Tíminn - 14.12.1986, Blaðsíða 6
6 Tíminn
JÓLABLAÐ III
UMSÖGN
„Vinna vélbyssur að vélritun“
iónas E. Svafár: Sjöstjarnan í mcyjarmerkinu,
myndljóð, Vaka/Helgafell 1986.
Jónas Svafár má víst teljast lifandi
sönnun þess að í skáldskap er það
sitt hvað að fara fram með bægsla-
gangi eða skila góðum árangri. Þetta
er aðeins fimmta Ijóðabók hans, allt
frá því sú fyrsta kom út 1948, og allar
hafa þær verið smáar. Og segir það
þó ekki alla söguna, því að hann er
stöðugt að yrkja sjálfan sig upp; hér
er til dæmis töluvert af gömlum
ljóðum úr fyrri bókum hans, og þá
meira eða minna breytt.
En svo lengi sem ég man eftir hafa
Ijóð hans verið eins konar eilífðar-
gátur fyrir þá sem hafa viljað telja
sig bókmenntamenn. Hann býr yfir
einhverjum nánast óskilgreinanleg-
um hæfileika til að snúa út úr
hefðbundnum merkingum orða, en
samtímis að gera það á svo einstak-
lega skáldlegan og smekklegan hátt
Jónas Svafár, skáld.
að ekki er hægt annað en að hrífast
af.
Man kannski einhver eftir morg-
un-sárinu, sem í höndum hans varð
að morgun-sárinu, eða þá klettabelt-
um fjallkonunnar? Morgunsárinu
bregður raunar hér fyrir aftur, í einu
af Ijóðunum hér, sem í bókinni
Klettabelti fjallkonunnar (1968) hét
Geislavirk tungl, en er nafniaust
hérna og er seinni hlutinn þannig:
vinna vélbyssur að vélritun
á sögu mannsins
skríða drekar eða sýklar
inn í morgunsárið
úr skýjum hugmyndanna
steypast vetnissprengjur
upp úr gufuhvolfinu spennast
dauðateygjur eldsins
Með öðrum orðum þá er Jónas
Svafár hér enn í sama gamla og góða
essinu sínu. og á honum verður
enginn svikinn, þótt vissulega megi
jafnframt segja að hann geti ekki
talist vera í neinu sem heitið geti
stöðug endurnýjun. Sérkennilegar
teikningar hans, sem raunar má líta
á sem hluta ljóðanna, eru hér enn
sem fyrr óaðskiljanlegur hluti bókar-
innar, dregnar fáum og einföldum
strikum en stílhreinar.
í kynningu forlags á bókarkápu er
hann orðaður við bæði súrrealisma
og atómskáldskap. Líklega er hvor-
ugt rétt, því að fá skáld mun vera
erfiðara að hemja undir nokkurri
einni bókmenntastefnu en hann.
Jónas Svafár er og verður Jónas
Svafár, og vonandi heldur hann enn
áfram að auðga bókmenntir okkar
um ókomin ár. Það er langt í frá að
hann hafi enn nóg kveðið, og með
þessari nýju bók hans er óhætt að
mæla við alla þá sem áhuga hafa á
sérkennilegum og forvitnilegum
skáldskap.
- esig
BÆKUR
Allt önnur
Ella
— þroskasaga Elínar Þór-
arinsdóttur eftir Ingólf
Margeirsson
Út er komin þroskasaga Elínar
Þórarinsdóttur eftir Ingólf
Höfundur og Ella.
Margeirsson. Bókin nefnist Allt
önnur EUa og hin nýstofnaða
Bókaútgáfa Helgarpóstsins gefur
bókina út.
Elín Þórarinsdóttir, barnabarn
séra Árna Þórarinssonar, prófasts
á Stórahrauni, var saklaus
sveitarstúlka þegar hún kom til
höfuðstaðarins nokkrum árum
eftir stríð. Þá kynntist hún
Gunnari Salómonssyni, öðru nafni
Úrsusi, annáluðum kraftajötni og
alþjóðlegum aflraunamanni. Þrátt
fyrir 25 ára aldursmun, felldu þau
hugi saman og giftust. Leið Ellu lá
nú út í heim þar sem hún gerðist
fegurðardrottning og
slagarasöngkona og fylgdi Úrsusi
sínum gegnum súrt og sætt; í
kastljósum fjölleikahúsa og utan
þeirra.
Ella hefur frá þremur
hjónaböndum að segja. Hún hefur
verið gengilbeina, gangastúlka,
fiskverkunarkona, ráðskona,
bruggari og sprúttsali og
óneitanlega mátt súpa sjálf af þvi
seyðið. En alltaf rís hún úr
öskunni.
Allt önnur EUa er rituð af
Ingólfi Margeirssyni ritstjóra.
Hann sló rækilega í gegn með bók
sinni um Guðmundu Elíasdóttur
söngkonu, Lífsjátningu. Sú bók
var umsvifalaust prentuð í þremur
stærðar upplögum og tilnefnd
fyrst slíkra bóka til
Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs.
Allt önnur Ella er fjórða bók
Ingólfs. Bókin er 270 bls. að stærð
og prýdd rúmlega 70 ljósmyndum.
LEITIN
ENDAR HJA ESSO
Á bensínstöðvum ESSO fást ódýrar en vandaðar
vörur af ýmsu tagí, sem eru tílvaldar í jólapakkann.
Þar fæst líka jólapappír ásamt merkíspjöldum og
margs konar vamíngí tíl jólaundírbúníngs s.s. lítaðar
perur í útíseríuna, framlengingarsnúrur og öryggí,
að ógleymdum reykskynjurum og slökkvítækjum.
TVEIR KERTASTJAKAR
MEÐ KERTUM.
VÖNDUÐ SÍMTÆKI
MEÐ TÓNVALI
STEREÓ ÚTVARP
VHS MYNDBAND
3 KLUKKUSTUNDIR
Komdu víð á næstu bensínstöð ESSO og gerðu góð kaup
Athugaðu að það er opið bæði á kvöídin og um helgar.