Tíminn - 01.04.1987, Page 20
Um svipað Iey(i og borgarallokksmenn fcngu úrskurð Landskjör-
sljórnar um að framboð þeirra á Vestfjörðum væri gilt leit dagsins Ijós
stcfnuskrá llokksins. Ekki var seinna vænna þar sem flokkurinn cr nií
samkvæmt skoðanakönnunum sá næststærsti á landinu. í stuttu máli
má scgja að hún sé kcimlík stefnuskrá móðurflokksins, en með vissum
tilbrigðum. Borgaraflokknum þykir t.d. sjálfsagt að ríkissjóður sé
rekinn hallalaus í góðærum, en vill jafnframt leggja af tekjuskatt, fella
niður eða lækka tolla og vörugjöld, auk þess scm laun verði
sambærileg við nágrannalöndin.
Borgaraflokkurinn vill að „varnarsamningurinn“ verði endur-
skoðaður reglulega, en jafnframt að „varnarliðið“ kaupi framleiðslu-
vörur af landanum. Flokkurinn vill setja nýja löggjöf um fóstureyðing-
ar, enda vill hann stuðla að líli en ekki eyða því. Lögð er áhcrsla á
styrkingu sérskóla og sjálfstæðra mcnntastofnana. Flokknum er annt
um íslcnska tungu og er á móti mengun.
Mokkurinn vill leggja niður kvótakerfi í landbúnaði og sjávarútvegi,
sem og Alþjóða hvalveiðiráðið. Þá vill Borgarailokkurinn malbika
hringveginn í einum rykk og fækka þingmönnum.
1917
70
X n a
1987
. . 1/. ivIA\|NO
Tíminn
iiiii■iiiiii »biim i'i ii r iiiii—i
Skoöanakönnun Tímans um fylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík:
Albert einvaldur
Fær hreinan meirihluta - Sjálfstæðisflokkurinn hruninn
Flokkur:
%
|A
■c
|B
■ G
■ V
|m
■ s
Alþýöuflokkur:
■■ 9,5%
Framsóknarflokkur
■■ 6,3%
Bandalag jafnaöarm.
| 0.5%
Sjálfstæöisflokkur
■■■■I 13,1%
Alþýöubandalag
■■ 10,3%
Samt.um kvennalista
■HH 8.5%
Flokkur mannsins
lo,5%
Borgaraflokkurinr
Fjöldi
48
32
66
53
43
260
51.3%
Alls: 100,0% 508
Flokkur Alberts Guðmundsson-
ar, Borgaraflokkurinn fcngi hrein-
an meirihluta í Reykjavík cf gcngið
yröi til kosninga í dag, I. apríl
samkvæmt skoðanakönnun
Tímans. Fær Borgaraflokkurinn
51,3% fylgi í lieykjavík. F.kki eru
forsendur til að reikna út þingfylgi
flokkanna á landsmælikvarða, cn
Ijóst er að þessar niðurstöður gefa
Albcrt Guðmundssyni a.m.k.
helming þingsæta í Fieykjavíkur-
kjördæmi og styrkja mjög stöðu
hans á landinu öllu.
En þetta er ekki eina sögulega
niðurstaðan sem má lesa út úr
þcssari könnun. Sjálfstæðisflokk-
urinn cr hruninn og ekki ncma
svipur hjá sjón frá því sem var fyrir
rctt tæpri viku! Sanikvæmt könnun
Tímans nýtur Sjálfstæðisflokkur-
inn fylgis aðeins 13,1% kjósenda.
Aldrei fyrr hafa slíkar náttúru-
hamfarir átt scr stað á sviði ís-
lenskra stjórnmála og þótt víðar
væri leitað og eiga þessar sviptingar
eflaust eftir að verða stjórnmála-
fræðingum rannsóknarverkcfni um
ókomna tíð.
Sökum þess hve niðurstöður
könnunarinnar lágu seint fyrir, cða
ekki fyrr én eftir miðnætti náðist
ckki í íslenska stjórnmálalciðtoga
né aðra til að tjá sig um þessa
sögulegu og nánast ótrúlegu niður-
stöðu. Þrátt fyrir þau skekkjumörk
sem finnast í könnun af þessu tagi,
cr hér greinilega um afgerandi
brcytingar í íslenskum stjórnmál-
unt að ræða.
Niðurstöður
könnunarinnar
Úrtakið í könnuninni taldi 800
manns og var jafnt skipt á milli
kynja.Aðcins var spurt í Reykja-
vík og voru svarendur á aldrinum
18 ára til áttræðs. Alls svöruðu
620, þannig að svarprósenta er
77,5% sem telst gott. Ef aðeins
cru taldir þeir sem tóku afstöðu í
könnuninni eru niðurstöður cins
og sést á töflunni að ofan.
Hcildarniðurstöður urðu þessar:
A: Alþýðutl. 7,7% 48
B: Framsóknarfl. 5,2% 32
C: Bandalag jafnaðarm. 0,4% 3
D: Sjálfstæðisfl. 10,6% 66
0: Alþýðubandalag. 8,5% 53
V: Samt.um kvennal. 6,9% 43
M: Flokkur mannsins. 0,4% 3
S: Borgaraflokkur. 41,9% 260
Svara ekki: 4,0% 25
Óákvcðnir: 14.0% 87
Alls: 100,0% 620
Fylgi annarra flokka en „borg-
araflokkanna", er ekki eins mikl-
um breytingum háð, en þó hafa þar
augljóslega átt sér stað óvenju-
miklar breytingar. Alþýðuflokkur-
inn tapar miklu cf miðað er við
síðustu skoðanakönnun DV og
hefur greinilega tapað fylgi til
Albcrts, fær nú 9,5% fylgi. Sam-
kvæmt þessum tölum er formaður
Alþýðuflokksins, Jón Baldvin ör-
ugglega úti.
Framsóknarflokkurinn bætir
heldur stöðu sína í höfuðborginni
og fær 6,3%, Alþýðubandalag fær
10,3% . Kvennalistinn fær8,5% og
bætir enn við sig. Ónákvæmur
reikningur sem aðeins tekur mið af
Reykjavík og er því ekki réttur
gefur flokkunum eftirfarandi þing-
mannatölu:
Alþýðuflokkur fær 2,Framsókn
fær I, Sjálfstæðisflokkur fær 2, en
þess ber að geta að atkvæði annars
staðar á landinu nýtast honum vel,
þannig að hann getur reiknað með
a.m.k. einu sæti til viðbótar í
Reykjavík. Alþýðubandalag
fengi 2 þingmenn, en Borgara-
flokkurinn fengi 10. Það ber hins
vegar að ítreka að þessar tölur gefa
ckki rétta mynd, þarsem könnunin
náði aðeins til Reykjavíkur.
Gífurlegt
óveður á
Norðaustur*
landi
- fjárhús fuku ofan af
kindum á Melrakka-
sléttu
Mikið óveður hcfur geisað um
norðanvert landið. í gær fauk allt
lauslegt og raunar líka það sem fast
átti að vera. Bátar voru víða hætt
komnir í höfnum og sukku margar
trillur. Þök og þakplötur rifnuðu
upp undan veðurofsanum. og fuku
t.d. fjárhús á Miðtúni á Melrakkas-
léttu. Á Húsavík slitnaði upp danskt
flutningaskip sem bundið var þar og
rak það inn í höfnina. Þó tókst að
bjarga smábátum undan skipinu og
síðan að binda það aftur.
Skólastarfi var víða frestað og í
Hafralækjarskóla voru í gærkvöld
börn og kennarar sent ætluðu að
hafast þar við uns veðrinu slotaði.
Almannavarnir á Norðurlandi ráð-
lögðu fólki að fara ekki út úr húsi.
Veðurstofangafígærút óveðurs-
aðvörun, en veðurfræðingar eru sem
kunnugt er nú í verkfalli. Á norð-
austur horni landsins var veðurhæð-
in um 11 til 12 vindstig.
-BG
Gullhnefi á Borginni
- ákveöiö aö setja upp sérstakan minnisvaröa á Hótel Borg
Jólaföstu-
samningar
sprungnir?
Nýgerður kjarasamningur
kcnnara í HÍK við ríkið hefur
valdið talsverðri ólgu meðal for-
svarsmanna launþega og atvinnu-
rekenda á almennum vinnumark-
aði. Telja þessir aðilar að þær
launahækkanir sem kennarar
hafa náð séu talsvert umfram það
sem samið var um í jólaföstu-
samningunum, þó svo að erfitt
væri að gera sér nákvæma grein
fyrir hversu mikil hækkun fælist í
kennarasamningnum.
Viðmælendur Tímans í verka-
lýðshreyfingunni sögðu þó í gær
að ef samningar annarra opin-
berra starfsmanna yrðu á svipaða
lund gæti það haft í för með sér
að þeir færu fram á endurskoðun
samninga sinna, -BG
Minnismerki um snöggan ogglæsi-
legan uppgang Borgaraflokksins
vcrður sctt upp á Hótel Borg. Gunn-
ar Jón Árnason, borgarlistamaður,
hefur tekið að sér gerð verksins, sem
verður gullhúðaður hnefi, sem rís
upp af stöpli.
Óopinberar höfuðstöðvar einlæg-
ustu stuðningsmanna Alberts
Guðmundssonar hafa lengi verið á
Hótcl Borg. Þau ráð sem þar hafa
verið brugguð í tímanna rás hafa nú
borið ríkulegan ávöxt, Borgara-
flokkinn sem þegar er orðinn jafn
burðugur og sjálft Reykjavíkur-
íhaldið og flokkseigendaklíkunni
skákað út í horn.
Félagarnir á Borginni hafa ákveð-
ið að setja upp minnismerki um
sigurinn yfir flokkseigendafélaginu
og því valinn staður á Hótel Borg.
Minnismerkjanefnd Borgara-
flokksins velti í fyrstu fyrir sér að
setja upp veggskjöld með mynd af
Albert og greypa í hann einkunnar-
orðin “cldur í æðum“, en cftir kjafts-
höggið góða var nefndin cinhuga urn
að steyttur hnefi hæfði listaverkinu
best. Er þar lögð áhersla á að
forystumaður Borgaraflokksins er
þess albúinn að sýna öllum þeini í
tvo heimana, sem ekki hlíta vilja
hans.
Stöpullinn með gullhúðaða hnef-
anum verður settur upp nákvæmlega
á þcim stað þar sem kommástrákur-
inn fékk á snúðinn. Eigendur Hótel
Borgar hafa góðfúslega veitt leyfi
fyrir uppsetningu listaverksins og
þykir hciður að því að fá að prýða
húsakynnin nteð svo veglegum
minnisvarða um merkan atburð.
Gunnar Jón Árnason myndhöggv-
ari sagði í viðtali við blaðið að hann
væri búinn að gera frumdrög að
verkinu og vilji hann hafa hnefann
úr massívu gulli, en nefndin telur að
gullhúð dugi. Ef fjármagn fæst mun
listamaðurinn fá sitt fram.
Leitað mun verða til nokkurra
stórfyrirtækja til að fjármagna lista-
verkið og hefur fjármálaráðherra
gefið heimild til að framlög verði
frádráttarbær frá skatti.
Frumdrög listamannsins að högg-
myndinni Gullhnefanum. Upp-
drættir höggmyndarinnar verða til
sýnis á Hótel Borg síðdegis í dag.
Skreiðarskuldirnar:
Enn fær Naidoo frest
Sjö víxlar fallnir: Frestur veittur til 20. apríl
Enn hefur skreiðarkaupmaðurinn
Sam Naidoo fengið frest hjá bresk-
um dómstólum á máli því sem
Skreiðarsamlagið hyggst höfða á
hendur honum. Þetta er þriðji frest-
urinn sem Naidoo er veittur í málinu
og rennur hann út í kringum 20.
apríl.
Naidoo keypti af íslenskum fram-
leiðendum, Skreiðarsamlaginu og
íslensku umboðssölunni, skreið fyrir
um 160 milljónir króna í fyrravor og
sumar sem ekki eru bankatryggðar.
Samið var um greiðslurnar á víxlum.
Nú þegar hafa sjö þeirra fallið án
þess að Naidoo hafi greitt svo mikið
sem eyri. Þrálátur orðrómur gengur
nú, þess efnis að Naidoo hafi fengið
greitt fyrir skreiðina í nairum (gjald-
miðli Nígeríu) en ekki fengið gjald-
eyrisyfirfærslur og því eytt þeim
peningum í Nígeríu.
Tíminn bar þá spurningu undir
Hannes Hall framkvæmdastjóra
Skreiðarsamlagsins hvort menn sæju
ekki orðið fram á það að þetta væru
tapaðir peningar. Hannes neitaði
því og sagði Sam Naidoo eiga tals-
verðar eignir, það hefðu þeir
kannað, og þeir gætu því gengið að
þeim. Hannes sagði að þó svo Na-
idoo fengi frest væri það ekki að
eilífu.
Greiðslur þær sem íslendingar
eiga útistandandi í skreiðarviðskipt-
um sínum eru hátt í átta hundruð
milljónir króna og er engan veginn
séð fyrir hvernig fer með þær greiðsl-
ur. Hvort þær verða borgaðar eða á
hversu löngum tíma. -ES