Tíminn - 31.01.1987, Síða 2
Fatasaumur Gerðubergi
Fyrirhugað er að halda 8 vikna námskeið í
fatasaumi í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi.
Kennslan fer fram á miðvikudagskvöldum 4
kennslustundir í senn.
Kennt verður að taka upp snið, breyta sniðum,
sníða og sauma eftir þeim.
Kennslugjald kr. 3.000.-.
Kennari: Rannveig Sigurðardóttir.
Innritun næstu daga á skrifstofu Námsflokkanna
símar 12992 og 14106.
c-5?w
Grafik - Myndmennt
Fyrirhugað er að halda 8 vikna námskeið í
Námsflokkum Reykjavíkur, Miðbæjarskóla. Kennt
verður á fimmtudagskvöldum 4 kennslustundir í
einu.
Kennari Svala Jónsdóttir.
Kennslugjald kr. 3.000.-.
Innritun næstu daga á skrifstofu Námsflokkanna
frá kl. 13-21 í símum 12992 og 14106.
Fyrirhugað er að halda 8 vikna námskeið í latínu
í Námsflokkum Reykjavíkur, Miðbæjarskóla.
Innritun næstu virka daga á skrifstofu Námsflokk-
anna frá kl. 13-21. Símar 12992 og 14106.
Námskeið í myndbandagerð
Fyrirhugað er að hefja sex vikna námskeið mið-
vikudaginn 11. febr. n.k. Kennsla fer fram í
Miðbæjarskóla og verða kenndar4 kennslustundir
2 kvöld í viku.
Megináhersla verður lögð á:
Kvikmyndasögu, mynduppbyggingu, eðli og notk-
un myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð auk
æfingar í meðferð tækjabúnaðar ásamt upptöku,
klippingu og hljóðsetningu eigin myndefnis
nemenda.
Innritun',næstu daga á skrifstofu Námsflokkanná
frá 13-21 í símum 12992 og 14106.
Umboðsmaður
óskast
Tímann vantar umboðsmann
í Garði. Upplýsingar í
síma 91-686300
Laugárdagur 31. januar 1987
2 Tímin.n
„Ég er sannarlega fylgjandi því að sem allra flestir komi til mótefnamælinga,“ sagði Ólafur Ólafsson, landlæknir á
blaðamannafundi um eyðni og baráttu gegn útbreiðslu hennar. Frá vinstri: Vilborg Ingólfsdóttir, deildarstjóri, Björg
Rafnar, veirufræðingur, Kristján Erlendsson, ónæmisfræðingur og Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir.
Landlæknir hvetur sem flesta að fara í mótefnamælingu:
Tímamynd: Sverrir
Smokkalag Bubba
á vinsældalista
- og kennslubæklingur um notkun þeirra í vinnslu
Sérfræðingar telja að um 300 til
400 íslendingar hafi nú þegar mót-
efni gegn eyðniveirunni, en vandinn
er að finna þá. Aðeins 7 af þeim 30
einstaklingum sem greinst hafa með
mótefni til þessa hafa komið til
mælinga af sjálfsdáðum og voru þeir
allir komnir þegar árið 1985. Allir
hinir hafa greinst vegna einkenna af
völdum veirunnar eða vegna skim-
unar. Að sögn landlæknis er það
reynslan bæði hérlendis og erlendis
að þeir einstaklingar sem helst
kynnu að vera smitaðir séu mjög
tregir til að koma til mótefnamæl-
inga af sjálfsdáðum, ef þeir eru
einkennalausir.
Um 1.500 manns hafa verið mót-
efnamældir síðan slíkar mælingar
hófust hér á landi. Það er um 1%
þeirra 150 þús. sem prófa þyrfti ef
mótefnamæla ætti alla islendinga á
ákveðnum aldri, eins og komið hefur
til umræðu að undanförnu. Hver
mótefnamæling kostar nú um 1.300
kr., þannig að kostnaðurinn við
mælingu 150 þús. manns væri nær
200 milljónum króna. Það er um
tífalt hærri upphæð en Vísindasjóð-
ur hefur til ráðstöfunar. Að mati
landlæknis og margra þeirra sér-
fræðinga sem hvað mest afskipti
hafa haft af málefnum eyðnisjúkl-
inga eru 200 milljónir miklir pening-
ar til að verja til eins verkefnis sem
allar líkur séu á að skila muni
takmörkuðum árangri - því eins og
að framan greinir telja menn að fáir
af þeim 300-400 manns sem verið er
að leita að mundu koma sjálfviljugir.
Landlæknisembættið telur því
ekki tímabært að skylda alla íslend-
inga á ákveðnu aldursbili í mótefna-
mælingu - enda yrði það ekki gert
nema með lögum frá Alþingi. Land-
læknir benti á að slíkum lögum yrði
heldur ekki fullnægt nema með lög-
regluaðgerðum til að ná í þá sem
ekki kæmu sjálfviljugir - en einmitt
í þeim hópi væri líklegast að flestir
hinna smituðu leyndust, samkvæmt
framansögðu.
Landlæknir lagði á hinn bóginn
áherslu á að allir landsmenn sem
Merkið sem gert hefur verið til að
auglýsa sölustaði smokka, sem að
skírlífi frátöldu eru taldir ein besta
vörn sem völ er á til varnar eyðni.
vilja geti komið til mótefnamælinga
og kvaðst hvetja sem flesta til að
gera það. Þeir sem áhuga hafi á að
fá mælingu geti leitað til heilsugæslu
og heimilislækna eða sérfræðinga á
sviði smitsjúkdóma og ónæmisfræði
á Borgar- og Landspítala eða leitað
sér nánari upplýsinga í síma 622280,
sem auglýstur er í dagblöðum.
Landlæknisembættið hefur nú
mælst til að öllum sem leita læknis
vegna kynsjúkdóma, konum við
fyrstu mæðraskoðun og þeim sem
gangast undir fóstureyðingu verði
bætt við þann hóp sem smits er leitað
hjá, en það eru sem kunnugt er
blóðgjafar, fíkniefnasjúklingar og
fangar.
Auk þess að hvetja sem flesta til
mótefnamælinga heldur Landlækn-
isembættið áfram þeirri víðtæku á-
róðurs- og fræðsluherferð sem það
hefur haft í gangi. Meðal þess sem
næst er á dagskrá er merking staða
sem selja smokka, og bæklingur um
notkun þeirra jafnframt því sem
áætlað er að senda bækling um eyðni
inn á hvert heimili með vorinu. Þá
er ekki ólíklegt að nýtt „smokkalag"
sem Valgeir Guðjónsson var fenginn
til að semja og Bubbi Morthens að
syngja, verði ofarlega á vinsældalist-
unurn áður en langt um líður, en
kynning þess er áætluð um næstu
helgi. -HEI
ALNÆMI, ZAIRE
140-
LOKASTIG _
I 'S -
,__________/ _ -A'
K ? ' l § - / \ I
1
1 SMITAÐIR.--"
rr 120 * . • \
0100L- -- •• "" 'l
: . .: . 1
i ■.
1X1 40 ■" 'S-'-ítv'Í
V------
. •
——-r1'- i
25 35 45 55 65
ALDUR
LEKANDI
ÍSLAND
ALDUR
Smokkar eru einnig vörn gegn öðrum sjúkdómum sem smitast með
samförum. Línuritið sýnir aldur þeirra er leita læknis vegna lekanda á íslandi
-75% á aldrinum 15-24 ára-skýrir einnig hvers vegna upplýsingaherferðinni
um eyðni er fyrst og fremst beint að ungu fólki. Það línurit er einnig mjög
líkt öðru um aldur smitaðra ■ Zaire, en sjúklingar á lokastigi eru u.þ.b. 5
árum eldri en þeir smituðu.
Foreldrar mótmæla ófremdarástandi dagvistunarmála:
Efna til foreldra-
göngu á mánudaginn
Foreldrasamtök barna á dagvist-
unarheimilum í Reykjavík ætla að
efna til fjölskyldugöngu nú á mán-
udaginn, kl. 16.30. Hér er þó ekki
um skemmtigöngu að ræða heldur er
tilefni göngunnar að vekja athygli á
því ófremdarástandi sem ríkir á
dagvistunarheimilum borgarinnar,
en þar skortir ekki aðeins dagvistun-
arrými heldur og lærðar fóstrur.
Þá valda lág laun því að manna-
skipti eru tíð á heimilunum og bitnar
það á börnunum, sem oft á tíðum
dveljast þar lungann úr deginum og
setja traust sitt á það fullorðna fólk
sem um þau annast. Hefur þessi
slæma staða auðvitað áhrif á foreldra
einnig sem og starfsfólk dagvistunar-
stofnananna.
Munu fóstrur leggja niður vinnu
þann l.maí nk. til að vekja athygli á
þessu ástandi.
Foreldragangan nú á mánudaginn
hefst við lögreglustöðina við Hlemm
kl.16.30 og verður gengið að Höfða
við Borgartún, þar sem fulltrúi borg-
arstjórnar mun taka á móti göngu-
fólki.
-phh
Dagvistunarmál hafa löngum veríð í
ólestri í Reykjavíkurborg og farnar
ófáar mótmælagöngur af þeim
sökum. Myndin sýnir t.d. fund for-
eldra í mars 1979 þar sem er krafist
úrbóta í dagvistunarmálum og nú á
mánudaginn verður enn á ný efnt til
hliðstæðra aðgerða. Þá munu for-
eldrasamtök barna á dagvistunar-
heimilum efna til göngu frá Hlemmi
að Höfða og afhenda þar fulltrúa
Reykjavíkurbæjar mótmæli sín
vegna þess ófremdarástands sem nú
ríki í þessum málum.
Tímamynd G.E.