Tíminn - 23.11.1986, Síða 15
Sunnudagur 23. nóvember 1986
Tíminn 15
KROSSGÁTAN Nr biv
í „Dansi
blóðsugunnar",
gerir Polanski grín að
Dracula kvikmyndunum.
„Hnífurinn og vatnið“ frá 1962, fjallar um einkennileg ævintýri í bátsferð.
deyja að ég skildi hvað kvalafull-
ur dauðdagi var.
Sp: Datt þér nokkru sinni í
hug að rétt væri að stytta dauða-
stríð hans?
Sv: Já, en eitt er að hugsa það
og annað að framkvæma. Ann-
ars eru þeir á sjúkrahúsunum að
gera þetta á hverjum degi, þegar
þeir gefa fólki inn stóra morfín-
skammta. Pað eru aðeins gróf-
ustu dæmin sem komast í blöðin.
Sp: Gætir þú hugsað þér að
fara aðra leið að dauðanum, til
dæmis þá sem Hemingway valdi,
að nota byssu?
Sv: Ég held ekki. Ég vildi ekki
láta muna mig sem mann er tók
af sér lífið.
Sv: Hvernig viltu að þín sé
minnst?
Sv: Sem manns sem greiddi
alla sína reikninga að lokum.
Sp: Finnst þér illt að vita til
þess að aðrir greiði fyrir þig
reikningana? Hvað um vinátt-
una?
Sv: Ég tel að hún geri lífið
þess vert að lifa því. Sjáið hvern-
ig sambandið við konu sem mað-
ur elskar verður á endanum að
vínáttu, þegar öll ástríða er á
bak og burt. Þá er samt eitthvað
eftir, sem stundum getur verið
dýpra og betra en allt hitt.
Sp: Misstir þú einhverja svo-
nefnda góða vini, meðan stóð á
réttarhöldunum í Bandaríkjun-
um?
Sp: Já, svonefnda góða vini.
Pað var rétta orðið. Það var góð
prófraun. En hinir sönnu vinir
hjálpuðu mér tnikið, siðferði-
lega og peningalega. Veistu
hvað. Sannir vinir eru þeir sem
lána þér peninga. Það var tækni-
maður við kvikmyndaupptöku
sem benti mér á þetta og fyrst
ætlaði ég ekki að ansa þessu. En
svo fór ég að hugsa málið, - og
bíðum við, ég sá að hann hafði
rétt fyrir sér.
Sp: Hvort hafa karlar eða
konur gert þér meiri óleiki í
Iífinu?
Sv: Tvímælalaustkarlar. Kon-
ur hafa sært mig, en þær hafa
aldrei gert mér neitt verulega
illt.
Sp: Að lokum. Þýski kvik-
myndablaðamaðurinn Paul
Werner segir í æfisögu þeirri
sem hann skrifaði um þig að
fimm hlutir gangi alltaf aftur í
myndum þínum: Vatn, hnífur,
skápur, spegill og íbúð eða her-
bergi aðalsöguhetjunnar. Gætir
þú kannske sett saman smásögu
úr þessu á stundinni?
Sv: Ja hérna. Þetta væri athug-
unarefni fyrir sálfræðing. Bíddu
nú við. Hvað sagðirðu, - vatn,
spegill...
Blm.: ... .skápur, hnífur og
herbergi.
Sv: Hmmm... Ég sé fyrir mér
mann sem vaknar að morgni,
lítur í spegilinn og sér að hann
þarf að raka sig. Hann leitar að
rafmagnsrakvélinni, en finnur
hana ekki. Þá tekur hann hníf-
inn upp úr buxnavasanum, því
ég geri ráð fyrir að hann sé með
hníf, og rakar sig með honum.
Hann skrúfar frá krananum, en
það kemur ekkert vatn. Þá geng-
ur hann að skápnum og opnar
hann. Og auðvitað hellist vatns-
flóð út úr skápnum og skolar
honum út úr herberginu."
Polanski leikur Mozart i Amadeus, en leikurinn var settur upp
Varsjá 1981.
— — — r— — — — — — T — V — -1 V
~S T r" TT 77 G B H L T U P E
oJ ó X ■ l L J T S L pi n
[ú F |j H- N £ K fl ■ fí \L s
fl N í Nj ■ SJ K Ifl s s L
T T a r Bj jj A li r T u
U IK m EimiarasEi Ea:ra
V ■R u K K i N m □ a ö n
V L A U Ð Y 0 K I ts N K
É R JL J± P \U M 6 L R V F
M u M 3 o s Á L 1 R
fl S Li< A L. fl V V 1 1 N E
N T il Æ ■R A M T i N L
É \ÉL -*■ F 'fl V R 0 T Lfl I S
F1 [Æ t± l R ÍL A •R X 1