Tíminn - 23.11.1986, Side 3
Sunnudagur 23. nóvember 1986
Tíminn 3
segja nemendur
í MR
„Þið segið Ólafur, Magnús, Elías,
- þið eruð bara stráklingar og
apakettir. Þetta eru engin rök! Og í
næstu svipan heimtið þið að við
kennarar höldum uppteknum hætti
og leggjum fyrir ykkur próf. En í
mínu ungdæmi vildum við ckki að
apakettir dæmdu okkur!“
Nokkurn veginn svo fórust Ólafi
Oddssyni, íslenskukennara í
Menntaskólanum í Reykjavík, orð í
ræðukeppni kennara gegn nemend-
um á vegum málfundafélagsins
Framtíðarinnar. Keppnin fór fram
fyrir húsfylli, - það voru rúntlega
200 áhorfendur mættir til leiks í
Casa Nova - á fimmtudagskvöldið
var. Lögðu kennarar til að hætt yrði
að leggja próf fyrir nemendur, en
aldrei þessu vant töldu nemendur
þau ómissandi og mótmæltu allir.
í liði kennara voru auk fyrrnefnds
Ólafs Oddssonar, sem var frummæl-
andi, Magnús Fjalldal, enskukenn-
ari, Elías Ólafsson, raungreinakenn-
ari og liðinu stýrði röggsamlega til
sigurs Guðný Jóhannsdóttir, sögu-
kennari.
Svo fóru nefnilega leikar að lið
nemenda, sem skipað var Birni P.
Sigurðssyni, Páli Eyjólfssyni og
Herði Þórhallssyni undir stjórn Jóns
G. Jónssonar, tapaði málsvörn sinni
með 116 stigum.
Dómarar voru samt sem áður úr
röðum nemenda, - valinkunnir
menn, sem varast hlutdrægni, þeir
Birgir Ármannsson, illugi Gunnars-
son og Auðunn Atlason. Auk þess
að skipa dómnefnd þetta umrædda
kvöld, skipa þeir einnig MORFÍS lið
MR. og er það nokkur byrði, þar
sem til mikils er að vinna þennan
vetur í mælskukeppni framhalds-
skólanna.
í þetta sinn var þó MORFÍS
reglunum ekki fylgt út í æsar, heldur
var gripið til heimatilbúinna reglna.
Til dæmis tóku dómarar ekki illa
upp þótt kennarar töluðu langt fram
yfir leyfilegan tíma, sem var hámark
4 mínútur. Venjulega eru gefin
refsistig fyrir hverja sekúndu sem
menn tala of lengi eða of stutt. En
kennarar komust að þessu sinni upp
með að tala í jafnvel átta mínútur,
án þess að það kostaði þá nokkra
refsingu.
Enda keppnin fyrst og fremst til
gamans og var látið fjúka ýmislegt
sem ekki þætti við hæfi í raunveru-
legum rökræðum.
Kristján Hrafnsson, forseti mál-
fundafélagsins, stjórnaði umræðum.
Hann tjáði blaðamanni að þetta væri
venjulega best sótti atburður félags-
lífsins í þessum húsakynnum. Krist-
ján var ánægður með mætinguna, en
bætti því við að aðstaða væri afleit.
„Það er ekki einu sinni hægt að
halda hér löglegan skólafund. Það
komast ekki nógu margir fyrir!“
Og svo virðist að veggir skólans
verði til þess að lagabreytingar verði
að eiga sér stað hjá skólafélagi og
Framtíð.
En málfundalíf er gróskumikið
sem endranær í húsinu á hæðinni og
er það vel að kennarar taki þátt með
nemendum í þeirri íþrótt, sem allt of
lengi hefur verið hundsuð af mennta-
kerfinu og skólum víðast hvar.
Það væri ekki út í hött að ræða
næst um að ræðumennska skyldi
tekin upp sem skyldufag í skólum.
Jafnvel þeim skólum sem lítið hafa
breytt til í kennsluháttum í hundrað
ár. þj
VIÐ FLYTJUM...
SKRIFSTOFU OKKAR AÐ
UNDARGÖTU9A
Mánudaginn 24. nóvember opnum viö sölu-
deild, farmskrárdeild og afgreiöslu í auknu
og endurbættu húsnæði að Lindargötu 9A.
Önnur skrifstofustarfsemi flytur í næsta
mánuði.
Við viljum biðja viðskiptavini okkar velvirð-
ingar á hugsanlegri röskun, á meðan flutn-
ingunum stendur.
í hinu nýja húsnæði ætlum við enn að bæta
þjónustuna.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A • SÍMI 28200
^HVERRSGATA