Tíminn - 30.06.1987, Blaðsíða 4
;4 Tíminn
Þriðjudagur 30. júní 1987.
Ef ellilífeyrisþegar vilja spila á tryggingakerfið:
UM 40% „GRODI“ AF
SKILNADI í ELLINNI
Um 174 þúsund króna hækkun
bótagreiðslna frá Tryggingastofnun
Fáir munu hafa mciri möguleika
til að hagnast á að svíkja út fé úr al-
mannatryggingakerfinu en tekj ulitlir
giftir ellilífeyrisþegar sem njóta
fullrar tekjutryggingar. Með því að
skilja í ellinni geta þeir aukið sam-
eiginlegar ráðstöfunartekjur sínar
frá Tryggingastofnun ríkisins úr um
431 þús. kr. á ári upp í um 605 þús.
krónur, þ.e. um 174 þús. kr. eða um
40%. Þarna er hlutfallslega um enn
meiri „hagnað“ af hjónaskilnaði að
ræða en hjá ungum hjónum með
börn, sem prcstar, á fundi í Borgar-
nesi, telja aðopinbera bóta-, skatta-,
og lánakcrfið freisti nú til að skilja til
málamynda, til þess að gcta svikið fc
og fyrirgreiðslu út úr n'kissjóði og
bæjar- og svcitarsjóðum.
Tölurnar að framan miðast við
bótaupphæðir Tryggingastofnunar
eins og þær cru i júní s.l. Hjón mcð
Iágar cða engar tekjur fcngu þá
greiddar samtals 35.905 kr. (17.953
kr. hvort) á mánuði í ellilífeyri og
fulla tckjutryggingu, cða tæplcga
431 þús. krónur á ári. Samsvarandi
bætur til cinstaklinga voru þá 20.747
kr. á mánuði og að viðbættri hcimil-
isuppbót til þcirra scnt búa cinir í
hcintili eru bæturnar 25.222 kr. á
mánuði eða tæplega 303 þús. krónur
á ári. Samanlagðar greiðslur til
hjóna niyndu því hækka úr um 36
þús. kr. á mánuði í 50.500 kr. á mán-
uði ef þau slitu hjónabandinu og öfl-
uöu scr a.m.k. lögheimilis á sitt
hvorum staðnum.
Árið 1985 voru um 2.500 hjón scm
nutu ellilífeyris og tekjutryggingar
frá almannatryggingum. Það mundi
því kosta Tryggingastofnun um 400
milljónir króna á ári ef þau notfærðu
sér öll þcssa auðvcldu „tckjuöflunar-
lcið". Alltir bótatölur scm nefndar
voru gilda að sjálfsögðu einnig um
hjón sem bæði eru tekjulágir ör-
orkulífeyrisþcgar. - HEI
Tívolíbásarnir hafa alltaf dreg-
ið að.
Hlíðar-
garðs-
hátíð
Hlíðargarðshátíðin í Kópa-
vogi verður haldin 2. júlí ef
veður leyfir. Hátíð þessi er
fastur liður í starfi vinnuskól-
ans og jafnan haldin fyrri hluta
júlí. Þar hefur (Verið ýmislegt
um að vera t.a.m. leikir og
þrautir, tívólíbásar, ýmis leik-
tæki og minigolf svo eitthvað
sé nefnt. Hundruð manna hafa
lagt leið sína í Hlíðargarð á
þessa hátíð undanfarin sumur.
Lögð er áhersla á að ungir sem
aldnir geti unað t' garðinum
þessa dagstund og fundið
eitthvað við sitt hæfi. Veitingar
hafa og verið seldar á staðnum
og ágóði runnið til sérstaks
málefnis. Nú mun hann renna
til fatlaðra ungmenna úr Kópa-
vogi sem fara í sumarbúðir til
Danmerkur seinna í sumar.
Eins og áður sagði er hátíðin
fyrirhuguð þann 2. júlí en frest-
ast til næsta góðviðrisdags þar
á eftir ef með þarf.
Félag byggingafulltrúa:
BRÝNT AÐ ENDURSKOÐA
BYGGINGARLÖGGJÖFINA
Félag byggingarfulltrúa sam-
þykkti eftirfarandi ályktun á aðal-
fundi félagsins fyrir skömmu.
Félag byggingarfulltrúa er félags-
skapur byggingarfulltrúa í landinu,
stofnað m.a. í þeim tilgangi að koma
á framfæri tillögum til úrbóta í
byggingalögum og reglugerðum,
stuðla að aukinni faglegri þekkingu
félagsmanna og til þess að efla
byggingareftirlit í landinu.
Félaginu hefur verið ljóst að
ófremdarástand ríkir á mðrgum
sviðum byggingariðnaðarins, eink-
um varðandi reglugerðir og staðla
þá sem stuðst er við í hönnun. í
framhaldi af hinni miklu umræðu
undanfarið varðandi þolhönnun
húsa, vilja byggingarfulltrúar vekja
athygli á því að þolhönnunin er
aðeins einn þátturinn í hönnun hvers
mannvirkis.
Jafnframt harmar Félag bygging-
arfulltrúa þann trúnaðarbrest sem
nú virðist orðinn við Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðarins í kjöl-
far könnunar á burðarþoli bygginga
í Reykjavík.
Byggingarfulltrúar hafa fjallað um
þann vanda sem nú er við að etja
innan byggingariðnaðarins og telja
að eftirfarandi atriði þarfnist strax
úrbóta:
{ fyrsta lagi verði þegar hafist
handa við endurskoðun byggingar-
laga og byggingarreglugerðar.
í öðru lagi verði unnið markvisst
að því að upplýsa almenning um
þýðingu byggingareftirlits til að eyða
þeirri tortryggni sem nú virðist ríkja
milli aðilanna.
I þriðja lagi verði embætti bygg-
ingarfulltrúa efld þannig að þau geti
betur sinnt þeim störfum sem þeim
er falið samkvæmt gildandi lögum
og reglugerðum.
í fjórða lagi verði hert eftirlit með
steypugerð og húsciningafram-
leiðslu.
(Fréttatilkynning)
Bæjarstjórnin samþykkir samhljóða:
Fjórhjól ei meir
á Seltjarnarnesi
Bæjarstjórnin á Seltjarnarnesi
samþykkti samhljóða á bæjar-
stjórnarfundi fyrr { vikunni að
banna alla umferð fjórhjóla innan
Seltjarnarness.
„Nesið er bara svo þröngt og hér
eru viðkvæmir staðir, náttúru-
fræðilega séð, þannig að það er
bara ekki möguleiki á að gefa
eigendum hjólanna tækifæri til að
stunda sínar íþróttir hér,“ sagði
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri í
samtali við Tímann.
Sveitarfélögin munu væntanlega
hefja samstarf um að finna svæði
handa fjórhjólamönnunum. En
þangað til það er fundið verða þeir
að halda sig frá Seltjarnarnesinu
og Mosfellssveit, þvi óskað verður
aðstoðar lögreglu við að framfylgja
banninu. ca.