Tíminn - 30.01.1987, Page 5
Föstudagur 30. janúar 1987
Tíminn 5
Kjarnorkuvopnalaus Noröurlönd:
Kratar og sjálfstæðismenn
á móti embættismannanefnd
Langar umræður voru um kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd og skip-
an embættismannanefndar til að
fjalla um slíkt svæði á Alþingi í gær.
Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.Rvk.)
mælti þar fyrir þingsályktunartil-
lögu, sem hún flytur ásamt þing-
mönnunum Haraldi Ólafssyni
(F.Rvk.) og Svavari Gestssyni
(Abl.Rvk.) þess efnis að utanríkis-
ráðherra verði falið að beita sér fyrir
því á fundi utanríkisráðherra
Norðurlanda, sem haldinn verður
hér á landi í vor, að sett verði á
laggirnar embættismannanefnd á
vegum Norðurlanda sem kanni
möguleika á og geri tillögur um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum.
í máli sínu lagði Guðrún áherslu
á mikilvægi þess að íslendingar eigi
fulla aðild að þeim viðræðum sem
eru í gangi um kjarnorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum á öllum stig-
um málsins. En þegar eru í gangi
umræður í norrænni þingmanna-
nefnd skipaðri fulltrúum 15 þing-
flokka og í bígerð væri að stofna
embættismannanefnd í sama til-
gangi.
Þingsályktunartillagan væri flutt
til að tryggja að íslendingar yrðu
ekki viðskila við aðrar Norðurlanda-
þjóðir í þessu máli.
Matthías Á. Mathiesen utanríkis-
ráðherra sagði m.a. að fyrst yrði að
skilgreina verksvið slíkrar embættis-
mannanefndar áður en afstaða væri
tekin til þátttöku í slíkri nefnd.
Pá ræddi ráðherra skilgreiningu
kjarnorkuvopnalauss svæðis og taldi
það eiga ná yfir mun víðara svæði en
Norðurlönd, þ.e. Norður-Evrópu
frá Úralfjöllum til Grænlands.
- til að fjalla um málið
Jón Baldvin Hannibalsson
(A.Rvk.) lýsti efasemdum um stofn-
un embættismannanefndar, því
þetta væri hápólitískt mál, sem ekki
væri ájæri embættismanna að taka
ákvörðun um. En Alþýðuflokkurinn
mundi áfram taka þátt í störfum
þingmannanefndarinnar.
Svavar Gestsson sagði Jón Bald-
vin fylgja stefnu hinna hörðu hauka
í Bandaríkjunum í afvopnunarmál-
um. Meiri hluti væri fyrir kjarnorku-
vopnalausu svæði á öllum þjóðþing-
um Norðurlanda.
Birgir ísleifur Gunnarsson
(S.Rvk.) sagði að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafnaði einhliða yfirlýsingum
um slíkt svæði og það ætti aðeins að
ræða í sambandi við víðtæka afvopn-
unarsamninga. Sj álfstæðisflokkur-
inn sæi m.a. þess vegna engan tilgang
í að taka þátt í umræðum þing-
mannanefndarinnar.
í lok umræðunnar sagðist Guðrún
Agnarsdóttir ekki skilja hvers kyns
hræðslupúkar þeir þingmenn væru
sem ekki vildu taka þátt í þessari
umræðu. Menn væru jafnvel farnir
að nota ályktun Alþingis frá í maí
1985 sem þröskuld fyrir frekari um-
ræðu. -ÞÆÓ
Ölvaður ökumaður ók á staur og lenti síðan í árekstri við annan bfl í
Austurbergi, á móts við Fjölbrautaskólann í Breiðholti um hádegisbilið í
gær. Engin slys urðu á fólki, sem má teljast mildi, þar sem maðurinn var
æði mikið drukkinn.
Maðurinn var færður á lögreglustöðina til blóðprufu og sleppt að því
loknu. -ABS
Tímamynd: Pjctur.
Rannveig Þorsteinsdóttir fyrrver-
andi þingmaður Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík var í gær borin til
grafar. Hún er eina konan sem setið
hefur á þingi fyrir flokkinn. Fulltrúar
Félags framsóknarkvenna í Reykja-
vík, Kvenstúdentafélags íslands,
Kvenfélagasambands íslands og Sor-
optimistafélags íslands báru Rann-
veigu til grafar en hún tók virkan
þátt í starfsemi þessara félaga.
'bbVOGSKlRKJA
Alþingi:
Tveir tugir þingmanna
með fjarvistarleyfi
Þingmenn tregir til að kalla inn varamenn
Það var hvorki hávaði né læti í
þingsölum í gær. Fundur var í Sam-
einuðu þingi og 13 mál á dagskrá.
Helgi Seljan, forseti Sameinaðs
þings hóf fundinn með því að til-
kynna fjarvistir þriðjungs þing-
manna eða alls tuttugu. Rétt tókst
að ná saman nægilegum fjölda
þingmanna til að greiða atkvæði um
sex mál, en til þess þarf meira en
helming þingmanna.
Einn jjingmanna tilkynnti veik-
indaforföll. Hinir nítján voru út um
hvippinn og hvappinn. Einir sjö
þingmenn eru á undirbúningsfundi
fyrir þing Norðurlandaráðs, ein-
hverjir eru á fundi Evrópuráðsins og
enn aðrir á kosningaferðalögum.
Aðeins tveir þeirra þingmanna,
sem farnir eru til útlanda, kölluðu
inn varamenn fyrir sig. Kristín
Tryggvadóttir situr fyrir Kjartan Jó-
hannsson (A.Rn.) og Sturla Böðv-
arsson situr fyrir Ólaf G. Einarsson.
-ÞÆÓ
^fARNARFLUG
Hluthafafundur
í Arnarflugi hf.
Fimmtudaginn 5. febrúar nk. kl. 20.30 veröur
haldinn hluthafafundur í Arnarflugi hf.
Fundarstaður: Hótel Saga 2. hæð í nýju álmu.
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1. Greinargerð stjórnar um málefni félagsins.
2. Tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum
félagsins, er aðallega gengur í þá átt, að
stjórninni verði heimilað að hækka hlutafé
félagsins um allt að kr. 130.377.000 (í stað kr.
48.444.000 skv. núverandi samþykktum),
þannig að heildarhlutafé félagsins verði allt að
kr. 230.000.000 (í stað kr. 150.000.000 skv.
núverandi samþykktum).
Tillaga stjórnarinnar liggur frammi á skrifstofu
félagsins til athugunar fyrir hluthafa.
Stjórn Arnarflugs hf.
Námskeið
um efnisfræði stáls
Ætlað járniðnaðarmönnum, kennurum málmiðn-
greina og sölumönnum smíðaefnis, verður haldið
í Tækniskóla íslands, dagana 5. feb. kl. 17:30-
21:00, 7. feb. kl. 9:00-12:00, 9., 11. og 12. feb. kl.
17:30-21:00.
Þátttökugjald er kr. 4.000.-
Innifalin eru námsgögn og fæði.
Upplýsingar og innritun í símum 687440 og
687000.
Verkakvennafélagið Framsókn
Allsherjar atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og í önnur trúnaðarstörf í
félaginu fyrir árið 1987 og er hér með auglýst eftir
tillögum um félagsmenn í þau störf. Frestur til að
skila listum er til kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 6.
febrúar 1987. Hverjum lista þurfa að fylgja með-
mæli 100 fullgildra félagsmanna. Listum ber að
skila á skrifstofu félagsins, Skipholti 50a.
Stjórnin
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs starfs-
árið 1987 til 1988.
Tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Ingólfsstræti
5, 5. hæð, föstudaginn 6. febrúar 1987 kl. 13.00.
Stjórnin
Til leigu
Til leigu ereinstaklingsíbúð í kjallara í Smáíbúðar-
hverfi. Leigutími eftir samkomulagi. Fyrirfram-
greiðsla.
Upplýsingar í símum 688608 og 53809
OOO w