Tíminn - 27.05.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 27. maí 1987
FRÉTTAYFIRLIT
ÚTLÖND
BUKAREST — Mikhail
Gorbatsjov Sovétleiötogi
ræddi um afvopnunarmál og
önnur alþjóðamál viö Nicolae
Ceausescu forseta Rúmeníu.
I gær birtust hins vegar fréttir í
sovéskum fjölmiölum sem gáfu
til kynna óánægju Sovétstjórn-
arinnar með efnahagslíf Rúm-
ena.
BRUSSEL — Varnarmála-
ráöherrar NATO ríkjanna voru
sammála um aö bæta hefö-
bundinn vopnabúnaö þar sem
líklegt væri aö minna yrði treyst
á kjarnorkuvopnavarnir í fram-
tíöinni.
SEOUL — Chun Doo Hwan
forseti Suöur-Kóreu lét forsæt-
isráðherra landsins og þrjá
háttsetta ráöherra víkja úr
stöðum sínum og skipaði aöra
í staðinn. Þessar breytingar
þóttu styrkja Roh Tae-Woo
enn frekar í sessi en talið er aö
Chun ætli aö gera hann að
eftirmanni sínum.
JAKARTA — Subroto
námu- og orkumálaráðherra
Indónesíu sagöi olíuverö muni
hækka hægt og sígandi og
veröa komið upp í allt aö 24
dollara áriö 1990.
VESTUR - BERLIN -
Elísabet Bretadrottning kom til*
Vestur-Berlínar þarsem haldið
er upp á 750 ára afmæli borg-
arinnar.
SUVA — Stuðningsmenn
Timoci Bavadra fyrrum for-
sætisráöherra Fijieyja, sem
steypt var af stóli í byltingu fyrr
í þessum mánuöi, efndu til
mótmælaverkfalls þar sem
mörgum búðum og skólum var
lokaö. Tilkynnt var um mat-
vælaskort víðs vegar á suöur-
eyjum Fijieyja.
JERÚSALEM — Sérstök
rannsóknarnefnd í israel
gagnrýndi leiðtoga landsins
harðlega vegna njósnara-
hneykslisins í Bandaríkjunum
er tengdist Jónatani Pollard.
KARIÓ — Tveir óþekktir
byssumenn særöu öryggisfull-
trúa bandaríska sendiráosins í
Kairóborg og annan banda-
rískan stjórnarerindreka þegar
þeir voru á leið til vinnu í
gærmorgun.
BAGHDAD - Rannsóknar-
nefnd frá bandaríska hernum,
sem kanna á tildrög árásarinn-
ar á bandarísku freigátuna
USS Stark, átti viöræöur viö
háttsetta embættismenn í
utanríkisráðuneyti íraks.
COLOMBO - Stjórnarher-
inn á Sri Lanka hóf stórsókn á
Jaffnaskaganum í því skyni aö
ná þar yfirráðum á sem
skemmstum tíma. Almennum
borgurum var ráölagt aö leita
skjóls í átián búöum sem settar
rio i
Peningamarkaöir:
Dollarauppsveifla
Lundúnir - Reuter
Bandaríkjadalur hækkaði í verði
á gjaldeyrismörkuðum í gær og var
seldur á meira en 1,80 þýsk mörk í
fyrsta skipti í mánaðartíma. Ástæð-
an fyrir hækkun dollarans var fyrst
og fremst sú að fjárfestendur trúðu
að vextir væru á uppleið í Bandaríkj-
unum.
Gullverð fór hinsvegar lækkandi
og var hver únsa seld á 449 dollara í
Lundúnum síðdegis í gær og hafði
verðið ekki verið lægra síðan 29.
apríl.
Fjárfestendur telja að Seðlabanki
þeirra Bandaríkjamanna muni
hækka vexti í landinu upp yfir þau
5,5% sem nú eru í gildi. Þeir trúa
ennfremur að þetta verði gert fyrir
fund helstu iðnaðarríkja kapítalíska
heimsins, sjö þjóða hópsins svokall-
aða, í Feneyjum sem hefst þann 8.
júní.
Dollarinn hefur verið að lækka
verulega í verði undanfarna mánuði
og hefur mikill viðskiptahalii við
útlönd og halli á ríkisbúskapnum
vestan hafs ekki gert hann álitlegan
í augum fjárfestenda. Verði vextir
hins vegar hækkaðir sýnir það vilja
Bandaríkjastjórnar að verja dollar-
ann gegn frekari lækkun og á það
veðjuðu fjárfestendur í gær.
Mílanóborg á Ítalíu:
Áróðursherferð
fyrir hjólreiðum
var misskilin
- höföu dreift 500 gulmáluöum hjólum
Milanó - Reuter
Borgaryfirvöld í ftölsku borginni
Mílanó þóttust heldur en ekki góð
er hafin var áróðursherferð fyrir að
bæjarbúar notuðust meira við reið-
hjól en blikkskrjóða sfna.
Herferðin hófst á sunnudag með
því að 500 gulmáluðum hjólum var
dreift um miðborgina og var hug-
myndin sú að íbúarnir gætu notað
þau að vild.
En í gærmorgun höfðu mcira en
helmingur hjólanna horfið gjörs-
amlega úr miðborginni og fimmtíu
önnur fundust eyðilögð eða með
sprungin dekk.
„Ég myndi nú ekki segja að
fólkið hafi stolið hjóíunum heldur
notað þau of mikið,“ sagði yfir-
maður umferðarmála í borginni í
gær og neitaði að láta svartsýnina
ná tökum á sér.
Frakkland:
BARBIE
BIRTIST
AFTUR
Lyon - Reutcr
Klaus Barbie fyrrum Gestapófor-
ingi var í gær færður fyrir rétt gegn
vilja sínum. Barbie var fluttur í
dómssalinn í Lyonborg í Frakklandi
af lögreglu en hann hefur undanfarn-
ar tvær vikur neitað að mæta við
vitnaleiðslur í málinu gegn honum
og setið sem fastast í klefa sínum í
fangelsi heilags Jósefs.
Hinn 73 ára gamli Barbie, sem
sakaður er um glæpi gagnvart
mannkyninu, virtist þreyttur þegar
hann birtist í réttarsalnum en brosti
þó. Hann var leiddur inn án hand-
járna en í fylgd lögregluforingja.
Barbie neitaði að svara spurning-
um dómarans, las aðeins upp yfirlýs-
ingu þar sem hann sagðist hafa verið
fluttur ólöglega frá Bólivíu til Frakk-
lands á sínum tíma og væri auk þess
í réttarsalnum gegn vilja sínum.
„Samkvæmt lögum er ég fjarver-
andi og mun ekki svara," sagði
Barbie.
Skosk þjóðernishyggja
beinist gegn Thatcher
hafa verió upp.
Rcuter -
Andstaða gegn íhaldsflokknum í
Skotlandi, og raunar andstaða við
stjórnun frá Lundúnum, er eitt
helsta vandamálið sem Margrét
Thatcher forsætisráðherra og flokk-
ur hennar þurfa að kljást við fyrir
þingkosningarnar þann 11. júní þar
sem Thatcher leitar eftir að verða
kosin forsætisráðherra þriðja kjör-
tímabilið í röð.
Skoðanakannanir í Bretlandi sýna
að Thatchcr og flokkur hennar hafa
töluverða forystu í atkvæðamagni.
Þetta á þó ekki við ef Skotland er
tekið eitt sér, þar á íhaldsflokkurinn
á hættu að missa rúmlega þriðjung
þingmanna sinna ef mark má taka á
könnunum sem gerðar hafa verið að
undanförnu.
Það hjálpar heldur ekki til að
íhaldsflokkurinn er einn stóru flokk-
anna sem er á móti því að gefa
Skotum takmarkaða sjálfsstjórn og
þing sem aðsetur hefði í Edinborg.
Malcolm Rifkind, sá ráðherra
Thatcherstjórnarinnar sem hefur
með málefni Skotlands að gera,
sagði á flokksráðstefnu í Perth í
þessum mánuði að flestir Skotar
myndu ekki styðja sjálfstætt þing-
hald þegar þeir kæmust að því að
það þýddi aukna skatta og væri
„ávísun á öngþveiti".
Dapurt efnahagsástand í Skot-
landi, sem hefur vcrsnað eftir að
verð á Norðursjávarolíu tók að
lækka árið 1985, hefurengu að síður
aukið á þjóðarstolt Skota og sjálf-
Já, það eru kosningar í nánd í
Bretlandi og almenningur fer ekki
varhluta af því eins og sést á þessari
skopmynd.
stæðishug þeirra. Árið 1979 var
síðast gerð tilraun til að koma á
stofn þingi með takmörkuð völd í
landinu en sú tillaga stjórnar Verka-
mannaflokksins var felld í þjöðarat-
kvæðagreiðslu.
Skoðanakannanir nú sýna að 70%
skoskra kjósenda aðhyllast slíkt
þing.
Um það bil þriðjungur af öllum
störfum í iðnaði þeirra Skota hefur
verið lagður niður síðan Thatcher
varð forsætisráðherra árið 1979 og
atvinnuleysi norðan landamæranna
er um 14% á meðan landsmeðaltal
er 10,9% og fer lækkandi.
Atvinnuleysi er ekki eina málið
sem mörgum Skotanum hefur mis-
líkað. Breytingar á skattakerfinu,
sem íhaldsstjórnin lét samþykkja á
þingi og prófaði fyrst í Skotlandi,
hefur einnig valdið gremju og finnst
mörgum að Skotland sé notað sem
tilraunasvæði þar sem Thatcher hafi
í raun ekki miklu að tapa vegna þess
hve fylgi hennar er lítið þar.
íhaldsflokkurinn ræður aðeins yfir
21 af þeim 72 þingsætum sem full-
trúar Skota sitja í á þingi í Westmin-
ster. Samkvæmt könnunum gæti
flokkurinn auðveldlega tapað að
minnsta kosti sjö þessara sæta til
annaðhvort Verkamannaflokksins
eða Bandalags frjálslyndra og jafn-
aðarmanna, eða jafnvel til Skoska
þjóðernisflokksins.
Hinn sterki persónuleiki Thatc-
hers gæti síðan átt eftir að hafa
neikvæð áhrif á þjóðernissinnaða
Skota í kosningabaráttunni. „Það er
til skosk þjóðernishyggja sem frú
Thatcher getur að sjálfsögðu ekki
haft,“ sagði einn af helstu talsmönn-
um Skota, Gavin Strang sem er
meðlimur Verkamannaflokksins, á
þingi nýlega.
Pravda
Prövdu
Moskva - Rcutcr
Bandarískur ferðamaður, 69
ára að aldri, leit inn á ritstjórn
Prövdu, dagblaðs sovéska
kommúnistaflokksins, nú í vik-
unni og kynnti sig sem herra
Pravda. Frá þessu var sagt í frétt
í blaðinu í gær.
„Ég ætla að vera hrcinskilinn,
það er ekki auðvelt að lifa í
Bandaríkjunum berandi slíkt
nafn“, hafði blaðið eftir Baron
Pravda frá Miami.
Herra Pravda, sem fæddur er í
Bandaríkjunum, sagðist lengi
hafa viljað heimsækja höfuð-
stöðvar blaðsins og loks látið
verða af því.
Pravda sagðist hafa komið til
Savétríkjanna þrisvar sinnum
sem ferðantaður og þær skoðanir
sem hann hefði myndað sér á
landi og þjóð hefðu breyst rnikið:
„Þið eruð ekki svo hræðilegir",
sagði hann í samtali við Prövdu,
sem þýðir „sannleikur" á rúss-
nesku.
And tfae caznfaí^D. do«n&
Start t»Ut«mornow l