Tíminn - 24.05.1987, Blaðsíða 11
Sunnudagur 24. maí 1987
Tíminn 11
H
JL JLeLGARBLAÐI Tím-
ans voru sýndar nokkrar teikn-
ingar frá Ólafsdal, eftir nemend-
ur þaðan, svo og hin og þessi
gögn önnur. Þótti rétt að kanna
hvort Játvarður vildi fræða les-
endur blaðsins um þær og um
almenn atriði í sambandi við
þessar gömlu heimiidir. Fer
samtalið við hann hér á eftir.
AKURVALTARI. Þrjár teikn-
ingar. Mælikvarði 1:8. Eftir
búfræðinginn Halldór
Friðjónsson frá Sandi í Aðal-
dal, seinna ritstjóra á Akur-
eyri. Glögg og nákvæm teikn-
ing.
Hvaða safn er þetta?
Þarna eru með í safninu plögg
ættuð frá undirbúningsvinnu Ás-
geirs Ásgeirssonar Torfasonar.
Árið 1977 kynnti hann í blöðum
fyrirhugaða útgáfu á Bréfasafni
Torfa í Ólafsdal í III bindum,
jafnvel IV. Ásgeir lést á árinu
1979. Ég fékk ekkert að sjá af
þessari undirbúningsvinnu Ás-
geirs, þó ég reyndi mikið til. Nú
sést þó að þar var einhver vísir
að. Þarna eru einkunnarorð og
tákn þessarar hugsuðu útgáfu.
Þarna er Ijósrit af bréfaflokkum
tveggja Saurbæinga, karls og
konu. Hvorugur flokkurinn tel
ég þó að eigi beint erindi til
almennings nú.
Þarna eru nokkur póstkort.
Hvað er merkilegt við þau?
Frímerkin eru prentuð á þau
og burðargjaldið borgað í verði
kortsins. Þarna er tekjustofn
sem Póstur og sími nota ekki
núna, en gætu hagnast á.
En teikningarnar. Viltu gera
grein fyrir þeim?
Myndin af ljánum þykir mér
stórmerkileg. Hún varðareinka-
leyfi. Hún er alls 5 teikningar af
ljá og hlutum af ljá, það er:
„Bjarnason’s Specification“,
dagsett 29. apríl A D (Anno
Domini) 1874, No. 1499, prent-
uð í London.
Þarna er enn ein sönnunin
fyrir að Torfi hafði tvær gerðir
af ljáum í takinu, eins og ég
sannaði reyndar í Sögu Torfa.
Þetta er sú gerðin sem kom
seinna fram og sú sem undir
varð í samkeppninni og saman-
burðinum við „skosku" ljáblöð-
in hans, bakkaljáina. Á þessum
ljáum vildi þjóið ýmist forskrúf-
ast eða hreinlega brotna af.
Þetta eru ljáirnir sem Magnús
kaupmaður og alþingismaður í
Bráðræði sagði um: „En ljáum
þínum er jeg reiður.“
Allt um það bera þessir ljáir
Torfa dásamlegt vitni. Þeir
sanna hvað hann lagði sig fram,
sanna að hann gat hugsað upp
og vildi koma í gagnið fullkomn-
um einjárnungum úr bitstáli,
ljáum líkt og Eylandsljáirnir
urðu 55 árum síðar.
Grein Torfa í Þjóðólfi í júní
1868, „Skoskir ljáir“, passar
hinsvegar í einu og öllu við
„Torfaljáina" góðkunnu, sem
urðu alþjóðareign.
Um teikningar nemendanna
almennt er þetta að segja:
Hver sá sem skoðar þessar
myndir af teikningum vel og
vandlega, kemst að raun um að
þeir sem að unnu hafa lært vel
til verka, svo vel að hrein unun
er á að horfa. Trúlegt er að þær
séu prófverkefni, a.m.k. sumar
hverjar.
Þess ber að minnast, að margt
fleira var smíðað í Ólafsdal en
hér er nefnt og sýnt.
oAj-s-s
HESTAREKA. Fjórar teikning-
ar. Mælikvarði 1:8. Eftir bú-
fræðinginn Markús Torfason
í Ólafsdal, seinna bónda þar
og kaupfélagsstjóra. Ná-
kvæm og skýr teikning.
Hestarekur flýttu mikið fyrir
við að jafna í flögum og við að
færa til hverskonar meðfæri-
leg jarðefni. Þær má kalla í
eðli sínu undanfara jarðýt-
unnar. Margar hestarekur
voru búnar til í Ólafsdal.
TÚNIÐ í ÓLAFSDAL haustið
1887. Mælikvarði 1:2000.
Teikning eftir brúfræðinginn
Samson Gunnlaugsson,
seinna bónda á Ingunnar-
stöðum í Geiradalshreppi í
Barðastrandarsýslu. Stærð
hvers vallar er sýnd í ferhyrn-
ingsföðmum. Gamla lagið var
að reikna dagsláttuna í Túni
900 ferfaðma, það er 30x30
lengdarfaðma. Takið eftir ör-
nefnunum. Allir 9 hlutar túns-
ins heita ákveðnu nafni og
tvö örnefni eru á kortinu.
UPPDRÁTTUR AF ÓLAFS-
DALSKERRUNNI. Þrjár teikn-
ingar Mælikvarði 1:12. Eftir
búfræðinginn Árna Sigurðs-
son sem kom í skólann frá
Geitaskarði í A.-Hún., seinna
útvegsbónda á Akri í Hrísey.
Þetta er listafalleg teikning,
enda voru hestakerrur frá
Ólafsdal vandaðir smíðisgrip-
ir, mestu búmannsþing og
hæfðu alveg íslenskum
hestum. Kerrur sem hestar
drógu ollu byltingu í flutning-
um og vinnubrögðum. Voru
sem kunnugt er undanfari
vörubílanna. Þær voru smíð-
aðar fjölmargar í Ólafsdal og
seldar víða um land.