Tíminn - 30.01.1987, Blaðsíða 24
$ SAMBANDSFÓÐUR
3 6
£ &
VALSMENN sigruðu
Hauka í leik liðanna í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
Hafnarfirði í gærkvöld og Stúd-
ínur sigruðu UMFG í 1. deild
kvenna, einnig í körfuknattleik.
Sjá íþróttir bls. 15.
Helgi Jónatansson framkvæmdastjóri Hraöfrystihúss Keflavíkur:
Erum
leið út
úr vandræðunum
Eftir aö stjórn Byggöastofnunar samþykkti aö lána fyrirtækinu tuttugu milljónir
„Með þessari samþykkt stjórnar
Byggðastofnunar á 20 millj. króna
lánveitingu get ég ekki annað en
verið bjartsýnn á að við (Hraðfrysti-
hús Keflavíkur hf.) séum á góðri leið
með að sigla út úr þeim vandræðum
sem fyrirtækið hefur átt við að
glíma. Það ræðst þó mjög af því
hvaða ákvörðun stjórn Sambandsins
tekur á fundi sínum í dag um
hlutafjáraukningu í fyrirtækinu. í
annan stað höfum við aftur skrifað
Keflavíkurbæ með ósk um það að
hann gerist hluthafi, til styrktar
þessu fyrirtæki, en svar við því liggur
ekki fyrir ennþá, og allt hangir þetta
saman," sagði Helgi Jónatansson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Keflavíkur, í samtali við Tímann í
gær.
Stjórn Byggðastofnunar samþykkti
s.l. miðvikudag heimild til for-
stjóra að lána fyrirtækinu eða hlut-
höfum þess 20 millj. króna til að
koma í veg fyrir sölu togara fyrir-
tækisins frá Suðurnesjum. En um
miðjan des. sl. hafði stofnunin sam-
þykkt 20,6 millj. króna lánveitingu
tilfjárhagslegrarendurskipulagning-
ar fyrirtækisins, að því er fram
kemur í frétt frá stofnuninni.
Eftir að Tíminn ræddi við Helga
bárust fréttir af því að stjórn Sam-
bandsins hafði í gær samþykkt að
breyta um um 40 milljónum af
skuldum Hraðfrystihússins í hlutafé.
Helgi var spurður hvort þessar
aðgerðir þýddu varanlega lausn en
ekki einungis nokkurn gálgafrest á
vanda fyrirtækisins.
„Par kemur þú að kjarna málsins.
Menn eru að vinna að því að leysa
þetta mál af fullri alvöru og varan-
lega en ekki með einhverjum gálga-
fresti. Málið snýst fyrst og fremst um
aukið hlutafé. Fyrirtækið þarf meira
eigið fé en ekki aukin Ián.“
Hraðfrystihús Keflavíkur, sem
segja má að sé eina frystihúsið sem
eftir er í fullum rekstri í Keflavík
hefur undanfarin misseri átt við
mikla fjárhagserfiðleika að glíma,
eins og áður hefur verið frá skýrt í
Tímanum. Hraðfrystihúsið (sem er
hlutafélag í eigu Kf. Suðurnesja og
Sambandsins) á þá tvo togara sem
nú eru orðnir eftir í Keflavík og hjá
því starfa um 170 manns þegar allt
er í fullum gangi. Skiptir því auðsjá-
anlega miklu máli ekki síður fyrir
byggðarlagið en eigendurna að fyrir-
tækið geti starfað áfram.
Þó við fjárhagserfiðleika hafi ver-
ið að etja benti Helgi á að fyrirtækið
hafi ekki verið á neinum gjaldþrots-
barmi. Heildarskuldir þess eru rúm-
ar 300 milljónir kr. og verðmæti
togaranna einna ætti að vera gott
betur en það, miðað við þær togara-
sölur sem átt hafa sér stað að undan-
förnu. Hins vegar liggur í augum
uppi, að ef bjarga ætti fjárhagsstöð-
unni með sölu togara væri rekstri
frystihússins sjálfhætt. Málið snérist
því um það að auka eigið fé fyrir-
tækisins án þess að selja skipin,
þannig að áfram sé hægt að halda
fiskverkuninni í fullum gangi.
Spurður sagði Helgi Hraðfrystihús
Keflavíkur hf. búið að taka þátt í
skuldbreytingum ár eftir ár. Vand-
inn í því sambandi sé hins vegar sá,
að þá sé alltaf um að ræða svo
skamman tíma, gjarnan um 3 ár.
„Þó fyrirtæki eins og þetta skuldi
um 300 millj. króna er það kannski
ekki óyfirstíganlegt að neinu leyti ef
um er að ræða lán til 10-12 ára. En
eigi þau að greiðast upp á 3 árum,
þá ræður fyrirtækið ekki við það -
það liggur í hlutarins eðli. Þetta erv
eins og hvert annað heimilisbókhald
- bara í stækkaðri mynd,“ sagði
Helgi.
-HEI
Verðlaunapeysumar. Krjúpandi til vinstri er Guðrún Schmidhauser, 1. verðlaun, til hægri Aðalbjörg
Eriendsdóttir, 2. verðlaun. TímamyDd: Pjetur.
Verðlaunaafhending í peysusamkeppni
Álafoss hf. efndi til samkeppni
um hönnun á peysum og veitti tíu
verðlaun fyrir bestu hugmyndirn-
ar. Samkeppnin er liður í leit
fyrirtækisins að nýjungum í
hönnun. Bárust til dómnefndar,
sem í sátu Davið Scheving Thor-
steinsson, Guðrún Gunnarsdóttir
og Brynhildur Sverrisdóttir, 99
peysur.
Fyrstu verðlaun eru páskaferð
fyrir tvo til Mallorka með ferða-
skrifstofunni Atlantik og þau hlaut
Guðrún Schmidhauser. Önnur
verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til
Amsterdam með sömu ferðaskrif-
stofu og þau hlaut Aðalbjörg Er-
lendsdóttir. Þriðju til tíundu verð-
laun voru 10.000 krónur. Þau hlutu
Þórunn Guðmundsdóttir, Halla
Einarsdóttir, Halla B. Pálmadótt-
ir, Sigrún Eldjám, Helga Guð-
mundsdóttir, Ásdís Ó. Jóelsdóttir,
Lizzý Baldvinsson og Auður S.
Sigurðardóttir.
Hugmyndimar nýtir Álafoss hf.
annað hvort til framleiðslu á peys-
um til sölú tilbúnum eða gefur út
prjónauppskriftir til viðskiptavina
sinna. þj
Byggöastofnun veitir lán til útgerðarinnar:
TÆPAR 80 MILLJ.
TIL FIMM ADILA
Lánin fara á fjóra útgeröarstaöi
Stjórn Byggðastofnunar sam-
þykkti s.l. miðvikudag samtals 77
milljóna króna lánveitingar til 5
útgerðarfyrirtækja vegna skipa-
kaupa til hráefnisöflunar fyrir fisk-
vinnsluna á viðkomandi stöðum.
Lánin fara á fjóra útgerðarstaði þar
sem ástand er slæmt að þessu leyti
eða stefnir í óefni, að mati stofnun-
arinnar og eru ætluð til að leysa úr
þeim málum sem hvað brýnust eru.
Stærstu upphæðina, 30 millj. kr.,
fær Hraðfrystihús Grundarfjarðar
til kaupa á tveim skipum, togaranum
Gauti GK-224 og Skipanesi SH-608,
sem er 137 tonna skip,
Hraðfrystihús Keflavíkur hf. fær ,
20 millj. kr. til að koma í veg fyrir
sölu togara fyrirtækisins frá Suður-
nesjum, eins og skýrt er frá annars-
staðar á síðunni. Til Keflavíkur fara
og 10 millj. kr. sem Þorsteinn og
Örn Erlingsson sf. fá til kaupa á
70-80 rúmlesta skipi er gert yrði út
frá Suðurnesjum.
Þá voru samþykktar 10 millj. kr.
Fösíudagur 30. janúar 1987
Farmannadeilan:
Miðlunar-
tillaga
ræddí
gærkvöldi
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari lagði í gær fram
miðlunartillögu í deilu undir-
manna á kaupskipum og kaup-
skipaútgerða. Kom þessi tillaga
nokkuð á óvart þar sem óvanalegt
er að slík tillaga komi fram þegar
jafn mikið ber í milli deiluaðila
eins og gerði í gær í deilunni.
Þegar Tíminn fór í prentun í
gær var ekki búið að greiða
atkvæði um tillöguna, en einhver
orðrómur var á kreiki um óá-
nægju kaupskipaútgerðarmanna.
Stafaði sú óánægja af því að þar
á bæ þótti mönnum sem meira
tillit væri tekið til hugmynda og
krafna sjómanna en útgerðarinn-
ar. Ekki tókst í gærkvöldi að fá
nákvæma útlistingu á efnisinni-
haldi miðlunartillögunnar.
-ES
til Suðurvarar hf. í Þorlákshöfn.i
Gert er ráð fyrir að breyta láns-
loforði til Suðurv.arar sem veitt var
vegna kaupa á raðsmíðaskipi þannig
að fyrirtækið geti keypt þrjú skip.
Suðurvör hf. hefur nú yfirtekið
Hraðfrystihús Eyrarbakka.
Að lokum eru Straumnesi hf. á
Patreksfirði ætlaðar 7 milljónir kr.,
en hráefnisskortur hefur háð fisk-
vinnslu þar og staðurinn misst burtu
Skip -HEI
Húsnæöisvandi FS:
Heill
skóla-
bekkur
fær ekki
skóla-
stofu
„Það er rétt. Húsnæðisvandinn
hjá okkur er mikill og einu sinni í
viku erum við með heilan hóp nem-
enda bókstaflega á götunni," sagði
Hjálmar Árnason, skólameistari
Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum,
aðspurður í gær.
Um nokkurt skeið hefur húsnæð-
isekla staðið eðlilegri kennslu á
Suðurnesjum fyrir þrifum, en jafnt
og þétt hefur fjölgað nemendum og
námssviðum við skólann. Um það
bil 900 manns nema við fjölbrautirn-
ar í dagsskóla, öldungadeild, starfs-
námssviði, námsflokkum o.fl. Flug-
liðabrautin er ekki lengur í boði hjá
FS.
„Við höfum stundum bjargað
kennslu með því að koma hópnum
sem útundan verður fyrir í bókasafn-
inu,“ sagði Hjálmar.
Nýbúið er að undirrita sámning
með sveitarfélögum ogmenntamára-
ráðuneyti um heimild til viðbygg-
ingar og er stefnt að því að henni
verði fulllokið í haust. Þá bætast við
sjö kennslustofur. Framkvæmdir
munu væntanlega hefjast í mars.
En betur má ef duga skal. „Þessi
viðbygging bætir aðeins úr sárasta
skortinum á kennslurými. Vandinn
verður enn fyrir hendi,“ sagði skóla-
meistarinn. þj