Tíminn - 30.01.1987, Blaðsíða 1
ISTUTTU MALI
■■■
STJORN SAMBANDS ís-
lenskra samvinnufélaga ákvaö á fundi
sínum í gær aö veita forstjóra heimild
til að auka hlut Sambandsins í nokkr-
um fyrirtækjum sem átt hafa í rekstrar-
erfiðleikum og var gef in heimild til þess
aö Sambandið gengi í ábyrgö fyrir
skuldum Frystihúss Patreksfjaröar,
Freyju á Suðureyri og Búlandstinds á
Djúpavogi.
Eitt þeirra fyrirtækja sem stjórnin
ákvao hlutafjáraukningu í var Hrað-
frystihús Keflavíkur. Þannig á aö
breyta 40 milljón króna viðskiptaskuld
Hraöfrystihúss Keflavíkur við Sam-
bandið í hlutafé. Stjórn Sambandsins
ákvað einnig að taka þátt í enn frekari
hlutafjáraukningu gegn því að heima-
menn legðu líka fram nýtt hlutafé.
Af öðrum fyrirtækjum sem komu til
umræðu á stjórnarfundi Sambandsins
í gær vegna rekstrarerfiðleika voru
Kirkjusandur í Reykjavík, Meitillinn í
Þorlákshöfn, og Hraðfrystihús Grund-
arfjarðar.
JACQUES Chirac forsætisráð-
herra Frakklands mun hitta Rónald
Reagan Bandaríkjaforseta að máli í
Hvíta húsinu á morgun en Chirac
verður þá á opinberu ferðalagi um
Bandaríkin. Að sögn Larry Speakes
talsmanns forsetans bandaríska verða
afvopnunarmál, samskipti austurs og
vesturs og samskipti ríkjanna tveggja
efst á viðræðulistanum. Mennirnirtveir
hittust síðast að máli í Tokyo í maí á
síðasta ári.
POST- OG símamálastofnunin.
hefur opnað Póst- og símaminjasafn-
ið. Safnið er til húsa í gömlu símstöð-
inni að Austurqötu 11 í Hafnarfirði.
Safnið er opið tvo daga í viku, sunnu-
daga og þriðjudaga frá klukkan 15 til
18. Hægt er að fá að skoða safnið utan
opnunartíma en þá verður að hafa
samband við safnvörð í síma 54321.
Margt skemmtilegra muna er á safninu
sem einkenna sögu bæði póst og
símamála á landinu. Ekki ófrægari
maður en Richard Nixon fyrrum
Bandaríkjaforseti kom með einn grip
safnsins til landsins. Það er sími sá
sem Nixon kom með þegar fundur
hans og Pompidou var hér á landi
1973. Síminn er sérstaklega merktur
Hvíta húsinu. Fleira er merkilegra
muna og má nefna gamla lúðra
landpóstanna, gömul símtæki og
tæki sem tengdust bernskuárum
skeytasendinga hér á landi.
GARÐYRKJUBÆNDUR
sem eru innan Sambands garðyrkju-
bænda og rækta grænmeti hvort held-
ur er úti eða inni, komu saman til
fundar í gær á Hótel Örk og ræddu
markaðs- oa sölumál sín. Innan Sam-
bands garðyrkjubænda eru stærst
Sölufélag garðyrkjumanna, Ágæti hf,
Bananar hf, Mata hf.
Það voru ákveðnar hugmyndir sem
ræddar voru, m.a. að garðyrkjubænd-
ur stofnuðu fyrirtæki sem yrði með
einn stóran markað sem myndi síðan
sjá um sölu og dreifingu á grænmeti i
landinu. Markaðurinn yrði eins konar
uppboðsmarkaður, þar sem verð-
myndun, flokkun og mat eiga sér stað.
ELDUR kom upp vél Audi bifreiðar
er hún var stödd á umferöarljósum
Háaleitisbrautar og Kringlumýrar-
brautar fyrripartinn í gær. Eldurinn
mun hafa kviknað út frá rafmagni.
Slökkvilið kom á staðinn og slökkti
eldinn. Ekki urðu miklar skemmdir á
bílnum.
KRUMMI
1 „Ætlar hann að
bjóða Matthíasi út? “
nBBBgramomnawBBaBBHgH
Matthías Bjarnason, viöskiptaráöherra um bankasameiningu:
Væri löngu búinn að
þessu réði ég einn
-niðurstaða vonandi í næstu viku. Tímabundin endurreisn Útvegsbanka kemurtil
greina, en ekki yfirtaka Búnaöarbankans. Engum verður sagt upp
„Ef ég mætti ráða þessu einn, þá
væri ég löngu búinn að þessu. Það
er þungt í vöfum lýðræðið og
þingræðið og ofsalega mikið af
gáfufólki meðal þessarar þjóðar,
sem betur fer. Menn vita allt betur
en aðrir,“ sagði Matthías Bjarna-
son, viðskiptaráðherra þegar Tím-
inn innti hann eftir framgangi
bankavjðræðnanna þessa dagana.
Kom fram hjá Matthíasi að engin
ákvörðun hafi verið tekin á fundi
Edward Derwinski, aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna
gerði stuttan stans hér á landi, á
leið sinni vestur um haf og ræddi þá
við Mathías Á. ,Mathiesen um
samkipti ríkjanna, auk þess sem
hann skýrði frá stöðu útboða vegna
skipaflutninga fyrir bandaríska
herinn á Miðneshciði.
Kom fram á blaðamannafundi
með þeim Derwinski og Matthíasi,
að útboð í sjóflutningana verði
auglýst í dag eða í síðasta lagi á
mánudag.
f samkomulagi því sem gert var
um þessa sjóflutninga og kallast
„samningur til að auðvelda fram-
ráðherra þeirra sem um þessi mál
fjalla og haldinn var í gær, en hann
vonast hins vegar til að ákvörðun
liggi fyrir í næstu viku.
Aðspurður um hversu langan
tíma hann teldi það tæki að koma
raunverulegri sameiningu á, sagði
Matthías að um það gæti enginn
sagt. „Það verður fyrst að afla
lagaheimildar og síðan mætti ekki
vera inn í lögum einhver ákveðin
dagsetning, því síðan þyrftu fag-
kvæmd varnarsamstarfs ríkjanna",
er gert ráð fyrir að hvaða skipafé-
lag sem er, sem sigli undir íslensk-
um eða bandarískum fána geti tek-
ið þátt í útboðunum og fái lægst-
bjóðandi allt að 65% farmflutning-
anna í sinn hlut. Þá fái sá aðili frá
hinu landinu, sem eigi tilboð næst
lægsta tilboðinu, afgang flutning-
anna í sinn hlut.
Sagði Derwinski að þessi samn-
ingur hefði náðst vegna þess mats
sem bandarísk stjórnvöld legðu á
einstök samskipti ríkjanna tveggja
og hliðstæður samningur yrði ekki
gerður við önnur ríki.
menn að taka við. Það yrði auðvit-
að stefnt að því að hraða þessu svo
sameiningin kæmist þá til fram-
kvæmda á þessu ári.“
Aðspurður um ummæli Stefáns
Hilmarssonar, bankastjóra Búnað-
arbankans að yfirtaka þess banka
á Útvegsbanka væri mun hraðvirk-
ari og ódýrari leið en sameining,
sagði Matthías að sú leið væri ekki
inn í myndinni hvað hann snerti og
hann væri ekki til viðtals um hana.
Derwinski var spurður um hugs-
anlcga kjötsölu íslenskra aðila til .
bandaríska hersins, og sagði
Derwinski; að bandaríski herinn
leitaði alltaf að „hagstæðustu" leið-
inni til að sjá herstöðvum sínum
fyrir vistum. Með „hagstæðustu"
leiðinni, ætti hann við að taka yrði
tillit til framboðs og gæða vörunn-
ar, sem og „vináttutengsla" við-
komandi þjóða, auk þess sem
bandarískir bændur ættu við of-
framleiðsluvandamál að stríða.
Derwinski gaf síðan sterklega í
skyn að samningar um kjötsölu
muni nást. -phh
„Ég vil ekki gera Útvegsbankann
að neinum undirbanka hinna bank-
anna,“ sagði ráðherrann.
Matthías svaraði þeirri spurn-
ingu hvort tímabundin endurreisn
Útvegsbankans kæmi til greina, á
þann veg „að auðvitað getur allt
slíkt komið til greina. En það hafa
svo margar leiðir verið ræddar í
þessum málum frá upphafi og eng-
in ákvörðun sem liggur fyrir enn.
En ég vona að ákvörðun liggi fyrir
í næstu viku.“
Þá kom fram hjá ráðherranum
að formönnum starfsmannafélaga
Útvegs- og Búnaðarbanka hefði
verið lofað, að ekki kæmi til upp-
sagna í kjölfar væntanlegrar sam-
einingar. Hreyfing á starfsfólki
væri mjög mikil og þar sem
ráðningum yrði hætt í kjölfar sam-
einingar, „þarf ekkert að vera
sortera fólk út úr eða reka fólk.“
-phh
Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra:
Gagnrýnir
þingmenn
Reykjanes-
kjördæmis
- fyrir andvaraleysi
gagnvart þróun sjávar-
útvegs í kjördæminu
„Ef svona hefði hallað undan
fæti í sjávarútvegi fyrir vestan
er ég hræddur um að okkur
þingmönnum kjördæmisins
hefði verið best að halda okkur
í burtu.“ Þetta fullyrðir Stein-
grímur Hermannsson forsætis-
ráðherra og núverandi þing-
maður Vesttjarðakjördæmis í
ítarlegu viðtali sem birtist í
Tímanum í dag. Forsætisráð-
herra gagnrýnir þingmenn
Reykjaneskjördæmis fyrir að-
gerðarleysi og fyrir að hafa
ekki sýnt nægjanlega festu þeg-
ar vandamál Suðurnesja eru
annars vegar. „Það hafa gerst
hér ýmsir atburðir sem komast
hefði mátt hjá ef þessir menn
hefðu rétt fram hjálparhönd
fyrr. Nú rjúka þessir menn upp
þegar enn einn togarinn er að
hverfa frá Suðurnesjum. Þeir
hefðu þurft að grípa til aðgerða
miklu fyrr,“ segir forsætisráð-
herra í viðtalinu.
Steingrímur kemur inn á
fjölmörg önnur atriði í þessu
viðtali, en hann hefur sem
kunnugt er ákveðið að bjóða
sig fram á Reykjancsi í næstu
alþingiskosningum og hefur sitt
hvað til málanna að leggja um
málcfni kjördæmisins.
Sjá viðtal bls. 10-13
Þeir kvöddust með handabandi Derwinski, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna og Matthías Mathiesen,
utanríkisráðherra íslands, eftir stuttar viðræður í gær. Þar voru á dagskrá almenn samskipti landanna, sem
Dcrwinski lýsti sem „einstökum“, útboð vegna sjóflutninga til hersins og kjötsala til hersins. Tímamynd Sverrir
Sjóflutningar til bandaríska hersins:
ÚTBOÐ AUGLÝST
MJÖG FUÓTLEGA