Tíminn - 30.01.1987, Blaðsíða 23
Föstudagur 30, janúar 1987
Tíminn 23
HELGIN FRAMUNDAN
Hópur þátttakenda í „Rympu á ruslahaugnum".
Frumsýning á barnaleikriti
í Þjóðleikhúsinu:
Rympa á ruslahaugnum
í næstu viku frumsýnir
Þjóðleikhúsið glænýtt barnaleikrit
með þulum, söngvum og lögum
eftir Herdísi Egilsdóttur.
Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld og
hönnuður leikmyndar og búninga
er Messíana Tómasdóttir.
Tónlist og dans setja mikinn
svip á leikinn. Leikritið gerist á
öskuhaug, sem er iðandi af lífi, og
munu rúmlega 20 ungir
ballettdansarar undir stjórn Láru
Stefánsdóttur dansahöfundar sjá
um dansinn. Jóhann G.
Jóhannsson stjórnar hljómsveit á
sviðinu og útsetur sönglög
Herdísar. Sigríður Þorvaldsdóttir
leikur ófyrirleitnu kerlinguna
Rympu, sem býr á ruslahaugnum
með hauslausum tuskukarli.
Sigrún Edda Björnsdóttir og
RANKA
OPNAR
SÝNINGU
1 dag, föstudaginn 30. janúar kl.
20.00 opnar Ránka — Ragnheiður
Hrafnkelsdóttir - einkasýningu á
myndverkum og skúlptúrum í
Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b.
Ránka stundaði nám við Kunst
og Hándværkerskolen í
Kaupmannahöfn á árunum 1978-
1982 og við Gerrit Rietveld
Academie í Amsterdam 1982-
1984. Eftir að hún lauk námi hefur
hún verið búsett í Reykjavík og
Amsterdam.
Ránka hefur áður sýnt í
Nýlistasafninu ásamt Piu Rakel
Gunnar Rafn Guðmundsson leika
krakkana Rikku og Skúla, sem
lenda í ævintýrum á
öskuhaugunum, Margrét
Guðmundsdóttir leikur Ömmu,
sem ráfað hefur frá elliheimilinu á
haugana og Viðar Eggertsson
leikur leitarmann. Auk þeirra
tekur fjölskrúðugur hópur úr
Listdansskóla Þjóðleikhússins
þátt í sýningunni.
Frumsýningin verður
laugardaginn 7. febrúar kl. 15:00
Nýmyndlist-
arsýning í
Gallerí
Hallgerði
Anna Þóra Karlsdóttir
opnar sýningu í Gallerí
Hallgerði, Bókhlöðustíg 2, kl.
14.00 á morgun, laugard. 31.
janúar. Þar sýnir Anna Þóra
myndverk og skúlptúr úr ull.
Annar Þóra Karlsdóttir
stundaði nám í Myndlista- og
handíðaskóla íslands, einnig
við Konstfackskolan í
Stokkhólmi og hefur á
umliðnum árum tekið þátt í
ýmsum samsýningum.
Sýningin er opin kl. 14.00-
18.00 daglega til 15. febr.
Þjóðleikhúsið um helgina:
Hallæristenór - Aura
sálin - í smásjá
HALLÆRISTENÓR
Gamanleikurinn Hallæristenór
(Lend Me a Tenor) eftir Ken
Ludwig í þýðingu Flosa
Ólafssonar og leikstjórn
Benedikts Árnasonar er sýndur
stóra sviði Þjóðleikhússins í
kvöld (föstudag) og
sunnudagskvöld kl. 20:00.
Þessi bráðfyndni bandaríski
gamanleikur fer nú sigurför um
heiminn, en hann hefst á því, að
óperan í Cleveland í Ohiofylki í
Bandaríkjunum er að fara að halda
upp á 10 ára afmæli sitt með mikilli
hátíðarsýningu og er ítalski
hetjutenórinn II Bianó (Aðalsteinn
Bergdal) fenginn til að syngja
Othello eftir Verdi við þetta
tækifæri. Hann mætir til leiks
ásamt konu sinni, Maríu (Helgu
Jónsd.) En tenórinn veldur
, aðstandendum óperunnar,
Saunders (Erlingi Gíslas.), Max
(Erni Árnasyni) og Júlíu (Herdísi
Þorvaldsdóttur) ómældum
erfiðleikum.
Aðgangshörð kjarnakvendi,
Maggie (Tinna Gunnlaugsd.) og
Diana (Lilja Þórisd.) kynda undir
hita leiksins með töfrum og
misskilningi og piccolóinn Frank
(Árni Tryggvason) kitlar
hláturtaugar áhorfenda. Brot úr
ýmsum þekktum óperum eru
sungin í leiknum og þykja
félagarnir Örn og Aðalsteinn gera
það með mestum ágætum.
AURASÁLIN
Annað kvöld, laugard. 31. jan.
skl. 20:00 og n.k. fimmtudag
verða sýningar á Aurasálinni eftir
Moliere í leikstjórn Sveins
Einarssonar, en troðfullt hefur
verið á allar sýningar siðan
Aurasálin var frumsýnd á annan
dag jóla. Bessi Bjarnason fer á
kostum í gervi aurasálarinnar
Harpagon, sem elskar ekkert eins
heitt og peningana sína. Það
bitnar á öllum, og ekki síst
börnum hans, Cleante (Pálma
Gestssyni) og Elise (Lilju Guðrúnu
Þorvaldsdóttur), en systkinin eru
ástfangin af Mariane (Guðlaugu
Maríu Bjarnadóttur) og Valere
(Jóhanni Sigurðarsyni), en að
sjálfsögðu ætlar karlinn þeim aðra
maka. í öðrum stórum hlutverkum
eru Sigríður Þorvaldsdóttir,
Sigurður Sigurjónsson og Randver
Þorláksson. Búningar Helgu
Björnsson og leikmynd Paul
Suominen þykja sérstök listaverk.
Sverrisdóttur, einnig hefur hún
tekið þátt í samsýningum.
Sýningin er opin milli kl. 14.00-
20.00 um helgar, en frá 16.00-
20.00 virka daga. Sýningunni
lýkur sunnud. 8. febr.
Ránka við eitt verka sinna á
sýningunni.
í SMÁSJÁ
Á Litla sviðinu að Lindargötu 7
er nýtt leikrit Þórunnar
Sigurðardóttur, „í smásjá", á
fjölunum í kvöld (föstud.),
laugardagskvöld og svo
miðvikudagskvöld n.k.
Sýningarnar eru kl. 20:30. Þetta
áleitna og sterka verk fjallar um
tverm hjón, þrjá lækna og
skólaritara á örlagastundu í lífi
þeirra allra.
Leikararnir Arnar Jónsson,
Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Sigurður Skúlason og Ragnheiður
Steindórsdóttir hafa öll fengið lof
fyrir magnaðan leik. Leikstjóri var
Þórhallur Sigurðsson, hönnuður
leikmyndar og búninga var Gerla
og ljósahönnuður Björn
Bergsteinn Guðmundsson.
Föstudagur
30. janúar
6.45 Veöurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin - Jón Baldvin Halldórsson,
Sturla Sigurjónsson og Lára Marteinsdóttir.
Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veðurtregn-
ir kl. 8.15. Tilkynningar eru lesnar kl. 7.25,7.55
og 8.25. Erlingur Sigurðarson talar um daglegt
mál kl. 7.20. 9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Hanna Dóra“
eftir Stefán Jónsson. Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir les (20).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
9.35 Lesið úr forustugreinum dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurtregnir.
10.30 Ljáðu mér eyra Umsjón: Málmfríður Sigurð-
ardóttir. (Frá Akureyri) 11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur Umsjón: Sigurður Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir.
12 45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Móðir Theresa" eftir
Desmond Doig. Gylfi Pálsson les
14.30 Nýtt undir nálinni Elín Kristinsdóttir kynnir
lög af nýjum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Landpósturinn Lesið úr forustugreinum
landsmálablaða.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir.
17.03 Siðdegistónleikar a. Hergöngulag eftir
Franz Schubert. Walter og Beatrice Kiein leika
fjórhent á píanó. b. Flautukonsert nr. 3 í D-dúr
eftir Antonio Vivaldi, Michala Petri og St.
Martin-in-the-Fields hljómsveitin leika; lona
Brown stjórnar. c. Willy Schneider, Renate
Holm, Waldemar Kment og Ingeborg Hallstein
syngja lög úr óperettum eftir Johann Strauss,
Jacques Offenbach og Carl Weller með hljóm-
sveit Franz Marszaleks.
17.40 Torgið - Menningarmál. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni.
sem Erlingur Sigurðarson flytur.
19.40 Þingmál Atli Rúnar Halldórsson sér um
20.00 Lög unga fólksins. Valtýr Björn Valtýsson
kynnir.
20.40 Kvöldvaka. a. Úr Mímisbrunni. Þáttur is-
lenskunema við Háskóla (slands. Tímaritið
Framsókn (1895-1901) Ragnheiður Margrét
Guðmundsdóttir tók saman. b. Gömul saga
um síma. Vilhjálmur Hjálmarsson flytur þriðja
og síðasta hluta frásögu sinnar. c. Martufiskur-
inn Úlfar Þorsteinsson les úr Rauðskinnu, safni
séra Jóns Thorarensens.
21.30 Sígild dæguriög.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar.
23.00 Andvaka Þáttur í umsjá Pálma Matthíasson-
ar. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
00.10 Næturstund í dúr og moll með Knúti R.
Magnússyni.
01.00 Dagskráriok.
Næturutvarp á RÁS 2 til kl.03.00.
RaS
9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Kristjáns Sigurjónssonar. Meðal efnis:
Óskalög hlustenda á landsbyggðinni, getraun
og fleira.
12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist
í umsjón Gunnlaugs Sigfússonar.
13.00Bót í máli Margrét Blöndal les bréf frá
hlustendum og kynnir óskalög þeirra.
15.00 Sprettur Þorsteinn G. Gunnarsson kynnir
tónlist úr ýmsum áttum og kannar hvað er á
seyði um helgina.
17.00 Fjör á föstudegi með Bjarna Degi Jónssyni.
18.00 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin. - Andrea Jónsdóttir.
23.00 Á næturvakt með Vigni Sveinssyni og
Þorgeiri Ástvaldssyni.
• 03.00 Dagskrárlok
Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00,
12.20,15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar
17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og
nágrenni -FM 90,1.
18.00-19.00 Svæðísútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni -FM 96,5.
Föstudagsrabb Inga Eydal rabbar við hlust-
endur og les kveðjur frá þeim, leikur létta tónlist
og greinir frá helstu viðburðum helgarinnar.
Föstudagur
30. janúar
18.00 Nilli Hólmgeirsson (Nils Holmgersson) Nýr
flokkur - Fyrsti þáttur. Þýskur teiknimynda-
flokkur gerður eftir kunnri barnasögu eftir Seimu
Lagerlöf um ævintýraferð drenghnokka í
gæsahópi. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
Sögumaður örn Árnason.
18.25 Stundin okkar-Endursýning Endursýndur
þáttur frá 25. janúar.
119.00 Á döfinni.
119.10 Þingsjá.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Spítalalíf (M* *A*S*H) Sautjándi þáttur.
Bandarískur gamanmyndaflokkur sem gerist á
neyðarsjúkrastöð bandaríska hersins í Kóreu-
stríðinu. Aðalhlutverk: Alan Alda. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Rokkarnir geta ekki þagnað. Atriði úr
þáttum á liðnu ári.
21.20 Mike Hammer. Nýr flokkur - Fyrsti þáttur.
Bandarískur sakamálamyndaflokkur gerður eft-
ir sögum Mickey Spillane um einkaspæjarann
Mike Hammer. Aðalhlutverk Stacy Keach. Þýð-
andi Stefán Jökulsson.
22.00 Kastljós - Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Ólína Þorvarðardóttir.
22.35 Seinni fréttir.
:22.40 Rósaflúr (The Rose Tattoo) Bandarísk bíó-
mynd frá árinu 1955, gerð eftir samnefndu
leikriti eftir Tennessee Williams. Leikstjóri Dan-
iel Mann. Aðalhlutverk Anna Magnani og Burt
Lancaster. Ekkja af sikileyskum ættum harmar
mjög eiginmann sinn sem ekki hefur þó verið við
eina fjölina felldur. Þá kynnist hann vörubílstjóra
nokkrum, sem minnir um margt á hinn látna
ástvin, en á ýmsu gengur í sambandi þeirra.
Þýðandi Þorsteinn Helgason.
00.40 Dagskrárlok.
0
STÖÐ2
Föstudagur
30. janúar
17.00Stark. Spegilmyndin (Mirror Image). Ný
kvikmynd frá CBS sjónvarpsstöðinni. Myndin
fjallar um ævintýri þau er leynilögreglumaðurinn
Evan Stark lendir í. Hann starfar í lögreglunni í
Springfield Ohio.
18.30 Myndrokk.
19.00 Teiknimynd. Furðubúarnir (Wuzzles).
19.30 Fréttir.
« 20.00 Dynasty. Bandarískur framhaldsmynda-
flokkur með John Forsythe og Lindu Evans í
aðalhlutverkum. Eftir dauða Ted, fyrrum elsk-
huga Steven, handtekur lögreglan Blake Car-
rington og réttarhöld hefjast. Krystle snýr heim
aftur til að standa á bak við Blake.
20.45 Um viða veröld. Fréttaskýringarþáttur í
umsjá Helgu Guðrúnar Johnson.________________
21.05 Geimálfurinn (Alf) Bandarískur fram-
haidsmyndaflokkur Alf heitir furðuvera úr
geimnum sem brotlendir geimfari sínu í
svefnbæ í Hollywood ofan á bílskúr Tannerfjöl-
skyldunnar. Alf er tekinn inn í fjölskylduna. Þarf
ekki að spyrja að því: heimilislífið breytist og
hver grátbroslega uppákoman rekur aðra. Það
var hinn fjölhæfi Tom Patchett - sem m.a. bjó
til Prúðuleikarana - sem á heiðurinn af þessari
vinsælu undraveru.
21.30 Stjörnustríð (Star Wars). Bandarísk kvik-
mynd frá 1977 með hinum alkunna Harrison
• Ford ásamt Mark Hamill, Carrie Fisher og Alec
Guinnes í aðalhlutverkum. Leikstjóri er George
Lucas. Bráðskemmtileg mynd sem sló öll met
þegar hún var sýnd og hlaut m.a. 7 Óskarsverð-
laun. Hún er í senn spennandi og skemmtileg
og greinir frá baráttu Loga geimgengils og vina
hans í baráttunni við Surt hinn illa sem stöðugt
ógnar lífi þeirra.
23.35 Benny Hill Bráðfyndinn breskur gamanþátt-
ur sem farið hefur sigurför um allan heim.
Þátturinn þykir minna að ýmsa leyti á gamanþátt
hins kunna Dave Allens.
24.00 Skáld. (Author, Author). Bandarískbíómynd
frá 1982 með Al Pacino, Dyan Cannon og
Tuesday Weld í aðalhlutverkum. Vinsælt leik-
ritaskáld lendir í hjónaskilnaði rétt fyrir frumsýn-
ingu á nýju leikverki. Hann neyðist því að takast
á við hin fjölbreytilegustu fjölskylduvandamál
um leið og hann leggur síðustu hönd á verkið.
Leikstjóri er Arthur Hiller.
01.50 Myndrokk 03.00 Dagskrárlok.
Föstudagur
30. janúar
7.00- 9.00 Á fætur með Sigurðl G. Tómassyni.
Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur
yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum.
Föstudagspoppið allsráðandi, bein lína til hlust-
enda, afmæliskveðjur, kveðjur til brúðhjóna og
mataruppskriftir.
Fréttir kl. 10.00,11.00 og 12.00.
12.00-14.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu
Harðardóttur. Fréttapakkinn, Jóhanna og
fréttamenn Bylgjunnar fylgjast með því sem
helst er í fréttum, segja frá og spjalla við fólk.
Flóamarkaðurinn er á dagskrá eftir kl. 13.00.
Fréttirkl. 13.00 og 14.00.
14.00-16.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd.
Pétur spilar síðdegispoppið og spjallar við
hlustendur og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00,16.00 og 17.00.
17.00-19.00 HallgrímurThorsteinsson í Reykja-
vík síðdegis. Þægileg tónlist hjá Hallgrími,
hann lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem
kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-20.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Þorsteinn
leikur tónlist úr ýmsum áttum og kannar hvað
næturlífið hefur upp á að bjóða.
22.00-03.00 Jón Axel Ólafsson. Þessi síhressi
nátthrafn Bylgjunnar heldur uppi helgarstuðinu
með hressri tónlist.
03.00-08.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Harald-
ur Gíslason leikur tónlist fyrir þá sem fara seini
í háttinn og hina sem fara snemma á fætur.