á djasskvóldi á Borginni
Bubbi, Haukur og Megas koma allir fram
saman
f kvöld, fimmtudagskvöldið 13. nó-
vember efnir Jazzvakning til hljómleika á
Hótel Borg. Nú verður ekki aðeins spunn-
ið af fingrum fram á hefðbundin hljóð-
færi, heldur koma þrír landsfrægir söng-
varar fram einnig. Það eru þeir Bubbi
Morthens, Haukur Morthens og Megas.
Þeir munu syngja hver í sínu lagilögum) s
og saman munu þeir syngja „leyninúmer
kvöldsins við undirleik hljómsveitar Guð-
mundar Ingólfssonar. Má kalla þá
„stjörnuþristinn" og má fullyrða að annað
eins söngtríó hefur vart heyrst hér á landi.
Að auki munu spila ýmsar sveitir
djassmanna, tríó Egils B. Hreinssonar,
hljómsveit Árna Scheving, tríó Guð-
mundar Ingólfssonar, hljómsveitin Súld
(Symon Kuran, Steingrímur Guðmunds-
son og Stefán Ingólfsson) og máske enn
fleiri. Tónlistarunnendur eru hvattir til að
missa ekki af þessu einstæða tækifæri.
Hljómleikarnir hefjast kl. 21.30.
Húnvetningafélagið í Reykjavík
Kaffisala og hlutavelta
Húnvetningafélagið efnir til Kaffisölu
(veisluborð) og meiriháttar hlutaveltu í
félagsheimilinu Skeifunni 17, laugardag-
inn 15. nóvember kl. 15.00. Húsið opnað
kl. 14.30.
Tekið verður á móti gjöfum (kökum og
munum) á föstudag kl. 18.00-22.00 og á
laugard. frá kl. 10.00.
Kristjana F. Arndal við eitt verka sinna á sýningunni
Kristjana F. Arndal
sýnir í Hafnarborg
Kristjana F. Arndal verður með mynd-
listarsýningu í Hafnarborg, Strandgötu
34 i Hafnarfirði 8.-30. nóvember. Á
sýningunni eru um 30 verk, meirihlutinn
olíumyndir.
Kristjana hefur stundað nám í myndlist
hér á landi og erlendis, fyrst við Myndlist-
arskólann í Reykjavík. en síðan við
Listaháskólann í Stokkhólmi 1975-80.
Hún hefur haldið 8 einkasýningar og
tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér á
landi og þó einkum erlendis. Á síðustu
árum hefur hún hlotið allmarga styrki,
núna síðast frá sænskum verkalýðssam-
tökum og Svensk-norsk samarbetsfond.
it
Ein af myndum Hlyns Helgasonar
Listkynning í
Alþýðubankanum Akureyri
Listkynning Mcnningarsamtaka Norð-
lendinga og Alþýðubankans á Akureyri
kynna að þessu sinni 5 málverk eftir
ungan myndlistarmann, Hlyn Helgason.
Hlynur er fæddur 1961. hann stundaði
nám við University of Kansas, School of
Architecture 1981-82 og Myndlista- og
handíðaskóla (slands 1982-86.
Á listkynningunni eru 5 málverk, sem
öll eru unnin í akrýlmálningu og viðarkol
á spónaplötu. Myndirnar eru allar unnar
á árinu 1986.
Hlynur er ráðsmaður við Bröttuhlíðar-
skóla og kennir málun á kvöldnámskeið-
um Myndlistarskólans á Akureyri.
Kynningin er í afgreiðslusal Alþýðu-
bankans á Akureyri og hófst 3. nóv.. en
henni lýkur 9. janúar 1987.
___A
Hiynur Helgason
Styrkir úr Minningarsjóði
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjáns-
sonar
Samkvæmt erfðaskrá hjónanna Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar,
kaupmanns, var stofnaður sjóður til
styrktar efnilegum nemendum í verk-
fræði- og raunvísindanámi.
Stofnfé sjóðsins var ákveðinn hluti af
eignum þeim er þau létu eftir sig, en
heimilt er skv. skipulagsskrá að veita
styrki af þeim vöxtum sem sjóðurinn ber.
Nú hefur verið úthlutað styrkjum úr
sjóðnum í þriðja sinn. Úthlutað var 10
styrkjum hverjum að upphæð kr.
80.000.00.
Eftirfarandi hlutu styrkina:
Eiríkur Álmar Grétarsson, flugvéla-
verkfræði, Hilmar Skarphéðinsson, tölv-
Kristjana er fædd í Hafnarfirði árið
1939 og uppalin þar í bæ. 1975 fiuttist hún
til Stokkhólms og hjó þar í i 1 ár. Sem fyrr
segir stundaði Kristjana nám í Myndlist-
arskólanum f Reykjavík 1960-63 og 1970-
75, aðallega í teikningu og málun. 1975
fékk hún inngöngu í Listaháskólann í
Stokkhólmi (Konstakadcmien) og út-
skrifaðist þaðan vorið 1979. Lagði hún
fyrst og fremst stund á málun, en tók auk
þess námskeið í myndmótun, múrtækni
(fresco, secco o.fl. ) og glermyndagerð.
Vcturinn 1979-80 tók hún viðbótarár við
skólann og lagði þá einungis stund á
grafik.
Sýning Kristjönu F. Arndal í Hafnar-
borg í Hafnarfirði eropin kl. 14.00-21.00
alla dagana.
unarfræði, Jóhanna Vigdís Gísladóttir,
rafmagnsverkfræði, Jón Gunnar Jónsson,
vélaverkfræði, Kristján Björn Garðars-
son, iðnaðarverkfræði, Reynir B. Eiríks-
son, iðnaðarverkfræði, Stefán Guðlaugs-
son, byggingaverkfræði, Einar Stein-
grímsson, stærðfræði, Eiríkur Stein-
grímsson, líffræði, Unnur Styrkársdóttir,
líffræði.
Fyrirhugað er að veita nokkra styrki úr
minningarsjóðnum á næsta ári og verður
auglýst eftir umsóknum í júnímánuði n.k.
Jólamerki „Framtíðarinnar“
á Akureyri
Jólamerki kvenfélagsins „Framtíðin",
á Akureyri, er komið út.
Merkið er gert af niyndlistarkonunni,
Iðunni Ágústsdóttur og er prentað í
prentverki Odds Björnssonar, h/f, Akur-
eyri.
Sölustaðir eru: Póststofan Akureyri,
Frímerkjahúsið og Frímerkjamiðstöðin,
í Reykjavík. Félagskonur sjá um sölu á
Akureyri.
Merkið kostar 7 krónur og allur ágóði
af sölunni rennur í elliheimilissjóð félags-
ins.
Rafmagn, vatn, hitaveita
Ef bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita má
hringja í þessi símanúmer:
Rafmagn: í Reykjavík, Kópavogi og Settjarn-
arnesi er sími 686230. Akureyri 24414, Keflavík
2039, Hafnarfjörður 51336, Vestmannaeyjar,
1321.
Hitaveita: Reykjavík sími 82400, Seltjarnarnes
, sími 621180, Kópavogur41580, en eftir kl. 18.00
og um helgar í síma 41575, Akureyri 23206,'
i Keflavík 1515, en eftir lokun 1552. Vestmann-
^aeyjarsími 1088 og 1533; Hafnarfjörður 53445.
Sími: Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnárnesi, Ák-
ureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í
síma05 I
Bilanavakt hjá borgarstofnunum (vatn, hita-
veita o.fl.) er í síma 27311 alla virka daga frá kl.
17.00 til kl. 08.00 og á helgum dögum er svaraðj
! allan sólarhringinn. Tekið er þar við tilkynningun/
á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum/
þar sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð
borgarstofnáná.
12. nóvember 1986 kl. 09.15
Kaup Sala
Bandaríkjadollar......40,600 40.720
Sterlingspund.........58,1920 58,3640
Kanadadollar..........29,315 29,402
Dönsk króna........... 5,3037 5,3194
Norsk króna........... 5,4318 5,4479
Saensk króna.......... 5,8442 5,8615
Finnskt mark.......... 8,2303 8,2546
Franskur franki....... 6,1204 6,1385
Belgískur franki BEC .. 0,9639 0,9667
Svissneskur franki....24,1566 24,2280
Hollensk gyllini......17,7177 17,7700
Vestur-þýskt mark.....20.0232 20.0824
ítölsk líra........... 0,02894 0,02903
Austurrískur sch ..... 2,8461 2,8545
Portúg. escudo........ 0,2729 0,2737
Spánskur peseti....... 0,2986 0,2994
Japanskt yen.......... 0,25139 0,25214
Irsktpund................54,627 54,789
SDR (Sérstök dráttarr. ..48,7331 48,8770
Evrópumynt............41,6196 41,7424
Belgískur fr. FIN BEL „0,9522 0,9550