Tíminn - 30.12.1987, Blaðsíða 5
Tíminn 5
Sænsku konungshjónin komu í opinbera heimsókn til
(slands. Hér má sjá Karl Gústaf ræða við Vigdísi Finnbogadóttur.
Silvía drottning stendur ( bakgrunni. (Tím»mynd Pétur)
svaf í húsinu bjargaði sér naumlega
með því að kasta sér út um glugga.
Illa brunninn og skorinn af glerbrot-
um náði hann til nágranna sinna.
Júní
Stjórnarmyndunarþref
Júnfmánuður einkenndist öðru
fremur af tilraunum til stjórnar-
myndunar. Jón Baldvin Hannibals-
son fékk umboð til stjórnarmyndun-
ar 2. júni eftir að Þorsteinn Pálsson
hafði skilað forseta Islands umboð-
inu. Jón Baldvin hóf viðræður við
Sjálfstæðisflokk og Framsóknar-
flokk um þriggja flokka samsteypu-
stjórn. Viðræður þessar stóðu út
mánuðinn og gekk ýmislegt á.
Síðasta dag júnímánaðar mátti
lesa á forsíðu Tímans að valdahlut-
föll innan fyrirhugaðrar ríkisstjórnar
hindri samkomulag þessara þriggja
flokka. Á baksíðu mátti lesa um
athugun Steingríms Hermannssonar
á myndun fjögurra flokka stjórn
Framsóknarflokks, Alþýðubanda-
lags, Borgaraflokks og Kvennalista.
En júnímánuður leið án þess að
stjórn væri mynduð.
Flokksforysta óvirk og
formaður einangraður
Eftir afhroð í Alþingiskosningun-
um setti Sjálfstæðisflokkurinn á fót
nefnd sem falið var að finna orsakir
ófaranna. Niðurstöður nefndarinnar
var sú að Þorsteinn Pálsson formað-
ur væri einangraður í fílabeinsturni
og flokksforystan væri óvirk.
840 grömm af ágreiningi
Það var ekki bara í Sjálfstæðis-
flokknum sem naflaskoðun fór fram
eftir kosningarnar. Alþýðubanda-
lagið fól sex af forustumönnum sín-
um að gera skýrslu sem skýrði afhroð
bandalagsins. Skýrslurnar vógu 840
grömm og sýndist sitt hverjum, en
ágreiningur var greinilegur.
Fyrsta
ferskfiskuppboðið
Fyrsta ferskfiskuppboð á íslandi
var haldið mánudaginn 15. júní í
Fiskmarkaðnum hf. í Hafnarfirði.
Þar með hófust nýir viðskiptahættir
í ferskfiskkaupum.
Þuklarar á Alþingi
í könnun blaðsins Vinnunnar og
Iðju á Akureyri kemur í Ijós að
þriðja hver iðnverkakona á Akur-
eyri hefði þolað kynferðislegt áreiti
á vinnustað. Einnig var birt bréf í
Vinnunni þar sem fyrrverandi síma-
stúlka á Alþingi segir frá því að
símastúlkur þar hafi þurft að sitja
undir „þukli“ og „blautlegum
kveðskap". Um þetta mátti lesa í
Tímanum 23. júní. Daginn eftir var
birt viðtal við sfmastúlku í Alþingi
og sagðist hún ekki hafa verið þukl-
uð í þau tuttugu ár sem hún hefur
starfað við Alþingi.
Erfiðleikar í
aðsigi í hvalveiðum
Ársfundur hvalveiðiráðsins var
haldinn í Bournemouth í júnímán-
uði. Það voru dökkar fréttir sem
Naflaskoðunarskýrslur
Alþýðubandalagsins vógu 840
grömm. (Tímumynd Pélur)
íslendingar fengu af fundinum þar
sem Bandaríkjamenn lögðu áherslu
á að koma í veg fyrir vísindaveiðar
Jslendinga. Bandaríkjamenn höfðu
sitt fram í Bournemouth og virtust
því erfiðleikar vera í aðsigi í hval-
veiðunum.
Svíakóngur í heimsókn
Karl XVI Gústav Svíakonungur
og Sylvía kona hans komu í opinbera
heimsókn 24. júní
Syndin í stórsókn
Á sama tíma og prestastefna var
haldin í Borgarnesi undir yfirskrift-
inni „Hjónaband í þjóðfélagi nútím-
ans“ mátti lesa úr Hagtíðindum að
syndin væri í stórsókn, því að í 36%
barnafjölskyldna eru foreldrar í
óvígðri sambúð og einstæðir foreldr-
ar teljist 27% af barnafjölskyldum í
borginni. Því eru innan við 40%
foreldra í hjónabandi.
Júlí
Ny rikisstjórn
Ný ríkisstjórn undir forsæti Þor-
steins Pálssonar tók við völdum
8.júlí, 42 dögum eftir Alþingiskosn-
ingar. Jón Baldvin skilaði af sér
umboði til stjórnarmyndunar eftir
að samkomulag hafði nást milli
flokkanna um stjórnarsamstarf og
skiptingu ráðuneyta. Forseti íslands
veitti Þorsteini Pálssyni umboðið
2.júlí og var stjórnarsáttmáli sam-
þykktur af valdastofnunum flokk-
anna þriggja 4.júlí.
Athygli vekur að 7 af 11 ráðherr-
um nýrrar ríkisstjórnar koma af
suðvesturhorninu, allir Alþýðu-
flokksráðherrarnir, 3 af 4 Sjálfstæð-
isráðherrum og 1 af 4 Framsóknar-
ráðherrunum.
Vestfirðingar drýgstir
við kvótasölu
Vestfirðingar hafa verið drýgstir
við að selja fiskveiðikvóta úr heima-
héraði. Þetta kom fram í skýrslu
sjávarútvegsráðuneytisins sem fjall-
að var um í Tímanum ll.júlí.
Vindur varði
íbúðahverfi í bruna
Vindátt varði íbúðarhverfi í
grennd við verksmiðju Málningar
hf. í Kópavogi þegar verksmiðjan
brann til kaldra kola 13.júlí. Vöntun
á vatnshönum hindraði slökkvistarf.
Hjólað í kerfið
Jón Kristinsson sem hjólaði í
kringum landið til að safna fé til
hjúkrunarheimilis aldraðra á Akur-
eyri hjólaði í kerfið og kærði með-
ferð á umferðarlagabroti til mann-
réttindardómstólsins í Strassborg.
Jón hafði verið kærður fyrir umferð-
arlagabrot og dæmdi lögreglustjóri
Jón til að greiða sekt. Jón áfrýjaði til
Hæstaréttar á þeim forsendum að
dómur hafi verið hlutdrægur þar
sem yfirmaður dómsvalds var einnig
yfirmaður framkvæmdavalds.
Hæstiréttur staðfesti dóm héraðs-
dóms í meginatriðum svo Jón áfrýj-
aði til mannréttindadómstólsins.
Þetta kom fram í Tímanum Í8.júlí.
Þegar Tíminn grennslaðist eftir
áhrifum kæru Jóns kom í ljós að ef
mannréttindadómstóllinn dæmdi
Jóni í hag þarf að fjölga embættis-
mönnum verulega á íslandi.
Ættuppí sjúkrakostnaði
Gerður hefur verið samanburður
á kostnaði og notkun á heilbrigðis-
þjónustu í Stokkhólmi og Reykja-
vík, þar sem byggt er á upplýsingum
frá árunum ’82 til ’85. Kom í ljós að
íslendingar fara fram úr Svíum í
sjúkrakostnaði og hjá okkur æðir
upp sjúkrakostnaður samfara auk-
inni sjúkrahúslegu. Hins vegar tók
Þökkum starfsfólki, sjómönnum
og öðrum viðskiptavinum okkar gott
samstarf og viðskipti á liðnum árum.
m
m