Tíminn - 30.01.1987, Blaðsíða 15
Tíminn 15
Föstudagur 30. janúar 1987
lllllllllllllllllll IÞRÓTTIR ;,llllll'' .................... .......... ............ .............. ............ ............... ..........................................................................................
Enska knattspyrnan:
Ekki meira gervi-
ras á næstu árum
Fjörttu og níu uf 92 liðum í
ensícu tleildakeppninni t knatt-
spyrnu samþykktu í gær að banna
frekari útbreiðslu gervigrasvalla
næstu þrjú árin í Englandi. Bannið
mun þó ekki hafa áhrif á þau fjögur
deildarlið sem þegar hafa gervigras
á sínum leikvöllutn - Luton, Ou-
eens Park Rangers, Oldhant og
Preston - þau fá að leika á sínuni
völlum áfrant. Hinsvegar ntun
bannið seinka áformum 12 annarra
liða sem ákvcðið höfðu að leggja
gervigras á sína leikvelli.
í Skotlandi hcfur aftur á móti
ekkcrt verið samþykkt gegn gervj-
grasvöllum og síðast í gter tilkynnti
2. dcildarliöið Stirling Albion að
þeir hygðust leggja gervigras á
hcimavöll sinn, Annfield Park.
Dalglish er óhress
Kenny Dalglish framkvæmda-
stjóri Liverpool er óhress mjög
með að menn hans séu fallnir út úr
bikarkeppninni. Hann heldur því
fram að dæma hefði átt Luton úr
leik þegar þeir komust ekki í fyrsta
leikinn vegna veðurs og einnig
kennir hann því um að þurfa að
leika á gervigrasi en kastað var upp
peningi um hvar leikurinn færi
fram.
Burkinshaw
til Sporting
Keith Burkinshaw fyrrum fram-
kvæmdastjóri Tottenham skrifaði í
gær undir 2 1/2 árs samning við
portúgalska 1. deildarliðið Sporting
Lissabon. Hann tekur við af Manuel
Jose sem þjálfaði liðið þar til hann
var rekinn nýlega eftir að liðinu fór
að ganga illa í deildinni.
Burkinshaw stjórnaði Tottenham
þegar þeir urðu bikarmeistarar 1981
og 1982.
Úr baráttunni í leik Hauka og Vals í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
gærkvöld, margar hendur á lofti en boltinn utan seilingar. Tímamynd Pjetur.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Pálmar með 30 stig
- en það dugði ekki til að sigra Valsmenn
Valsmenn sigruðu Hauka með 75
stigum gegn 66 í leik liðanna í
úrvalsdeildinni í körfuknattlcik í
Hafnarfirði í gærkvöld. Staðan í
leikhléi var 38-26 fyrir Valsmenn en
þeir höfðu yfirhöndina mest allan
tímann. Leikurinn var mjög sveiflu-
kenndur en skiptust liðin á með
ágæta kafla. Vítahittnin í leiknum
var óvenju slök.
Pálmar Sigurðsson skoraði hvorki
fleiri né færri en 7 þriggja stiga
körfur í leiknum og átti ágætan leik.
Pá áttu Ingimar Jónsson og lvar
Ásgrímsson ágæta kafla í síðari
hálfleik.
Hjá Val var enginn sem bar af
ncnia hvað Tómas Holton átti góðar
lokamínútur.
Stig Valsmanna skoruðu: Torfi
Magnússon 15, Tómas Holton 15,
Einar Ólafsson 13, Sturla Örlygsson
8, Lcifur Gústafsson 7 og Björn
Zöega 6. Stig Hauka: Pálmar Sig-
urðsson 30, ívar Ásgrímsson 12,
Henning Henningsson 8, Ingimar
Jónsson 8, Eyþór Árnason 4, Ólafur
Rafnsson 4.
ÍSvannUMFG
fS sigraði UMFG með 41 stigi'
gegn 34 í leik liðanna í 1. deild
kvenna í Grindavík í gærkvöld. fS
hafði örugga forystu allan leikinn þö
Grindvíkingar næðu að minnka
rnuninn í síðari hálflcik.
Sunddeild UMFN fékk
100 þús. króna gjöf
Bæjarstjórn Njarðvíkur bauð Eð-
varð Þór Eðvarðssyni og félögum
hans í sunddeild Njarðvíkur til kaffi-
samsætis á Hótel Kristinu fyrir
skömmu í tilefni þess að Eðvarð var
fyrr í mánuðinum útnefndur íþrótta-
maður ársins 1986. Við þetta tæki-
færi afhenti bæjarstjórnin sunddeild-
inni kr. 100 þúsund að gjöf.
Á myndinni hér til hliðar eru,
talið frá vinstri: Eðvarð Þór Eð-
varðsson fþróttamaður ársins 1986,
Ragnar Halldórsson forseti bæjar-
stjórnar, Sigurður Ragnarsson for-
maður Sunddeildar UMFN og Friðr-
ik Ólafsson sundþjálfari og fyrir
framan sig halda þeir sigurlaunum
Eðvarðs í keppninni um íþrótta-
mann ársins.
Knattspyrna:
JónastiliiðsviðKS
Frá Eml Þórarinssyni, Fljótum Skagafirði:
Siglfirðingum hefur bæst liðs-
auki f knattspyrnu næsta sumar
sem er Jónas Björnsson Framari.
Hann er bróðir Gústafs Björnsson-
ar þjálfara KS og lék með Fram á
síðari hluta keppnistímabilsins í
fyrra og þótti standa sig vel.
KS-menn vonast til að fara í
æfinga- og keppnisferð til Dan-
merkur í vor og myndi Gústaf þá
koma til móts við liðið en hann
dvelur nú í Noregi.
Þá mun Mark Duffield leika
með KS t sumar en hann lék í fyrra
með Víði í Garði.
KS-menn vonast eftir að taka
nýjan grasvöll í notkun síðari hluta
sumars en þeir hafa hingað til
leikið á malarvelli.
Hér hefur vörn landsbyggðarstúlkna opnast illilega en þær sigruöu samt í leiknum, lokatölur 22-21. Tímamynd Pjctur.
Eitt-eitt hjá Reykjavík og landinu
Lið Reykvíkinga og landsbyggð-
arfólks áttust við á handknattleiks-
vellinum í gærkvöld. í kvennaflokki
sigraði Landið 22-21 eftir að staðan
í hálfleik var 10-10. Flest mörk
þeirra skoraði Erla Rafnsdóttir, 8,
en Inga Lára Þórisdóttir gerði 4(2)
mörk fyrir Reykvíkinga.
í karlaflokki sigruðu Reykvíking-
ar 28-24 en staðan í hálfleik var 15-9.
Flest mörk Reykvíkinga gerðu Jó-
hannes Stefánsson og Siggeir Magn-
ússon, 5 hvor en Gylfi Birgisson og
Hannes Leifsson skoruðu 5 fyrir
landið.
Liðsskipanin í karlaflokkum var
nokkuð öðruvísi en forráðamenn
HKRR höfðu gefið fjölmiðlum upp
og sagt nær alveg örugga, það mun
aldrei hafa verið á dagskrá af hálfu
HSÍ að landsliðsmenn lékju með.