Tíminn - 21.01.1987, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 21. janúar 1987
Tíminn 5
ÚTLÖND
Kína:
Dengvillopnardyr
Telur að enn verði að auka samskiptin við önnur ríki
- Minntist ekki á afsögn Hu Yaobang
Peking-Reuler
Deng Xiaoping, æðsti ráðamaður
Kína, sagði í sinni fyrstu opinberu
yfirlýsingu frá því að Hu Yaobang
flokksformaður var látinn víkja úr
embætti að Kínverjar ættu að auka
enn samskiptin við önnur ríki jarðar-
kringlunnar.
Hu sagði af sér embætti á föstu-
daginn síðasta og hefur hinn nýi
flokksformaður Zhao Ziyang, sem
einnig gegnir starfi forsætisráðherra
þar til annað hefur verið ákveðið,
sagt að afsögn Hu hafi komið til
vegna þess að hann hafi unnið að
pólitískum breytingum sem ekki var
hægt að samþykkja.
Fréttastofan Nýja Kína hafði eftir
Deng að hið sósíalíska þjóðskipulag
myndi ekki breytast þótt Kínverjar
opnuðu betur dyr sínar fyrir um-
heiminum.
Hinn aldni leiðtogi minntist ekki
á afsögn Hu.
írland:
KOSNINGAR
í ADSIGI
Ráöherrar Verkamannaflokksins sögöu
sig úr ríkisstjórnarsamstarfi
- Kosið til þings þann 17. febrúar
Dyflinni-Reuler
Fjórir ráðhcrrar Verkamanna-
flokksins á írlandi sögðu sig úr
ríkisstjórn landsins í gær til að
mótmæla skerðingu á ríkisútgjöld-
um. Afsögn ráðherranna þýddi að
stjórnin hafði afgerandi þing-
minnihluta og tilkynnti Garett Fitz-
gerald forsætisráðherra síðdegis I
gær að kosningar yrðu í landinu
þann 17. febrúar.
Það var varaforsætisráðherrann
Dick Spring sem leiddi hópinn og
tilkynnti hann um afsögn sína og
þriggja félaga sinna eftir að meiri-
hluti ríkisstjórnarinnar hafði sam-
þykkt að draga verulega úr útgjöld-
um til heilbrigðismála og félags-
mála í fjárlagal'rumvarpi sem
leggja á fyrir þingið.
„Ákvarðanir þær sent teknar
voru í dag eru ekki sanngjarnar.
Þær ná ckki að dreifa fjárhags-
vanda þjóðarinnar réttlátlega á
alla þjóðfélagshópa," sagði Spring
eftir að hann og menn hans höfðu
gengið út af ríkisstjórnarfundi.
Það var Garret Fitzgerald for-
sætisráðherra og meðlimir flokks
hans, Fine Gael, sem samþykktu
að leggja fram þetta fjárlagafrum-
varp en Ijóst var af andstöðu ráð-
herra Vcrkamannaflokksins að
það færi ekki í gegnum þingið.
Það verður tæplega hagstætt fyr-
ir Fine Gael flokkinn og lciðtoga
hans Garett Fitzgerald að fara í
kosningar í næsta ntánuði þvt sam-
kvæntt skoðanakönnunum hefur
stjórnarandstaðan og hclsti leið-
togi hennar Charlcs Haughey niik-
inn vinning á Fitzgerald.
Slæm efnahagsstaða og mikið
atvinnuleysi (um 20%) verða ör-
ugglega helstu málin í komandi
kosningabaráttu.
Einn virtasti efnahagssérfræðingur Sovétríkjanna:
Skriffinnar standa
I vegi fyrir
efnahagsframförum
Moskva-Reuter
Háttsettur sovéskur efnahagssér-
fræðingur sagði í gær að nýjungar
þær á efnahagssviðinu sem Gorbat-
sjov Sovétleiðtogi hefði gengist fyrir
ættu erfitt uppdráttar sökum mikillar
skriffinnsku og vegna þess að fyrir-
tæki gætu ekki boðið starfsmönnum
sínum upp á nógu hvetjandi bónusa.
Gavriil Popov skrifaði í blað sov-
éska kommúnistaflokksins, Prövdu
og sagði þar að efnahagssérfræðing-
ar, sem sjá ættu um að finna leiðir til
að auka framleiðslu, ættu erfitt með
að starfa þar sem „kerfiö" væri
svifaseint og óþjált.
Popov sagði þetta vandamál vera
sérlega áberandi á vísinda- og tækni-
sviðinu þar sem hugmyndarík skref
fram á við væru nauðsynleg til að
auka framleiðsluna.
Gorbatsjov hefur tilkynnt um
nokkrar breytingar á efnahagskerf-
inu síðan hann tók við valdamesta
embætti landsins í mars árið 1985.
Má nefna nýjar reglur um aukið
gæðaeftirlit og bónusgreiðslur svo
í gær reyndu vestrænir stjórnarer-
indrekar í Kína að ráða í hver tæki
við forsætisráðherraembættinu af
Zhao Ziyang en sterklega er búist
við að hann muni fyrr eða síðar láta
af því embætti og einbeita sér að
flokksformannsstöðunni. Sam-
kvæmt heimildum koma þrír af fimm
varaforsætisráðherrum landsins
helst til greina.
Líklegastur til að hljóta hnossið er
Li Peng, verkfræðingur menntaður í
Sovétríkjunum og fulltrúi harðlínu-
manna í flokknum. Aðrir líklegir
eru Tian Jiyun, hagfræðingur sem er
fulltrúi frjálslyndari afla innan
flokksins, og Qiao Shi sem gæti
orðið fyrir valinu sem nokkurs konar
málamiðlunarkostur. Qiao er nýjasti
varaforsætisráðherrann en talið er
líklegt að áður hafi hann stjórnað
leyniþjónustu landsins.
Deng Xiaoping æðsti ráðamaður í Kína: Vill opna dyrnar enn meir fyrir
umheiminum
Rannsóknin á morðinu á Olof Palme:
Kúrdarennteknir
til yfirheyrslu
Stokkhólmur-Rcuter
Sænska lögreglan yfirheyrði í gær-
dag þrjá Kúrda í sambandi við
morðið á Olof Palme forsætisráð-
herra í febrúar á síðasta ári. Kúrd-
arnir þrír voru í hópi þeirra sem
Iögreglan hafði afskipti af í gærmorg-
un en þá handtóku um 200 lögreglu-
þjónar tuttugu einstaklinga víðsveg-
ar í Svíþjóð, flesta Kúrda eða menn
tengda þeim.
Síðdegis í gær tilkynnti svo ákær-
andinn í málinu að Kúrdunum þrem-
ur yrði sleppt og ekkert nýtt eða
dramatískt hefði komið fram er
varpað gæti Ijósi á morðgátuna.
Hans Holmer lögregluforingi sem
stjórnar rannsókninni á morðinu á
Palme sagði á blaðamannafundi að
mennirnir hefðu neitað að vera við-
riðnir morðið en hefðu verið spurðir
um vopn og hvort þeir hefðu fengið
vopn í hendurnar frá fjórða aðila.
Byssan sem notuð var til að skjóta
forsætisráðherrann fyrrverandi á
stræti Stokkhólmsborgar hefur ekki
enn fundist.
Samtök Kúrda sem berjast fyrir
Olof Palme fyrrum forsætisráðherra
sjálfstæðu ríki í Tyrklandi hafa mjög
tengst rannsókninni á Palmemálinu,
reyndar allt frá byrjun þess. Holmer
lögregluforingi sagði í gær að sam-
tökin væru enn rauði þráðurinn í
rannsókninni.
Talsmenn samtakanna hafa hins-
vegar neitað allri aðild að morðinu
Svíþjóðar: Morðgátan ekki leyst
og telja að um nútíma galdraofsókn-
ir sé að ræða.
Olof Palme var skotinn til bana
þann 28. febrúar á síðasta ári ,er
hann var á heimleið frá kvikmynda-
sýningu ásamt Lisbeth konu sinni.
Hún meiddist lítilsháttar í árásinni.
og reglugerð um aukna ábyrgð fyrir-
tækja á eigin rekstri.
Popov sagði kerfiskarla sem ekki
vissu hvernig framleiðslunni væri
háttað heimta langar og ítarlegar
skýrslur frá fyrirtækjunum sem sjálf
væru að kafna í pappírsflóði.
Popov er prófessor í hagfræði við
Moskvuháskólann og meðlimur sov-
ésku vísindaakademíunnar.
UTLÖND
Alþjóðleg peningaviðskipti:
Heimsókn
dróúr
dalalægð
Tokyo-Reuter
Bandaríkjadalur hækkaði nokkuð
í verði gagnvart öðrum helstu gjald-
miðlum heims á gjaldeyrismörkuð-
um í gær og var yfirlýsingu um að
japanski fjármálaráðherrann myndi
halda til Washington um að þakka.
Kiichi Miyazawa fjármálaráð-
herra Japans sagði fréttamönnum að
hann myndi eiga fund í dag með
James ' Baker fjármálaráðherra
Bandaríkjanna og myndu viðræður
þeirra snúast um leiðir til að koma á
jafnvægi í gengi gjaldmiðla.
Miyazawá sagðist hafa stungið
upp á viðræðunum vegna verðfalls
Bandaríkjadals á gjaldeyrismörkuð-
um að undanförnu.
Fréttir um heimsóknina urðu. til
þess að dalurinn hækkaði nokkuð,
bæði á mörkuðum í Tokyo og í
Vestur-Evrópu. Hann var t.d.
keyptur á 152,25 japönsk yen í
gærmorgun en hafði áður farið n'ður
í 149,98 yen og var það lægsta gengi
dalsins miðað við yenið frá lokurn
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Gjaldeyriskaupendur voru | j
margir á því að viðræður Miyazawa
og Bakers myndu lítinn árangur
Gengi Bandaríkjadals hefur
lækkað mikið að undanförnu
og gleðjast fáir nema banda-
rískir ráðainenn sem vilja
draga úr hinum gífurlega við-
skiptahalla lands síns.
bera þar sem margir bandarískir
ráðamenn hafa ekkert á móti því að
gengi dalsins 'ækki enn frekar. Lágt
gengi dalsins myndi gera bandarísk-
ar vörur samkeppnishæfari á alþjóð-
legum mörkuðum og þar með yrði
dregið úr hinum gífurlega viðskipta-
halla sem plagar ráðamenn þar
; vestra.