Tíminn - 31.01.1987, Page 6
6 Tíminn
Laugardagur 31. janúar 1987
ÚTLÖND
; FRÉTTAYFIRLIT
WASHINGTON - Nýjar
upplýsingar ( sambandi við
vopnasöluna til írans komu
fram í skýrslu frá nefnd innan
öldungadeildar Bandaríkja-
þings en hinsvegar var tekið
fram að engin sönnunargögn
lægju fyrir sem bentu til að
Reagan Bandaríkjaforseti
hefði vitað að hluti af gróðan-
um af vopnasölunni hefði farið
í að styrkja Contra skærulið-
ana í Nicaragua.
MOSKVA — Sovéskyfirvöld
sögðu að tveir þekktir andófs-
menn, þeir Anatoly Koryagin
og Sergei Khodorovich, væru
lausir úr vinnubúðum og mættu
flytjast til Vesturlanda.
LUNDÚNIR — Hópur upp-
reisnarmanna í Sómalíu viður-
kenndi að hafa í haldi tíu
franska hjálparstarfsmenn
sem þeir rændu í norðurhluta
landsins í síðustu viku. Hópur-
inn lofaði að þeiryrðu leystir úr
haldi án skilyrða.
BEIRÚT — Walid Jumblatt
leiðtogi drúsa tók að sér að
skipuleggja leit að Terry Waite
sendimanni ensku biskupa-
kirkjunnar. Waite sem reynir
að semja um lausn vestrænna
gísla í Líbanon sást síðast í
vikunni sem leið í Bekaadaln-
um ( austurhluta landsins.
TEHERAN — Stjórnvöld í
iran sögðu marga hafa særst
eða látist í loftárásum íraka á
hina sögulegu borg Shiraz í
vesturhluta landsins og einnig
skýrðu þau frá loftárásum á
borgina llam. í Baghdad sögðu
íröksk stjórnvöld að herflugvél-
ar þeirra hefðu gert árásir á
borgirnar í hefndarskyni og
myndu halda áfram loftárásum
þanqað til íranar samþykktu
að Dinda enda á stríðið á
sanngjarnan hátt.
BEIRÚT — Tvær sprengjur
sprungu með stuttu millibili í
Beirút, önnur í kristna hlutan-
um og hin þar sem múslimar
ráða ríkjum.
Suöur-Afríka:
Kosningar fyrir hvíta
Japan:
Vinsældir Nakasone minnka verulega
Öeining meðal hvíta minnihlutans og neyðarástandslög
gætu sett svip sinn á baráttuna fyrir kosningarnar þann 6. maí
Tokyo-Reutcr
Ef marka má skoðanakönnun sem
gerð var nýlega eru vinsældir Yas-
uhiro Nakasone forsætisráðherra
Japans nú minni en nokkru sinni
áður síðan hann settist í valdastólinn
árið 1982.
Það var dagblaðið Yomiuri
Shimbun sem birti niðurstöðurskoð-
anakönnunarinnar í gær og þar kom
• fram að aðeins 38,1% aðspurðra
studdu Nakasone og ríkisstjórn
hans. f desember fékk stjórnin hin-
, svegar stuðning 47,6% aðspurðra í
sambærlegri skoðanakönnun.
Dagblaðið sagði hinn mikla mun
á fylgi stjórnarinnar nú og í desem-
ber aðallega stafa af nýjum og óvin-
sælum skattalögum sem og þeirri
ákvörðun hennar að hætta við tak-
mörkun á útgjöldum til varnarmála,
takmörk sem í gildi hafa verið síð-
ustu tíu árin.
HARARE — Brian Mulroney
forsætisráðherra Kanada gaf í
skyn (lok fjögurra daga heim-
sóknar sinnar til Zimbabwe að
Samveldisbandalagið hygðist
leita nýrra leiða til að ráða bót
á kynþáttaaðskilnaðarstefnu
Suður-Afríkustjórnar.
Höfðaborg - Reuter
P. W. Botha forseti Suður-Afríku
tilkynnti í gær að kosningar fyrir
hvíta minnihlutann myndu fara fram
þann 6. maí næstkomandi. Yfirlýs-
ing Botha kom á sama tíma og
miklar deilur setja svip sinn á flokk
forsetans, hinn ráðandi Þjóðarflokk.
Botha tilkynnti um kosningarnar í
opnunarræðu sinni á þingi. Ljóst er
að neyðarástandslögin í landinu
munu hafa mikil áhrif á kosningabar-
áttuna.
Skömmu áður en forsetinn talaði
á þingi sagði einn helsti stuðnings-
maður Þjóðarflokksins, Dennis
Worrall, af sér embætti sem sendi-
herra landsins í Bretlandi. Worrall,
sem áður var þingmaður flokksins,
sagði af sér í mótmælaskyni við
getuleysi stjórnarinnar í að koma
umbótum á aðskilnaðarstefnunni í
framkvæmd.
Þjóðarflokkurinn á ekki einungis
undir högg að sækja fylgi umbótas-
inna heldur hafa margir hægrimenn
Nakasone hefur hingað til verið
einn vinsælasti forsætisráðherra Jap-
ana og hefur meira en helmingur
þjóðarinnar stutt hann og stefnu
hans meira og minna síðustu tvö
árin.
Wcllington-Rcutcr
Fyrirtæki í Nýja Sjálandi hefur
hafið sölu á ósamsettum líkkistum
sem geyma má upp á háalofti og
síðan setja saman þegar við á, þó
tæplega oft af þeim sem þarf á kistu
að halda.
Clarry Petterson heitir eigandi
fyrirtækisins og lætur hann búa til
kisturnar í fimm stærðum og er sú
dýrasta seld á sem samsvarar rúmum
níu þúsund íslenskum krónum.
í „kistupakkanum" er að finna
nákvæman upplýsingarbækling um
hvernig eigi að setja hlutinn saman
og einnig fylgja skrúfjárn og nafn-
plata með.
„Við höfum prófað þær (kisturn-
ar) með því að setja einn smiðanna
í eina og hent honum til og frá í
verkstæðinu og við fylltum eina af
sandi og bárum hana marga hringi í
kringum lóðina," sagði Petterson.
Petterson tekur við lánakortum
þar sem hann býst við að fólk líti
frekar til framtíðarinnar þegar það
kaupir sér svona kistu.
sagt sig úr flokknum og talið hann
ekki nógu öflugan í að halda aðskiln-
aðarstefnunni á lofti í hvívetna.
í ræðu Botha kom ekkert fram
sem benti til að neyðarástandslögun-
um yrði breytt til að tryggja eðlilegri
kosningabaráttu en samkvæmt
lögunum mega þingmenn, utan ráð-
herrar, ekki tjá sig nema takmarkað
í fjölmiðlum. Þetta ásamt verulegri
sundurþykkju í hópi hvíta minni-
hlutans þykir benda til að kosninga-
baráttan nú verði harðvítugri en
nokkru sinni síðan Þjóðarflokkurinn
komst til valda árið 1948.
Ekki mátti heldur greina nokkurt
í ræðu forsetans sem benti til að
breytinga væri að vænta á kynþátta-
aðskilnaðarstefnunni, stefnu sem
gerir 24 milljónum blökkumanna,
um þrír fjórðu hluta þjóðarinnar,
ókleift að kjósa í þingkosningum.
Efnahagssérfræðingar töldu í gær
fátt benda til þess að kosningarnar
myndu hafa mikil jákvæð áhrif á
til sölu
Botha forseti flytur hvítum Suður-Afríkubúum boðskap sinn í sjónvarpi:
Ekki er víst að boðskapur hans í kosningabaráttunni verði öllum hvítum
þegnum landsins að skapi
efnahagslíf landsins en þar hafa
vandamálin hlaðist upp á undanförn-
um mánuðum. Hugsanlegt er þó að
hinar venjubundu aðgerðir ríkis-
stjórnar fyrir kosningar t.a.m. lækk-
un skatta og launahækkanir muni
örva efnahagslífið í einhvern tíma.
Efnahagur Suður-Afríku hefur
versnað hægt og sígandi síðustu þrjú
árin vegna hins pólitíska óróa í
landinu sem kostað hefur meira en
2300 manns lífið á þessu tímabili.
Að auki hafa vestrænar þjóðir beitt
Suður-Afríkustjórn viðskiptaþving-
unum vegna aðskilnaðarstefnu
hennar og neyðarástandslög hafa
verið í gildi síðustu sjö mánuðina,
báðir þættirnir hafa aukið á efna-
hagsvandann sem Botha og stjórn
hans þarf að glíma við.
Nakasone ásamt Helmut Kohl kanslara Vestur-Þýskalands: Vinsældir japanska forsætisráðherrans hafa
minnkað verulega.
Evrópubandalagið:
Svínakjötsbirgdir
hlaðast upp
Það er víðar en hér á landi sem
bændur geta lent í því að erfitt
reynist að selja kjöt. Nýjustu fréttir
frá aðalstöðvum Evrópubanda-
lagsins í Brússel herma að mikill
birgðavandi sé nú kominn til sög-
unnar að því er svínakjöt varðar.
Nú í janúar hefur verið stöðugt
verðfall á svínakjöti í öllum lönd-
um Evrópubandalagsins, nema
helst í Grikklandi og á Ítalíu.
Jafnframt því hefur verð á svína-
fóðri þó lækkað líka, en sú verð-
lækkun er talin hafa náð botni.
Verðlækkunin á kjötinu er hins
vegar talin munu halda áfram
a.m.k. fram að páskum, m.a.
vegna þess að í febrúar og mars
stefnir í nær 6% umframframboð.
Núverandi birgðir í öllum Evrópu-
bandalagslöndunum eru orðnar
um hundrað þúsund tonn.
Eins og venjan er í slíkum tilvik-
um hefur bandalagið gripið til þess
að greiða fyrir birgðasöfnun með
greiðslu geymslukostnaðar. Einnig
er útflutningur í athugun, en hann
er pólitískum erfiðleikum bundinn
vegna viðhorfa Bandaríkjamanna.
Framleiðendur knýja fast á um
aðstoð, t.d. með aukinni geymslu-
aðstoð, niðurgreiðslum og útflutn-
ingi.
Það er út af fyrir sig ekki nýtt að
birgðavandamál vegna kjöts komi
upp í Evrópubandalaginu. Meðal
annars hafa þar lengi safnast miklar
birgðir af nautakjöti. En hitt er
nýtt að birgðir safnist og verð falli
bæði á nauta- og svínakjöti í einu.
Nýja Sjáland:
Ósamsettar
líkkistur