Tíminn - 30.06.1987, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Þriöjudagur 30. júní 1987.
Tjmirm
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU 0G FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Fr&mkvæmdastjóri
Ritstjórar:
Aöstoðarritstjóri:
Fréttastjórar:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
Indriöi G. Þorsteinsson ábm.
IngvarGislason
NíelsÁrniLund
OddurÓlafsson
Birgir Guðmundsson
Eggert Skúlason
Steingrímur G íslason
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306,
íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild
Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild)
og 686306 (ritstjórn).
Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.-
Stjórnarmyndunar-
viðræður
Alþingiskosningar fóru fram 25. apríl sl. og lauk með
þeim úrslitum að ríkisstjórnin missti meirihluta sinn á
Alþingi. Ástæðan fyrir því var sú að Sjálfstæðisflokkur-
inn gekk klofinn til kosninga og missti mikið kjörfylgi.
Auk þess urðu kosningaúrslitin að öðru leyti ruglingsleg
og gáfu ekki tilefni til bjartsýni um að auðvelt yrði að
mynda ríkisstjórn.
í reynd hefur það einnig orðið svo að þótt sleitulaust
hafi verið unnið að því formlega og óformlega að mynda
starfhæfa meirihlutastjórn þá hefur sú viðleitni ekki
borið árangur. Meginástæðan er auðvitað sú að stjórn-
málaflokkarnir eru of margir og smáir til þess að auðvelt
sé að fá þá til að vinna saman í ríkisstjórn. Þá kemur
það einnig til að flokksleg eindrægni er á hverfanda
hveli í sumum stjórnmálaflokkanna og eru Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðubandalag þar skýrust dæmi.
Nú eru nærfellt fjórar vikur síðan forseti íslands fól
Jóni Baldvini Hannibalssyni formanni Alþýðuflokksins.
að vinna að myndun ríkisstjórnar. Hefur hann sinnt því
verki en ekki haft erindi sem erfiði og skilað umboðinu
fyrir sitt leyti.
Langlengst þessara fjögurra vikna hafa stjórnarmynd-
unarviðræðurnar verið milli þriggja stærstu flokkanna,
Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins. Áður hafði augljóslega gætt þeirrar stefnu af
hálfu Jóns Baldvins að ganga út frá því sem gefnu að
Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur myndu eiga auð-
velt með að ná samstöðu um stjórnarstefnu og þá gert
ráð fyrir að reyna stjórnarmyndun með öðrum en.
Framsóknarflokknum sem þriðja aðila.
Þetta snerist að ýmsu leyti við eftir að þessir flokkar
fóru að tala saman. Má óhætt fullyrða að þegar til
kastanna kemur þarf ekki að vera neitt óbrúandi bil
milli Framsóknarflokks og Alþýðuflokks fremur en
annarra stjórnmálaflokka.
Hér er ekki að sinni gerlegt að gera stjórnarmyndun-
arviðræðunum full skil, enda ekki fullséð þegar þetta er
ritað, hvernig þeim muni endanlega ljúka. Þó er
nauðsynlegt að geta þess að stjórnarmyndunarviðræð-
urnar þurftu ekki að stranda á tillögum Framsóknar-
flokksins um ráðherrafjölda hvers flokks eins og gefið-
er í skyn í fréttum. Megintillaga Framsóknarflokksins
hefur verið að flokkarnir hefðu jafnmarga ráðherra
hver, samtjíls yrðu 9 ráðherrar í ríkisstjórninni, en
hvorki 10 né 11.
Pá er vert að vekja athygli á því að Framsóknarflokk-
urinn var tilbúinn að samþykkja að formaður Sjálf-
stæðisflokksins yrði forsætisráðherra og engin andstaða
gegn því í Framsóknarflokknum að forseti Sameinaðs
þings yrði úr Sjálfstæðisflokknum eins og verið hefur.
Steingrímur Hermannsson með þingflokk Framsókn-
arflokksins að baki sér hefur lagt sig fram um að af
stjórn þessara þriggja flokka mætti verða. Ef svo fer að
lokum að slíkt samkomulag næst ekki, þá er komin upp
ný staða í stjórnarmyndunarviðræðum. Framsóknar-
flokkurinn mun að sjálfsögðu meta stöðuna eins og hún
þá liggur fyrir. Síst er ástæða til að fagna því, ef slitnar
upp úr núverandi viðræðum um þriggja flokka stjórn.
Ábyrgir stjórnmálaforingjar munu þá leita nýrra leiða,
ef sú leið bregst.
1 GAfíRI
SPAD0MURINN
REYNDIST RÉTTUR
I’cgar cflir kosningar, spáðu
hclstu stjórnmálaspekúlantar
þcssa lands því að erfitt myndi.
reynast að mynda nýja ríkisstjórn.
Ljóst var að til þcss þyrfti a.m.k.
samkomulag þriggja flokka og auk
þess sem erfiðara gat reynst; aö
persónulegar sættir tækjust milli
einstakra manna og flokka.
Spádómur þessara manna hefur
reynst réttur. Þrátt fyrir langa og
stranga fundi allra þcirra stjórn-
málaafla sem nú eiga sæti á Alþingi
virðist engin lausn vera í sjónmáli.
Maraþonfundur
Lengsta samfcllda tilraunin hófst
rétt eftir sunnudagssteikina í fyrra-
dag og stóð fram á mánudagsnótt.
Þar áttust við Alþýðuflokkur,
Frainsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur. Eftir því sem næst
-verður komist gengu ótal tiliögur
milli flokkanna um skiptingu ráð-
herraembættanna og þar með
stjórnun landsmálanna án ár-
angurs.
Einhvcrjir kunna að halda að cf
samkoinulag um ráðherraembætti
hefði náðst væri björninn unninn.
Svo er þó alls ekki. Vitað er að
þessir stjórmálaflokkar ciga eftir
að ganga frá málefnasamningi sín
á milli og er að heyra á ýmsum
fraináinönnum að það gæti reynst
þrautin þyngri að ná sáttum um
það plagg.
Þá má ekki gleyma því að cndan-
lega þurfa flokkarnir að fá sam-
þykki sinna miðstjórna, flokksráða
eða hvað það nú allt heitir áður en
endanlcga verður gengið frá mynd-
un ríkisstjórnar.
Þjóðin bíður
Fullyrða má hins vegar að þjóðin
er að verða langeygð eftir að ný
ríkisstjórn taki við völdum. Ekki
svo að skilja að sú sem nú situr sé
ekki nógu góð, hcldur af þeirri
ástæðu að eftir hverjar kosningar á
ný að taka við völdum og þjóðin er
ckkcrt síður spcnnt en ráðherr-
aefnin að fá að vita hvcrjir fái
stólana.
Nógur fréttamatur
Stjórnmálaþófið iiefur rækilega
verið kynnt í fjölmiðlum. Að lokn-
um hverjum fundi hafa lciðtogarnir
verið króaðir af og spurðir álits. í
fæstum tilvikum licl'ur nokkuð ver-
ið á svörum þeirra að byggja enda
í flestum tilvikuin bundnir þagnar-
heiti um gang viðræðnanna. Það
breytir þó engu uni að fréttamcnn
láti ckki álit sitt í Ijós og frétta-
skýringum spreðað yfir landslýð.
Allt er það til skcmmtunar gert og
heldur landanum vakandi.
Hurðin á Aiþingishús-
inu - Húnninn í Höfða
I fyrrakvöld var til að niynda
bein útsending af vígvellinum.
Fjöldi fréttamanna og Ijósmyndara
safnaðist saman fyrir framan Al-
þingishúsið, horfði á dyrnar og
spáði í spilin. Óneitanlega ininnti
þessi uppákoma á það þegar þjóðin
horfði heilan dag á hurðarhúninn í
Höfða sælla minninga, og niður-
staðan varð reyndar svipuð. Eng-
inn sjáanlegur árangur, frekari við-
ræður ekki ákvcðnar og vonbrigði
meðal almennings.
Því skal hins vegar ekki trúað en
að eitthvað hafi komið út úr við-
ræðunum. Varla geta 50 manns
setið í 12 klukkustundir á fundi án
þess að nokkuð hafi gerst.
Garri í ráðherrastól
Garri játar að hann var forvitinn
eins og aðrir og varð fyrir nokkrum
vonbrigðum. Þó sér hann Ijósan
punkt í þessu öllu saman. Sum sé
þann að ef viðræður stjórnmála-
mannanna lciða ekki til neins þá
vcrður annað tveggja kosið upp á
nýtt og það flnnst Garra gaman og
svo hitt sem ekki er síður spenn-
andi að mynduð verði utanþings-
stjórn. Þar nicð gætu ólíklegustu
menn allt í einu orðið ráðherrar,
meira að segja Garrí. Þá yrði nú
gaman að lifa.
VÍTTOG BREITT
Kreppa í góðæri
Níu vikna, hörkuspennandi við-
ræður hafa nú staðið yfir um mynd-
un ríkisstjórnar. Fjölmiðlamergðin
hefur gert sér mikinn mat úr atinu
og haldið fólkinu í landinu við
efnið með því að láta líta svo út að
keppninni sé um það bil að Ijúka
og að á hverri stundu sé ný ríkis-
stjórn rétt að skreppa í liðinn.
Vakað er yfir hverju fótmáli
stjórnmálaforingjanna og þeir yfír-
heyrðir látlaust um gang mála og
fréttaskýringar eru gefnar á stund-
inni. Þegar hvað best liggur á
fréttamönnum útvarpa þeir beint,
jafnvel um miðjar nætur, og þá er
heldur leiðinlegt að vera sofandi
og fá.ekki nýjustu fréttir af stjórn-
armyndunum fyrr en maður vaknar
að morgni.
í níu vikur samfleytt hefur tekist
að láta eins og að lokaspretturinn
í ráðherrastólana standi yfir og
keppninni sé rétt að ljúka.
Sigur og platsigrar
Flestir eru nú búnir að gleyma
úrslitum alþingiskosninganna og
áherslur f stjórnarmyndunum
orðnar allt aðrar en þegar kosn-
ingatölur voru lagðar til grundvall-
ar.
Fyrst í stað máttu stjórnmálafor-
ingjar og fréttarskýrendur vart
vatni halda af hrifningu yfir stór-
sigri femínista og voru kosningarn-
ar túlkaðar sem vilji þjóðarinnar til
að þær tækju við stjórnartaumum.
Aðrir kosningasigrar voru bara
plat.
Maður gekk undir manns hönd
að fá að taka þátt í ríkisstjórn með
sigurvegurunum en einhvem veg-
inn runnu þeir tilburðir allir út í
sandinn, en enginn hinna hrygg-
brotnu vonbiðla hefur mannað sig
upp í að gefa neina skýringu á
hvers vegna þeir gengu bónleiðir
til búða.
En íslenskir femínistar halda
áfram sigurgöngunni um víða ver-
öld og eru orðnir slíkir alheims-
söngvarar að frægð þeirra berst
nær einvörðungu að utan.
Þar eru línur lagðar um hvemig
kvenþjóðirnar eiga að koma ár
sinni fyrir borð til að mark sé á
þeim takandi.
Sigurgangan um veröldina hefur
algjörlega skyggt á að brotið var
blað í stjómmálasögu Bretaveldis,
er forsætisráðherra þar náði þing-
meirihluta þriðja kjörtímabilið í
röð. Ekki hefur það heldur vakið
neina athygli að sá sigurvegari
gengur að jafnaði í pilsi.
Á hluta þess tíma sem stjórnar-
myndun hefur staðið yfir í höfuð-
vígi femínista, boðaði frú Thatcher
til kosninga, vann þær, myndaði
nýja ríkisstjórn og þingið er sest á
rökstóla.
Engar sögur fara af því að kven-
skörungur hafi nokkur áhrif í
stjórnmálum heimsveldisins eða
standi þar uppi sem sigurvegari.
Að minnsta kosti ekki í landi þar
sem barist er leynt og ljóst fyrir
kynskiptingu í pólitík og sigurveg-
arar eru metnir eftir kyni en ekki
atkvæðamagni.
Vökunætur framundan
Eftir að femínistar gufuðu upp
úr íslenskri pólitík og tóku sér
stöðu í þeirri alþjóðlegu hefur lítið
borið á að þingflokkarnir eru sex
talsins. Þeir þrír sem Jón Baldvin
hefur verið að reyna að bræða
saman eru einir í umræðunni.
Alþýðubandalagsmenn eru svo
uppteknir að berja hver á öðmm,
að þeir em stikkfrí í landsmálum,
enda eiga þeir nóg með eigin
vandræði, þótt þeir fari ekki líka
að fást við vandamál þjóðarinnar.
Borgaraflokkurinn er feimnism-
ál, sem enginn tekur i' mál að hafí
unnið kosningasigur og því síður
að það taki að ganga á eftir honum
með grasið í skónum til neins
konar fylgilags.
Kaflaskipti virðast nú vera (
tilraunum til stjómarmyndunar og
nýtt blóð hleypur þá væntanlega í
fréttaskýringar og þá verður maður
að passa sig að sofa ekki of fast á
næturnar til að missa ekki af bein-
um útsendingum með lýsingum af
kappleiknum.
Það er annars skrýtið að mitt í
öllu góðærinu þegar yflrfljótandi
smjör drýpur af hverju strái og allt
leikur í lyndi til lands og sjávar,
skuli hvergi vera kreppa nema í
landsstjórninni. OÓ