Tíminn - 30.12.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn
mánuðum og tók til við að vitna
í málinu er tengdist vopnasölu
Bandaríkjastjórnar til Irans og
fjárstuðningi til Contra skæru-
liðanna í Nicaragua. Ollie
North, fyrrum starfsmaður
þjóðaröryggisráðsins og einn
lykilmaðurinn í málinu, sagðist
vera kominn til að segja sann-
leikann hvort sem hann væri
góður, slæmur eða mjög slæmur.
Svokölluð „Olliemanía" braust
út þá sex daga sem North var í
vitnastúkunni og seldust brúður
af kappanum og annað dótarí í
tengslum við hann eins og heitar
lummur.
Þótt þingið hefði ályktað að
Reagan forseti yrði að axla
ábyrgðina vegna mistaka
undirmanna sinna í þessu máli
kom þó ekkert það fram sem
veikti forsetann það mikið að
embætti hans væri í hættu og
Íiegar leið á árið virtist sem
ransmálið væri að falla í
gleymsku.
Efnahagsvandinn sem skók
heimsbyggðina var áberandi
strax í byrjun árs og varð stöðugt
alvarlegri. Fésýslumenn höfðu
áhyggjur af fjárlagahallanum í
Bandaríkjunum sem og því að
þótt bandaríski dalurinn hefði
verið að lækka í verði gagnvart
öðrum helstu gjaldmiðlum
heims síðan árið 1985 virtist það
ekki duga til að draga úr hinum
gífurlega viðskiptahalla þessarar
skuldugustu þjóðar heims.
Það var svo í október sem
fésýslumenn ákváðu að selja
frekar en taka áfram þátt í
fjárfestingaleiknum. Þann 19.
október, eða á „svarta mánu-
deginum" eins og hann var fljótt
kallaður, féllu hlutabréf í verði
um 22,6% á mörkuðum í Wall
Street eða Virkisstræti í New
York. Álíka verðhrun fylgdi í
kjölfarið á öðrum mörkuðum og
í lok ársins hafði Bandaríkjadal-
Tveirvaiaamestu menn heims munduðu penna sína vestur í Washington og skrifuðu
undir fyrsta sáttmála risaveldanna um raunverulega kjarnorkuvopnafækkun
ERLENDUR
ANNÁLL
1987
Fundur milli tveggja valda-
mestu manna heims og undirrit-
un fyrsta samkomulags risaveld-
anna um raunverulega kjarn-
orkuvopnafækkun varð til þess
að bjartsýni var ríkjandi í al-
þjóðasamskiptum í lok ársins
sem er að líða. Leyfðu sér
margir að vona að ný og stöðug-
ari þíða í samskiptum stórveld-
anna tveggja, Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna, væri nú gengin í
garð.
Bjartsýni var þó ekki alls
staðar fyrir hendi þótt leiðtogar
hinna heimsvaldasinnuðu stór-
velda tækjust í hendur í Was-
hington í desembermánuði og
brostu framan í heiminn. í Afr-
íku hafði almenningur litla
ástæða til að brosa, hungrið
ógnaði áfram lífi milljóna
manna þar í álfu.
Fésýslumenn heimsins gripu
einnig margir fyrir hjartað og
reyttu hár sitt og skegg í okt-
óbermánuði þegar verðhrunið í
kauphöllunum varð til þess að
tvö þúsund milljarðar dala í
pappírspeningum urðu að engu.
Ronald Reagan Bandaríkjaf-
orseti og Mikhail Gorbatsjov
Sovétleiðtogi sögðu á fyrsta degi
viðræðna sinna í Washington í
þessum mánuði að þeir vildu
vinna að betri samskiptum og
draga úr átökum milli þeirra
pólitísku kerfa sem þjóðirnar
eru fulltrúar fyrir.
Leiðtogafundurinn kom á
góðum tíma fyrir Reagan
Bandaríkjaforseta sem hafði
þurft að fást við mörg vandamál-
in á árinu þ.á m. íranshneykslið
svokaliaða og efnahagserfið-
leika ýmiskonar. Hann þurfti
einnig að sjá á bak meirihlut-
avaldi repúblikana í öldunga-
deildinni í janúarmánuði auk
þess sem hann og kona hans
Nancy þurftu að gangast undir
uppskurði á árinu, aldurinn er
farinn að segja til sín hjá þessum
76 ára gamla fyrrum kvikmynda-
leikara í Hollywood.
Ekkert óvænt gerðist á leið-
togafundinum en merkilegur var
hann sökum þess að undirritað
var samkomulag sem gerir ráð
fyrir eyðingu allra meðaldrægra
og skammdrægari kjarnorku-
flauga risaveldanna. Þeir Reag-
an og Gorbatsjov sögðu einnig
að miðað hefði áleiðis í viðræð-
um um helmingsfækkun helstu
helvopna heims, langdrægra
kjarnorkuvopna.
Reagan þurfti eins og áður
sagði að taka á mörgum vanda-
málunum á þessu næst síðasta
ári sínu í valdastóli í Hvíta
húsinu. Demókratar komust í
meirihluta á þingi og gerðu for-
setanum lífið leitt á margan
hátt. Þeir gagnrýndu hann t.d.
harkalega fyrir að senda herskip
til verndar olíuflutningaskipum
Kúvaitbúa í Persaflóa og komu
í veg fyrir að tveir menn sem
hann vildi fá í hæstarétt landsins
yrðu útnefndir til embættisins.
Reagan féll þó í skuggann
þegar Oliver North steig fram
fyrir sjónvarpsvélarnar á vor-
Oskum starfsfólki og viðskiptavinum
Gleðilegs nýárs
Þökkum golt samstarf og viðskipti
á árinu sem er að líða
Hraðfrystihús
Kaupfélags
Steingrímsfjarðar, Hólmavík
Oskum starfsfólki og viðskiptavinum
Gleðilegs nýárs
Þökkum gotl samstarf og viðskipti
á árinu sem er að liða
Hraðfrystihús
^_________Drangsness hf.__________