Tíminn - 30.01.1987, Side 16
16 Tíminrv
11 MINNING 1 lllllllllllllllll llllllllllllllllllllllllllll lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllil lllllllllllllllllllllllllllllllllll lllilllllllllllll!llllllllllllllllllllllllll
Föstudagur 30. janúar 1987
Benedikt Sigurður
Kristjánsson
fyrrum bóndi á Stóra-Múla, Saurbæ, Dalasýslu
Fæddur 1. apríl 1895
Dáinn 19. janiíar 1987.
Eftirfarandi ræða var flutt við
kvcðjuathöfn um Benedikt sl.
miðvikuda)>.
Það er hlýtt inní herberginu og
óþarflega þungt loft eins og gjarnan
er hjá gömlu fólki og gamli maðurinn
sem þar býr tekur þér opnum örmum
í þau fáu skipti sem þú lítur inn og
þú ert um stund leiddur inn í heim
samræðulistar og einstæðrar frásagn-
argáfu. Gamli maðurinn spyr tíð-
inda, en samtalið þróast fljótlega
upp í það að hann fer að segja þér
frá. Hann sýnir þér þakkarkveðju
frá ungum þjóðháttafræðingi sem
hafði beðið hann um að útlista forn
vinnubrögð við heyskap inn á segul-
band, og úr því urðu átta vélritaðar
síður segir gamli maðurinn og þurfti
ekki að hnika til orði, hvað þá
setningu. Og ég veit að hann mælir
þar rétt. Frásagnagáfa hans var ein-
stök, atburðir liðu fram skýrt og
skilmerkilega, án vafninga eða auka-
atriða. í návist hans ertu stiginn inn
í annan heim sem ofurvald nútíma
hraða og fjölmiðlunar hefur ekki
náð að setja mark sitt á, enda er
gamli maðurinn sem andspænis þér
mundar tóbaksklútinn og kryddar
mál sitt spaugilegum athugasemdum
og kímni fæddur þegar enn eru tæp
fimm ár eftir af öldinni sem leið,
orðinn 23ja ára þegar Fróstaveturinn
mikli gekk yfir 1918, og nær sestur í
helgan stein fyrir meira en aldar-
fjórðungi, þegar barnabörn hans,
fyrir utan þau allra elstu, fara að
muna hann fyrst.
Saurbær í Dalasýslu var þéttbýlli
en nú er, þó fátækari væri, þegar
Benedikt Sigurður Kristjánsson
fæddist, fyrir tæpum níutíu og tveim-
ur árum. Faðir hans Kristján Benja-
mínsson frá Hrófbjargarstöðum,
hafði um skeið verið vinnu- og
lausamaður í Saurbænum og árið
1894 ræðst hann sem vinnumaður að
Lambanesi til Benjamíns Hjálmars-
sonar Jónssonar frá Bólu og dóttur
hans Hólmfríðar. Segja má að þá
fari lukkuhjól þeirra beggja að
snúast, því að þau Kristján og Hólm-
fríður fella hugi saman og ganga í
hjónaband og taka við búsforráðum
í Lambanesi. Par fæðist Bcnedikt 1.
apríl 1895. Skömmu síðar taka þau
Kristján og Hálmfríður Saurhól á
leigu en ótrygg er vist leiguliðans og
þaðan verða þau að fara eftir sex ára
dvöl, flytja til eins árs í mikið
þröngbýli að Þurranesi, en síðan
kaupa þau jörðina Stóra-Múla 1904
af Torfa í Olafsdal. Þá er Benedikt
9 ára. Þar eiga þau heimili síðan .
Kristján og Hólmfríður ásamt Bene-
dikt og dætrum sínum fimm, en af
þeim er nú aðeins Karólína á lífi.
Það var á honum að heyra að gott
hefði verið að alast upp í Saurbænum
í byrjun aldar, þó að fátækt væri þar
vissulega mikil eins og annarsstaðar
á landinu. En þegar fyrstu árum
aldarinnar sleppti fór ungmennafél-
agshreyfingin að blása mönnum í
brjóst trú á landið og framtíðina.
Þéttbýlt var og fjölmennt á bæjunum
og mikið af ungu fólki og félagslíf
allnokkurt. Menntun var auðvitað
af skornum skammti. Benedikt fór
þó, eftir venjubundið barnaskóla-
nám sem lítið var, í skóla til sr. Ólafs
Ólafssonar í Hjarðarholti, þar sem
hann var tvo vetur. Menntunarmeg-
in á reikning sinn setti hann einnig
að hafa fengið að kynnast Torfa í
Ólafsdal, dveljast hjá honum að
vorlagi og kynnast heimilislífi, bún-
aðarháttum og skólahaldi þessa
merka búnaðarfrömuðar, þau kynni
taldi hann sér ávallt til tekna.
Húsið Sjónarhóll, efst íbrekkunni
áður en rennt er niður í hinn eigin-
lega Hafnarfjörð, stendur enn.
Þangað sótti ungur maður fæði og
húsnæði um það leyti sem gamla
Evrópa var að kveðja í hildarleik
fyrri heimsstyrjaldar. Þá fóru ungir
menn hvaðanæva suður með sjó á
vertíð og Benedikt réri tvær vertíðir
á skútu frá Hafnarfirði og tvær frá
Hrauni í Grindavík. Oft komst hann
þar í hann krappann. Aðbúnaður
var slæmur, vosbúð mikil og vinnu-
harka, en þetta varð nú lífsstarfið
margra ungra manna, en ekki Bene-
dikts. Hann var eini sonur foreldra
sinna og hann tekur við búskap á
Stóra-Múla árið 1921.
Á þeim einu stundum brá fyrir
viðkvæmni í rödd gamla mannsins er
hann minntist fyrri konu sinnar Ólaf-
ar, en hún dó úr tæringu eftir 10 ára
hjónaband þeirra á útmánuðum árið
1931. Þau gáfust hvort öðru 14.
október 1921. Gíslína Ólöl' hét
hún fullu nafni og var frá Þórustöð-
um í Bitru. Þau Ólöf og Benedikt
eignuðust fjögur börn sem eru í
aldursröð:
1. Kristján, kennari og lengi borgar-
fulltrúi í Reykjavík. Hann er kvænt-
ur Svanlaugu Ermenreksdóttur og
eiga þau fjögur börn.
2. Anna María, húsfreyja í Hafnar-
firði og áður á Sveinsstöðum í Klofn-
ingshreppi. Hún er gift Sigurjóni
Sveinssyni og eru börn þeirra 6.
3. Ellert Ingiberg, bóndi á Stóra-
Múla. Hann er kvæntur Halldóru
Guðbjartsdóttur og eru börn þeirra
3.
4. Benedikt, kennari í Reykjavík.
Ókvæntur.
Enn er hún Ijóslifandi fyrir hug-
skotssjónum okkar flestra hún Vig-
fúsína Jónsdóttir sem við kvöddum
hér frá kirkjunni fyrir réttum fimm
árum. Hún kom að Múla á erfiðum
tíma, skömmu eftir lát Ólafar og
verður seinni kona Benedikts. Þau
giftast 23. september 1937. Hún elur
upp með honum börnin, gengur
þeim í móður stað og gengur til allra
verka, bæði úti og inni alla tíð.
Einstakur dugnaðarforkur Vigfús-
ína, mikil búkona sem féll aldrei
verk úr hendi. Hún var frá Þórodds-
stöðum í Ölfusi. Hún lést 9. maí
1981 á 87. aldursári.
Ekki veit ég annað en að Benedikt
hafi búnast vel, en ekki er víst að
hann hefði orðið bóndi á öðrum og
auðugri tímum. Þá hefði hann sjálf-
sagt farið um langskólaveg og til
þess hafði hann góðar gáfur. Vitan-
lega hefur búskapurinn verið erfið-
ur, en léttist þó þegar börnin uxu úr
grasi. Þá fór Benedikt enda að taka
virkari þátt í félagsstörfum. Var í
hreppsnefnd og sóknarnefnd. For-
maður kaupfélagsstjórnar, búnaðar-
félags og sjúkrasamlags um árabil.
Fylgdist alla tíð vel með þjóðmálum
og var mjög einlægur stuðningsmað-
ur Framsóknarflokksins svo mjög að
reikulir afkomendur hans í annan lið
urðu að leyna ístöðuleysi sínu ef þeir
ætluðu að sleppa við ávítur hans. Þá
ferðaðist Benedikt allmikið, sótti
lækna og meðöl í Búðardal og að
Reykhólum, auk þess sem hann
gerðist sérlegur fylgdarmaður sókn-
arpresta sinna, einkum í erfiðum
vetrarferðum þeirra milli kirkna.
Enn stendur, þó farið sé að láta á
sjá, litla hvíta húsið á bakka
Hvolsár, niður undan Skriðulandi
og hitt hef ég ókunnuga sem hafa
sérstaklega tekið eftir þessu látlausa
húsi við árbakkann. Þetta hús
byggðu þau sér Benedikt og Vigfús-
ína er þau brugðu búi 1959 og
nefndu Ármúla. Heilsan var enn
góð og árin á Ármúla urðu mörg og
ánægjuleg, en allt hefur sinn tíma,
og eftir að Benedikt hafði verið þar
einn um nokkur ár, varð ekki undan
því vikist að hann flytti, þangað sem
nærbýli við aðra var meira. Hann
var þá orðinn áttatíu og sjö ára
gamall ,hafði búið á Ármúla í rúma
tvo áratugi og hann sá ekki eftir
vistaskiptum, því að þó að sveitin
togaði fast, þá var hann mjög félags-
lyndur maður og hafði ánægju af því
að umgangast fólk. Á Minni-Grund
leið honum vel og hann var mjög
sáttur við lífið og tilveruna.
Hann afi minn hafði gaman af því að
skreppa á bæi, segja sögur, ræða
málin og taka úr kaffibolla. Margur
stubbur fylgdi honum á þeim
ferðum, skyldur eða óskyldur, því
að þau Sína voru dugleg við að taka
börn í sveit og sinn þátt átti hann í
mótun þeirra peða sem honum
fylgdu, því að ekki var alltaf þegj-
andi gengið. Hann sagði alla tíð
mikið af gamansögum, hins vegar
lagði hann ekki illftil nokkurs manns
og kaus að skipta um umræðuefni
yrði trauðla hjá því komist. Á sama
veg þá tók hann gjarnan upp hansk-
ann fyrir menn, ef illt umtal var
iðkað í hans návist og varð ég'
oftsinnis vitni að því. Hins vegar var
hann kerskinn og stríðinn, ef því var
að skipta, en fór þó þannig með að
hann aflaði sér ekki óvináttu nokk-
urs manns. Hvort sem það hefur
verið af löngum kynnum hans við
presta, eða öðru þá var hann guð-
fræðingur góður, og er óþarfi að
bæta hér við „af alþýðumanni að
vera“. Hann var mjög vel heima í
lykilatriðum kristindóms og líkt og
Tómas, efasemdamaður í hvívetna.
í guðfræðilegri umræðu naut eðlis-
læg stríðni hans sín einkar vel.
Nýútskrifaðir guðfræðingar í vinnu
hjá Gísla á Grund vissu oft ekki
hvort þeir væru að koma eða fara
þegar hann byrjaði að rökræða við
þá um meyfæðinguna og aðrar yfir-
náttúrulegar frásögur Biblíunnar.
Hann var raun- og rökhyggjumaður
í þessu sem öðru, og margur verð-
andi prestur, ennþá blautur af bók,
fékk þarna sína fyrstu brotlendingu.
En þeir hændust að honum, heim-
sóttu hann miklu oftar en þurfti,
enda gamli maðurinn vanur prestum
og umgekkst þá stétt manna eins og
sveitunga sína.
Benedikt á Stóra-Múla upplifði á
einum mannsaldri íslandssögu alla í
hnotskurn. Er hann fæðist eru at-
vinnuhættir og verklag lítt breytt frá
því að verið hafði frá upphafi íslands
byggðar og hann deyr í fjölbreyttu
samfélagi háþróaðrar tækni. Hann
fylgdist vel með meðan hann var upp
á sitt besta, sína búskapartíð. Átti
síðustu árin vélar og tæki og tók .
allan sinn heyskap af ræktuðu landi.
En hann lét sér fátt um finnast á efri
árum og þyrsti t.a.m. lítt í ferðalög
önnur en á þekktar slóðir. Hann var
fyrst og fremst maður fróðleiks og
frásagnalistar og í því var kannski
viss þversögn að hann sem átti svo
auðvelt með að draga upp glöggar
myndir af því sem hann sá og heyrði
skyldi lítt gefinn fyrir mikil ferðalög.
Hann flaug t.a.m. einu sinni og þá í
boði vinar síns Sverris Þóroddsson-
ar. Hann varð ekki hræddur, þó fýsti
hann ekki að endurtaka slíkar
ferðir, þrátt fyrir hvatningu á
stundum.
Þó að skammlífi og lífsólán sé alls
ekki til vitnis um að Guð hafi
afneitað þér þá er langlífi og barna-
lán órækasti vottur um Guðs blessun
í þeirri lífsins bók sem nefnd hefur
verið Gamla Testamentið. Og af
hvorutveggju hafði Benedikt á
Stóra-Múla nóg. Hann naut þess
lífsláns að sjá börn sín vaxa upp til
þroska, sjá þeirra börn komast
nokkuð áleiðis og þess að sjá barna-
barnabörnin vaxa úr grasi. Hann var
orðinn allra karla elstur og hélt
prýðilega andlegu atgervi. Hann
fann hins vegar að heilsan var að
bila, fann að hverju dró, og var
fyllilega sáttur við það að deyja.
Héðan leggur hann upp í sína
síðustu jarðbundnu ferð vestur í
Dali þar sem hugur hans var alla tíð
og líkaminn að undanskildum síð-
ustu árunum. Þar verður hann jarð-
sunginn frá kirkjunni sinni Staðar-
hólskirkju, þar sem ýtsýni er yfir alla
þá sveit sem hann unni svo mjög, þá
sveit þar sem hann sleit fyrst barns-
skónum, lifði sín manndómsár, og
átti langa og farsæla ævi. Bæði hér
og þar kveðja hann ættingjar, sveit-
ungar og vinir með virðingu og
söknuði. Blessuð veri minninghans,
alltaf og ævilega.
Baldur Krístjánsson
„Mínir vinir fara fjöld
feigðin þessa hemtar köld. “
H.J.
Benedikt Sigurður Kristjánsson
var fæddur að Lambanesi í Saurbæ
þann 1. apríl 1895, sonur hjónanna
Kristjáns Benjamínssonar, Jónsson-
ar á Hrófbjargarstöðum í Hnappadal
og konu hans Katrínar Markúsdótt-
ur. Kona Kristjáns á Stóra-Múla var
Hólmfríður Benjamínsdóttir Hjálm-
arssonar, Jónssonar frá Bólu í
Skagafirði.
Fyrstu árin bjuggu þau Kristján
og Hólmfríður í Lambanesi en síðan
á Saurhóli og Þurranesi þar til þau
fluttu að Stóra-Múla árið 1904 er
Torfi í Ólafsdal seldi þeim jörðina,
sem áður var ein af þeim jörðum
sem Ólafsdalsskólinn hafði til af-
nota. Benedikt var þá 9 ára gamall
og átti hann eftir það alla tíð heimili
á Stóra-Múla.
Saurbærinn er ein af fegurstu
sveitum landsins. grasi gróin á milli
hárra fjalla. Ágæt sveit, og ágætis
fólk, eins og Steinn Steinarr sagði.
Stóri-Múli stendur hátt og þaðan er
fagurt útsýni yfir sveitina og vestur
yfir Gilsfjörð allt til Barmahlíðar
sem Jón Thoroddsen orti svo fallega
um. Þarna ólst Benedikt upp og
vandist ungur öllum heimilisstörf-
unt. Hann hlaut í æsku almenna
barnafræðslu, en auk þess var hann
2 vetur í Hjarðarholtsskóla hjá
séra Ólafi Ólafssyni. Þaðan komu
margir nemendur vel undirbúnir til
að takast á við ný verkefni sem
framtíðin bar í skauti sér. Þá komst
Benedikt á unga aldri í kynni við
Ólafsdalsheimilið, sem var annálað
fyrirmyndar menningarheimili.
Hann komst einnig í kynni við
sjómennsku, þar sem hann var 2
vertíðir í Grindavík við sjóróðra.
Saurbærinn og Saurbæingar voru
að ýmsu leyti á undan öðrum, því
þar blómstraði félagslífið. Söng- og
leiklistin voru í hávegum höfð hjá
yngra sem eldra fólki og ungmenna-
félagið starfaði mikið. Þótt starfsemi
þessi hvíldi oft á herðum fárra
manna, þá voru allir með þegar á
þurfti að halda. Benedikt á Stóra-
Múla var framarlega í hópi ungra
manna í sveitinni og tók mikinn þátt
í félagslífinu. Hann var leikari góður
og er mér hann minnisstæður bæði
sem séra Sigvaldi í Manni og konu
og sem Sigurðar í Dal í Skugga-
Sveini. Þá var hann söngmaður góð-
ur og snjall ræðumaður, orðheppinn
og rökvís. Þessi félagsstarfsemi var
góður skóli fyrir yngri kynslóðina.
Þar lærði hún að starfa og leysa ýmis
vandamál sameiginlega og var því
vel í stakk búin til að takast á við
stærri verkefni, þegar út í lífsbarátt-
una kom. Á þessum árumvoru flestir
Saurbæingar fátækir af veraldarauði,
en þeir voru hugsjónaríkir, frjáls-
lyndir og framfarasinnaðir.
Árið 1921 hófBenedikt búskap að
Stóra-Múla og bjó hann þar í nær 40
ár er sonur hans Ingiberg tók við búi
þar.
Það var margt sem á móti blés í
landbúnaði á þessum fyrstu búskap-
arárum Benedikts, ekki síður en
mönnum finnst í dag. Það voru
harðindaár frá 1918-1920 og í kjölfar
þeirra kom gífurlegt verðfall bús-
afurða, og bændur sátu eftir með
miklar skuldir, og fengu lítið fyrir
innleggið sem að mestu voru sauð-
fjárafurðir. Skuldirnar sem söfnuð-
ust á þessum árum losnuðu menn
ekki við næstu árin. Síðan kom
heimskreppan uppúr 1930 svo
ástandið var hörmulegt. Kreppu-
lánasjóður og Afurðasölulögin 1935
björguðu miklu og sköpuðu bændum
meira öryggi í búskap en áður
þekktist. Það var bjartara framund-
an, en þá komu sauðfjársjúkdómar,
sem ollu stórtjóni, svo skipta varð
um fjárstofn. Það var engin sæld að
fást við þessi mál, en uppúr fyrri
fjárskiptum árið 1947 fór að rofa til
og bændur voru þá fljótir að tileinka
sér nýjungar þær sem voru á boðstól-
um, vélar og tæki sem áður voru lítið
þekkt hér á landi.
Benedikt á Stóra-Múla kynntist
þessum erfiðleikum öllum, eins og
aðrir bændur. Hann mundi vel
tvenna tíma í búnaðarháttum og
kunni að meta þær nýjungar og
tækni sem rutt hefur sér rúm síðustu
áratugina. Hann var maður ræktun-
ar og framfara og byggði allt sitt á
jörð sinni og ræktaði mikið, svo
hann þurfti ekki að heyja nema á
ræktuðu landi síðustu búskaparárin.
Þetta votlendi sem áður var í Saur-
bænum er nú að mestu orðið að
grasgefnum túnum og bústofn bænd-
anna hefur margfaldast og afurðir
stóraukist. Samhliða búskapnum
var Benedikt alla tíð mikið í félags-
málum, enda vel til þess fallinn.
Hann átti lengi sæti í hreppsnefnd og
var um skeið oddviti. Hann vann að
því m.a. að gefa þeim ábúendum
sem voru leiguliðar á hreppsjörðum
kost á að kaupa þær og verða
sjálfseignabændur. Þá var hann lengi
í stjórn Kaupfélags Saurbæinga og
formaður stjórnar um skeið. All-
lengi var hann formaður búnaðarfé-
lags og fóðurbirgðafélags og um
skeið formaður sjúkrasamlags og í
mörg ár sóknarnefndarformaður.
Margt fleira var honum falið sem
eigi verður hér rakið. Benedikt var
bókhneigður maður og víðlesinn,
greindur vel og snjall ræðumaður og
lét engan eiga hjá sér í orðasennum.
Hann hafði skemmtilega frásagnar-
hæfileika og var hagmæltur vel.
Hann var samvinnu- og félags-
hyggjumaður með ákveðnar skoðan-
ir og fylgdi Framsóknarflokknum að
málum.
Fyrri kona Benedikts var Gíslína
Ólöf Ólafsdóttir frá Þórustöðum í
Bitru Magnússonar. Hún lést 39 ára
1931.
Þeirra börn eru: Kristján Hólm
frv. borgarfulltrúi í Reykjavík,
kvæntur Svanlaugu Ermenreksdótt-
ur, Anna María gift Sigurjóni
Sveinssyni í Hafnarfirði. Þau bjuggu
Iengi á Sveinsstöðum í Dalasýslu.
Ellert Ingiberg bóndi Stóra-Múla
kvæntur Halldóru Guðbjartsdóttur.
Benedikt kennari í Reykjavík.
. Öll eru systkinin mannkosta fólk
og þrátt fyrir erfiðar heimilisástæður
þá hlutu þau góða menntun.
Seinni kona Benedikts var Vigfús-
ína Kristín Jónsdóttir frá Þórodds-
stöðum í Ölfusi. Hún lést árið 1981.
Þegar Benedikt og Vigfúsína
hættu búskap byggðu þau yfir sig í
landi Stóra-Múla og nefndu húsið
Ármúla. Þar bjuggu þau í 2 áratugi.
Síðustu árin dvaldi Benedikt á
Minni-Grund í Reykjavík og var
hann allt fram undir það síðasta við
góða heilsu og hélt reisn sinni, þótt
kominn væri á tíræðisaldurinn.
Hann lést þann 19. jan. sl. á Landa-
kotsspítala.
Þegar ég lít yfir farinn veg, þá hef
ég margs að minnast og margt að
þakka hinum látna. Ævistarfið var
ekki alltaf létt, en það var sigrast á
öllum erfiðleikum og byggt og búið
giftusamlega í hendur komandi kyn-
slóða. Ég þakka og flyt ættingjum og
öðrum vandamönnum innilegar sam-
úðarkveðjur mínar og konu minnar.
Blessuð sé minning Benedikts
Kristjánssonar.
Ásgeir Bjarnason.
Ásgarði.