Tíminn - 24.05.1987, Síða 3

Tíminn - 24.05.1987, Síða 3
Sunnudagur 24. maí 1987 Tíminn 3 st6Sug.« **fir*/*"***'~~t'*° hóp eyön'SÍúWinga. reiði og máttleysi. Máttleysið þurfum við að viðurkenna fyrir sjálfum okkur og jafnvel öðrum en alls ekki að neita því að það sé til staðar. Þessi atriði hafa sérstaklega mikla þýðingu þegar um eyðnisjúklinga er að ræða. Ef við reynum að mæta þess- um aðstæðum sjúklingsins er eins víst að okkur takist að vaxa með þeim í kristnum skilningi á leyndardómum dauðans. Pessi kristni skilningur byggir á því að við skoðum baráttuna við dauð- ann í ljósi dauða Jesú Krists og upprisu hans. Unnið af kunnáttu Til þess að þeir sem að þessu starfa geti orðið að sem mestu liði og bestu er nauðsynlegt að þeir starfi í samvinnu við lækna og heilbrigðisyfirvöld á hverjum stað. Einnig er hægt að koma sér í samband við tengiliði Alkirkju- ráðsins sem er víða að finna á meðal safnaða landsins. Með því móti er eins víst að starfsemi safnaða innan kirkjunnar geti orðið að miklu gagni bæði til hjálpar sjúklingunum og einnig til hjálpar þeim sem annast þá. Það er ljóst að hægt er að fyrirbyggja útbreiðslu eyðni, að einhverju marki. Þjóðfélög verða að bregðast við af fullri alvöru eins og þegar hefur verið gert í þeim málum. Það skal áréttað í þessari frétt að hættan á smitun er fullt eins mikil í daglegri umgengni við fólk sem ekki hefur gengist undir athugun eða meðferð, jafnvel þótt ekki sé um svokallaða áhættuhópa að ræða. Smitunarhættan kallar á á- byrgara framferði allra þegna þjóðfélagsins en fram til þessa hefur það talið skorta. Hættan, sem eyðniveirunni hefur tekist að skapa, krefst þess að siðferði manna taki almennum og víð- tækum stakkaskiptum. Allar slíkar forvarnir þurfa að taka miðin út frá því hvernig veiran hagar sér og hvernig hún berst á milli. Hér er nánast hægt að tala um hagnýtar forvarnir sem unnt er að læra líkt og margt annað í hversdagslegum skóla lífsins. Sem stendur Skaðvaldurinn á bak við eyðni (Acquired Immunodeficiency Syndrome) er veira sem nefnd er HIV. Aðeins fjórðungur þeirra sem smitast af veirunni veikist alvarlega. Eyðniveiran berst á milli manna eftir þremur leiðum: - við samfarir við smitað fólk; - með því að sýkt blóð kemst inn í líkamann; - frá sýktri móður til fósturs. Við þessum smitunarleiðum er ekki hægt að sjá í öllum tilfellum en þó eru til ýmis dýr ráð, þó að ekki séu þau að sama skapi útgjaldasöm. Sú ofsa hræðsla, sem varað er við í grein þessari, hefur valdið því að upp hafa komið ýmsar sögur um aðrar smitunarleiðir veirunnar, en þær eru í flestum tilfellum hugarspuni. Veiran berst t.d. ekki með matvælum eða við venjulega snertingu eins og handartak og almenna um- gengni. Hún berst ekki í vatni eða í lofti. Hún berst ekki með aðstoð skordýra og þaðan af síður með hjálp klósettsetunnar. Það sem hollt er að hafa í huga varðandi forvarnir, til lengri tíma litið, er sú megin- regla að veiran á í miklu stríði við hreinlæti á öllum sviðum og henni gengur illa að komast upp á milli trygglyndi aðila í hjóna- bandi eða sambúð. Þýtt af KB. aiena Sundbolir Sundskýlur Sundgleraugu Sundhettur é 4 m £ h % m UJSiJPg ** * spomvöwmwN INGOLFS s ÓSKARSSONAR *■ i :é 4 *& m KlaDDursHg40. A HORHt KlAPmtSJKS oc emniscórv s:irrs3 ■■■: - -- •• . ..... • J

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.