Tíminn - 21.01.1987, Síða 10
10 Tíminn;
Miövikudagur 21. janúar 1987
NEYTENDASÍÐAN
- eftir Svanfriði Hagvaag
Minni sykur
Hvers vegna ekki að reyna að minnka við sig ýmislegt sem allir vita
að inniheldur mikinn sykur eins og til dæmis gosdrykki, sælgæti og
ýmsa tilbúna eftirrétti. Hér á eftir koma nokkur einföld ráð sem
kannski geta hjálpa eitthvað.
- Það er hægt að búa til hlaup heima í staðinn fyrir að kaupa tilbúið
hlaupefni sem inniheldur mikinn sykur. Látið 1 msk. af matarlímsdufti
út í 2 bolla af ósætum grænmetis eða ávaxtasafa (til dæmis Lindavia).
Það er mjög gott að blanda saman epla og gulrótasafa. Þetta er hægt
að nota sem ábæti og láta þá ávexti út í híaupið eða þá að setja rifið
grænmeti út í og nota sem salat.
Það er líka hægt að búa til sinn eiginn ávaxtajógúrt. Ávaxtajógúrt
inniheldur oft ónauðsynlegan sykur. Ef saxaðir eru til dæmis þroskaðir
ávextir (bananar eða perur) og þeir látnir út í léttjógúrt þá þarf
sjaldnast meiri sykur. Það er líka mjög gott að krydda jógúrt með
kanet.
Seinast kemur svo uppskrift að góðu brauði sem er með hunangi í
staðinn fyrir sykur.
Hunangsj ógúrtbrauð
1/4 bolli volgt vatn
1 tsk. hunang
1 msk. ger
2 bollar heilhveiti
2 bollar hveiti
1 tsk. salt
1 bolli jógúrt
2 msk. matarolía
3 msk. hunang.
Blandið volga vatninu saman við 1 tsk. af hunangi og stráið gerinu
þar yfir. Látið það leysast upp í vatninu í um það bil 10 mínútur.
Blandið hveititegundunum og salti saman í stóra skál. Blandið
saman jógúrt, matarolíu og hunangi. Þegar gerið er tilbúið er hrært
vel í því og því blandað saman við jógúrtblönduna. Blandið síðan
öllum vökvanum saman við þurrefnin. Hnoðið deigið í 10 mínútur
þangað til það er mjúkt og teygjanlegt.
Smyrjið stóra skál og snúið deiginu innan í henni svo feitin nuddist
um það. Þekið síðan skálina með filmu og látið standa á volgum stað
í 1 Ví klukkustund eða þangað til deigið-hefur lyft sér um helming.
Þegar deigið hefur lyft sér er það barið niður og það mótað í brauð
og sett í smurt brauðform. Þekið aftur með plastfilmu og látið lytftast
þangað til það hefur lyft sér um helming. Bakið í40mínúturvið200°C.
Þetta brauð er mjög gott ristað.
Að minnka
við sig sykur
Sykur er næringarsnautt en orku-
rikt efni. Hann er svo mikið unninn
að þær trefjar og næringarefni sem
hann upphaflega hafði eru ekki til
lengur.
Það er ekki það að dálítill sykur
sé hættulegur, en hann er oft nokkuð
mikill í mat, jafnvel þó hann sé
ónauðsynlegur. Þannig að við erum
að verða kynslóð sem er að verða
algjörar sykurætur og jafnvel háð
honum. Fólk sem passar upp á þann
sykur sem það notar og forðast hann
eftir megni til dæmis í te eða kaffi
veit ekki alltaf um allan þann sykur
sem falinn er í mat. Til dæmis í
tómatsósu, morgunmatarkorni og
brauði.
Morgunmatarkornið er eitt af
stóru vandamálunum og þá er ekki
aðeins átt við sykurhúðuðu tegund-
irnar. Næstum hver einasta tegund
af morgunmatarkorni sem á að
borða kalt er með miklu af sykri.
Eina leiðin er að blanda það heima,
þá er að minnsta kosti hægt að vita
hvað mikill sykur er í því.
Granóla
6 bollar haframjöl
1 bolli hveitiklíð
1 bolli sólblómafræ
1 bolli kókosmjöl
1 bolli saxaðar möndlur
1 bolli matarolía
Vi bolli púðursykur
Ví bolli hunang
1 tsk. vanilla
1 tsk. vanilla
1 bolli hveiti
Va tsk. matarsódi
ögn af salti
2 V4 bolli granóla
Hrærið vel saman smjörlíki og
sykur. Blandið síðan saman við eggi
og vanillu, hrærið vel. Þá er hveitinu
sem matarsódanum hefur verið
blandað saman við hrært út í ásamt
salti. Blandið granólanu út í. Setjið
með skeið á smurða bökunarplötu
og fletjið kökurnar aðeins út með
gaffli. Bakið við 175° C í 8-10
mínútur eða þangað til þær eru gegn
bakaðar og aðeins brúnaðar.
'h tsk. salt
1 bolli rúsínur
Blandið 5 fyrstu efnunum saman í
stóra skál. Hitið saman olíu, púður-
sykur og hunang. Bætið úr í vanillu
og salti. Hellið þessu síðan yfir
blönduna í skálinni og hrærið vel
saman. Látið síðan blönduna í ofn-
skúffu og breiðið vel úr henni. Bakið
við 150° C í um það bil 30 mínútur.
Hrærið öðru hverju í svo að allt
brúnist jafnt. Bætið rúsínunum út í
og kælið blönduna vel, hrærið öðru
hverju í henni á meðan svo hún
kólni jafnt. Geymið í þéttu íláti.
Stökkar granólakökur
125 gr. smjörlíki
Vi bolli púðursykur
1 egg
Forðist f lagnaðar var
ir í kuldanum í vetur
Þú þarft ekki að ganga í gegnum
annan vetur með flagnaðar varir ef
þú aðeins gerir nokkrar varúðarráð-
stafanir:
Sleiktu ekki á þér varirnar. Varirnar
Húsráð Svanfríðar
Prjónaráð
Það getur verið góð hugmynd
fyrir þá sem prjóna ntikið að verða
sér úti um lítinn kúluramma. Færið
síðan 1 kúlu við hvern prjón þegar
verið er að prjóna munstur þar sem
þarf að hafa tölu á umferðunum.
Þá þarf ekki að merkja við í
uppskriftinni.
Þegar rakin hefur verið upp
peysa eða annað prjónað stykki er
hægt að vefja garninu um strau-
brettið framanvert og pressa það
síðan með blautu stykki. Garnið er
síðan látið þorna áður en það er
undið upp í hnykil.
Barnaafmælið
Börn hafa mjög gaman af
óvenjulegum kökum í afmælum.
Hvernig væri að búa til vatnsdeigs-
karl eða kerlingu fyrir næsta barna-
afmæli. Teiknið útlínurnar á
smurða bökunarplötuna og fyllið
síðan upp með deigi. Þegar búið er
að baka karlinn eða kerlinguna er
kakan klofin í tvennt og fyllt með
vanillukremi og rjóma. Það cr
mjög vinsælt að blanda stöppuðum
banana út í vanillukremið. Leggið
efri helminginn ofan á og skreytið
með brúnum og hvítum glassúr.
Notið sælgætismola fyrir augu, nef
og munn. Það má líka nota nokkra
mola sem hnappa á maganum.
Tær súpa með bollum
Það er mjög gott að setja bollur
út í tæra súpu, en hún vill stundum
verða dálítið gruggug þegar boll-
urnar eru soðnar í súpunni. Til að
forðast þetta er gott að sjóða upp
á bollunum í dálitlu vatni í öðrum
potti og færa þær síðan yfir í
pottinn með tæru súpunni. Soðið
sem kemur af bollunum er sfðan
hægt að geyma og nota í aðrar
súpur sem ekki þurfa að vera tærar
eða þá sósur.
Kjötbollur
Ef þú villt bragðbæta keypt kjöt-
fars er gott að bæta út t það
steiktum beikonteningum. Breyt-
ingin á farsinu er ótrúleg.
Prjónaráð
Þegar verið er að prjóna peysur
úr misþykku bómullargarni verður
stroffið ekki alltaf nógu fallegt.
Reynið að fá slétt bómullargarn í
sama lit og prjónið stroffið úr því,
það verður jafnara og fallegra.
Púðar úr bómullarbolum
Það er tilvalið að búa til litla
púða úr áprentuðum barnabolum
þegar þeir verða of litlir. Klippið
út ferköntuð stykki, saumið saman
og fyllið með kembu eða annarri
fyllingu sem má þvo.
Inniskór úr afgöngum
Góð aðferð til að nota garnaf-
ganga er að prjóna úr þeim inniskó.
Fitjið upp 25L. á prjóna nr. 4 (með
tvöföldu garni ef það er fínt).
Prjónið 6 umferðir með garða-
prjóni. Á næsta prjóni er aukið út
um 10L. Prjónið nú brugning 1L.
slétt og 1L. brugðin í um það bil 20
cm. Fækkið nú jafnt á prjóninum
um 10L. og prjónið aftur 6 umferð-
ir garðaprjón. Fellið af og saumið
saman á hæl og tá og nú eru komnir
þægilegustu inniskór. Ef verið er
að prjóna fyrir fyrir karlmenn eru
fitjaðar upp fleiri lykkjur en færri
ef prjónað er fyrir börn.
draga ekki í sig munnvatnið. Það
gufar upp og þurrkar þær í staðinn.
Notaðu snyrtivörur sem eru sérstak-
lega hannaðar fyrir varirnar. Skinnið
á vörunum er allt öðruvísi en annað
skinn á líkamanum - og það á þess
vegna ekki að nota samskonar
snyrtivörur á þær. Venjulegt raka-
krem inniheldur venjulega dálítið
alkóhól, sem er alls ekki gott fyrir
varirnar. Vörur sem eru hannaðar
fyrir varir, innihalda vanalega mikið
magn af vaxi eða olíu, sem heldur í
raka og mýkir húðina.
Varaðu þig á efnum sem erta varirn-
ar. Saltur eða mikið kryddaður mat-
ur getur ert varirnar. Einnig tjaran
úr sígarettum.
Prófaðu rakatæki. Þurrt loft dregur
raka úr húðinni, líka vörunum. Ef
herbergið þar sem þú dvelur
lengst hefur mjög þurrt loft getur
verið gott að fá sér rakatæki - það
gæti minnkað vandann.